Þjóðviljinn - 06.05.1989, Blaðsíða 30
Ásgrímssafn Bergstaðastr., vatns-
litamyndir til maíloka, dagl. 13.30-16
nemamád.
Helgi Þorgils Friðjónsson málverk,
á Kjarvalsstöðum, hefst Id. 16.00,
dagl. 11-18, Iýkur21.5.
Myndirsænska málarans Siri Derk-
ert við sögu Halldórs Laxness „Úng-
frúna góðu og húsið", og tíu myndir
hennar frá íslandi 1949, í anddyri
Norræna hússins, hefst Id. 15.00,
opin 9-19, sd. 12-19, lýkur 4.6. Carlo
Derkertlistfræðingurtalarld. 16.00
um móður sína og Island.
Jón Axel, kolateikningar í Nýhöfn
Hafnarstræti, ld., virka 10-18, helgar
14-18, lýkur 17.5.
Daði Guðbjörnsson, málverk í FÍM-
salnum Garðastræti, virka 13-18,
helgar 14-18, lýkur 16.5.
Ófeigur Björnsson, skúlptúrar í Gall-
erí Grjóti, Skólavst., hefst föd., virka
12-18, helgar 14-18, lýkur 15.5.
„Áfram veginn", sjö listamenn í
Safnahúsinu Sauðárkróki, dagl. 15-
18, lýkursd.
Rúna Gísladóttir (vatnsl., málv., koll-
as) Gránugötu Siglufirði, opið 14-
19,lýkursd.
Jón Gunnarsson (málverk) í Hafn-
arborg Hfirði, dagl. 14-19, lýkursd.
Listasafn Einars Jónssonar, ld.,
sd. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn
dagl. 11-17.
Llstasafn íslands. Salur 1: Jón Stef-
ánsson, Kjarval, Scheving. Salur2:
Verk átta samtímamanna. Salur 3 og
4: Hilma af Klint, farandsýning frá
Svíþjóð. Dagl. 11-17nemamád.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á
Laugarnesi, helgar 14-17.
Árni Rúnar Sveinsson (málverk) á
Mokka Skólavörðustíg.
Gallerí Gangskör, virka 12-18 nema
mád., gangskörungarsýna.
Ásgrímssafn Bergstaðastr., vatns-
litamyndir til maíloka, dagl. 13.30-16
nema mád.
Guðbjörg Lind Jónsdóttir í Slunka-
ríki ísafirði, fid.-sd. 16-18, lýkur 14.5.
Ljósmyndirfrá Kvennaráðstefnunni
í Ósló í Ljósmyndasafninu Borgar-
túni 1, virka 8.30-18, helgar 13-18,
Iýkur21.5.
LEIKLIST
Gregor eða Sérð þú það sem er?,
verk byggt á Hamskiptum Kafka, Frú
Emilía sýnir í Skeifunni 3 sd. 20.30
(frumsýning), leikstj. Guðjón Peder-
sen.
HVÖRF
Fjórir ballettar eftir Hlíf
Svavarsdóttur
Tónlist: Hjálmar H. Ragnarsson,
Erik Satie og Þorkell
Slgurbjörnsson
Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson
Lýsing: Sveinn Benediktsson
Dansarar: Ásdís Magnúsdóttir,
Ásta Henriksdóttir, Birgitte
Heide, Guómunda H.
Jóhannesdóttir, Guðrún
Pálsdóttir, Hany Hadaya, Helena
Jóhannsdóttir, Helga Bernhard,
ingibjörg Pálsdóttir, Lára
Stefánsdóttir, Ólafía
Bjarnleifsdóttir, Roberg
Bergquist, Sigrún
Guðmundsdóttir og Þóra Kristín
Guðjohnsen.
Hljóðfæraleikarar: Edward
Frederiksen, EirfkurÖrn Pálsson,
Helga Þórarinsdóttir, Hlíf
Sigurjónsdóttir, Laufey
Sigurðardóttir, Marteinn van der
Valk, Nora Kornbluch, Oddur
Björnsson, Óskar Ingólfsson,
PéturGrétarsson, Richard Korn,
Rúnar Vilbergsson, Sean
Bradley, Snorri Sigfús Oirgisson
og Sveinn Birgisson. Einleikurá
píanó: Snorri Sigfús Birgisson.
