Þjóðviljinn - 30.09.1988, Qupperneq 4
Mikil áhætla
fyrir flokkinn
Svavar Gestsson: Nýja ríkisstjórnin afnam ekki
samningsréttinn. Erum að skapa flokknum aðstöðu
- ekki að koma á sósíalisma. Flokkurinn hlýtur að
hafa áhyggjur - reynt á þanþolið til hins ítrasta.
Vona aðferskir vindar blási um
menntamálaráðuneytið. Mun hafa afskipti af
skólamálaráði
Svavar Gestsson, nýbakaður
menntamálaráðherra og forystu-
maður Alþýðubandalagsins er
tekinn á beinið fyrir ríkisstjórnar-
þátttöku flokksins.
Af hverju varð Guðrún Helga-
dóttir ekki menntamálaráðherra?
„Ólafur Ragnar, formaður
flokksins, hefur skýrt hvernig
hann kaus að velja ráðherra og
hans tillaga var samþykkt."
Á flokkurinn að mati þing-
flokksins ekki frambærilega konu
í ráðherrastól?
„Ég svara þessari spurningu
ekki öðru vísi en að vísa til
Ölafs.“
Ert þú sem Alþýðubandalags-
maður og vinstri maður ekki
sammála því að samningsréttur
verkafólks sé hluti af grundvall-
armannréttindum í nútíma-
þjóðfélagi?
„Jú það er rétt. En það eru líka
grundvallarmannréttindi að fá að
vinna. Það blasti við atvinnuleysi
hjá þúsundum manna, allt í
kringum landið. Það var alveg ó-
hjákvæmilegt að grípa til ráð-
stafana til að tryggja réttinn til
atvinnu, réttinn til að geta staðið
uppréttur, til að fá að selja vinnu
sína, eins og það heitir í marxism-
anum. Við stóðum frammi fyrir
því hvernig við ættum að tryggja
þann rétt. Partur af niður-
stöðunni varð stytting á
samningabanninu, við styttum
kjaraskerðinguna frá því sem
áætlað hafði verið. Þetta afl
höfðum við. Síðan segjum við:
Við erum að taka verðbólguna
niður og sköpum okkur mögu-
leika til að hafa áhrif á framhald-
ið.“
En í stöðunni í dag, er það for-
senda fyrir því að fólk geti fengið
að vinna að það hafí ekki samn-
ingsrétt?
„Nei, að sjálfsögðu ekki.“
En hvernig getið þið þá fallist á
þetta?
„Þessu ráðum við ekki einir,
þjóðfélagið fellst ekki á okkar
forsendur að öllu leyti. Við erum
með 10% atkvæða eins og er.
90% setja spurningarmerki við
það sem við erum að leggja
áherslu á og það er eðlilegt og
menn verða að átta sig á því, að
málamiðlun getur verið erfið
fyrir flokk af okkar tagi. En við
viljum hafa áhrif, til þess erum
við í stjórnmálum."
Ertu þá ekki orðinn virkur að-
ili í því að afnema þessi
mannréttindi?
„Nei, þetta er alrangt. Ríkis-
stjórn okkar afnemur ekki rétt-
inn. Tilkoma okkar í ríkisstjórn
verður til að fólk fær þessi rétt-
indi fyrr en ella. Við setjumst í
ríkisstjórn við þær aðstæður að
það er búið að svipta fólk þessum
rétti. Við tryggjum það að fólk
fær hann aftur."
Getur þú varið frystingu launa
almennra launamanna fram í fe-
brúar, eins og ástandið er í dag?
„Nei, en ég get skýrt hana. Eg
tel að stöðvun verðhækkana og
það að komið verði á eðlilegri
verðlagsþróun, svipaðri því sem
gerist í nágrannalöndunum, sé
mjög mikilvæg lífskjarabót fyrir
launafólk í þessu landi.“
Þingflokkur Alþýðubandalags-
ins samþykkti í fyrri viku að ekki
yrði gengið í ríkisstjórn án þess
að samningsrétturinn yrði settur í
gildi og launafrysting afnumin.
Síðan var fallið frá því. Líta for-
ystumenn Alþýðubandalagsins á
þetta sem skiptimynt t stjórnar-
myndunarviðræðum og er ekki
cðlilegt að fólk spyrji hvort þið
teljið að öllu sé til fórnandi fyrir
ráðherrastóla?
„Menn geta svo sem haft ýmis
orð um það, en aðalatriðið er að
menn skoði myndina í heild.
Miðstjórnin komst að þessari
niðurstöðu þrátt fyrir þessi veiga-
miklu rök gegn stjórnarmyndun-
inni, - því þau eru veigamikil og
gild og það á að hlusta á þau.
Aðalatriðið við þessa stjórnar-
myndun er að menn geri sér grein
fyrir því að hér er ekki um að
ræða gullöld og gleðitíð, - það er
ekki um það að ræða að menn séu
að koma hér á sósíalismanum.
