Þjóðviljinn - 09.09.1988, Síða 11

Þjóðviljinn - 09.09.1988, Síða 11
FÖSTUDAGSFRETTIR Ríkisstjórnin Einu sinni, einu sinni enn Framsóknarflokkurinn gefur stjórninni síðasta tækifœrið - til 17. Þorsteinn leggurfram óljósar hugmyndir. Kratar útfœra millifœrsluleið Jóns Sigurðssonar Formenn stjórnarflokkanna ræddust lítillega við fyrir þingflokksfund ina í Alþingishúsinu í gær. Þeir segja allir að nú sé tími athafna runninn upp. Það hljómar kunnuglega. Mynd: Jim Smart. Ríkisstjórnin hélt fund snemma í gærmorgun þar sem Þor- steinn Pálsson forsætisráðherra ætlaði að kynna tillögur sínar til lausnar efnahagsvandanum. Steingrímur Hermannsson for- maður Framsóknarflokksins kallaði tillögur Þorsteins „minn- isblað og hugmyndir“ þar sem skorti alla útfærslu og mörgum spurningum væri ósvarað. Jón Baldvin Hannibalsson fjármála- ráðherra tók í svipaðan streng og sagði Alþýðuflokkinn vinna að útfærslu eigin leiðar. Stjórnarflokkarnir héldu síðan allir þingflokksfund um miðjan dag í gær. Forsætisráðherra var ekki margorður eftir þingflokks- fund Sjálfstæðisflokksins en sagði einhug í flokknum um að reyna þá leið sem hann hefði kynnt í ríkisstjórninni fyrr um daginn. Aðspurður sagði Þor- steinn að það kynni vel að koma til þess að leitað yrði samráðs við verkalýðshreyfinguna í þeim að- gerðum sem gripið yrði til. Eftir þessi fundahöld er greini- legt að hljóðið hvað þyngst í Framsóknarmönnum. Þingflokk- ur og framkvæmdastjórn Fram- sóknarflokksins gerði samþykkt á sínum fundi og ítrekaði stuðn- ing sinn við niðurfærsluleið'ina. Það væri skylda forsætisráðherra að leggja fram heilsteyptar til- lögur til lausnar efnahagsvandan- um. Framsóknarflokkurinn boð- aði einnig til miðstjórnarfundar 17. þessa mánaðar og gefur þann- ig ríkisstjórninni 9 daga frest. Jón Baldvin sagði það óþarfa örlæti að gefa forsætisráðherra 9 daga. Nú væri tími yfirlýsinga lið- inn og tími athafna tekinn við. Hann sagði þingflokk Alþýðu- flokksins hafa gefið ráðherrum flokksins fullt umboð til að vinna að útfærslu tillagna þeirra sem þeir kynntu í ríkisstjórninni í gær. Þær ganga út á verð- og launa- frystingu í 6 mánuði og eru ekki svo ólíkar hugmyndum Þor- steins, sem ganga út á 3-5% gengisfellingu og frystingu launa og verðlags. Þessa leið kallaði Þorsteinn „blandaða“ í viðtali á Stöð tvö gærkveldi. Jón Baldvin er á sama máli og Steingrímur í vaxtamálum en Steingrímur sagði Framsóknarflokkinn ekki geta sætt sig við að markaðurinn yrði látinn sjá um að færa niður vextina, það yrði að gera með þeirri heimild sem væri í Seðla- bankalögum. -hmp Formaður Framsóknarflokksins Tíminn löngu útrunninn Steingrímur Hermannsson: Rangtað fallafrá niðurfœrslu. Munum skoða tillögur Þorsteins. Kemur ekkertfram hvort undirstaða útflutningsgreina verður tryggð vonleysi hafa komið fram á fundi þingflokks og framkvæmda- stjórnar og margir hefðu litið svo á að Þorsteinn hefði í raun slitið stjórnarsamstarfinu með „hókus pókus“ ummælum sínum í Ríkis- sjónvarpinu á þriðjudag. Fram- sóknarflokkurinn vildi gefa enn einn frest én sumir innan flokks- ins segðu þá þegar orðna of marga. Sjálfur sagðist Steingrím- ur ekki geta séð að hægt væri að gefa ríkisstjórninni fleiri tæki- færi. Framsóknarmenn ákváðu að halda miðstjórnarfund 17. þessa mánaðar og það er krafa að fyrir hann liggi heilsteyptar tillögur sem ætla má að nái markmiðum