Þjóðviljinn - 30.12.1988, Side 7
<nrr Y<mT,«rrB yt/tt„jtt;
INNLENDUR ANNÁLL
Ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar sprakk í beinni útsendingu á Stöð 2 föstu-
daginn 16. september þar sem þeir Steingrímur Hermannsson og Jón
Baldvin sleiktu baksár hvor annars eftir rýtingsstungur Þorsteins Pálssonar.
Þorsteinn baðst lausnar eftir 14 mánaða setu sem forsætisráðherra og
Steingrími var veitt umboð til stjórnarmyndunar. Ný ríkisstjórn undir forsæti
Steingríms, með þátttöku Alþýðuflokks og Alþýðubandalags og með stuðningi
Stefáns Valgeirssonar tók svo við 28. september. Kvennalistinn vildi ekki vera
með í myndun félagshyggjustjórnarinnar svokölluðu, þar sem þær sögðust
ekki hafa trú á henni. Alþýðubandalagið settist í stjórnina þrátt fyrir að bráða-
birgðalög fyrri ríkisstjórnar stæðu að mestu óbreytt sem og matarskatturinn.
Fjárfestingafyrirtækið Ávöxtun sf. og sjóðir þess voru teknir til gjaldþrota-
skipta í september. Viðskiptavinir Avöxtunar höfðu þá haft pata af því að
fyrirtækinu tókst ekki að standa við öll fyrirheit um útborgun skuldabréfa og
urðu úttektarbeiðnir meiri en sjóðirnir gátu ráðið við.
Hæstiréttur komst í sviðsljósið í
lok nóvember, þegar uppvíst
varð að Magnús Thoroddsen, forseti
Hæstaréttar nýtti sér heimild sem
hann taldi sig hafa sem einn hand-
hafa forsetavalds, til áfengiskaupa.
Hafði Magnús keypt á þriðja þúsund
flöskur af sterku áfengi á tveimur
árum, á „kostnaðarverði". Sagði
Magnús af sér sem forseti Hæstarétt-
ar, en neitaði að segja af sér sem
dómari. Kom það í hlut dómsmála-
ráðherra að vikja honum frá Hæstrétti
og mun mál verða höfðað gegn
Magnúsi innan skamms. Við nánari
athugun kom síðan í Ijós að aðrir
handhafar forsetavalds, að forsætis-
ráðherrum frátöldum, höfðu verið
duglegir við áfengiskaup á góðu verði
og hafði Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, fyrrum forseti Sameinaðs Al-
þingis keypt um 1230 fiöskur á fjórum
árum. Hann hafði áður látið að því
liggja í fjölmiðlum að áfengiskaup sín
hefðu verið mun umfangsminni.
Nauðgunarmála-
nefnd, undirforystu
Jónatans Þórmundssonar
skilaði af sér skýrslu í byrj-
un nóvember eftir fjögurra
ára starf. Kom fram í máli
nefndarmanna að með-
ferð nauðgunarmála,
hvort sem væri hjá lög-
reglu, heilbrigðisstofnun-
um eða dómstólum væri
með öllu óviðunandi og
lagði nefndin fram tillögur
um gagngerar umbætur á
þessu sviði. Enn hefur
ekkert heyrst af viðtökum
opinberra aðila við starfi
nefndarinnar.
Kanadísk ferjuflugvél hrapaði fimmtíu metrum frá Hringbrautinni við enda
flugbrautar Reykjavíkurflugvallar, annan ágúst. Þrír menn fórust, en öllum
var Ijóst að engu mátti muna að slysið hefði orðið mun meira, þar sem mikil
umferð var. Vakti slysið upp miklar umræður um staðsetningu flugvallar í miðri
Reykjavík.
Hafskipsmálið kom aftur upp á
yfirborðið þegar Jónatan Þór-
mundsson, sérstakur saksóknari gaf
út ákæru á hendur 16 einstaklingum,-
fyrrum forráðmönnum Hafskips, fjór-
um síðustu bankastjórum Útvegs-
banka íslands og þeim bankaráðs-
mönnum sem síðast sátu. í þeirra
hópi var Jóhann Einvarðsson, þing-
maður og bróðir Hallvarðs Einvarðs-
sonar ríkissaksóknara. Jónatan sótti
um leyfi til Alþingis þess efnis að Jó-
hann yrði sviptur þinghelgi og varð
Alþingi við þeirri ósk. Ovíst er hvenær
málið verður tekið upp fyrir Sakadómi
Reykjavíkur.
Islendingar eignuðust enn eina
stórstjörnuna pegar Nýja Helgar-
blaðið upplýsti að Mjallhvít Walt Disn-
eys var í rauninni fslensk. Fyrirmynd
Mjallhvítar var Reykjavíkurmær, ætt-
uð úr Skagafirði og hét Kristín Sölva-
dóttir og sá sem teiknaði var Vest-
ur-íslendingur, Charles Thorson, en
foreldrar hans komu úr Árnessýslu.
Skagfirðingum kemur þetta sjálfsagt
ekki á óvart, enda hafa þangað í sveit
verið raktar ættir manna eins og
Frank Arneson fótboltahetju í Dana-
veldi og Ronalds Regans, aldraðs
leikara i Bandaríkjunum.
BSRB-fólk kaus sér nýjan formann föstudaginn 22. október og varð Ög-
mundur Jónasson, fyrrum fréttamaður fyrir valinu. Hann tók við af Kristjáni
Thorlacius sem hafði setið sem formaður í 28 ár. Mótframbjóðendur Ögmundar
voru þau Guðrún Árnadóttir og Örlygur Geirsson. AS( kaus sér síðan nýja
forystusveit þann 23. nóvember. Ásmundur Stefánsson var endurkjörinn for-
seti, Ragna Bergmann 1. varaforseti og Örn Friðriksson 2. varaforseti.
Föstudagur 30. desember 1988 nÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 7
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
Í1.FL.B1985
Hinn 10. janúar 1989 er áttundi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 8 verður frá og með 10. janúar n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 5.000,- kr. skírteini kr. 373,80
Vaxtamiði með 10.000,- kr. skírteini kr. 747,60
Vaxtamiði með 100.000 kr. skírteini kr. 7.476,00
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. júlí 1988
til 10. janúar 1989 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur
á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006 hinn 1. janúar 1985 til 2279 hinn 1. janúar 1989.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldreieftir gjalddaga
Innlausn vaxtamiða nr. 8 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1989.
Reykjavík, 30. desember 1988
SEÐLABANKIÍSLANDS