Þjóðviljinn - 30.09.1988, Qupperneq 2
SKAÐI SKRIFAR
I ROSA-
GARÐINUM
Sá hefur nóg sér
nægja lætur
Paulina Porizkova lýsir
draumaprinsinum sínum þannig:
„Hann á að vera blanda af herra
Spock (úr Star Trek), David
Bowie, Jesú Kristi og Chopin.
Hann má líta út hvernig sem er.
DV
í lífsins táradal
Altari nútímaheimilisins er
sjónvarpstækið. Þar fórnar hver
og einn tveimur tímum daglega
og styttir biðtímann fram að and-
látinu, líkt og andlátið sé hið eina
skemmtilega sem hann á von á í
lífisínu.
Morgunblaðið
Látið ekki happ úr
hendi sleppa
Örfáir skipta á milli stöðva 1 og
2 og reyna að sjá ástfanginn lög-
fræðing lauma pillu í glas elsk-
unnar sinnar á 1 og líka þegar ung
stúlka læðist með hnífgrélu aftan
að unnusta sínum á 2. Heppnir ná
báðum morðunum.
Morgunblaðið
Undurveraldar
Hótelmenning í Seúl kemur
okkur íslendingum einkennilega
fyrir sjónir, en eins og vitað er þá
þykja vændiskonur sjálfsagður
hlutur í Asíulöndum og eru ör-
ugglega með þeim snyrtilegustu
sem þekkjast.
Tíminn
Að vera
ekki
Allaballi
Jæjaþáíþetta sinn. Þáeru þeir
búnir að svíkja skynsemina,
heiðarleikann lýðræðið og Sjálf-
stæðisflokkinn minn þeir
Steingrímur og Jón Baldvin og
semja við kommana. Sækjast sér
um líkir. Saman níðingarskríða.
En þeir um það. Eigi skal mæðast
af meinum meðan Mogginn kem-
urút.
Ég, Skaði ,fylgdíst dálítið með
þessu útskryppi sem þeir kalla fé-
lagsfræðastjórn eða þannig með-
an það var að fæðast. Því þótt
skömm sé frá að segja hefi ég,
sem alla tíð hefi barist við alla
kommúnista eins og Albert,
innhlaup í Allaballann gegnum
frænda minn einn, sem þar prflar
eitthvað á þvertrjám fjölskyld-
unni til ama og armæðu.
Ég hafði verið að fylgjast með
honum og ég fann á honum að
það fór einhver tilvistarfiðringur
um hans afvegaleidda kropp hér
á dögunum. Hann stóð stundum
úti í tungsljósi og sönglaði gaml-
an slagara: Ég vildi ég væri hænu-
hanagrey. En á morgnana söng
hann svo allt annað lag:
Ég vildi ég væri ógnarlangur áll
örmjórog háll.
Amar eitthvað að þér, frændi
sæll? spurði ég
Nei, sagði hann.Og þó.
Viltu kannski fara í stjórn?
spurði ég.
Það er nú það, sagði hann.
Það er nú hvað? spurði ég.
Ég erstundum að velta því fyrir
mér, sagði hann. Hvort það er
betra að stíga til vinstri og vera
hengdur eða stíga til hægri og
verabrenndur.
Það er bara svona, sagði ég. Af
hverjuganarþú ekki barasta
beint af augum?
Hvað er beint í þessari veröld
nú orðið, Skaði, spurði hann.
Þetta grunaði mig, sagði ég.
Svona eruð þið alltaf stofukomm-
arnir. Þið þorið hvorki að vera í
stjórn né utan stjórnar nema ein-
hver áreiðanlegur maður segi
ykkur fyrst, hvort það sé meining
í mannkynssögunni eftir að Stalín
dó.
Lýgur þú því, Skaði, sagði All-
aballinn. Ég veit alveg hvað ég
vil. Það fer ekkert á milli mála.
Nú og hvað er það? spurði ég.
Ég vil mynda félagshyggju-
vinstristjórn sem mun böl bæta
frystihúsa, kvenna, refabænda,
kennara, aldraðra, útgerðar-
manna, barna dreifbýlismanna
og húsasmiða. Og ég vil með
engu móti sitja í stjórn sem tekur
við þrotabúi léttlyndrar borgar-
astjórnar sem dró þjóðina inn í
jötunheimafrjálshyggjunnarog
skildi hana þar eftir ærða af út-
varpssíbylju. Égvilfaraístjórn
til að sparka í rassinn á ykkur
íhaldsmönnum og sýna ykkur í
þann heim þar sem þið eruð völd-
um og hroka sviptir eins og skítur
á priki. Ég vil heldur alls ekki að
þið Sjálfstæðismenn sleppið við
að stjórna landinu, því að þeim
verður að svíða sem undir míga.
Ég vil fara í stjórn til að sýna fram
á ábyrgðarleysi Kvennalistans.
Ég vil alls ekki fara í stjórn til að
Kvennalistinn leiki ekki lausum
hala í lausum skrúfum þjóðar-
mótorsins. Ég vil fara í stj órn...
Frændi, greip ég fram í fyrir
honum. Og hvað með það? Hvað
er það sem þú eiginlega vilt?
Þú skilur þetta ekki Skaði,
sagði hann, enda veist þú ekkert
um díalektíkina. Aðalatriðið er
að ég vil svo margt og legg mig
allan fram um það. Eg er sleginn
þeim sanna eldi áhugans.
Áhuga á stjórn og stjórnar-
andstöðu? spurði ég.
Skaði minn, sagði Allaballinn
frændi minn. Má ég minna þig á
eitt spakmæli sem hér á vel við.
Þegar til lengdar lætur getur
hvorki fyllirí né bindindi bjargað
einum listamanni.....
Betri nýting fjárfesting-
ar
en í íslenska hótel-
bransanum
Það vekur athygli að á hótelum
hér í Seúl standa laus herbergi
j afnan opin og geta þá vændis-
konurnar brugðið sér inn í her-
bergin ásamt viðskiptavinum sín-
um til þess að stunda lárétt við-
skipti.
Timlnn
Þetta allt
og himininn líka
Þriggja flokka stjórn og einn
Stefán.
Fyrirsögn í Tímanum
Ég vildiég væri
hænuhanagrey
Maðurinn, það er að segjaver-
an sjálf, erform eða mynstur sem
alheimsframvindan hefur skrifað
í efnið og samanstendur af efni,
bylgjuog anda.
Arkitektúr og sklpulag
Svona er að nenna
ekkitilfjallsins
Khomeini erkiklerkur írana er
nú sagður á höttunum eftir sókn-
arpresti Ólafsfirðinga, en hann
hvað vera fyrsti spámaðurinn
sem vitað er til að hafi tekist að fá
til sín fjallið. En eins og vitað er
ruddist hluti þess inn í bílskúrinn
hjáhonum.
DV