Þjóðviljinn - 09.09.1988, Blaðsíða 20
D/ÍGURMAL
ANDREA
JÓNSDÓniR
Sykurmolar og Bubbi nýplataðir
Sykurmolarnir eru enn á upp-
leið á Bilboard-sölulistanum
bandaríska - í blaðinu sem kemur
út núna um helgina staðfestist að
þeir fara í 54. sæti, úr því 64..
Hijómleikaferðin í USA hefur
líka gengið vel að öðru leyti... ég
hef aðeins heyrt um einn nei-
kvæðan dóm, um konsertinn í
San Francisco... gagnrýnandinn,
Barbara Ellen, segir reyndar að
lítið sviðið á ömurlegum staðnum
ásamt hrikalega amrískum
áheyrendum (hún er sjálf greini-
lega agalega ensk) hafi átt sinn
þátt í því að svo þröngt varð um
Molana að allt fór í mylsnu hjá
þeim... í næsta þorpi kvöldið
eftir var Barbara Ellen hins vegar
himinlifandi yfir frammistöðu
Sykurmolanna, enda gat Björk
þá opnað munninn án þess að
reka tunguna upp í eyrað á gítar-
leikaranum, eins og hún segir
ásamt mögu skrautlegu í NME-
blaðinu frá 27. ágúst síð-
astliðnum.
Hvað sem öllu þessu líður verð
ég að segja, að ekki finnst mér til
bóta nýja útgáfan þeirra af Am-
Sykurmolarnirstökkvauppum 10sætiáBillboard-listanumúrþví64. í
það 54. Hjómleikaferð þeirra um Bandaríkin lýkur 14. þessa mánaðar,
og eru þeir væntanlegir heim upp úr því.
Kennarar - fóstrur -
leiðbeinendur
Kennara, fóstru eða leiðbeinanda vantar eftir há-
degi við forskóladeild (6 ára) Kársnesskóla. Upp-
lýsingar í símum 41567 og 41219.
Skólastjóri
Alþingi___________________________
Til forsvarsmanna
sveitarfélaga
Fjárveitinganefnd Alþingis mun sinna viðtölum
við sveitarstjórnarmenn vegna fjárlaga 1989 frá
3. október - 7. október nk. Þeir sveitarstjórnar-
menn sem telja sérstaka þörf á að ganga á fund
nefndarinnar skulu hafa samband við starfs-
mann hennar, Ásdísi Sigurjónsdóttur í síma
25000 (428) eða síma 11560 (213), í síðasta lagi
23. sept. n.k.
Skrifleg erindi skulu hafa borist nefndinni í síð-
asta lagi 15. nóvember n.k.
Bent er á að nauðsynlegt er að skrifleg erindi til
nefndarinnar séu vel úr garði gerð og ólíkir mála-
flokkar séu aðskildir í sérstökum erindum og að
greinilega komi fram um hvaða fjárhæðir er að
ræða. Afrit af erindum sem send hafa verið til
viðkomandi fagráðuneyta ættu að vera
fullnægjandi.
Fjárveitinganefnd Alþingis
mæli, sem þessa ferðina heitir
Christmas eve/Christmas day á a-
hlið en Christmas present á b-
hlið... hér hefur hljómsveitin The
Jesus and Mary Chain komið
með gítarslátt í Ammælið og ein-
hvern veginn fyllt upp í spenn-
andi lægðirnar sem sköpuðu svo
gott rúm fyrir sakleysislega
sveiflu í upprunalegu útgáfunni -
og mér finnst Björk ekki nógu
framarlega í hljóðblönduninni...
annars er alveg óþarfi að vera að
þusa út í þetta, gamla útgáfan
góða af Ammæli heldur áfram að
vera til, og má líta á þá nýju sem
tilraunastarfsemi og jákvæða til-
raun til samvinnu - eða bara pen-
ingaplokk eins og tengist blessuð-
um jólunum?... Jólagjöfin á b-
hlið er sönglaus - instrúmental -
og á eftir á þessari 12 tommu
plötu hljómleikaútgáfa af laginu
Bensín... harla góð - nokkuð
ógnvekjandi lag... þetta er nátt-
úrulega plata sem safnarar verða
að eignast ...
... líka litlaplatan hansBubba,
með Moon in the Gutter - Skapar
fegurðin hamingjuna, í nýrri en-
skri útgáfu. Ekki er b-hliðin síðri
- þar er á ferð ensk útgáfa af
laginu Sársauki sem er á nýju 5-
laga plötunni hans 56. Hér heitir
það Battlefíeid of sex - Kynlífs-
vígvöllur... þótt lagið sé gott á 56
er í því enn meiri fylling hér -
stafar líklega af bakröddum.
Þetta er reyndar það sterk smá-
skífa að fleiri en safnarar ættu að
falla fyrir henni... ogmikiðskolli
er kallinn góður flytjandi, bæði
með rödd og gítar... (engar texta-
pælingar né -spælingar þessa
ferðina).
Tækni (viðbótar)-
undur!
Eftir nánari athugun verð ég að
éta oní mig að Sykurmola-platan
sé helst fyrir safnara, því að for-
vitið fólk og nýjungagjarnt getur
ekki látið hana fram hjá sínu
plötusafni fara. Á a-hliðinni eru
nefnilega tvær útgáfur af Am-
mæli, hvor ofaní annarri, eða
hvor innan um hina... það er dá-
lítið erfitt að útskýra þetta á
prenti, en fólk getur hugsað sér
tvær hljóðrákir dregnar samsíðis
hring eftir hring á plötunni, hvora
fyrir sína útgáfuna... það fer síð-
an eftir því við upphaf hvorrar
rákarinnar nálin er látin byrja
hvor útgáfan skilar sér í gegnum
hljóðhausinn og út í hátalarana...