samþykktar þingflokks og fram- kvæmdastjórnar. Þau markmið eru að dregið verði verulega úr viðskiptahalla og erlendum lán- tökum. Dregið verði úr fjárm- agnskostnaði með lækkun raun- vaxta og lánskjaravísitala verði afnumin sem og aðrar vísi- tölutengingar. Dregið verði úr þenslu með samdrætti í fram- kvæmdum ríkis, sveitarfélaga og einkaaðila. -hmp Bygginganefnd Reykjavíkur Aðalstræti 8 saltað Umsókn Happdrœttis Háskólans um byggingu í Kvosinni einnig frestað í Elli- og örorkulífeyrir Engin hækkun Guðmundur Bjarnason: Elli- og örorkubætur fylgja kaupgjaldi samkvœmt lögum. Engin2,5% hœkkun Elli- og örorkulífeyrisþegar fá septembergreiðslu sína í dag, en án þeirrar 2,5% hækkunar sem von var á áður en stjórnin setti síðustu bráðabirgðalög. Heil- brigðisráðherra gefur þó í skyn að við frekari kjaraskerðingar yrðu bæturnar ekki skertar jafn- mikið og almenn Iaun. Ráðherra segir að ekki sé hægt að tala um að hækkunum elli- og örorkubóta hafi verið frestað. Guðmundur Bjarnason sagði að bæturnar væru nú komnar heldur uppfyrir lágmarkslaun, í 36.500 krónur á meðan lágmarkslaun væru 33.797 krónur. „í ljósi þessa taldi ríkis- stjórnin ekki eðlilegt að ganga með þetta á undan þróun á al- mennum launamarkaði." Að sögn Guðmundar getur ríkis- stjórnin tekið-sérstaklega á þes^- um greiðslum. Efnahagsmálin væru í heildarathugun og sérstak- lega yrði litið á tryggingabætur ef farið yrði út í frekari breytingar á launum. -hmp Steingrímur Hermannsson for- maður Framsóknarflokksins segir tímann löngu hlaupinn frá ríkisstjórninni. Rangt hafi verið að falla frá iiiðurfærsluleiðinni og tillögur Þorsteins Pálssonar for- sætisráðherra séu aðeins hug- myndir og minnispunktar. Ekki komi fram í þeim hvort rekstrar- grundvöllur undirstöðuatvinnu- veganna verði tryggður, hvernig eigi að lækka tjármagns- kostnaðinn og tillögur vanti um það hvernig draga eigi úr þen- slunni. Steingrímur hefur frestað opinberri heimsókn til Ungvcrja- lands, sem átti að hefjast 12. sept- ember, vegna óvissunnar í efna- hagsmálum. Þjóðviljinn spurði Steingrím hvort Framsóknarflokkurinn gæti sætt sig við að treyst yrði á að vextir lækkuðu í kjölfar frysting- ar verðlags og launa. Hann sagði að beita ætti 9. grein Seðlabanka- laga til að þvinga raunvexti niður. Gengisfelling leysti engan vanda nema með gífurlega hörðum hlið- araðgerðum. Steingrímur sagði töluvert ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Afundi bygginganefndar Reykjavíkurborgar í gær var slegið á frest að taka fyrir beiðni Byggðaverks um íjölgun íbúða á kostnað skrifstofuhúsnæðis í væntanlegum húsum við Aðal- stræti 8. Gunnar Sigurðsson bygginga- fulltrúi sagði að næsti fundur bygginganefndar yrði ekki fyrr en 29. september og framkvæmdir á lóðinni myndu alla vega liggja niðri fram yfir þann tíma, þar sem félagsmálaráðherra hefði fellt byggingarleyfið úr gildi. A fundinum lá einnig fyrir beiðni frá Happdrætti Háskóla íslands um leyfi fyrir nýbyggingu á horni Vonarstrætis og Suður- götu. Því máli var sömuleiðis frestað, enda ekki gert ráð fyrir neinni íbúð í húsinu, sem er á skjön við deiliskipulag Kvosar- innar. Úrskurður félagsmálaráð- herra virðist því hafa fengið full- trúa meirihlutans í borgarstjórn til að hugsa sig tvisvar um áður en fleiri byggingarleyfi í Kvosinni verða gefin. mj

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.