Þjóðviljinn - 09.09.1988, Qupperneq 27
KYNLIF
JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓniR
Hvemig kynfrædslu
má bjóða þér?
í kynfræðslu líkt og öðrum
greinum aðhyllist fólk mismun-
andi stefnur eða hugmyndafræði
sem eru leiðarljós í ákvarðana-
töku. í meginatriðum eru til sjö
stefnur í kynfræðslu, sem í vest-
rænum þjóðfélögum eru allar til
staðar en láta mismikið á sér bera
á hverjum tíma.
Fyrst má nefna „Engin Kyn-
fræðsla er best“ því þegar þú gift-
ist áttu sjálfkrafa að vita hvað
þarf til að lifa góðu samlífi. ef
börn og unglingar sýna sínum
kropp áhuga á maður að láta sem
maður taki ekki eftir því og þá
mun áhuginn dvína. Nú, svo er
alltaf hægt að banna slíkt fram-
ferði. Sömuleiðis finnst áhang-
endum þessarar stefnu það sanna
þeirra málstað ef ekki sjást merki
um áhuga. Viðkomandi hugsar
etv. sem svo: „fyrst stelpan mín
hefur aldrei fróað sér þarf hún
ekki á kynfræðslu að halda". Slík
lógík gengur sjaldnast upp þegar
til lengdar lætur og hefur skapað
meiri óþarfa en ánægju.
En ef fyrsta stefnan gengur
ekki upp er hægt að taka upp þá
stefnu sem má kalla „Látum
krakkana hafa nóg að gera, þá
hverfur kynhvötin í skuggann“.
Þetta sést í örri uppbyggingu
félagsmiðstöðva og eflingu alls-
kyns íþrótta í þeim tilgangi að
krakkar hafi nóg fyrir stafni. En
staðreyndin er sú að kynferðis-
legur áhugi vaknar ekki síst þegar
Skákunnendum er enn í fersku
minni einvígi Jóhanns Hjartar-
sonar og Viktors Kortsnojs í Sa-
int John í vetur. Kortsnoj beið
frægan ósigur og skákskýrendur
ýmsir höfðu þegar um það orð að
nú væri karlinn kominn fast að
sextugu, loksins búinn að vera.
Pað hefur óneitanlega verið
fremur hljótt um Kortsnoj. Pó
varð hann efstur ásamt öðrum á
opnu móti í Sviss í vetur sem vart
getur talist í frásögur færandi.
Síðan tefldi hann á heimsbikar-
mótinu í Brússel og varð þar í
einu af neðstu sætunum. Það er
margt sem bendir til þess að hann
hafi náð sínum fyrri styrk aftur.
Hann vann allsterkt mót í Frakk-
landi eigi alls fyrir löngu og bar
síðan sigur á OHRA-skákmótinu
í Amsterdam sem lauk í síðasta
mánuði. í OHRA-mótinu var
teflt í tveimur flokkum, opnum
flokki og svokölluðum krúnu-
flokki. Þar tefldu sex sterkir stór-
meistarar tvöfalda umferð og
eftir harða keppni hreppti Korts-
noj sigurlaunin. Lokaniðurstað-
an varð þessi:
fólk hópast saman og kynnist við
líkamlegar kroppatamningar.
Opinská
kynfræðsla
Hjá sumum sértrúarsöfnuðum
og sérstökum hreyfingum eins og
siðprúða meirihlutanum í Banda-
ríkjunum er „opinská kynfræðsla
best en hún verður að vera á háu
siðferðilegu eða trúarlegu plani“;
þú átt eingöngu að lifa samlífi
innan hjónabands og þá í þeim
tilgangi að geta börn því það eitt
er guði þóknanlegt. Þessi stefna
lætur ekki mikið yfir sér hér á
landi en skýtur samt upp kollin-
um öðru hverju.
Aðrir vilja meina að „besta og
raunhæfasta kynfræðsla fari
fram á götunni“. Það sé mikil-
vægast að fjarlægja leyndardóma
og sektarkenndaráhrifin þegar
kennt sé um kynferðismál. Fylgj-
endur þessarar stefnu þola ekki
rósamál og væmnisbull. Ef kyn-
lífsumfjöllun er „á jörðinni" fer
einstaklingnum að finnast slíkt
viðhorf eðlilegt og losnar frekar
við óþarfa kynlífskvíða. Skyld
stefna er „sjokkaðferðin“. Hér er
áherslan lögð á að auka markvisst
og meðvitað kvíða í sambandi við
kynlíf upp að hámarki þannig að
viðkomandi öðlist visst „ónæmi“.
