Þjóðviljinn - 09.09.1988, Síða 6

Þjóðviljinn - 09.09.1988, Síða 6
Námsbækur hafa hækkað að jafnaði um 30-40%. Dæmi um allt að 100% hækkun. Skólakostnaður fyrsta árs nema fyrir eina önn allt að 30 þúsund krónur. Verðstöðvunin marklaus. Nær ekki til hækkana á námsbókum. Fjöldi nemenda þarf að vinna úti með námi ■ ■ ■ / r 30 þúsund „Hugsaðu þér bara þá stað- reynd að ég er á síðasta ári í Menntaskólanum í Hamrahlíð og ég þarf að borga rúmlega 16 þús- und krónur fyrir námsbækur fyrir aðeins eina önn. Þetta er hrika- legt dæmi og fyrir utan allan ann- an kostnað. Það er liðin tíð ef hún hefur þá nokkurn tíma verið að skólinn sé einhver vin í eyði- mörkinni. Kaldar staðreyndir efnahagslífsins blasa við okkur hvar sem er og þróunin virðist öll vera í þá átt að við erum látin borga allar hækkanir sem verða á verði námsbóka. Jafnrétti til náms óháð fjárhag og búsetu eru bara orðin tóm; veruleikinn er því miður allt annar,“ sagði menntaskólanemi við Þjóðvilj- ann. Það er ekki tekið út með sitj- andi sældinni í dag að vera nem- andi í framhaldsskóla hérlendis. Námsbækur hafa hækkað um 30- 40% að jafnaði frá síðasta hausti, jafnframt því sem skólagjöld hafa einnig hækkað þótt í minna mæli sé. Minnkandi kaupmáttur sam- fara síhækkandi framfærslu- kostnaði heimilanna bætir þar ekki úr skák svo ekki sé talað um þá nemendur sem þurfa að fara að heiman til náms og leigja sér herbergi úti í bæ á uppsprengdu verði. Afleiðingin af þessu öllu saman er sú að mikill meirihluti nemenda verður að vinna hörð- um höndum með námi og dæmi eru um að nemendur hafi orðið að hætta námi vegna fjárskorts. Þetta eru kaldar staðreyndir sem ekki er hægt að horfa framhjá og umhugsunarefni fyrir ráðamenn menntamála sem virðast sofa værum frjálshyggjusvefni. í dag gildir það að eiga fjársterka fjöl- skyldu sem bakhjarl. Ef ekki eru miklar líkur á að viðkomandi dagi uppi úti í bæ með námsblik í augum en geti ekki meir vegna fjárhagsörðugleika. Nám er munaður Aðeins skólabókakostnaður nema á fyrsta ári við Mennta- skólann við Sund getur numið allt að 27 þúsund krónum og er þá ótalinn kostnaður við ýmis rit og fjölrit sem seld eru í bóksölum nemenda og notuð eru við kenns- lu auk ýmissa annarra útgjalda. Þar er skólagjald 3.500 krónur fyrir allan veturinn og af því fær skólinn aðeins um 22% sem eru rúmlega 800 krónur. Afgangur- inn rennur til nemendafélagsins til að greiða kostnað sem það stofnar til yfir veturinn. Það virðist vera æ meiri til- hneiging í þá átt að nemendur skattleggi sjálfa sig til að standa straum af ýmsum kostnaði af fé- lagsstarfi innan skólanna sem mörgum þykir vera óheillaþróun og ætti frekar að greiðast af hinu opinbera. En þar virðist enginn skilningur vera fyrir hendi nema síður sé. Ein af hugmyndum fjár- málaráðuneytisins sem varpað var fram á dögunum er að leggja veruleg skólagjöld á nemendur framhaldsskóla til að rétta við hag ríkissjóðs. Þrátt fyrir að ekki séu miklar líkur á að sú tillaga nái fram að ganga vekur hún ekki síður furðu fyrir það að yfirmað- ur ráðuneytisins er fyrrum skóla- meistari Menntaskólans á ísafirði sem á að þekkja vel þau kröppu kjör sem neipendur verða að gera sér að góðu. Svíta fyrir fjársterka Kostnaður vegna skólavistar í framhaldsskólum landsins er mis- jafn og fer mikið eftir skólum. Nám við dagskóla í Mennta- skólanum í Hamrahlíð er td. 3 þúsund krónur en fyrir nema í öldungadeild er hann aðeins 7.400 fyrir eina önn. Við Mennta- skólann á Akureyri er skólagjald fyrir veturinn 2.500 krónur en fyrir utanbæjarmenn er fæðis- kostnaður á heimavist áætlaður 110 þúsund krónur yfir veturinn, auk þess sem húsaleiga í tvíbýli er 10.400 og þvottagjald 5.600. Ef nemandi óskar hins vegar eftir að dvelja í einsmanns herbergi tvö- faldast húsaleigan yfir veturinn og er 20.800 krónur. Þennan mis- mun er ekki hægt að skilja nema á þann veg að þeir sem loðnir eru um lófana eiga þess kost að búa út af fyrir sig á heimavistinni séu þeir tilbúnir að greiða sérstaklega fyrir þann munað. Hinir verða að gera sér að góðu að deila herbergi með öðrum! Af framhaldsskólum landsins sker Verslunarskólinn sig veru- lega úr hvað varðar hátt skóla- gjald. í öldungadeild er það 22 þúsund krónur fyrir önnina. Auk þess leggst þar ofan á 2 þúsund króna skólagjald. Skóla- og fé- lagsgjald fyrir dagskóla í Versl- unarskólanum er einnig 22 þús- und krónur þrátt fyrir að ríkið greiði allan rekstrarkostnað skólans. Marklaus verðstöðvun Þegar ríkisstjórnin ákvað að frysta allt verðlag frá og með síð- ustu mánaðamótum og Verð- lagsstofnun hvatti alla til að hafa samband vegna verðlagshækk- ana urðu símalínur stofnunar- innar rauðglóandi. Þar voru á WA.nni rciöir framhaldsskóla- Áheimavist Menntaskólans á Akureyri geta fjár* sterkir nemendur leigt sér eins manns herbergi með því að borga tvöfalda húsa- leigu miðað við að veraítvíbýliog kostar munaðurinn aðeins 20.800 krón- uryfir veturinn. Miðinn í 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.