Þjóðviljinn - 05.05.1984, Qupperneq 26
26 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN! Helgin 5. - 6. maf 1984
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Munið
vorhappdrættið!
Dregið 10. maí!
Gerið skil
sem fyrst!
Stjórn ABR.
Aðalfundur 3. deildar ABR
Laugarnes- og Langholtsdeild
Aðalfundur 3. deildar ABR verður haldinn þriðjudaginn 8. maí kl. 20.30
í flokksmiðstöðinni, að Hverfisgötu 105. - Stjórn 3. deildar.
Aðalfundur 4. deildar ABR
Grensásdeild
Aðalfundur 4. deildar ABR verður haldinn fimmtudaginn 10. maí kl.
20.30 að Hverfisgötu 105. - Stjórn 4. deildar.
Aðalfundur 5. deildar ABR
Breiðholtsdeild
Stjórn 5. deildar ABR boðar til aðalfundar í deildinni miðvikudaginn 9.
maí kl. 20.30 í Gerðubergi. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2.
Svavar Gestsson kemur á fundinn og ræðir stjórnmálaástandið. 3.
önnur mál. Fjölmennum. - Stjórn 5. deildar.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Bæjarmálaráð
Fundur verður í bæjarmálaráði Alþýðubandalagsins á Akureyri mánu-
daginn 8. maí kl. 20.30 í Lárusarhúsi.
Sagðar fréttir af ráðstefnu AB um sveitarstjómarmál. Auk þess eru mjög
mikilvæg mál á dagskrá.
Félagar fjölmennið. - ABA.
Alþýðubandalagið
í Borgarnesi
Skírnarhátíð
Óskabarnið okkar að Brákarbraut 3 hefur staðið nafnlaust of lengi, og
er nú mál að linni. Föstudaginn 11. maí verður haldin vegleg skirnar-
hátíð í húsinu og hefst hún kl. 21. Góðarveitingarverðafram bornarog
boðið uppá fjölbreytt skemmtiefni. Meðal annars leikur nýstofnuð
jasshljómsveit Gunnars Ringsted. Hafið samband í síma 7628 eða
7506. Allir velkomnir. - Alþýðubandalagið í Borgarnesi.
Sveitarstjórnarráðstefna
Sveitarstjórnarráðstefna Alþýðubandalagsins, sem hófst í gærkvöldi
verður fram haldið í dag, laugardag og á morgun sunnudag, á Hverfis-
götu 105, Reykjavík. í dag kl. 9 -12 verður unnið í starfshópum og kl.
13.30-16.30 verða almennar umræður. ( fyrramálið verður fjallað í
þremur hópum um Fræðslumál, Félagsmál og Umhverfismál kl. 9-12
og eftir hádegi kl. 13.30-15.30 sitja eftirtaldir sveitarstjórnarmenn fyrir
svörum: Adda Bára Sigfúsdóttir, Björn Ólafsson, Kristinn V. Jóhanns-
son og Sigurjón Pétursson.
Barnagæsla verður eftir hádegi á laugardag og sunnudag.
Ráðstefnan er opin öllum áhugamönnum um sveitarstjórnarmál.
Þingeyingar
Almennir fundir um landbúnaðarmál, utanríkismál og
stjórnmálaviðhorfið verða á:
Kópaskeri í dag, laugardag 5. maí kl. 14.00 og
Ýdölum á morgun, sunnudag 6. maí kl. 14.
Á fundina koma Ríkharð Brynjólfsson, kennari, Hvanneyri og alþingis-
mennirnir Helgi Seljan og Steingrímur J. Sigfússon. Allir velkomnir. -
Alþýðubandalagið.
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
Reggie-kvöld
Föstudaginn 11. maí kl. 20.30 verður minningarkvöld um Bob Marley á
þriggja ára dánarafmæli hans. Jónatan Garðarsson mun kynna tónlist
hans, líf og trú á Jamaica. Allir Reggie-aðdáendur velkomnir á Hverfis-
götu Í05 n.k. föstudag. - Nefndin.
Vinsamlega sendið eða hringið inn augiýsingar í' þennan
dálk fyrir klukkan 16 daginn áður en þær eiga að birtast og
taiið við Einar Karl eða Álfheiði. - Ritstjórn.
Steinunn Bergsteinsdóttir textílhönnuður og Kolbrún Björgólf sdótt ir leirlistarmaður kynna fatnað og skartgripi
á sýningu í Gallerí Langbrók sem hefst í dag. Mynd - eik.
Kynning á verkum tveggja Langbróka hefst í dag
Gangandi sköpun
„Við höfum mikla ánægju af því
að búa til listaverk sem fólk ber
með sér hvert sem það fer“, sögðu
Kolbrún Björgúlfsdóttir leirlista-
maður og Steinunn Bergsteinsdótt-
ir textflhönnuður við Þjóðviljann
þegar þær voru að setja upp kynn-
ingu á verkum sínurn í Gallerí
Langbrók í gær.
