Þjóðviljinn - 06.05.1989, Qupperneq 9
„Et, drekk
ok ver glaör"
Matvælasýning opnuð í Laugardalshöll
í gær var opnuö í Laugar-
dagshöllinni sýning á íslensk-
um matvælum undir einkunn-
arorðunum,, Et, drekk ok ver
glaðr“.
50 fyrirtæki sýna ýmsar
gerðir matvæla m.a. verða
kynntir sjávarréttir sem ekki
hafa sést hér á markaði áður.
Auk sýningarbása verður sér-
stöku sýningarsviði komið upp í
höllinni og fara þar fram mat-
reiðslukynningar daglega sem fé-
lagar úr klúbbi matreiðslumeist.
ara munu sjá um.
Peir hafa fengið til liðs við sig
tvo heimsfræga matreiðslum-
eistara annan frá Boston og hinn
frá Oslo. Auk þeirra munu ýmsir
þekktir íslendingar opinbera
kunnáttu sína í matargerð á svið-
inu. Sýningin hefur hlotið enska
heitið Icefood 98 og er búist við
miklum fjölda erlendra gesta.
Eitt þeirra nýju íslensku fyrir-
tækja sem kynna framleiðslu
sýna er hveitimyllan Kornax.
Komax h.f. , hveitimyllan við
Sundahöfn í Reykjavík, var
stofnað í tengslum við nýja fóður-
verksmiðju Fóðurblöndunnar
h.f. Fyrirtækið flytur inn korn
sem síðan er malað hérlendis.
Tilraunabakari aðstoðar við þró-
un nýrra brauðtegunda.
Þó svo að þessi sölusýning
höfði fyrst og fremst til magans
Sýningin opnaði klukkan 17 og var því mikill erill hjá rafvirkjum og
öðrum verklögnum við að koma öllu í stand síðdegis í gær. Mynd Jim
Smart.
slensk framleiðsla er ekki eingöngu matur. Hér sýna stúlkur það nýjasta í íslensku fatatískunni á sýningu
sem haldin var af Iðnþróunarsjóði nýverið.
þá eru ýmis önnur fyrirtæki tákn-
ræn fyrir tímann sem við lifum á,
sem kynna starfsemi sýna, má þar
nefna kynningu á alhliða þjón-
ustu á sviði bruna- og þjófavarna.
Annar þarfur þjónn nútímans
skartar sínu fegursta í upplýstum
bás en það er plastpokinn ómiss-
andi.
Þrátt fyrir heróp sænskra fjöl-
miðla um hættuleg efni í þorska-
lýsinu, glitrar á lýsisperlur og gul-
leitar flöskur í kynningarbás Lýs-
isframleiðslunnar.
Félag íslenskra iðnrekenda
sem stofnað var 1933 kynnir einn-
ig markmið starfsemi sinnar.
Markmið FÍÍ er að efla og vernda
íslenskan iðnað og gæta
hagsmuna hans í hvívetna m.a.
með því að beita sér fyrir því að
innlend framleiðsla sitji í fyrir-
rúmi miðað við sambærilegar er-
lendar vörur.
Félag íslenskra iðnrekenda
vinna æ meira í samvinnu við
Neytendasamtökin. Þessi félaga-
samtök hafa m.a. gert sameigin-
lega úttekt á umbúðarmerking-
um.
Sælgætið er síður en svo haft
útundan. Á sýningunni gefur að
líta allt það helsta af sköpunar-
verkum sætinda.
Þess ber að geta sérstaklega að
átakshópur um kynningu og
verndun þjóðlegrar matargerð-
Keypti þorp
Leikkonan Kim Bassinger hef-
ur keypt þorpið Braselton í Ge-
orgíufylki í Bandaríkjunum.
Kaupverðið var um einn miljarður
íslenskra króna. Þorpið var stofn-
að af Braselton fjölskyldunni árið
1876 og hefur verið í eigu fjöl-
skyldunnarsíðan. Landrými
þorpsins eru 725 hektarar. Þarer
rn.a. iðnaðarhverfi, verslunar-
miðstöð og banki og er allt í eigu
arlistar er með sýningarbás í and-
dyri þar sem munir úr Þjóð-
minjasafninu er tengjast matar-
venjum eru til sýnis.
Sýningin stendur yfir frá 5. til
12 maí og er hún opin almenningi
sem hér segir: Laugardag og
sunnudag frá kl. 14.00 til 22.00 og
mánudag til föstudags frá
kl.18.00 til 22.00. eb
fjölskyldunnar. Ástæðan fyrir því
að fjölskyldan vill selja þorpið er
sú að f lestir meðlimir hennar eru
komnir til ára sinna og vilja fá að
njóta ellinnar í ró og næði. Fast-
eignasalinn sem sé um söluna
sagði að Bassinger hefði ekki
enn ákveðið hvernig hún myndi
nýta þorpið en m.a. hefur henni
dottið í hug að gera það að kvik-
myndaveri eðajafnvel aðferða-
mannamiðstöð.
FLÖSKUSKEYTI
Laugardagur 6. maí 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 9