Eftir að kvíðinn dettur niður er
nemandinn móttækilegri fyrir
fræðslu. Þessi hugmyndafræði
1. Kortsnoj 6 v. (af 10) 2. Nunn
SVi v. 3.-5. Van der Wiel, Nikolic
og Hort 5 v. 6. Ljubojevic 3l 2 3 4 5 6/i v.
Eins og lokastaðan ber með sér
var keppnin ákaflega jöfn. Það
tók fyrst að greiðast úr flækjunni
er Ljubojevic tapaði fjórum
skákum í röð. Kortsnoj tefldi af
miklum þrótti og vann nokkrar
góðar skákir. Helstu keppinautar
hans voru þeir John Nunn og Pre-
drag Nikolic sá sem sigraði á
Reykjavíkurmótinu 1986. Nikol-
ic virðist vera að taka við hlut-
verki Ljubojevic sem sterkasti
skákmaður Júgóslava. Ljuboje-
vic hefur átt erfitt uppdráttar
undanfarið og þetta ekki fyrsta
mótið þar sem hann vermir
botnsætið. Hann er afskaplega
viðkvæmur á taugum eins og
áhorfendur á IBM-mótinu í fyrra
fengu að kynnast.
Eina dæmigerða Kortsnoj-
skák hef ég undir höndum, viður-
eign hans við Nikolic. Nikolic
gerir harða hríð að kóngi Korts-
noj sem verst af alkunnri hörku
og knýr fram sigur með hnitmið-
aðri gagnatlögu.
telur það einnig mikilvægt að losa
um tungumálahöft hjá fólki svo
umræður um kynlíf verði eðli-
legri. Þessi aðferð er notuð með
góðum árangri í upphafi þjálfun-
ar fyrir stéttir sem sinna kynferð-
ismálum í sínu starfi s.s. kennara
og heilbrigðisstéttir. Þótt viljinn
sé fyrir hendi standa orðin nefni-
lega oft föst í fólki þegar kynferð-
ismál ber á góma.
Gerðu það sjálfur
Mannúðarsinnar segja að
„Mikilvægast sé að kenna um ást
og kynlíf samhliða.“ Þessir tveir
þættir séu mikilvægir og nauðsyn-
legir fyrir hamingjusamt líf. Kyn-
lífið sé óaðskiljanlegur hluti af
persónuleikanum. Einnig vilja
þeir meina að ef börnum er kennt
á hreinskilinn og ástríkan hátt um
kynlíf af foreldrum sínum þá
þurfi þau í rauninni ekki á annarri
kynfræðslu að halda. En rann-
sóknir hafa einmitt sýnt að þó svo
að foreldrar telji kynfræðslu vera
hlutverk sitt þá sinna foreldrar
fræðslunni ekki sem skyldi.
Ábyrgðinni er síðan varpað yfir á
skólana sem varpa fræðslunni yfir
á skólahjúkrunarfræðinginn og
aðra fræðinga og þannig getur
ábyrgð og framkvæmdum verið
velt manna á milli.
Að lokum er „Gerðu það sjálf-
ur aðferðin“. Á síðustu áratugum
hefur færst í vöxt að fólk geti
OHRA-mótið í Amsterdam
3. umferð
Nikoloc - Kortsnoj
Grúnfclds vörn
1. d4-Rf6
2. c4-g6
3. g3-c6
4. Bg2-d5
5. Rf3-Bg7
6. cxd5-cxd5
7. Rc3-0-0
8. Re5-e6
9. Bg5
(Karpov lek oftast 9. 0-0 Rfd7
10. f4 með tvísýnni stöðu.)
9. .. Db6
10. Dd2-Rfd7
11. Be3-Rc6
12. Rxc6-bxc6
13. h4
(Þeir eru fáir sem kunna að
standast slíkar freistingar. Fram-
rás h-peðsins er rökrétt framhald
af byrjanataflmennsku hvíts og
skapar kóngssóknarfæri. Hitt er
svo annað mál að vafasamt má
telja að þessi leikaðferð beri til-
ætlaðan árangur þegar teflt er við
Kortsnoj sem er mikill sérfræð-
ingur í gagnárás.)
13. .. a5
14. h5-Ba6
15. Hdl-Hfb8
16. hxg6-hxg6
17. b3-Db4!
(Heldur niðri ? hvíts. Kortsnoj
hyggst nú svara 18. Bh6 með 18.
.. Bh8).
