Þjóðviljinn - 30.12.1988, Page 8

Þjóðviljinn - 30.12.1988, Page 8
ERLENDUR ANNALL Þann 8unda maí síðastliðinn kusu Frakkar sér forseta. Er skemmst frá því að segja að Francois Mitter- rand fór létt með fjanda sinn, Jacques Chirac forsætisráðherra. ií árinu sem er að líða hefur Manúel #4 nokkur Noríega, herstjóri og hæst ráðandi í Panama, verið i brennidepli sökum fjöllyndis í pólitiskum efnum, hlutdeildar í eiturbraski og útistaðna sinna við Bandaríkjastjórn. Þótt allt sé í kaldakoli í Panama og megn óánægja með Noríega situr hann enn, þökk sé slettirekuskap Reagans. Síðasti keisari Bernardos Bertol- uccis hreppti hvorki meira né minna en 8 óskarsverðlaun í apríl í vor. Hér gefur meistarinn hinum barnunga keisara, Pu Ji (Richard Vuu), holl ráð. Þann 3ja júlí skaut bandarískt her- skip, Vicennes, eldflaug að ír- anskri farþegaþotu yfir Persaflóa. Skotið hæfðiiog grandaði vélinni. Það tók drjúgan tíma að slæða 290 lík, þar af 66 barna, uppúr sjónum. Margt stórmennið lagði fyrri þann 29nda febrúar síðastliðinn náði aldarhelming að baki á árinu. fjarskyldur ættingi hans og landi, Nýskeð varð Mikki Mús fimmtugur og Súpermann, þessu merka lífsmarki. Isumar hafði óþekktur vírus sem næst komið öllum urtubömum á útskerium Norðursjávar fyrir kattarnef. Áður hafði þörungabelti valdið usla við suóur- strendur Svíþjóðar og Noregs. Fjendumir í Bagdað og Teheran höfðu ekki fyrr hætt vopnaskiptum en Saddam Hussein íraksforseti jók grimmilega eiturherferð sína a hendur Kúrdum. Ekki er vitað með vissu hve mörg urðu fórnarlömb sinnepsgass, blásýru og taugagass í Kúrdabyggðum en víst þykir að þau skipti tugum þúsunda. Hann reiknaði skakkt. í október síðasliðnum lagði Ágústó Pínó- sjet sig og sitt í dóm chílensku þjóðar- innar. Meirihluti sagði nei takk! en samt sem áður situr þessi borðalagði fjöldamorðingi og hyggst sitja enn um skeið. Eg iðrast einskis. Einn nafntogaðasti njósnari aldarinn- ar, Kim Philby, féll frá í Moskvu í ma- ímánuði, 76 ára gamall. 200 ára afmæli hörundshvítrar Ástralíu varð tilefni margvíslegs húllumhæs. Frumbyggjar þóttust ekki sjá nein fagnaÓarefni. je og Barböru Bush á kjörtímabiTinu (7, 9, 13, bank, bank, bank) þá flyst hin nafn- togaÓa Quayle fjölskylda frá Indíönu til Washington. 8 SIÐA / NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 30. desember 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.