Þjóðviljinn - 05.05.1984, Side 27
Helgin 5. - 6. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27
Dregið í Blaðberahappdrætti Pjóðviljans 1984
Fimm blaðberar
til Danmerkur
Dregið var í Blaðberahappdrætti
Pjóðviljans í gær. Hver blaðberi
fékk 1 miða eftir að hafa borið út í
þrjá mánuði frá 1. okt. 1983 og síð-
an einn miða á mánuði til 1. apríl.
Vinningar voru fimm, allt vikudvöl
í sumarhúsum Samvinnuferða—
Landsýnar í Danmörku frá 15. -
22. júní. Baldur Jónasson af-
greiðslustjóri Þjóðviljans verður
fararstjóri í blaðberaferðinni til
Danmerkur.
Vinningsnúmerin eru þessi: 819,
923, 661, 355 og 547. Um leið og
Þjóðviljinn óskar vinningshöfum
til hamingju er þeim bent á að hafa
samband við afgreiðslustjóra
blaðsins hið fyrsta. - ekh
Davíð Olafsson
Skólaskákmeist-
s
ari Islands
Davíð Ólafsson tryggði sér
nafnbótina Skólaskákmeistari fs-
lands í eldri deild, í úrslitum sem
fram fóru um síðustu helgi á Bol-
ungarvík. Davíð er nemandi í
Hólabrekkuskóla í Reykjavík og
hefur nú um langan tíma verið
einn af okkar efnilegustu skák-
mönnum og miðað við þær fram-
farir sem hann hefur sýnt undan-
farið þarf þessi árangur ekki að
koma á óvart. Davíð hlaut 8 vinn-
inga af .9 mögulegum.
I öðru sæti varð annar efni-
legur, Þröstur Þórhallsson úr
Hvassaleitisskóla og hlaut hann
7V2 vinning. Þriðji varð svo Karl
O. Garðarsson frá Flúðaskóla
með 5V2 vinning.
Einnig var tefít í yngri deild og
varð Hannes Stefánsson, Fella-
skóla hlutskarpastur með 6'/2 af 8
mögulegum. Annar varð Birgir
ö. Birgisson, Borgarnesi, með
5Vz og þriðji Þröstur Árnason
Seljaskóla hlaut 5 vinninga.
Greinilegt er að mikil gróska er
í skáklífinu hjá yngri kynslóðinni
því alls tóku 3500 þátt í undanrás-
unum, þar af 1000 í Reykjavík.
Rósa Hrund Kristjánsdóttir, 4 ára, dró út vinningsnúmerin í blaðberahappdrætti Þjóðviljans 1984 að viðstödd-
um Baldri Jónassyni afgreiðslustjóra. Ljósm. eik.
Stóð Ragnars Kjartanssonar sem f tllraunaskyni var steypt í epoxysteypu hefur hvorki þolað veðráttuna né
titringinn frá umferðinni á Hringbraut. Það er að molna niður og kostnaður við að steypa verkið í varanlegt efni
er um hálf miljón króna. Ljósm. - eik.
Ný skýrsla um höggmyndir í borginni:
Þrjár nær ónýtar
Stöplarnir illa farnir af alkaliskemmdum
Fréttir úr borgarstjórn
„Það er sjálfsagður liður í.
fegrun borgarinnar fyrir 200
ára afmælið að gera við og
hreinsa og merkja höggmynd-
irnar í bænum og því þótti okk-
ur eðlilegt að fela afmælis-
nefndinni að hafa forgöngu um
það“, sagði Álfheiður Ingadótt-
ir sem á fimmtudag mælti fyrir
tillögu Alþýðubandalagsins í
borgarstjórn þar um. Tillög-
unni var vísað til umh verfismál-
aráðs.
í skýrslu sem tekin hefur verið
saman um höggmyndir í borginni
og ástand þeirra kemur fram að 3
höggmyndir eru nær ónýtar og
nauðsynlegt að steypa þær upp í
varanlegt efni. Þetta eru Stóð eftir
Ragnar Kjartansson við Hring-
braut, Piltur og stúlka eftir Ás-
mund Sveinsson í Fríkirkju-
vegsgarði og Hafmey Guðmundar
Einarssonar við Sundlaug Vestur-
bæjar. Að auki kemur fram að
a.m.k. 7 stöplar undir öðrum stytt-
um eru nær ónýtir af alkali-
skemmdum.
„Af þeim 73 höggmyndum sem
eru á almannafæri í borginni eru 21
í einkaeign eða ríkiseigu“, sagði
Álfheiður, „og það gæti verið kjör-
ið verkefni fyrir félagasamtök sem
gefið hafa styttur af ýmsum tilefn-
um að taka þátt í þessu átaki í til-
efni afmælisins. Kostnaður við
merkingu hverrar höggmyndar er
talinn um 2.500 krónur eða samtals
rúmlega 180 þúsund fyrir þær allar
og það er ekki óeðlilegt að eigend-
ur höggmynda kostuðu merking-
una og jafnvel hreinsun á sínum
styttum að hluta“.
f skýrslunni er talsvert fjallað um
spanskgrænu sem sumum finnst
lýti en öðrum eðlilegur hluti mynd-
verkanna. Nefndin sem tók saman
skýrsluna, þ.e. Hafliði Jónsson
garðyrkjustjóri, Þóra Kristjáns-
dóttir listráðunautur og Jón Gunn-
ar Árnason fulltrúi Myndhöggvar-
afélagsins. komst að þeirri niður-
stöðu að ekki skyldi hreinsa
spanskgrænu af höggmyndunum
og vitna þau til orða ýmissa mynd-
höggvara um eigin styttur svo og
sérfræðinga um viðhald högg-
mynda máli sínu til stuðnings.
