Þjóðviljinn - 30.09.1988, Síða 6

Þjóðviljinn - 30.09.1988, Síða 6
;$í f t EIGINHAGSMUNAVERND EBA FANGAVERND? Öll völd á hendi Jónu Gróu Sigurðardóttur. Deilt um það hversu víðtæk fangahjalpin á að vera „Það hlaut að koma að þessu. Fangahjálpin Vernd hefur verið í kreppu undir stjórn Jónu Gróu Sigurðardóttur. Þeir sem hafa raunverulegan áhuga á fanga- hjálp eru allir þeirrar skoðunnar að nauðsynlegt sé að hreinsa til í forystunni," sagði ónafngreindur heimildarmaður Nýja Helgar- blaðsins um ástæður þess að aðal- fundur Verndar leystist upp í síð- ustu viku vegna deilna um at- kvæðisrétt þeirra sem mættir voru á fundinn. Það er einkum tvennt sem deilt er um innan Verndar, fyrir utan persónulegar erjur. í fyrsta lagi þykir Jóna Gróa Sigurðardóttir hafa of mikil völd. í annan stað er tekist á um það hversu víðtæk fangahjálp Verndar skuli vera, einkum í ljósi þess að í næsta mánuði tekur til starfa fangels- ismálastofnun á vegum dóms- málaráðuneytisins, en sú stofnun á meðal annars að sinna fanga- hjálp innan fangamúranna. Völd Jónu Gróu Lítum fyrst á völd Jónu Gróu. Hún er formaður framkvæmda- stjórnar Verndar. Þá er hún framkvæmdastjóri samtakanna og á fullum launum sem slík. Einnig er hún formaður hússt- jórnar heimilis Verndar á Lauga- teig. Auk þess er sonur hennar Sig- urður Guðmundsson ritstjóri blaðs Verndar og þiggur laun fyrir það. Stefnt er að því að Verndarblaðið komi út fjórum sinnum á ári en aðeins eitt tölu- blað hefur komið út það sem af er þessu ári. Einn af viðmælendum Nýja Helgarblaðsins sagði að Sigurður væri með föst laun sem ritstjóri Verndarblaðsins. Jóna Gróa vildi ekki upplýsa hvernig launa- greiðslum til sonar hennar væri háttað þegar þetta var borið undir hana. Hún benti hinsvegar á að þær upplýsingar myndu liggja á lausu þegar aðalstjórn hefur haldið fund sinn. Jóna Gróa er einnig ásökuð um Jóna Gróa Sigurðardótlir, formaður Verndar, framkvæmdastjóri Verndar, formaður hússtjórnar heimiiisins á Laugateigi. Sonur hennar er ritstjóri blaðs Verndar. Formaður Vemdar taldi sig þurfa vemd Jóna Gróa hefur misst allt traust fanga á Litla-Hrauni. Árni Frímann Jónsson: Innan Verndar ríkir hálfgert einræði „Formaður Verndar hefur misst allt traust fanga á Litla- Hrauni," sagði Árni Frímann Jónsson, formaður trúnaðar- mannaráðs fanganna, þegar Nýja Helgarblaðið bað hann að segja sitt álit á því sem gerðist á aðal- fundi Verndar og hvernig málið horfði við þeim sem málið stend- ur næst. Árni Frímann var á fundinum. Hann hafði komið þangað í fylgd Björns Einarssonar, félags- málafulltrúa Verndar. Hann sagðist hafa orðið mjög hissa á þeirri valdabaráttu sem átti sér stað á fundinum. Þá hefði hann ekki síður orðið hlessa þegár í ljós kom að það átti að meina honum að taka þátt í kosningunni og einnig öðru fólki sem hafði áhuga á fangahjálp. Þegar Jóna Gróa ákvað svo að slíta fundi og yfirgefa hann segir hann mælinn hafa fyllst. „Það átti að sniðganga fólk sem þarna mætti með hag fanga fyrir brjósti. Einsog málið horfir við okkur föngunum þá ríkir ekk- ert lýðræði lengur innan Verndar heldur hálfgert einræði. Vernd er að breytast í fjölskyldufyrirtæki Jónu Gróu og sonar hennar. Fangarnir misstu allt álit á Jónu Gróu þegar hún kom í heimsókn á Litla-Hraun sl. haust. Þá treysti hún sér ekki til að ræða við fangana nema í fylgd fangavarðar. Þetta er þvílík fjar- stæða að það tekur engu tali. Það hefur aldrei gerst, að minnsta kosti ekki síðan ég kom hingað, að fangar hafi ógnað gestum, síst þeim sem hafa að yfirvarpi að hjálpa okkur.