Þjóðviljinn - 09.09.1988, Blaðsíða 32
Svanasöngur
Guðmundar Joð?
Staða formanns Dagsbrún-
ar og Verkamannasam-
bandsins, Guðmundar J.
Guðmundssonar - hefur
aldrei verið eins veik innan
verkalýðshreyfingarinnar og
þessa dagana, eftir að hann
lenti einn í minnihluta á fundi
miðstjórnar ASÍ á mánudag-
inn var. Guðmbndur sat hjá
þegargreidd voru atkvæði um
yfirlýsingu ASÍ þar sem öllu
samráði við ríkisstjórnina um
kauplækkun var hafnað og
niðurfærsluhugmyndin þar
með jörðuð. Innan verkalýðs-
hreyfingarinnar gengur sú
saga að Guðmundur hafi átt
tíða fundi með forystu-
mönnum stjórnarflokkanna í
síðustu viku og lofað sam-
þykki Verkamannasam-
bandsins um samráð við ríkis-
stjórnina við niðurfærsluna
gegn því að honum yrði
tryggður stuðningur fulltrúa
stjórnarflokkanna á ASÍ-
þinginu í haust við framboð til
forseta ASl.
Hákonsen,
Reykholt, Finland
Ólafur kóngur er geysivin-
sæll af löndum sínum og ekk-
ert fjær Norðmönnum en að
leggja niður konungdæmið,
allra síst norskum vinstri-
mönnum (enda haft í minnum
þegar Hákon faðir Ólafs sagði
í stríðinu að hann væri „ogsá
kommunisternes konge").
Auk þess að njóta virðingar
sem sameiningartákn hefur
Ólafur lengi haft einskonar
bangsa-sjarma, og vinsældir
hans eru að því leyti líkar hylli
Steingríms Hermanns-
sonar hér að Ólafur skriplar
stundum illilega á smáatriða-
skötunni. íslendingar hafa
kynnst þessu líka, - þegar
hann kom hér síðast fyrir rúm-
um áratug er til þess tekið að
hann hafi í skálaræðum talað
grunsamlega mikið um Finn-
land og Finna, - og hápunktur
ferðarinnar nú í Reykholti
varð ýmsum tilefni til að rifja
það upp þegar Ólafur krón-
prins kom 1961 í Reykholt,
minntist fornra tengsla og gaf
okkur styttuna af „Herr
Snúrresen“...B
Ólafur Vaff
Ragnheiður Ásta Péturs-
dóttir er í hópi hinn allra
traustustu útvarpsmanna á
gömlu góðu gufunni, og það
þótti því heldur hlálegt þegar
henni varð á að lesa tilkynn-
ingu um Noregskonunginn
Ólaf Vaff í vikubyrjun í beinni
útsendingu. Þetta varð
auðvitað tilefni ýmissa brand-
ara um hugsanlegan skyld-
leika konungs við Láru Vaff
og Þórarin Vaff og fleiri Vaff-
ara íslenska. Þulurinn þótti
hinsvegar bjarga sér vel úr
klípunni með afsökunarbeiðni
og gamalli útvarpsskrítlu um
aumingja þulinn sem las fréttir
af konungi íslands og Dan-
merkur, Kristjáni Ex.B
\
VGRÖLDIN ’SS
*
Ragnhildur Gísladóttir og Jakob
Magnússon eru smekkfólk á
fleira en tónlist, það er greinilegt.
Á sýningunni VERÖLDIN 88
hafa þau innréttað 230 fermetra
íbúð eftir eigin höfði.
Valið húsmuni, liti og alla
umgjörð; jafnvel vegghallann!!
íbúð sína kalla þau dvalarheimili sitt.
Árangurinn kemur svo sannar-
lega á óvart; smekklegur og
frumlegur í senn.
V/CDríl niM'QQ
iNNAN VEQGJA OG UJAN
Á sýningunni VERÖLDIN 88 er
fjöldi nýjunga.
Allskonar kynning á vöru og
þjónustu.
Auk allskonar skemmtiatriða.
Athugið að Ragnhildur og Jakob
verða sjálf í dvalarheimili sínu á
virkum dögum kl. 18 og 20, en
um helgar kl. 15,17,20 og 21.
Opið virka daga frá kl. 16-23. Um helgar frá kl. 13-23. Aðgöngumiðasölu hætt alla daga kl. 22.