Hljómsveitarstjóri: Hjálmar H.
Ragnarsson.
Ballettinn Hvörf í Þjlh. Id. 20.00
(frumsýning).
Þrír einþáttungar (Þögnin, Kossinn,
Sjáið manninn) e. Jakob Jónsson,
Hallgrímskirkju mád. 20.30, leikstj.
Jakob S. Jónsson, leikarar Erlingur
Gíslason, Anna Kristín Arngrímsdótt-
ir, Þórunn Magnea Magnúsdóttir,
Hákon Waage.
Det var ikke min skyld / Ekki mér að
kenna, norskt leikrit um umferðar-
slys, Flaminarteatretfrá Sandefjord
flytur í Norræna húsinu mád, þd.
16.00. Ætlað börnum og fullorðnum
frásexáraaldri.
Hundheppinn e. Ólaf Hauk
Símonarson hjá Nemendaleikhús-
inu Lindarbæ sd. 20.30.
Ingveldur á Iðavöllum, allra síðustu
sýningar Hugleiks d. 20.30, Galdra-
loftinu Hafnarstræti 9 Id. 20.30 (mið-
ap. 24650).
Bílaverkstæðí Badda á litla sviði
Þjlh. Id., sd., 20.30, leikförívændum.
Ofviðrið í Þjlh. föd. 20.00.
Sólarferð hjá Leikf. Akureyrar Id.
20.30.
Hvað gerðist í gær? Alþýðuleikhús-
ið í Hlaðvarpanum Vesturg. 3, síð-
asta sýning þriðjud. 20.30.
Haustbrúður í Þjlh. Id. 20.00.
ÓvitaríÞjlh. Id. 14.00,sd. 14.00,
17.00.
Sveitasinfónían í Iðnó Id. 20.00,
sýningumaðfækka.
Sjang og Eng í Iðnó sd. 20.00, síð-
asta sýning.
Ferðin á heimsenda í Iðnó Id. sd.
14.00, síðustu sýningar.
Sál mín er hirðfífl í kvöld, Egg-
leikhúsið Hlaðvarpanum Vesturg,
aukasýn. mád., mid 20.00.
TÓNLIST
Jón Indíafari hjá íslensku hljóm-
sveitinni. Sinfpniaconcertante;
ferðalanguraf íslandi e. Pál P. Páls-
son (frumflutningui, Ijóð e. Þórarin
Eldjárn, afhjúpað glerlistaverk e. Leif
Breiðfjörð), innlend sönglög.
Elijah e. Mendelssohn-Bartholdy,
Sinfóníuhljsv., Mótettukórinn, eins.
Silvia Herman, Ursula Kunz, Deon
van der Walt, Andreas Schmidt, stj.
HörðurÁskelsson. Kirkjulistahátíð í
Hallgrímskirkju Id. 15.00 (og sd.
20.00 ef aðsókn leyfir).
Árneslngakórinn í Reykjavík syngur
í Hafnarborg Hafnarfirði sd. 20.30,
stj. Sigurður Bragason.
Messa e. Haydn í Hallgrímskirkju
sd. 11.00, kór Akureyrarkirkju, Mar-
grét Bóasdóttir, Björn SteinarSól-
bergsson. Ólafur Skúlason prédikar.
Orgeltónleikar mád, þd., mid., fid.,
föd. 12.15 í Hallgrímskirkju, tíða-
gjörð guðfræðinema og félaga úr ís-
leifsreglunni sömu daga sama stað
18.00 (kirkjulistahátíðin).
Vortónleikar Karlakórsins Stefnis í
Fólkvangi Id. 16.00, Langholts-
kirkju sd. 17.00, Hlégarði þd., mid.
21.00, stj. Lárus Sveinsson, eins.
Sigrún Hjálmtýsdóttir, ÞórðurGuð-
mundsson, Ármann Sigurðsson.
TónleikarTónmenntaskóla Rvíkurí
Óperunni Id 14.00, ein- og samleikur
eldri nemenda. Ókeypis.
Samsöngur Karlakórs Reykjavíkur
Id. 16.00 Langholtskirkju, frumfluttur
Hvað á að gera um helgina?