“ Árni Frímann sagði að mikil- vægasti stuðningurinn sem fang- amir gætu fengið væri uppbygg- ing á meðan þeir væru í varð- haldi. „Það verður að vinna innanfrá í fangelsunum. Ástandið hér á Litia-Hrauni er t.d. mjög slæmt, þrátt fyrir að allir séu af vilja gerðir til þess að bæta það. Það er t.d. afar brýnt að koma á deildaskiptingu í fangelsinu. Þá þarf að taka upp áfengisfræðslu hér. Einnig þyrfti að ráða sál- fræðing á staðinn. Það eru ýmsar geðsveiflur hjá mönnum sem sitja inni einsog búast má við. Til skamms tíma hefur verið starf- andi einn sálfræðingur sem á að sinna öllum fangelsum landsins en þeir þyrftu minnst að vera þrír, - einn hér á Litla-Hrauni, einn í Reykjavík og einn sem sinnti Kvíabryggju og Akureyri. Það er hægt að gera stórátak í þessum málum en það vantar fjármagn til þess og þar kemur Vernd inn í myndina. Það á að vinna að því að fyrirbyggja að maður lendi aftur og aftur í fang- elsi einsog alltof algengt er nú. Eini maðurinn sem hefur sinnt föngum í fangelsum er Björn Ein- arsson. Við fangar og fyrrverandi fangar teljum að Björn sé hæfasti maðurinn til að þoka þessum málum áfram og því æskjum við þess að hann taki að sér stjórn Verndar.“ Árni Frímann sagðist algjör- lega mótfallinn því að Vernd ein- angraði starfsemi sína við heimil- ið á Laugateig. „Það er of seint að leiðbeina mönnum þegar þeir koma út í þjóðfélagið. Upp- ygginguna verður að byrja á með- an maðurinn er í fangelsi.“ Þá sagði Árni Frímann að fang- arnir vildu að blað Verndar fjall- ði meira um málefni fanganna en hingað til. Hann sagði það svo sem gott og blessað að sagt væri frá jólabösörum samtakanna en það væri ekki síður brýnt að fjalla um þann aðbúnað sem er í fang- elsum landsins í dag og hvaða úr- bætur mætti gera í þeim málum. -Sáf að hafa misnotað stöðu sína innan Verndar í prófkjörsslag fyrir Sjálfstæðisflokkinn og m.a. varð blaðamál úr því á sínum tíma þar sem því var haldið fram að hún hefði notað síma happ- drættis Verndar í kosningasm- ölun. Hún sagði það alrangt. Þessir símar hefðu verið hugsaðir til þess að taka á móti pöntunum á happdrættismiðum en það hefði gefist illa og því verið hætt við það og þegar upp var staðið reyndist símreikningurinn vegna þessarar tilraunar vera 1800 krónur. Hvað sem öðru líður þá finnst ýmsum áhugamönnum um fanga- hjálp Jóna Gróa hafa ansi mikil völd innan samtakanna, nánast einræði einsog fangarnir á Litla Hrauni halda fram. Sjálf segist hún ekki geta litið á þessa uppá- komu í síðustu viku öðru vísi en sem valdabaráttu. Starfsviö Verndar En það er tekist á um fleira. Hvert skal starfsvið Verndar vera? Á Vernd bara að reka hús- ið á Laugateig, þar sem 17 manns geta dvalið eða á starfsviðið að vera víðtækara einsog það hefur verið hingað til? Margir líta á Björn Einarsson, félagsmálafulltrúa Verndar, sem hinn pólinn í samtökunum, þótt ekki sé hann orðaður við að vilja efla eigin fram innan samtak- anna. Hinsvegar er ljóst að hann vill veg samtakanna sem mestan. Björn hafði sjálfur afplánað sjö ára fangelsisvist þegar hann fór að starfa að fangahjálp árið 1981. Þegar hann var sjálfur fangi stofnaði hann trúnaðarmannaráð fanga á Litla Hrauni og vann að ýmsum umbótum á aðstæðum þar. Hann á fullt traust fanganna enda þekkir hann líf þeirra betur en nokkur annar, bæði innan múranna og utan. Björn sagði að það hefði kom- ið fram á fundinum eftir að Jóna Gróa og hennar fólk hefði yfii- gefið hann, að þessir gömlu Verndarmenn, sem héldu áfram fundi, hefðu fullan hug á að hleypa meira lífi í samtökin og koma á breiðari stjórnun þeirra. Þarf aö efla starfið Björn sagði að undir stjórn Jónu Gróu hefði starfsaðstaða Verndar batnað mikið, hinsvegar skorti á að efla sjálft starfið. „Samtökin njóta trausts innan embættismannakerfisins og er það mjög gott, en ég hefði viljað að samtökin nytu meira trausts meðal almennings.