Hér er um það að ræða að menn
eru að skapa flokknum stöðu til
að hafa áhrif á þær málamiðlanir
sem alltaf verða til í okkar samfé-
lagi. Það er auðvitað hægt að
halda sér fyrir utan, engilhreinn,
en ég býst við að það sé ákaflega
erfitt fyrir flokk sem stillir sér
þannig upp, að öðlast tiltrú kjós-
enda. Því kjósendur vilja að at-
kvæði þeirra skili áhrifum á sam-
félagsþróunina. Þetta er ekki
bara spurning um kaup og kjör
heldur líka spurning um stefnu í
mennta- og menningarmálum,
svo að ég nefni dæmi. Það er ekki
hægt að mæla það í samningsrétti
eða prósentum í kaupi, hvernig
námsskrá grunnskóla er. En við
skulum ekkert vera að fegra eitt
eða neitt, við segjum bara:
Lengra náðum við ekki í þessari
lotu, en við ætlum að hafa áhrif á
framhaldið."
Um þriðjungur miðstjórnar
greiddi atkvæði gegn ríkis-
stjórnarþátttöku. Kvennalistinn
stendur fyrir utan og veifar
hreinum skildi. Veldur þetta þér,
sem flokksmanni ekki áhyggjum
og ertu ekki hræddur um fram-
tíðarstöðu flokksins?
„Auðvitað er það alveg ljóst að
flokkurinn hlýtur að hafa áhyggj-
ur af þessari lendingu. Forysta
flokksins á að hafa áhyggjur í
dag. Hún á að velta því fyrir sér -
af hverju varð þetta svona, -
hvað gerði ég rangt? Hún á að
spyrja sig að því hvort hún hafi
gengið of langt í því að reyna á
þolrifin í flokknum. Ég tel
reyndar að við höfum gengið þar
eins langt og nokkurt vit var í -
kannski alveg að því þanþoli sem
ítrast er í flokknum. Hins vegar
verða menn að athuga að flokk-
urinn hefur átt við erfiðleika að
stríða á undanförnum árum og
menn verða að átta sig á því að
hve miklu leyti andstaðan við
stjórnarmyndunina var vegna á-
hrifa frá þeim átökum. í öðru lagi
er það alveg ljóst að félagar okk-
ar í verkalýðshreyfingunni geta
undir engum kringumstæðum
staðið að því að samþykkja þessa
samningsbindingu, þótt hún sé í
skamman tíma.
En ég er þeirrar skoðunar, að
það sé betra fyrir þennan flokk,
sem oft hefur átt í miklum innri
erfiðleikum, að taka þátt í raun-
hæfu verkefni úti í þjóðfélaginu,
til þess að verkefni efli innri styrk
flokksins. Annars vill umræðan
oft vera í tómarúmi, óljós og ár-
angurslítii.“
Treystir þú Alþýðubanda-
laginu í rlkisstjórn til að koma i
stað þeirrar verkalýðshreyfingar
sem dregnar hafa verið úr tenn-
urnar, með afnámi samnings-
réttar?
„Tennurnar hafa síður en svo
verið dregnar úr verkalýðshreyf-
ingunni. Og það er klárt að Ál-
þýðubandalagið getur aldrei
komið í stað verkalýðshreyfing-
arinnar. Það má undir engum
kringumstæðum líta þannig á að
flokkurinn sé á einhvern hátt að
veikja verklýðshreyfinguna, en
það væri líka rangt og blekking að
segja að flokkurinn væri með
þessari stjórnaraðild að frelsa
verklýðshreyfinguna. “
Verðskuldar þessi ríkisstjórn
nafnið vinstri stjórn?
„Já, hún gerir það. Það stafar
m.a. af því hvernig hún stillir sér
upp gegn hinni svokölluðu frjálsu
peningamyndun í þjóðfélaginu,
gróöaþjóðfélaginu."
En hefði hún ekki verið sterk-
ari með þátttöku Kvennalistans?
„Jú, hún hefði verið það. Við
tókum áhættu og hana ekki litla.
En ég held að þetta sé betri leið
en að láta íhaldsstjórn komast
hér enn einu sinni að. Þótt ég lofi
ekki gulli og grænum skógum, vil
ég að við tökum áhættuna hérna
megin, í verkunum."
Nú ert þú orðinn menntamála-
ráðherra. Svo dæmi sé tekið um
aðgerðir sjálfstæðismanna í
menntamálum sem margir eru
mjög ósáttir við og telja jafnvel
brjóta í bága við lög, er stofnun
skólamálaráðs og eftirleikurinn
af því. Vilt þú eða getur þú haft
einhver afskipti af því máli?
„Ég bæði get það og mun gera
það, en ég vil hins vegar ekki
greina frá því í smáatriðum nú,
hvernig það verður gert. En ég
segi: Við skulum bæta skortinn á
fjármunum upp með nýjum hug-
myndum. Ég vona að verkin tali
þegar fram í sækir.“
Páll Hannesson
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