Þjóðviljinn - 09.09.1988, Blaðsíða 5
Er Ratsjárstofnun íslensk?
Ratsjárstofnun er fjármögnuð af bandaríska flughernum. Bandaríski herinn valdi Raytheon fyrir Ratsjárstofnun. Raytheon
rekur ratsjárstöðvarnar. Raytheon íhugartilboð í IADS
í næsta mánuði munu íslenskir
starfsmenn Ratsjárstofnunar
ganga inn í verk starfsmanna sem
starfa við ratsjána á Stokksnesi.
Þar munu þeir taka við störfum
Bandaríkjamanna, ekki Varnar-
liðsmanna heldur starfsmanna
bandaríska einkafyrirtækisins
Raytheon Service co. Raytheon
co. hefur rekið stöðvarnar á
Stokksnesi og í Rockville á Mið-
nesheiði frá því í október í fyrra,
samkvæmt samningi Ratsjár-
stofnunar við fyrirtækið. Ratsjár-
stofnun, sem sett var á laggirnar
svo „íslendingar gætu tekið að
sér rekstur ratsjárstöðva hér á
landi.“ Stofnunin er hins vegar
fjármögnuð af bandaríska flug-
hernum og mikilvægar ákvarðan-
ir varðandi stofnunina hafa verið
teknar á þeim bæ.
Valdi
Ratsjárstofnun
Raytheon?
Samkvæmt því er Raytheon
verktaki hjá Ratsjárstofnun, sem
á hinn bóginn semur við fyrirtæk-
ið í umboði Bandaríkjahers, sem
borgar allan kostnað. Raytheon
sér um þjálfun íslenskra starfs-
manna Ratsjárstofnunar, og var
það skilyrði fyrir því að fyrirtækið
fengi rekstrarsamninginn. Það
vekur hins vegar athygli að Rayt-
heon co. hefur þegar á síðustu
tveimur árum gert samning við
Bandaríkjaher um rekstur radar-
stöðva á norðursvæðum og þann-
ig séð um rekstur radarstöðva í
Alaska, Kanada og á Grænlandi.
Þessar upplýsingar koma frá
Friðþóri Eydal, upplýsingafull-
trúa Bandaríkjahers á fslandi. Er
því ekki óhugsandi að álykta sem
svo að samningur við Raytheon
um rekstur ratsjárstöðva hér á
landi hafi verið í pípulögnunum
lengi og jafnvel áður en Ratsjár-
stofnun, sem opinberlega rekur
ratsjárstöðvarnar, varð til. Jón
Böðvarsson, forstöðumaður Rat-
sjárstofnunar, sagðist hins vegar
aðspurður ekki vita hvernig á því
hefði staðið að Raytheon hefði
orðið fyrir valinu og vísaði í því
sambandi á Þorstein Ingólfsson.
Þorsteinn Ingólfsson, forstöðu-
maður varnarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins og for-
maður ratsjárnefndar svokallaðr-
ar, viðurkenndi að byggt hefði
verið á reynslu Bandaríkjamanna
og þeir hefðu best getað metið
þau fyrirtæki sem komu til
greina. Þeir hefðu sem sagt ráðið
ferðinni.
Aðrir hagsmunir
Raytheon
Svo virðist sem hagsmunir Ra-
ytheon hér á landi séu ekki aðeins
bundnir við rekstur ratsjárstöðv-
anna eða kennslu starfsmanna
Ratsjárstofnunar. Forystumaður
Raytheon hér á landi, Joe Keiser,
svaraði aðspurður að fyrirtækið
hefði íhugað tilboð í verkþætti
við uppbyggingu ratsjárkerfisins,
IADS. „Það vill svo til að við höf-
um litið á málið og talað við
nokkur fyrirtæki, en ekkert er
ákveðið enn þá,“ sagði Joe
Keiser. Það er ljóst að Raytheon
co. stendur betur að vígi en hugs-
anlegir keppinautar um þennan
bita upp á miljarð sem IADS,
„íslenska loftvarnarkerfið", er í
krafti stöðu sinnar og reynslu hér
á landi.
Raytheon
rekur ratsjárnar
Raytheon co. hefur hins vegar
ekki aðeins séð um rekstur rat-
sjárstöðvanna, heldur og það
sem hærra hefur farið, séð um
þjálfun íslenskra -starfsmanna
Ratsjárstofnunar. Hópur 18
manna var sendur til Bandaríkj-
anna í október í fyrra á tíu vikna
námskeið og hefur sá hópur verið
í frekari þjálfun hér heima undir
handleiðslu þeirra Raytheon
manna. Það eru menn úr þessum
hópi sem sendir verða til Stokks-
ness þann 1. október. Þá var ann-
ar hópur sendur út í vor sem ný-
kominn er heim, og fara menn úr
þeim hópi sennilega til starfa í
Rockville á Miðnesheiði þann 1.
apríl nk.
