Þjóðviljinn - 30.09.1988, Síða 21

Þjóðviljinn - 30.09.1988, Síða 21
HELGARMENNINGIN Rannsóknir Stjömu-Odda Baðstofustemmning meö Tsjekhov og Frú Emelíu Haust með Tsjekhov í Listasafni íslands á vegum Frú Emelíu „Að vera með Tsjekhov er einsog að vera með gull,“ sagði Guðjón Petersen hjá Frú Emelíu, en á laugardags- kvöldi hefst á vegum frúar- innar leiklestur á helstu leikri- 'tum Antons Tsjekhovs í Lista- safni íslands. Þessa helgi og þrjár næstu munu leikarar á vegum Frú Em- elíu lesa upp fjögur þekktustu leikverk Antons Tsjekhovs. Þetta eru leikritin Mávurinn, sem lesinn verður upp nú á laugardag og sunnudag. Næstu helgi verður Kirsuberjagarðurinn lesinn upp. Þar næstu helgi Vanja frændi og upplestrinum lýkur á leikritinu Þrjár systur, sem flutt verður helgina 22.-23. október. Leik- stjóri að öllum upplestrunum er Eyvindur Erlendsson, en margir þekktir leikarar munu sjá um að flytja áheyrendum textann. Guðjón sagði að þar sem Frú Emelía hefði ekki ráðið við heila leiksýningu á Tsjekhov hefði ver- ið ákveðið að fara þessa leið. Auk upplestursins mun Frú Em- elía gefa út leikritin í fjórum heft- um. „Þetta hefur verið að gerjast með okkur síðan í vor. Við höfðum samband við Eyvind og hann reyndist hafa mikinn áhuga á þessu. Þá var haft samband við Listasafnið til þess að veita Tsjekhov virðulega umgjörð og það mál var auðsótt." Að sögn Guðjón er alltof lítið gert af því hér á landi að vera með leiklestur, hinsvegar sé þetta mjög algengt erlendis, þar sem mörg leikhús eru jafnvel með fastan leiklestur einusinni í viku. „Ég held að þetta leikhúsform ætti að falla íslendingum mjög vel í geð, því við höfum svo gam- an af sögum. Þetta er ekki ósvip- að baðstofuupplestrunum í gamla daga, þar sem bókin var látin ganga á milli manna. Þetta verður enginn þurr upplestur heldur munu flytjendur leika textann, þótt þeir lesi hann af bók. Upplesarar að Mávinum nú um helgina eru þau Arnar Jóns- son, Baldvin Halldórsson, Guð- rún Ásmundsdóttir, Jóhann Sig- urðarson, Björn Karlsson, Krist- björg Kjeld, María Sigurðardótt- ir, Rúrik Haraldsson, Sigrún Edda Björnsdóttir og Sigurður Skúlason. Guðjón var spurður að því hvort eitthvað annað væri á döf- inni hjá Frú Emelíu. Hann sagði að seinna í vetur myndi Frú Em- elía væntanlega færa upp leikgerð sem hann ásamt Hafliða Arn- grímssyni væri að vinna upp úr sögunni Hamskiptin eftir Kafka. „Hamskiptin verða væntanlega frumsýnd um eða upp úr ára- mótum, en við erum nú að leita að húsnæði undir sýninguna.“-Sáf Voru rannsóknir Stjörnu-Odda á 12. öld vísir að íslenskri stjörnufræði, sem hefði getað þróast eftir eigin leiðum ef forsendur hefðu verið fyrir hendi? í október í ár eru liðin hundrað ár frá því að Anton Tsjekhov fékk fyrstu opinberu viðurkenninguna fyrir ritverk sín, en í október 1888 fékk hann hin virtu Puskin-verðlaun. Þessari spurningu varpaði Þorsteinn Vilhjálmsson eðlis- fræðingur fram á fyrirlestri sem hann hélt í Odda á mánu- dagskvöld og fjallaði um þörf íslendinga á miðöldum fyrir tímatal og þær rannsóknir sem Stjörnu-Oddi gerði á gangi sólar. Var þessi fyrir- lestur nokkurt nýmæli því til hans boðuðu í sameiningu Eðlisfræðifélagið og Félag ís- lenskra fræða, og var það framtak vísirinn að samvinnu og að stofnun áhugamanna- hóps um rannsóknir á vís- indasögu íslands. í fyrirlestrinum færði Þor- steinn Vilhjálmsson rök að því að vegna þeirra kerfisbundnu út- hafssiglinga sem voru nauðsyn- legar til að landið væri byggilegt og vegna landhátta yfirleitt hefðu íslendingar á miðöldum haft sér- staka þörf fyrir nákvæmt tímatal, sem hlyti að vera byggt á nokkuð öðrum forsendum en tímatal á suðlægari slóðum, þ.e.a.s. eink- um á gangi sólar. Rakti hann síð- an elsta tímatal landsmanna og þá leiðréttingu sem Þorsteinn surtur gerði, þegar hann kom á sumarauka. Loks fjallaði hann ít- arlega um rannsóknir Stjörnu- Odda, sem talinn er hafa verið uppi á 12. öld; komst hann að ýmsum athyglisverðum niður- stöðum um gang sólar, sem heim- ildir greina frá og hafa augsýni- lega verið byggðar á nákvæmunm athugunum. Þorsteinn Vilhjálmsson velti fyrir sér þeim aðferðum sem Stjörnu-Oddi hefði getað beitt við athuganir sínar, og sagði að hann hefði getað miðað við fjalla- hringinn kringum heimabæ sinn, Múla í Reykjardal, en einnig hefði hann getað reist hringlaga garð til viðmiðunar. Svo merki- lega vill til, að í Flatey á Skjálf- anda, þar sem heimildir segja að Þorsteinn Vilhjálmsson, eðlisfræðingur segir að Stjörnu-Oddi, sem uppi var á 12. öld hafi komist að ýmsum athyglisverðum niðurstöðum um gang sólar. Stjörnu-Oddi hafi einnig fengist við rannsóknir sínar, er að finna lágan hringlaga garð, sem liggur umhverfis mjög lítinn hól. Er þetta mannvirki kallað „Arnar- gerði“, en Þorsteinn Vilhjálms- son taldi að vel mætti vera að þetta hafi verið athugunarstaður Stjörnu-Odda. Útiloka fornleifa- fræðingar engan veginn að garð- urinn sé frá hans tíma. Þorsteinn taldi að athuganir Stjörnu-Odda hefðu getað orðið upphafið að íslenskri stjörnu- fræði, sem hefði þá að öllum lík- indum beinst meir að því að rann- saka gang sólar en annars staðar tíðkaðist, og miðað þá við okkar norðlægu slóðir. Ekkert fram- hald varð þó á slíkum rannsókn- um, vegna þess að skömmu síðar fóru að breiðast út um Evrópu og til íslands forngrísk rit um stjörnufræði, sem veittu svo ná- kvæma þekkingu um ýmis atriði að minni þörf varð á rannsóknum yfirleitt. e.m.j. NÝTT HELGARBLAÐ -

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.