Þjóðviljinn - 09.09.1988, Qupperneq 22

Þjóðviljinn - 09.09.1988, Qupperneq 22
Mynclir Vereiskys Verk Orest Vereiskys til sýnis að Vatnsstíg 10 til sunnudagskvölds Félagsstarf MÍR, Menning- artengsla íslands og Sovét- ríkjanna, hófst aö nýju aö loknu sumarhléi, meö sýn- ingu á verkum sovéska mynd- listarmannsins og íslandsvin- arins Orest Vereiskys, sem opnuð var í gærkvöldi. Er sýn- ingin í sýningarsal félagsins að Vatnsstíg 10. Vereisky og eiginkona hans komu til landsins í boöi MÍR í tilefni sýningarinnar, og dveljast hér á landi í viku. Veröa þau á rabbfundi yfir kaffibolla að Vatnsstíg 10 á morgun kl. 17:00. BÍLLINN, SEM BEÐIÐ HEFUR VERIÐ EFTIR! árgewð c Orest Vereisky er fæddur 1905, og hlaut sína fyrstu tilsögn í teikningu og myndlist hjá föður sínum, Georgíj Semjanovitsj Vereisky, sem var kunnur Ustmálari og myndlistarkennari. Seinna stundaði hann meðal ann- ars nám við Rússnesku Listaaka- demíuna og við listastofnun í Leningrad. Fyrstu teikningar hans birtust á prenti þegar hann var enn á unglingsaldri, en sem fullmótaður listamaður kom hann fyrst fram í lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Eftir stríðið jókst hróður Ver- eiskys jafnt og þétt, og varð hann einkum kunnur fyrir bóka- skreytingar sínar. Meðal annars myndskreytti hann skáldsögu Mikhafls Sholokovs, Lygn streymir Don. Eftir það fylgdu myndskreytingar bóka eftir bæði sovéska höfunda og erlenda, meðal annars myndskreytti Ver- eisky Söguna af Hjalta litla, og Mamma skilur allt eftir Stefán Jónsson, en þær bækur voru gefn- ar út á rússnesku í stóru upplagi árið 1974. Sama ár kom sagan Hjalti kemur heim út hjá ísafold- arprentsmiðju og var hún einnig myndskreytt af Vereisky. Vereisky hefur ferðast mikið bæði innan Sovétríkjanna og utan og hefur viðað að sér efni í myndaraðir frá ferðaslóðunum, til dæmis frá Sýrlandi, Líbanon, Egyptalandi, íslandi, Bandaríkj- unum, og Smolenskhérði. Einnig hefur hann skrifað nokkrar bækur, meðal annars frásagnir af ferðalögum sínum, og má þar nefna bækurnar Dagbók lista- manns, í Ameríku og ísland, en Vereisky hefur nokkrum sinnum komið til íslands. Hefur hann haldið sýningar á verkum sínum hér á landi, auk þess sem hann hefur oft sýnt myndir málaðar hér á landi og myndefni frá ís- landi í Sovétríkjunum. Á sýningunni að Vatnsstíg 10 eru áuk teikninga og vatnslita- mynda allmargar ljósmyndir sem tengjast löngu starfi listamanns- ins í stjórn félagsins Sovétríkin - ísland. Einnig er til sýnis úrval af bókum sem Vereisky hefur skrif- að og myndskreytt, og sýnisbæk- ur um sovéska myndlist með um- sögnum um hann. Þar sem Vereisky tekur sýning- arefnið aftur með sér til Sovét- ríkjanna að dvöl sinni lokinni, verður sýningin aðeins opin á milli kl. 17:00-22:00 í dag, og kl. 14:00-22:00 á morgun og á sunnu- daginn. Aðgangur að sýningunni er ókeypis og öllum heimill. Við höldum hátíð um helgina í „Lsda-húsinu“ og þér er boðið. Við ætlum að sýna Lada Samara árgerð '89 og nú í fyrsta sinn 5 dyra. Gott rými, sparneytni og frábær fjöðrun, en á algjöru undraverði. Ath. Upprtökur á góðum Lada-bflum og afhending samstundis. Veitingar og óvæntar uppákomur alla helgina frá kl. 10-17. ^ r f

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.