Guölaugur Þorvaldsson,
sáttasemjari
Ég vil svara þessu á breiðum grundvelli;
Guð mun ráða hvar við dönsum næstu jól.
lagaflokkure. Gunnar Reyni Sveins-
son við „Island" Jónasar Hallgríms-
sonar, og „Ástarvísur" e. Jón Leifs.
Að auki verk e. Karl O. Runólfsson,
Jón Ásgeirsson o.fl. Stj. Ragnar
Björnsson og Gylfi Gunnarsson.
HITT OG ÞETTA
Ferðafélagið. Ld. 9.00 Gengið á
Skarðsheiði, verð 1000. Sd. 10.00
Fuglaskoðunarferð á Suðurnes, verð
1000. Brottför austan Umfmst, börn
m.f. frítt
Útivist. Ld. 10.30 Fugla- og náttúru-
skoðun á Suðurnes, verð 1000. Sd.
13.00 Fjölskylduferð íHeiðmörk,
verð400.10.30 Bláfjallaleiðin, verð
800. Brottför vestan Umfmst, börn
m.f. frítt.
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi 10.00frá Digranesv. 12.
Vorið kemur grænt og hlýtt.
Félag eldri borgara. Göngu-Hrólfur
leggurafstaðfráNóatúni Id. 10.00.
Opið hús íTónabæ Id. frá 13.30, fé-
lagsvist kl. 14.00. Opið hús sd. í Goð-
heimum, Sigtúni 3, spjall, spil og tafl
frá 14, dansað 20-23.30. Opið hús
Tónabæ md. frá 13.30, félagsvist frá
14.00.
Vímuefnadagur Læonskvenna ld.,
fjölskylduskemmtun Háskólabíó
14.00: Ómar, Bjartmar. Rut, Laddi,
Hemmio.fl.
Franski rithöfundurinn og útgefand-
inn Hubert Nyssen talar í stofu 101
Oddamd. 17.30.
Sagnfræði og gagnrýni, ráðstefna
Sagnfræðingafélagsins í Odda Id.
14.00.
Bókmenntaþýðingar. Ástráður
Eysteinsson, Ingibjörg Haraldsdóttir,
Jón Óskar á fundi Félags áhuga-
manna um bókmenntir Id. 14.00 Lög-
bergi.st. 101.
Vorfundur Vélprjónafélags islands í
StapaYtri-Njarðvík Id. 14.00.
Kvennalistakaffi Laugavegi 17,
Hólmfríður Garðarsdóttir talar um
kvennahreyfinguna í rómönsku Am-
eríku.
Vorsýning Stóðhestastöðvar ríkis-
ins Gunnarsholti Rangárvöllum Id.
14-16.
ÍÞRÓTTIR
Fótbolti. Rvk. mót. Fylkir-Víkingur
sd. 20.30. Litla bikark. FH-ÍA,
Selfoss-Stjarnan, Víðir-UBK,
Haukar-ÍBKId. 13.30.
FJÖLMIÐLAR
ÞROSTUR
HARALDSSON
Mannlegir þættir í
sjónvarpsauglýsingum
Hann Guðmundur Andri sem
skrifar pistla í hvunndagsútgáf-
una um svipað efni og ég hér í
Helgarblaðinu var á dögunum að
skjóta á Egil Helgason fyrir að
láta hafa sig út í auglýsinga-
mennsku. Egill hefur verið með
þætti í Sjónvarpinu og starf slíkra
manna er að „segja okkur satt“
eins og Guðmundur sagði rétti-
lega. Mátti á honum skilja að hér
eftir vissu áhorfendur aldrei hve-
nær Egill talaði frá eigin brjósti
og hvenær honum væri borgað
fyrir að segja það sem hann léti út
úr sér.
Það má svo sem alveg taka
undir það með Guðmundi Andra
að það sé óheppilegt að starfs-
menn Ríkisútvarpsins séu að aug-
Iýsa. Því hefur bara aldrei verið
framfylgt. Einu sinni var það
reynt. Meðal þeirra sem athuga-
semdir voru gerðar við var út-
varpsmaðurinn vinsæli Jón Múli
Árnason. Þegar það var nefnt við
hann að það þætti heldur óheppi-
legt að hann væri að lesa auglýs-
ingatexta í sjónvarpið varð hann
dálítið langleitur og benti við-
mælanda sínum kurteislega á að
hann hefði varið drýgstum hluta
starfsævi sinnar í að lesa auglýs-
ingar fyrir landsmenn.