Steinunn kynnir handmálaðan
Um 20 andlegir og líkamlegir öryrkj-
ar fá hvergi viðunandi vistun
Engin lausn
í sjónmáli
segir heilbrigðis-
ráðherra sem
sagðist vera
búinn að
leysa málið
„Það er athyglisvert að það
virðist ekki vera neinn ág-
reiningur um það á stjórnar-
heimilinu að vandi u.þ.b. 20 ís-
lendinga sem hafa orðið hvað
verst úti í slysum verði í engu
leystur. Þetta harma ég“, sagði
Guðrún Helgadóttir alþm. á al-
þingi í gær.
Stjórnarliðar samþykktu með
nafnakalli með 25 atkvæðum gegn
19 að vísa til heilbrigðis- og féiags-
málaráðuneytis tillögum Helga
Seljan og fjögurra annarra stjóm-
arandstöðuþingmanna um að
vandi þeirra öryrkja sem sakir and-
legrar og líkamlegrar fötlunar eiga
örðugt um vistun á þeim stofnun-
um sem fyrir eru, verði leystur með
því að efla stuðning við hjúkrun í
heimabyggð eða stofnun sérdeildar
við ríkisspítala.
í bréfi sem allsherjarnefnd barst
vegna þessa máls frá heilbrigðis- og
tryggingaráðherra kom fram að
fulltrúi ráðuneytisins í stjórnar-
nefnd um málefni þroskaheftra og
öryrkja hefði flutt tillögu um að
slík sjúkradeild fyrir 6 - 10 sjúk-
linga yrði stofnuð við Kópavogs-
hæli og væri lausn þessa máls því í
sjónmáli.
Guðrún Helgadóttir og Helgi
Seljan sögðu að hér væri um enga
lausn að ræða, Kópavogshæli væri
enginn staður til að taka við þessu
fólki, þar þyrfti að fækka vist-
mönnum og bæta alla aðstöðu frá
sem nú er. Kröfðu þau heilbrigðis-
ráðherra svara um hvernig hann
ætlaði að leysa þetta mál. Ráð-
herra gaf engin svör en tók fram að
það væri ofmælt að lausn væri í
sjónmáli.
Það vakti athygli við atkvæða-
greiðslu málsins að Stefáni Bene-
diktssyni sem skrifað hafði undir
nefndarálit meirihluta allsherjar-
nefndar um að vísa tillögunni til
ráðuneytanna snérist hugur og
greiddi hann atkvæði gegn tillögu-
nni þar sem ekki væri ljóst hvemig
leysa ætti þetta brýna vandamál.
Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráðherra sat hjá við at-
kvæðagreiðsluna.
-•g-
fatnað úr bómull ásamt flíkum úr
íslensku eingirni og Kolbrún kynn-
ir handmótaða skartgripi úr postu-
líni.
„Ég hef verið að undirbúa þessa
‘sýningu í vetur jafnhliða fullri
vinnu hjá Hildu hf. Ég er með
| peysur úr eingirni og jakka og vesti
; úr bómull sem ég mála og þrykki á.
Ég ætlaði mér alltaf að vinna með
þrykk en hef nú í 6 ár starfað við
ullina og hef hana því með núna“,
sagði Steinunn Bergsteinsdóttir.
Hún hefur nýlega sett upp eigin
vinnustofu en í vetur vann hún við
verk sín heima á stofugólfi (ef til
vill með aðstoð barnanna sem em
10 mánaða og 7 ára).
Kolbrún Björgúlfsdóttir býr í
Búðardal og hefur í vetur unnið við
; gerð skartgripa úr postulíni í sam-
vinnu við Magnús Kjartansson sem
teiknaði í suma skartgripina. Þetta
eru hálsfestar, eyrnalokkar og
armbönd sem Kolbrún fullyrti að
væm alls ekki brothætt. „Ég hef
aldrei fyrr unnið við gerð skart-
gripa. Þetta er óskaplega gaman.
Venjulega er maður að gera
eitthvað sem fólk stillir upp hjá sér
en það er miklu persónulegra að
sjá að maður er að gera eitthvað
sem fólk vill hreinlega ganga með
hvert sem það fer, eins konar gang-
andi sköpun. Geysiskemmtileg
stemmning að sjá fólk máta það
sem maður hefur verið að gera og
kemur því beinlínis við“, sagði
Kolbrún.
Sýningin í Gallerí Langbrók
verður opin frá kl. 12 virka daga en
kl. 14 -18 um helgar. Aðgangseyrir
er enginn en verkin em öll til sölu.
Afmælishátíð Heklu
Afmælishátíð Heklu hf. sem
heldur upp á 50 ára afmæli sitt
þessa dagana, verður opin almenn-
ingi um helgina frá kl. 10 -17 í dag
og sunnudag. Á sýningunni eru
vömr sem þetta stóra innflutnings-
fyrirtæki hefur umboð fyrir og boð-
ið verður upp á ýmis
skemmtiatriði. Þá verða til sýnis
gamlir gripir úr innflutningssögu
Heklu hf. í gær var búið að koma
fyrir á planinu fyrir framan Heklu-
húsið á Laugavegi 170-172 ýmsum
vinnuvélum af Caterpillar gerð
sem fyrirtækið hefur umboð fyrir.