Þjóðviljinn - 09.09.1988, Page 25

Þjóðviljinn - 09.09.1988, Page 25
BARNAKOMPAN Umsjón: KRISTÍN VALSDÓTTIR ANDRÉS GUÐMUNDSSON Stafaknippið í fyrri daga var bóndi nokkur sem átti sjö sonu. Þeir voru alltaf að ríf- ast og þeim kom svo illa saman að til vandræða horfði. Hann hafði oft reynt að sætta þá en það lánaðist ekki. Loks kom honum til hugar að þeir kynnu að láta sér segjast ef hann sýndi þeim áþreifanlegt dæmi. Hann kallaði síðan alla syni sína fyrir sig og bað þá að tína saman nokkra stafi og færa sér. Stafina batt hann saman í knippi og sagði þeim að reyna sig á því að brjóta knippið sundur. Þeir reyndu það nú hver eftir annan og gengu allir frá. Þá leysti hann sundur knippið og rétti þeim stafina og skipaði þeim aðbrjóta þá hvern fyrirsig. Það gerðuþeirleikandi. Þá mælti faðirinn: „Því er alveg eins varið með stafina og ykkur synir mínir. Meðan þið haldið sam- Skoðaðu þessa mynd vel og f inndu það sem er óvenjulegt eða skrítið. an og eruð eins og einn maður þá munið þið standa óvinum ykkar á sporði. Enef þiðverðiðósáttirog farið sinn í hverja áttina þá hreppið þið sömu afdrifin og þessir stafir sem liggjahérbrotnirfyrirfótum ykkar“. (Esóp) Dulmál: Þaðgeturstundum komið sér velað geta skrifað eitthvað sem enginn skilur. Hérna færðu dulmálslykil sem þú getur notað með vinum þínum til að bera á milli skilaboð sem enginn annarmá sjá. Þú getur líka ruglað röðinni og búið til þinn eigin dulmál- slykil. Fyrstskaltþú leysa þrautina með aðstoð lyk- ilsins. DULMÁLSLYKILL JJ JJ JJ JJ A Á BCDÐ EÉFG iDúuunQnnn H I 1J KLhNOÓ Fin LL LLŒEC PRSTUÚVYÝÞ rr Æ Ö JJULjn UL ______ ________ ___? □JLLL HJL □□□□□□□□□□□□ - NÝTT HELGARBLAÐ - IÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 25 FLÖSKUSKEYTI Leiðtogarnir útnefndir Ronald Reagan og Michael Gorbastjov eru meðal 95 manna, sem hafa verið útnefndir til friðar- verðlauna Nóbels. Þeir eru báðir tilnefndir vegna samninganna um meðaldrægu kjarnaflaugarn- ar, sem voru undirritaðir í des- ember 1987. Sá sem talinn er að muni veita leiðtogunum harðasta samkeppni um verðlaunin er Ja- vier Peres De Cuellar, aðalritari Sameinuðu þjóðanna. Friðar- höfðinginn verður valinn 29. september. Pissa ekki í kross Sérkennilegt vandamál hefur komið upp í Höll þjóðanna í Genf, þar sem samninganefndir (rana og íraka ræða lausn á deilu sinni undir stjórn Sameinuðu þjóö- anna. (Ijós hefur komið að í höll- inni er bara eitt salernisherbergi, þar sem margir geta samtímis létt á sér. Hinsvegar hleypur yfirleitt allt í bál og brand þar inni ef (rani og (raki eru samtímis á klósett- inu. Starfsmenn Sameinuöu þjóðanna hafa því nóg að gera við klósettgæsluna, að sjá til þess að aðeins menn af einu þjóðerni séu staddir á salerninu í einu. Samningamennirnir not- færa sér klósetthallærið óspart til þess að stríða andstæðingunum og ganga klögumál á víxl um að það taki hina óratíma að ganaa örna sinna. Þeir ættu að taka ls- lendinga sér til fyrirmyndar en það hefur löngum þótt góður og gegn siður að sættast með því að pissa í kross. Tíminn líður eins og óð fluga Hvernig verjum við lífi okkar - í hvað fara dagarnir? Þetta eru spurningar sem engin svör hafa fengist við hingað til. En nú er sem betur fer búið að leysa þessa gátu; þökk sé fyrirtækinu Priority Management í Pittsburg í henni Ameríku, sem búið er að reikna þetta allt út fyrir okkur rugludallana sem botnum ekkert í því hvað við eldumst hratt og verður lítið úr verki. Að vísu eru athuganirnar byggðar á daglegu lífi amerísks meðaljóns, en vafalaust geta ís- lenskir stressarar dregið nokkurn lærdóm af. Og þá er að meðtaka hin hræðilega sannleik: Sex ár ævinnar fara í að kýla vömbina. Eitt ár erum við að leita að hinu og þessu sem týnist, jafnt á heim- ili sem vinnustað (sumir geta nú eflaust margfaldað þá tölu með annarri nettri). Þrjú ár segja þeir að fari í fundasetur. Átta mánuðum teljumst við eyða í að rífa upp póst sem inni- heldur alls kyns gylliboð frá augýsendum. Og flögur ár erum við önnum kafin við heimilisstörf. Þar hefurðu það, lesandi góð- ur! Spurningin er bara hvort hægt er að heimfæra síðasta liðinn endurskoðunarlaust upp á ís- lenskan hvunndag. Nú, eða hvort við neyðumst til að koma okkur upp sérstökum lið fyrir gular yfir- dráttarharmónikkur frá viðskipta- bönkunum okkar og jafnvel öðr- um fyrir víxiltilkynningar og hót- unarbréf hjá lögfræðingum. Svari hver fyrir sig.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.