í þessu fámenna landi fer ekki
hjá því að sömu andlitin og radd-
irnar beri fyrir skilningarvit okk-
ar í allra handa gervum. Hemmi
Gunn var á tali við landsmenn af
og til í vetur og bæði á undan og
eftir þáttum sínum reyndi hann
að selja okkur sólarlandaferðir.
Sigurður Sigurjónsson freistar
okkar með miljónavinningum í.
fótboltagetraunum á föstudags-
kvöldum og kitlar týpískar hlát-
urtaugar okkar á laugardögum
með aðstoð Pálma Gestssonar
sem selur okkur hálftómar skyr-
dollur á eftir.
Ég er á því að auglýsingar,
einkum í sjónvarpi, hafi að tals-
verðu leyti farið úr böndunum á
undanförnum árum. Það er engin
hemja hvernig vissir hlutir eru
auglýstir. Að vísu getur þetta
auglýsingaflóð verið æði fróð-
iegt. Stundum segir það mikla
sögu um átök á markaðnum.
Hafið þið tekið eftir öllum bygg-
ingarvöruauglýsingunum að und-
anförnu?
Auglýsingaflóðið hefur sinn
árvissa takt. Um jólin nær það
hámarki en eftir áramót koma
happdrættin og útlista fyrir okkur
allar þær lystisemdir sem hægt er
að gera að veruleika fyrir vinn-
ingana frá þeim. Ríkissjóður
bendir okkur á einn möguleikann
á að eyða fimmþúsundkonunum
okkar og skafmiðaherdeildirnar
bjóðast til að losa okkur við
fimmtíukallana.
Þegar líður fram á vorið byrja
svo ferðaskrifstofurnar að tæla
okkur til útlanda. Það er dálítið
kúnstugt að fylgjast með því
hvernig það er gert. Sumar stof-
urnar höfða greinilega til ungs
fólks og einkum ungra karl-.
manna með því að leiða heilu
herfylkin af brjóstaberum yng-
ismeyjum yfir skjáinn. Aðrar
ætla sér fjölskyldufólkið og vita
sem er að meirihluti fjölskyld-
unnar fer ekki til sólarlanda í
þeim tilgangi að horfa á netta
kroppa.
Að þessu sinni finnst mér ríkja
sama örvæntingin í auglýsingum
ferðaskrifstofanna og hjá bygg-
ingarvöruverslununum. f báðum
greinum ríkir samdráttur og hon-
um er reynt að mæta með því að
ganga fram af keppinautunum í
gerð sjónvarpsauglýsinga. Fyrir
vikið öðlast þessi fyrirbæri miklu
meiri vigt í vitund fólks en þeim
ber út frá mikilvægi þeirra í þjóð-
lífinu.
f öllu þessu flóði auglýsinga
fara fleiri gildi á flot. Við gerð'
auglýsinga vinnur margt fólk sem
menntað er í listaskólum (fyrir
utan alla markaðsfræðingana) og
sumir hafa auglýsingagerð ein-
, ungis sem aukavinnu ofan á fullt
starf að listsköpun á öðrum vett-
vangi. Þetta hefur leitt sómakæra
þingmenn og ráðherra inn á þær
villigötur að ruglast á auglýsinga-
gerð og listsköpun.
Og verðskynið fer oft á ská og
skjön í auglýsingagerðinni. Þar.
veitast yfirleitt allt önnur kjör en í
öðrum greinum. Svo ég endi nú
þar sem ég byrjaði þá hef ég það
fyrir satt að téður Egill Helgason
hafi fengið álíka mikið fyrir að
tala inn á eina auglýsingu í her-
ferð sem stóð í uþb. 10 daga og
hann fær fyrir hálfa tylft mann-
legra þátta. Það svarar líka
spurningunni um það af hverju
opinberir starfsmenn eins og
Ríkisútvarpsmenn freistast til að
drýgja tekjur sínar með auglýs-
ingagerð.
Ég læt hins vegar lesendum
eftir að meta hvort skili meiri
verðmætum í þjóðarvitundina,
mannlegu þættirnir hans Egils
eða samanlagt auglýsingaflóðið.
30 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 6. maí 1989