“ Björn sagðist vera algjörlega andvígur því að samtökin drægju úr fangahjálp þó svo að fangelsis- stofnun tæki til starfa í næsta mánuði. Þvert á móti taldi hann að það þyrfti að efla fangahjálp samtakanna. Sem dæmi um þá hjálp sem Björn hefur staðið fyrir að und- anförnu er að hann hefur fengið lækna SÁÁ á Vogi til að fara austur á Litla Hraun og efla þar áfengisfræðslu og uppbyggingar- starf, en flestir fanganna eru fast- ir í neyslu áfengis og annarra vím- ugjafa. Þá hefur þeim verið um- bunað sem hafa stundað mannrækt og reynt að byggja sig upp af fullum krafti, með því að vera leystir úr haldi eins fljótt og nokkur kostur er á. „Mér finnst það skrítið og ég á erfitt með að sætta mig við það að engu skuli kostað til áfengis- fræðslu í fangelsum, en 70% fanga eru alkóhólistar. Það væri æskilegt að það kæmi beiðni um slíka fræðslu og eðlilegast að sú beiðni kæmi frá Vernd. Það er neisti í flestum mönnum. Það er bara spurning um að virkja hann.“ Björn benti á að ekki leituðu allir fyrrverandi fangar til hússins þegar þeir væru búnir að afplána dóm sinn. Sumir eiga eigin íbúðir eða hafa íbúðir á leigu en vantar peninga til þess að greiða leigu eða skuldir. Þessir menn þurfa ýmsa hjálp þegar þeir fara aftur að takast á við veruleikann utan rimlanna. „Það þýðir ekkert hálfkák í þessum málum. Ég þekki vel hvað það er að ganga út í ystu myrkur. Eftir því sem lengra er gengið að heiman þess lengri er leiðin heim aftur og þessir menn hafa flestir gengið götuna til enda. Endurreisnin er því erfið og það þarf því eðlilega að styðja þessa menn. Á þessu sviði hefði þurft að efla áhugamannastarf Verndar mjög mikið. Við ættum að hafa í huga orð Jóns Sigurðs- sonar, fyrrverandi dómsmálaráð- herra: Þegar maður er kominn í fangelsi er hann skjólstæðingur samfélagsins en ekki and- stæðingur þess. Ég vil virkja sem flesta til þessa starfs en mörgum finnst að samtökin séu að læsast. Ætli menn hinsvegar að eyða orkunni í valdabaráttu get ég staðið upp úr stól mínum.“ Laugateigs- heimilið Heimilið að Laugateig er rekið af Vernd. Þar geta 16 manns búið samtímis. Þetta hefur verið án- ingastaður fyrir fanga eftir að þeir losna úr prísundinni á leið sinni aftur út í lífið. Björn sagðist vilja auka mjög lífið og starf- semina í húsinu og halda þar áfram uppbyggingarstarfsemi þessara manna til þess að flýta för þeirra út í lífið. Sigurjón Jósepsson er hús- vörður á Laugateignum. Hann telur mjög mikilvægt að tekið sé upp samstarf við SAÁ um að fólk frá þeim vinni með heimilis- mönnum. Hann segist hafa rætt þetta við SÁÁ og fengið mjög góðar undirtektir. Undirtektir hjá stjórn Verndar hafa hinsveg- ar ekki verið jafn góðar. „Jóna Gróa hefur lýst því yfir við mig að hún sé alfarið andvíg þessu. Vernd sé eitt og SÁÁ ann- að. Þeir heimilismanna sem þurfi á aðstoð SÁÁ að halda geti sótt þá aðstoð þangað. Ekki fyrir allmörgum dögum lokaði einn heimilismanna sig inni á herbergi sínu í tvo sólarhringa. Hann er alkóhólisti en var edrú, en hald- inn kvíða og brást því þannig við. Ég hef ekki þekkingu til þess að meðhöndla slíkan mann; hins- vegar hefur SÁÁ slíka þekkingu og ég get ekki skilið hversvegna ekki má taka upp samvinnu við þá.“ -Sáf 6 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.