Þjóðviljinn - 05.05.1984, Qupperneq 28
Bandormurinn
reiðarslag
fyrir
námsmenn
Lánin
hrapa
í 60%
„Það virðist ljóst að nái þess-
ar tillögur ríkisstjórnarínnar
um niðurskurð á framlögum til
Lánasjóðsins fram að ganga,
mun lánshlutfaUið hrapa niður i
60% en það þarf að fara aUt
aftur fyrir árið 1970 til að finna
jafn lágt lánshlutfall", sagði
Sigurjón Valdimarsson fram-
kvæmdastjóri Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna í samtali
við Þjóðviljann i gær.
Samkvæmt frumvarpi ríkis-
stjórnarinnar um aðgerðir
vegna fjárlagagatsins fær LÍN
aðeins um 572 miljónir króna til
útborgunar lána á þessu ári.
Þegar búið er að greiða út rúm-
lega 402 miljónir af því fé þann-
ig að ljóst er að námsmenn fá
verulega skert lán í haust.
„Þetta þýðir ósköp einfald-
lega að fjöldi námsmanna
hrökklast frá námi og fyrir-
sjáanlegt er að margir munu
hætta við nám erlendis af þess-
um sökum“, sagði Emil Bóas-
son formaður SINE er Þjóðvilj-
inn náði sambandi við hann
vegna þessa máls. „Hins vegar
er hægt að grípa til einhverra
annarra ráða en að lækka láns-
hlutfallið í 60%, til dæmis að
hætta að greiða skólagjöld
nemenda. Það hefur þær afleið-
ingar í för með sér að t.d. nem-
endur t Bandaríkjunum hverfa
langflestir frá námi“, sagði
Emil.
„Ráðherra hefur fullyrt að
hægt sé að spara í rekstri Lán-
asjóðsins en þar erum við hon-
um ósammála því það er þegar
búið að grípa til ýmissa ráðstaf-
ana í þeim efnum sem ekki
verða endurteknar“, sagði Sig-
urjón ennfremur. _ v.
Þorsteini kom ræða Friðriks EKKI á óvart
Upp með
hendur!
Víkingasveitin yfir-
bugar byssumann í
Daníelsslipp
Drukkinn byssumaður var í gær-
kvöldi handtekinn af víkingasveit lög-
reglunnar um tíuleytið í gær í bát við
Danielsslipp vestast í vesturbæ Reykja-
víkur eftir hávaðasamt ævintýri á
gönguför um Vesturgötu og Bakkastíg.
Rétt fyrir níu í gærkvöld urðu íbúar
við ofanverða Vesturgötu og þarum-
kring óþyrmilega varir við mann sem
gekk eftir götunni með haglabyssu og
skaut hvað eftir annað útí loftið. Lög-
reglan kom á staðinn um níuieytið og
var maðurinn þá við Bakkastíg, fer nið-
ur stíginn niðrí Daníelsslipp og útí bát
sem þar lá. Skothríðinni linnir ekki og
skýtur maðurinn á leiðinni að sögn
sjónarvotta að bílum og að húsum í
grenndinni. Auk lögregluliðs á vakt var
víkingasveit á vettvangi með riffla og
skammbyssur og er maðurinn um-
kringdur og yfirbugaður án þess nokkr-
um yrði mein af. „Hættu þessu, er ekki
komið nóg?“ og „Upp með hendur"
mun hafa glumið um Vesturbæinn í
kvöldkyrrðinni meðan á handtökunni
stóð, en lögreglan hafði mikinn viðbún-
að, lokaði nærliggjandi götum fyrir
bílaumferð og hélt mannfjölda í hæfi-
legi fjarlægð.
Rúnar Sigurðsson varðstjóri taldi að
tveir til þrír tugir lögreglumanna hafi
Á Vesturgötunnl f gærkvöldl: Ásta og Helga sýna högl úr byssu óhappamannsins. Verksummerki sjást á
bílnum. Helga varð á vegl byssumannsins. Ljósm. eik.
tekið þátt í handtökunni. Hann sagði og óreglu en að háttalagi af þessu tæi Rannsóknarlögregla ríkisins hóf
byssumanninn einn kunningja lögregl- væri maðurinn hingaðtil ókunnur enda rannsókn málsins strax eftir handtök-
unnar, aðallega vegna drykkjuskapar dagfarsprúður. una. m/óg.
DMVIUINN
Helgin 5. - 6. maí 1984
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Ulan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Nú eru þáttaskil
segir formaðurinn um stjórnarsamstarfið • Albert hœðir
Friðrik : „Hann er snillingur, drengurinn!(í
Mikil ólga er nú innan Sjálf-
stæðisflokksins eftir þær yfir-
lýsingar sem Friðrik Sophus-
son varaformaður flokksins
gaf á fundi með Sjálfstæðis-
mönnum á Seltjarnarnesi í
fyrrakvöld. Þar lýsti Friðrik því
yfir að flokkurinn væri að sigla
í strand. Engin lausn hefði
verið fundin á efnahagsvand-
amálum. Skipta þyrfti um ráð-
herra í stjórninni og koma for-
manni flokksins þar að.
Stokka upp stjórnarsáttmál-
ann og ef ekki næðist viðun-
andi niðurstaða þá þyrfti að
boða til nýrra kosninga.
Þorsteinn Pálsson sagði í
samtali við Þjóðviljann aö
þáttaskil væru orðin í stjórn-
arsamstarfinu. Stjórnin þyrfti
að endurmeta stöðu sína og
það yrði að ráðast af verkefn-
um hvort stokkað yrði upp í
ráðherrastólum.
Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra sagði um yfirlýs-
ingu Friðrik: „Hann er snillingur,
drengurinn“. Áhrifamaður í
Sjálfstæðisflokknum sagði að
Friðrik hefði verið að vekja at-
hygli á sér með þessari ræðu og
það hefði tekist vel því hún hefði
hlotið góðan hljómgrunn hjá hin-
um almenna flokksmanni, en
ýmsir forystumenn væru ekki yfir
sig hrifnir.
í ræðu sinni á Seltjarnarnesi í
fyrrakvöld lýsti Friðrik Sophus-
son því meðal annars yfir að
endurskoða þyrfti hverjir sætu á
ráðherrastóli fyrir flokkinn.
Efnahagsaðgerðir stjómarinnar
væru blekking, verið væri að ýta
vandanum á undan sér og floick-
urinn „kæmi buxnalaus til næstu
kosningabaráttu“.
„Nei, þetta kom mér ekki á
óvart. Hann er ekki að lýsa neinu
ástandi heldur vekja athygli á því
að við stöndum frammi fyrir
miklum óleystum vanda, þótt
mikill árangur hafi náðst fram til
þessa. Ég lít fyrst og fremst á
þetta sem viðvörun um að fólk
megi ekki sofa á verðinum“,
sagði Þorsteinn Pálsson formað-
ur Sjálfstæðisflokksins í samtali
við Þjóðviljann í gær um yfirlýs-
ingar varaformanns flokksins.
„Staða mín er mjög skýr, það
er hins vegar ákvörðunaratriði af
minni hálfu á hvaða vettvangi eða
með hvaða hætti ég tel að ég
gegni því starfi með áhrifamest-
um hætti. Það fer eftir verkefnun-
um sem við blasa. Nú eru orðin
ákveðin þáttaskil í starfi stjórnar-
innar og komin ný verkefni og þá
verður það metið í Ijósi þeirra
hvort það kemur til álita eða
ekki“, sagði Þorsteinn aðspurður
hvort hann^sæktist eftir sæti í rík-
isstjórn.
Hefur þú trú á þessari stjórn
áfram?
„Ég tel að það sé full ástæða til
að reyna það og ég veit að þjóðin
ætlast til að hún starfi áfram á
þeirri braut sem hún hefur ver-
ið“ -lg-
Úlfur Markússon formaður Blfrelöastjórafélagslns Frama
og framkvæmdastjóri Bandalags leigublfreiöastjóra.
Mynd: - Atll.
Stríð hafið milli leigubifreiðastöðva vegna undirboða á akstri
Leigubifreiðastj órar
slást um aksturinn
„Við ætlum okkur að stöðva þetta
því það samræmist ekki lögum
Bandalags leigubifreiðastjóra að
akstur sé boðinn út. Allar leigubif-
reiðastöðvar hafa séð um að aka
starfsfólki spítala til og frá vinnu á
þeim tíma sem strætisvagnar eru
ekki í gangi. Forstjóri Bæjarleiða
segist hafa átt 50% af þessum akstri
en BSR hefur einnig haft mikið af
honum ásamt Hreyfli.
Það hefur enginn heimild til að
semja um breytingu á þessu fyrir-
komulagi nema Bandalag leigubif-
reiðastjóra þar sem Frami, stétt-
arfélag bflstjóra á Reykjavíkur-
svæðinu, á 3 fulltrúa af 5“, sagði
Úlfur Markússon formaður Frama
við Þjóðviljann.
Bæjarleiðir hafa nú fengið allan akstur á
starfsfólki spitalanna vegna þess að þeir
sendu lægsta tilboð í akstur þennan sem
Innkaupastofnun auglýsti í apríl.
„Það er margt alvarlegt við þetta mál. í
fyrsta lagi er samkvæmt lögum Bandalags
leigubifreiðastjóra öllum skylt að hafa sama
taxta og með þessum samningi hefur Frami
gerst brotlegur við landssambandið. f öðru
lagi gerir þessi samningur öðrum stöðvum en
Bæjarleiðum erfitt um vik vegna þess hve
hátt hlutfall þessi akstur hefur verið af vinnu
okkar allra. I þríðja lagi er ætlunin að koma
beinni símalínu frá spítölunum til Bæjarleiða
þannig að gestir sem koma á þessa staði
munu einnig versla við þá. í fjórða lagi, sem
er mikilvægt sérmál í öllu þessu, missir einn
bflstjóri, sem hefur séð um akstur til og frá
öldrunarlækningadeild í Hátúni 10 í mörg ár,
vinnuna. Honum hefur verið gert skylt að
hætta störfum á mánudaginn sem þýðir í raun
og veru að honum er sagt upp störfum með
hálfs mánaðar fyrirvara. Hann krefst nú
verndar síns stéttarfélags sem er sjálfsagður
hlutur.“
Úlfur sagði að hægt væri að spara með
ýmsu öðru móti en útboði og væri hægt að
kanna nýtingu og þörf fyrir akstur með því að
fá leigubflstjóra í nefnd sem myndi athuga
þetta. „Við getum skipulagt þessa vinnu því
ekki vantar okkur reynsluna.
Ef niðurgreiðsla á akstri leigubfla með
þessu móti verður ekki stöðvuð verður sama
leið farin víðar. Þetta er slæmt fyrir bílstjór-
ana á Bæjarleiðum sem nú verða að greiða
aksturínn niður sjálfir í formi mun hærra að-
stöðugjalds til stöðvarinnar. Þeir borga nú
samtals 81.000 krónur á mánuði í þessar nið-
urgreiðslur." _jp.