Þjóðviljinn - 06.05.1989, Side 13

Þjóðviljinn - 06.05.1989, Side 13
16. maí leggjast dráttarvextir á lán með lánskjaravísitölu. 1. júní leggjast dráttarvextir á lán með byggíngarvísitölu. Greiðsluseðlar fyrir 1. maí hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna af hendí í öllum bönkum og sparisjóðum landsins. Sparaðu þér óþarfa útgjöld af dráttarvöxtum. hhhi lwn><ÆV!T m WTmt i s Tl'Ti i íTm r i TIHTJIí pV~ , ^pigSs Linsur! margar gerðir. FJÖLSKYLDAN Þeir sem hafa áhuga á að fræöast um eitthvert ákveðið efni varðandi fjölskyiduna geta skrifað. SIGTRYGGUR Merkið umslagið: Fjölskyldan; Nýtt Helgarblað, JÓNSSON Þjóðviljanum, Síðumúla 6, Reykjavík. Er lífio kannski eintómur leikur? Allir vita að leikrit byggjast upp á þeim hlutverkum, sem inn í þau eru felld, en ekki eru allir, sem gera sér grein fyrir að líf okk- ar byggist einnig upp á þeim hlut- verkum, sem okkur eiu falin í lífinu, og eru þau sífellt að breytast, með aldri og þroska og breytingum á stöðu. Hvert okkar hefur með höndum mörg „opin- ber“ hlutverk. Þannig getur einn og sami einstaklingurinn verið í hlutverki sonar, eiginmanns, föður og kennara á sama tímabili í lífinu. Þá getur hann einnig ver- ið í hlutverki vinar, félag í Li- onshreyfingunni, listamanns, skokkara eða frímerkjasafnara á því sama tímabili. Öll þessi hlut- verk fela í sér ákveðna hegðun, þ.e. hegðun einstaklingsins breytinst í samræmi við það hlut- verk, sem hann leggur áherslu á í það og það skiptið. Öllum hlutverkum fy lgj a ákveðnar hegðunarreglur, ýmist víðtækt eða þröngt samþykktar. Þænnig gerum við okkur öll í hugarlund ákveðna mynd af því hvernig kennari, skokkari eða faðir hegða sér, þó svo að það sé breytilegt. Hinsvegar höfum við ekki eins góða heildarmynd yfir hin hlutverkin, fyrst og fremst vegna þess að hegðunarreglurnar bindast ákveðnum hópi í það og það skiptið. Öll þekkjum við upphrópanir á borð við: „Þannig hegðar kennari, sonur, eigin- maður, faðir sér ekki“. Slíkar upphrópanir stafa af þessum samþykktu hegðunarreglum um það hvernig einstaklingur í slíku hlutverki skuli haga sér. Um önnur hlutverk er oft sagt: „Get- ur maður í Lions, Rotarí, skátum eða hvað það nú heitir, hegðað sér svona“? Þetta stafar af því að hegðunarreglur varðandi þessi hlutverk eru meira lokuð og tengd öðrum þátttakendum í hópnum. Við hin reynum meira að ímynda okkur hvaða hegðun- arreglur gildi um þessi hlutverk. Án leikstjórnar Þar sem greinilegt er að öllum hlutverkum okkar í lífinu fylgja ákveðnar hegðunarreglur, ætti það líka að vera augljóst, að öllum þessum hlutverkum fylgir einnig ákveðin ábyrgð. Mjög mikilvægt er að ruglast ekki í þeirri ábyrgð, sem fylgir hverju hlutverki. I leikritum ber hver leikari ábyrgð á sínu hlutverki, eftir að leikstjórinn hefur sleppt höndinni af verkinu við frumsýn- ingu. í lífinu sjálfu höfum við engan leikstjóra, en við höfum hegðunarreglurnar sem eins kon- ar leikstjóra, að öðru leyti berum við sjálf ábyrgð á hlutverkum okkar. Það getur oft verið erfitt. Hver er ábyrgð mín í hlutverki uppalanda? Hver er ábyrgð barnsins í því hlutverki? Hvernig get ég kennt barninu að það beri sjálft ábyrgð á sjálfu sér, en verið samt sem áður ábyrgt foreldri? Hvernig get ég fundið að maki minn hefur áhrif á líðan mína, en samt ekki kennt honum um hvað ég geri? I þessum dæmum ruglum við því miður oft saman þeirri ábyrgð, sem fylgir okkar eigin hlutverkum og hlutverkum ann- arra. Dæmi: Foreldri heldur því statt og stöðugt fram að barnið sé í skóla fyrir sjálft sig, til þess að eiga möguleika á að komast áfram í lífinu, en hótar svo barn- inu öllu illu ef það lærir ekki, krefst þess að það læri á ákveðn- um tímum, situr jafnvel yfir því á meðan og tekur að sér hlutverk kennara og prófdómara í senn. Hér ruglar foreldrið saman þeirri ábyrgð, sem það hefur sem for- eldrið saman þeirri ábyrgð, sem það hefur sem foreldri á að fylgj- ast með og hafa áhuga á því, sem barnið gerir og er því fyrir bestu og ábyrgð barnsins á að læra fyrir sjálft sig. Barnið upplifir rugling- inn og fer að hafa á tilfinningunni að það sé að læra fyrir foreldrana. Ýtir því frá sér ábyrgðinni á nám- inu og hættir að taka alvarlega það kerfi,sem á að sjá um af- leiðingarnar af ábyrgðaríeysinu, þ.e. einkunnimar. I staðinn fer foreldrinu að líða illa yfir lélegum einkunnum og þrýstir meir á barnið að læra. Þar sem barnið hefur ýtt frá sér ábyrgðinni er slíkt til einskis og foreldrið er alfarið komið með ábyrgðina á lærdóm barnsins. Til þess að halda ábyrgðinni hjá réttum aðila verðum við að reyna að átta okkur á því hvaða ábyrgð fylgir hvaða hlutverki. Þess vegna hefði foreldrið átt að átta sig á því að þess ábyrgð er að sýna áhuga og veita aðhald, en ekki að yfirtaka ábyrgðina á nám- inu. T.d. getur foreldri spurt Við höfum með höndum mörg hlutverk í lífinu en vantar leikstjóra. hvort barnið sé búið að læra. Ef svarið er neitandi, ríður á öllu að halda ábyrgðinni hjá barninu með því t.d. að spyrja hvenær barnið ætli að læra. Ef ábyrgðar - ruglingur hefur þegar átt sér stað, verður að breyta honum með því að tala upphátt um það að nú skuii því breytt. Sé honum haldið frá upphafi, eru litlar líkur á því að erfiðleikar skapist á milli for- eldra og barns. Hins vegar getur slíkt skapast á milli skóla og barns. Framhald næst Zenith 12xPreflex 35 mm, kr. 5.900,- Þegar kemur að afborgunum lána er það í þínum höndum að borga á réttum tíma. mai var gjaíddagí húsnæðíslána Þar með sparar þú óþarfa útgjöld vegna dráttarvaxta, svo ekki sé minnst á innheímtukostnað.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.