Engu að síður er nauðsynlegt að
þvo fugladrit og annan ófögnuð af
höggmyndunum og hreinsa stöpla
þar sem spanskgræna hefur runnið
niður í taumum til mikilla lýta.
„Ég er hrædd um að lítið verði af
framkvæmdum fyrst málinu var
vísað til umhverfismálaráðs", sagði
Álfheiður að lokum. „Umhvefism-
álaráð hefur engar fjárveitingar til
þessara hluta og viðhald högg-
mynda heyrir ekki undir það, held-
ur embætti garðyrkjustjóra. Fjár-
veitingin í ár, 250 þúsund krónur,
dugir vart nema ti! að gera við tvær
styttur sem verið er að vinna við,
Klyfjahestinn í Sogamýri og Einar
Ben á Miklatúni. Með sama áfram-
haldi dugir ekki öldin til að ljúka
þessu verkefni".
Hækkanir hjá
SVR og sund-
stöðunum
Frá og með 4. maí hefur að-
gangur að sundstöðum verið
hækkaður um 25% og fargjöld
SVR hækkað um 14% og er m.a.
stefnt að því með þessum hækk-
unum að fyrirtækin standi undir
sér í auknum mæli. Fulltrúar
vinstri flokka greiddu atkvæði á
móti þessum hækkunum.
Laun í
Vinnuskóla
Reykjavíkur
Samþykkt var í borgarstjórn á
fimmtudag með atkvæðum meiri-
hlutans að laun í Vinnuskóla
Reykjavíkur í sumar verði 37.76
kr. á tímann fyrir 14 ára unglinga
en 42.76 kr. fyrir 15 ára unglinga.
Þetta er lægra hlutfall af lág-
markstekjutryggingu heldur en
verið hefur og munar þar rúmum
tveimur krónum á tímann. Full-
trúar Alþýðubandalagsins og
Kvennaframboðs báru fram til-
lögu um að sama hlutfall gilti og á
síðasta ári og studdi hana fulltrúi
Alþýðuflokks. Tillagan var felld
með atkvæðum meirihlutans en
fulltrúar Framsóknarflokksins
sátu hjá.
Deilt um
gervigras
Á sínum tíma var þýska fyrir-
tækinu Balsam falið að leggja hið
umdeilda gervigras á völl í
Laugardal. Þetta fyrirtæki hefur
hins vegar enga reynslu í lagningu
slíkra valla á norðlægum slóðum
en til stóð m.a. að það legði gervi-
gras á völl í Osió í sumar. Það var
því settur sá fyrirvari af hálfu
borgaryfirvalda að beðið væri
eftir lagningunni í Osló til að sjá
hvernig til tækist. Á þessari for-
sendu var tilboðið samþykkt
samhljóða í íþróttaráði,
Innkaupastofnun Reykjavíkur
og borgarráði. Nú hefur komið í
ljós að lagningu gervigrassins í
Osló seinkar, en nú liggur svo
mikið á að koma því upp í
Reykjavík að meirihlutinn hefur
ákveðið að falla frá fyrirvaran-
um. Þetta ábyrgðarleysi var
gagnrýnt harðlega af minnihluta
borgarstjórnar á fimmtudag og
borin upp tillaga um að fram-
kvæmdum verði frestað. Það var
fellt. Þess skal getið að sumarið
1978 var lögð gervihlaupabraut í
Laugardal en ekki tókst betur til
en svo að hún er nú ónýt. Lagning
gervigrasvallarins í Laugardal á
að kosta 20 - 30 milj.
Ábyrgð á
flotbryggju
Reykjavíkurborg hefur nú lagt
fram yfir 10 miljónir króna,
reiknaðar til núvirðis, í smábáta-
höfn í Elliðaárvogi þar sem um 80
smábátar í Snarfara koma til með
að hafa aðstöðu. Á fundi borgar-
stjórnar á fimmtudag var sam-
þykkt að veita ábyrgð borgarinn-
ar á láni til kaupa á flotbryggju.
Sigurjón Pétursson átaldi harð-
lega þessa ábyrgð og sagði að
slíkt hefði ekki viðgengist nema
þegar um atvinnuskapandi verk-
efni væri að ræða. Sagði hann að
borgin hefði gert það vel við smá-
bátaeigendur að nú væri kominn
tími til þess að þeir tækju ein-
hverja ábyrgð sjálfir.
Betra blað
WMM
- GFr