Þjóðviljinn - 30.09.1988, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 30.09.1988, Blaðsíða 11
íslensku keppendurnir íSeoul hafa ekki staðið undirþeim vœntingum sem tilþeirra eru gerðar Olympíuleikunum í Seoul fer senn að ljúka og hefur áhugi íslendinga á þessari miklu íþróttahátíð aldrei verið jafn mikill, þökk sé miklu írafári fjölmiðlanna auk mjög frambæri- legra keppenda okkar Islcndinga. Flestir hafa þeir nú lokið keppni og því hægt að skoða árangurinn í víðu samhengi en eins og mönnurn er kunnugt er hann ekk- ert til að hrópa húrra fyrir. Miklar kröfur Við íslendingar höfum vafa- lítið aldrei átt eins góða mögu- leika á að komast á verðlaunapall á ólympíuleikum og einmitt nú. Möguleikarnir voru líka á fleiri sviðum en áður því ásamt því að Bjarni Friðriksson stefndi að sama árangri og í Los Angeles þá átti handboltalandsliðið helst að hirða gullið, Einar Vilhjálmsson að feta í fótspor föður síns og Vésteinn Hafsteinsson og Eð- varð Þór Eðvarðsson áttu á góð- um degi að vinna til verðlauna. Þetta voru kröfurnar sem al- menningur hér á landi taldi ósköp eðlilegar því víst kurinum við því illa að standa nágrannaþjóðum okkar að baki. Þessi orð eru vel að merkja skrifuð áður en árangur Bjarna og Vésteins lítur dagsins ljós og þá hefur landsleikur fslands og A-Þjóðverja um 7. sætið enn ekki farið fram. íslendingar hafa verið manna iðnastir við að bera sína getu á ýmsum sviðum saman við höfða- tölu og auðvitað erum við bestir allra að meðaltali. En á stór- mótum sem ólympíuleikum þýðir ekkert að flækja hlutina með slík- um útreikningum. ísland verður að eiga sínar hetjur rétt eins og önnur Norðurlönd og jafnvel enn frekar en þjóðir eins og Surinam, Senegal, Jómfrúreyjar og Hollensku-Antilleyjar. Hér á landi er það ekki lengur höfuðat- riðið að vera með, heldur er árangurinn æ meira virði og keppendur okkar eru vegna þessa í brennidepli þjóðarinnar. Þar liggur kannski skýringin á t.a.m. slöku gengi handbolta- landsliðsins, þ.e. kröfurnar eru mjög miklar á fáa einstaklinga. Landslið Svía í handbolta er varla undir mikilli pressu heiman frá því Svíar eru með íþróttafólk í fremstu röð í öðrum boltaíþrótt- um auk þess sem einstaklingar á borð við Patrik Sjöberg og Stefan Edberg eiga hug þeirra allan. Enda ollu þeir báðir sænsku þjóðinni miklum vonbrigðum. Þá er það séríslenskt fyrirbrigði að handbolti sé íþrótt númer eitt, tvö og þrjú. Afreksmaðurinn setur sér kröfur En hvaða kröfur skyldu vera eðlilegar og réttmætar af hálfu okkar íslendinga? Auðvitað er erfitt að finna einhverja formúlu fyrir því en íþróttafólkið sjálft ætti helst að setja þær fyrir sig. Handboltalandsliðið setti sér þá lágmarkskröfu að vera meðal sex efstu, enda eru neðri sæti ekkert nema afturför, og þá var draumurinn auðvitað að komast á verðlaunapall. Einar Vil- hjálmsson ætlaði sér að komast í Einar Vilhjálmsson er senniiega okkar seinheppnasti iþróttamaður og hafnaði enn einu sinni í 13. sæti. Hver skyldi nú verða fyrir mestum vonbrigðum, almenningur eða hann sjálfur? úrslit og hafna ekki neðar en í Los Angeles þarsem hann varð sjötti. Eðvarð Þór stefndi á átta manna úrslit í 200 m baksundi en gekk illa þegar á hólminn var kontið. Vonbrigði okkar hér í norðri eru hins vegar hjómið eitt miðað við það sem afreksfólk okkar þarfa að ganga í gegnum. Ómæld vinna þeirra er skyndilega að engu orðin og ættum við að bera meiri viriðingu fyrir vinnu þessa íþróttafólks en svo að skammast yfir öllu saman. Eðvarð Þór sagði eftir sund sitt að við engan annan ien sjálfan sig væri að sakast og hann hefði greinilega ekki lagt nógu hart að sér. Sannarlega drengilega mælt og ætti að vera óþarfi að strá salti í sárin með neikvæðri gagnrýni. Fyrir þessa ólympíuleika var heildarmarkmið íslendinga að hafna ekki neðar en fyrir miðju að meðaltali í hverri grein. Erfitt er að sjá í svip hvort það hafi tekist en altént náði sundfólk okkar sér ágætlega á strik eftir daufa byrjun, frjálsíþróttafólkið hefði vafalaust getað gert betur, svo ekki sé minnst á handbolt- ann, og siglingamennirnir urðu númer 22 af 29 eftir mikinn hamagang. Það má vera að lykillinn að vel- gengni á ólympíuleikum sé ein- faldlega sáluhjálp til að standa undir pressunni. Það vildi Jóhann Ingi Gunnarsson meina að væri stærsti óvinur landsliðsins enda maðurinn sálfræðingur að mennt og skulum við bara vona að undirbúningur íþróttamanna okkar verði fjölþættari í framtíð- inni en þrotlausar æfingar. -þóm Námskeið til undirbúnings meiraprófs verða haldin í Reykjavík og annars staðar á landinu, þar sem næg þátttaka fæst. Umsóknir berist bifreiðaeftirlitinu fyrir 14. október nk. Bifreiðaeftirlit ríkisins, - bifreiðastjóranámskeiðin, Dugguvogi 2, 104 Reykjavík, sími 685866.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.