18. Kfl-c5
19. Hh4-c4
20. Bh6-Bh8
21. bcx4-bxc4
22. Bf3-Dxc4
23. Hcl-Db4
24. Kg2-Hc4!
(Hvítur er þess albúinn að
hlaða á h-línuna en mótspil
Kortsnojs kemur á hárréttu
augnabliki.)
25. a3?
(Hugmyndin með þessari
peðsfórn er ekki skýr en erfitt er
SKÁK .*■
Kortsnoj ekki
dauður úr
öllum æðum
NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27
labbað sig útí bókabúð og keypt
fræðandi bækur í þeim tilgangi að
auðga eigin kynlífsþekkingu.
Það er gaman að velta því fyrir
sér hvaða stefna eða stefnur hafi
verið mest áberandi síðustu árin í
íslensku þjóðlífi. Áherslurnar
breytast í sífellu en það er mikil-
vægt að hið opinbera skilgreini
hvaða gildismat eða hugmynda-
fræði í kynfræðslu það aðhyllist.
Hvernig getur maður lært að
elska sjálfan sig og aðra? Hvernig
öðlast maður sjálfstraust í mann-
legum samskiptum? Hvernig get-
ur maður leyft sér að vera kyn-
vera með kynferðislegar tilfinn-
ingar og þarfir? í dag talaði ég við
fjórtán ára stúlku sem spurði mig
hvernig hún gæti talað við kærast-
ann sinn um ákveðið mál, en
henni þætti það erfitt. Ég spurði
hana þá: „Hvað er það versta sem
gæti gerst ef þú segðir honum frá
hvernig þér líður?“ Hún svaraði:
„Að hann vildi hætta með mér.“
Síðan bætti hún við hikandi: „Á
ég þá bara að taka sjénsinn og
tala við hann?“ Hún vissi sjálf
svarið.
fýrir Nikolic að bæta við sóknar-
þungann.)
25. .. Dxa3
26. Hchl-Dxc3
27. Dxc3-Hxc3
28. Bd2-Bxd4!
(Kortsnoj gefur einfaldlega
skiptamun því eftir 29. Bxc3 Bxc3
stendur hann mun betur að vígi
með tvö peð upp í og stórhættu-
legan frelsingja á a-línunni.
Sennilega hefði Nikolic átt að
velja þennan kost en hann kýs
aðra leið og lakari.).
29. Hxd4?-Hc4!
30. Hd3-Bb7
31. g4-a4
32. Ha3-Bc6
33. Kg3-Hb8
34. g5-Hb3
35. Haal-Re5
36. Hh6-Rxf3
37. exf3-d4!
- og Nikolic gafst upp.
BRIDDS
Ólafur
Lárusson
Mikilvægasti þáttur bridge-
spilsins, er vörnin. Lítum á eitt
dæmi:
Norður
ÁKD
ÁKDG2
ÁDG98
Vestur
9652
1098
54
K1063
Sagnir höfðu gengið:
Norður Austur
2 lauf pass
3 tígl. Pass
4 lauf Pass
5 spaðar Pass
6 hjörtu Pass
Pass Pass
Suður Vestur
2 spaðar Pass
3 hjörtu Pass
4 grönd Pass
5 grönd Pass
6 grönd Pass
Þú situr í vestur og spilar út
hjartatíu. Blindur leggur upp.
Sagnhafi tekur þrjá efstu í hjarta,
allir fylgja lit. Síðan eru þrír há-
menn í tígli teknir, sagnhafi
fleygir tveimur spöðum og þú
fleygir einum spaða. Greinileg
vonbrigði hjá sagnhafa. Nú tekur
sagnhafi ás í laufi, allir með og
síðan laufadrottningu, og félagi
þinn hendir spaða. Hvað gerir
þú?
Það blasir við að drepa á kóng-
inn, því annars getur sagnhafi
spilað lágum tígli og hent félaga-
þínum inn í spilið. Við drepum
því á laufakóng og pössum okkur
á því að spila laufaTÍU til baka.
Ef við gerum það ekki, hefur fé-
lagi enga vitneskju um á hvorri
höndinni sagnhafi vinnur þann
slag. Allt spilið var svona:
9652 ÁKD ~~ ÁKDG2 ÁDG98 D1083
1098 543
54 109863
K1063 5
ÁKG74 G762 7 742
Laufatían „hreinsar“ stöðuna í
enda spilsins og Austur sér að
blindur lokast inni og verður að
gefa slag í lokin á tígul.
-Tekið úr bók eftir K. Woolsey.