Því var lýst yfir við stofnun
Ratsjárstofnunar í maí 1987 að
hún tæki yfir rekstur ratsjár-
stöðva og sagði Jón Böðvarsson
að formlega hefði það gerst þann
1. október 1987. Þrátt fyrir þessi
formlegheit hefur reksturinn sem
sagt verið í höndum undirverk-
taka stofnunarinnar síðan. Þrátt
fyrir að Ratsjárstofnun muni síð-
an taka enn á ný „formlega" við
rekstri ratsjárstöðvanna á
Stokksnesi og í Rockville, munu
Raytheon-menn þar með ekki
hverfa þaðan. Þeir munu enn
verða íslendingum til aðstoðar og
sem „bakvakt", auk þess sem
þeir sjá áfram um kennslu og
þjálfun, eins og Þorsteinn Ing-
ólfsson sagði „fram á næsta ár, en
alls ekki til frambúðar." Og eins
og áður sagði verða Raytheon-
menn alfarið með rekstur ratsjár-
stöðvarinnar í Rockville fram til
1. apríl á næsta ári.
Á launaskrá
hins opinbera
á bandarískum
launum
„Yfirtaka" íslendinga á
„rekstri" ratsjárstöðva hér á
landi með tilkomu Ratsjárstofn-
unar virðist því varla hafa staðið
undir nafni, þrátt fyrir áróðurs-
gildi slíkra yfirlýsinga. Að hinu er
svo að hyggja að hér er orðið
rekstur notað í undarlegum skiln-
ingi, miðað við það sem menn
eiga að venjast. Reksturinn er í
fyrsta lagi kostaður af bandaríska
fiughernum, enda ratsjárstöðv-
arnar hér settar upp þeim aðila og
öðrum skyldum til hugarhægðar.
Rekstur Ratsjárstofnunar tekur
því ekki til þessa þáttar. í öðru
lagi sjá starfsmenn ratsjárstöðv-
anna aðeins um að tækjabúnaður
sé gangfær, svo þau merki sem
hann nemur komist áfram til
stjórnstöðvar í Rockville og það-
an áfram til Bandaríkjanna og
flugmálastjórnar. „Þessi merki
eru alfarið lesin af Bandaríkja-
mönnum á Vellinum og ekkert
spáð í þetta á staðnum," sagði
Jón Böðvarsson. Aðeins þarf 2-3
menn á vakt í einu og 12 menn alls
til rekstursins. Þetta eru því ein-
göngu viðhaldsstörf sem þarna
eru unnin, en öll túlkun upplýs-
inga sem stöðvarnar safna, hvað
þá ákvarðanir um aðgerðir hers-
ins í framhaldi af þeim, eru
auðvitað ekki á sviði Ratsjár-
stofnunar. Starfsmenn hjá þess-
ari opinberu stofnun eru á launa-
skrá þar. Þeir taka laun sam-
kvæmt sérstökum samningi varn-
armálaskrifstofu við Rafiðnað-
arsambandið, en launagreiðandi
er hins vegar bandaríski herinn.
Ratsjárstofnun
fslands eða...?
„Okkar tekjur koma frá
Bandaríkjunum, bandaríski sjó-
herinn borgar þennan rekstur,
þannig að við erum ekki með
nein framlög frá íslenska ríkinu.
Það er í rauninni bandaríski flug-
herinn sem borgar þessa starf-
semi en það fer í gegnum banda-
ríska sjóherinn," sagði Jón Böðv-
arsson. Ratsjárstofnun er sem
sagt fjármögnuð af bandaríska
flughernum, sem jafnframt tekur
mikilvægar ákvarðanir fyrir hönd
stofnunarinnar, svo sem eins og
þær hvaða þjálfunaraðila hún fær
að nota fyrir sinn mannskap. Það
má því setja stórt spurningar-
merki við það hvort Ratsjárs-
tofnun sé í raun íslensk stofnun,
sem lúti vilja íslenskra stjórn-
valda, eða hvort hún teljist frem-
ur bandarísk stofnun og lúti í
raun stjórn bandarískra hernað-
aryfirvalda. phh
NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5