ég hef aldrei heyrt um svona lag-
að fyrr um mína daga, enda lítið
tæknifrík og ákveðin í að verða
síðasta manneskjan sem á plötu-
spilara... þessi plata gerir mig
enn ánægðari með það hlutskipti.
Munurinn á þessum tveim Ám-
mælis-útgáfum er sá að önnur, sú
fym...Christmas eve, er líkari
upprunalegu útgáfunni, en
Christmas day líkari því sem lýst
er hér að ofan... ég á nefnilega
svo skrýtinn spilara að hann byrj-
aði yfirleitt á þeirri útgáfu áður
en Hjörtur tæknimaður benti
mér á undrið... annars er kanns-
ke bara betra að vita ekki um
þessi skurðarundur á plötunni,
þetta er svo skemmtilega rugl-
andi...
Van Morrison
gerist þjóðlegur
Þessi fyrirsögn er tómt bull. ír-
inn Van Morrison hefur alltaf
verið þjóðlegur í tónlist sinni og
ljóðum og þá mjög dvalist við
mystíkina - hið dulræna afl - í
sambandi við sögu Kelta og helgi
á náttúrunni. I ofanálag hefur
Van Morrison stóran hluta ævi
sinnar búið í Bandaríkjunum og
gerir nú að ég held (í Kaliforníu),
sem hefur fengið hann til að
semja saknaðarljóð til föður-
landsins, ákaflega falleg. Þessi
nýja plata sem hann réðst í að
gera með einni þekktustu þjóðl-
agahljómsveit íra, The Chiefta-
ins, ber einmitt nafn af einu slíku,
Irish Heartbeat, og annað til er
að finna á plötunni, lagið Celtic
Ray. En að þessum Iögum frá-
töldum eru eingöngu gömul írsk
þjóðlög, gamalkunn, á plötunni.
Það er kannske rétt að rekja
sögu Vans Morrison í örstuttu
máli áður en lengra er haldið:
Hann er fæddur í Belfast 31. ág-
úst 1945 og var byrjaður að leika
á saxófón í djasshljómsveitum
strax á táningsaldri. Þaðan lá
leiðin í ryþma- og blús og árið
1963 stofnaði hann hljómsveitina
Them og var söngvari Þeirra (auk
saxófóns leikur hann á píanó, gít-
ar og trommur.)
Them varð skammlíf sveit -
þriggja ára - en eftir hana liggja
nokkrar perlur á plötum, svo sem
Babyplease don’tgo. Here comes
the night og Gloria... Þá hófst
sólóferill hans Morrison, og mun
þessi plata hans með Chieftains
vera sú tuttugasta sem frá honum
hefur komið - 21. ef við teljum
með einu stóru Them-plötuna.
Van Morrison hefur alltaf ver-
ið ákaflega virtur meðal tónlistar-
manna og gagnrýnenda, og á sér
trygga aðdáendur (til dæmis
Gunnlaug Sigfússon og Egil
Helgason, sem báðir eru
rauðhærðir). Plötur hans seljast
svona bærilega, þótt hann sé
harla ónýtur að standa frammi
fyrir fjölmiðlum - og reyndar á
sviði líka, en hann kvað þjást af
slíkum sviðsskrekk að ólíkindum
sætir - hann hefur til dæmis
gengið orðalaust út af sviðinu á
miðjum hljómleikum og horfið.
Hvernig er hrynjandin i
í írskum hjartslætti?
Þeir Van Morrison og Paddy
Moloney, sekkjapípuleikari Chi-
eftains, útsettu lögin fyrir írskan
hjartslátt. Ekki veit ég nákvæm-
lega hvar þeir mættust, en líklega
þó nælægt miðri leið, ef miðað er
við Van Morrison lögin Irish He-
artbeat og Celtic Ray, sem áður
hafa komið út á plötum með
höfundinum... til nánari útskýr-
ingar má segja að írsk hljóðfæra-
skipan setji sterkari þjóðlagablæ
á lög Morrisonar, en frá hinum
komi aftur á móti dulræna og sál-
artónlistaráhrif á þjóðlögin. Þann
ig að á þessari plötu kemur áka-
flega skýrlega í ljós það sem
skráð er í upphafi kaflans um Van
Morrison í uppsláttarriti Rolling
Stone um rokk og ról, þar sem
segir að hann sé að hluta til
„bard“, en það orð hefur verið
notað frá því í fyrndinni um
keltnesk skáld sem fluttu ljóð sín
við hörpuundirleik, og svo að
hluta sálarsöngvari, að hætti
bandarískra blökkumanna.
Að lokum ætla ég, þó ekki sé
nema fyrir þá sem eitthvað kunna
fyrir sér um írska þjóðlagatónlist,
að telja upp þjóðlögin á þessari
eigulegu plötu: Star ofthe County
Down, Tá mo Chleamhnas dé-
anta, Raglan Road, She moved
through the Fair, I’ll tell me ma,
Carrickfergus, My Lagan Love,
Marie’s wedding.
FRAMANDI
MENNING
í FRAMANDI LANDI
• Ert þú fæddur 1971 eða 1972?
• Viltu auka þekkingu þína á umheiminum?
• Viltu kynnast lifnaðarháttum annarra þjóða?
• Viltu búa eitt ár í framandi landi?
• Viltu verða skiptinemi?
Umsóknarfrestur er til 17. október. Opið dag-
lega milli kl. 14 og 17.
Ef svarið er já, þá hafðu samband við:
4FS Á ÍSL4NDI
Alþjóðleg fræðsla og samskipti
Skúlagata 61, P.O. Box 753 - 121 Reykjavík, sími
91-25450.
- NÝTT HELGARBLAÐ -