Þjóðviljinn - 06.05.1989, Síða 18
Bergmál eftir Helga Þorgils.
Myndefnið í
aöalhlutverki
í dag kl. 16 verður opnuð sýn-
ing á nýjum verkum eftir Helga
Þorgils Friðjónsson að Kjarvals-
stöðum. Þetta er önnur boðsýn-
ing Listasafns Reykjavíkur á ár-
inu og stendur hún til 21. maí.
Eftir það verður sýningin send
utan, fyrst til Norrænu listamið-
stöðvarinnar í Sveaborg í Svíþjóð
þar sem hún verður opnuð 16.
júní, þaðan til Galleri NEMO í
Eckernförde í Þýskalandi og loks
til Rovaniemi listasafnsins í Finn-
landi.
Það er einkum fyrir samvinnu
Sveaborgar og Kjarvalsstaða sem
sýningin kemst í þessi ferðalög,
en í tilefni þeirra er sýningarskrá
einkar vegleg og hún og vegg-
spjöld prentuð á fjórum tungu-
málum.
Helgi Þorgils er talinn meðal
fremstu listamanna hér á landi af
sinni kynslóð og vakti strax at-
hygli og umtai þegar hann kom
fram á sjónarsviðið fyrir um tíu
árum. Hann var þá einn af fáum
íslenskum listamönnum af yngstu
kynslóðinni sem hélt sér við hefð-
bundin efni og aðferðir í mál-
verkinu. Hugmyndin eða mynd-
efnið hefur alltaf gegnt jafnstóru
hlutverki og formræn útfærsla í
verkum hans. Verk Helga eru í
hæsta máta vitsmunaleg, jafn-
framt því sem Iistrænt næmi hans
hefur alið af sér nýja og persónu-
lega sýn.
Helgi hefur vakið athygli er-
lendis og eru verk eftir hann á
listasöfnum í Svíþjóð, Danmörku
og Þýskalandi.
Glíman við að þýða
Félag áhugamanna um bók-
menntir heldur í dag kl. 14 fund
um bókmenntaþýðingar í stofu
101 í Lögbergi. Framsögumenn
eru Ástráður Eysteinsson sem tal-
ar um þýðingar og íslenska bók-
menntasögu eftir stríð, Ingibjörg
Haraldsdóttir sem nefnir fyrir-
lestur sinn „Vort daglega þýðing-
arstreð" og Jón Óskar sem talar
um ljóðaþýðingar.
í fréttabréfi FAB er tekin þessi
klausa frá Milan Kundera: „Þýð-
endur: mér hættir til að vera
harðorður í þeirra garð en það er
ósanngjarnt. Laun þeirra eru lé-
leg, virðing engin, meðferðin á
þeim slæm og til þeirra eru gerðar
tvenns konar kröfur sem ekki er
auðvelt að samræma: að vera að
öllu leyti samboðnir höfundinum
- en samt sem áður að vera hon-
um fullkomlega undirgefnir.
Ægilegt. Þó eru það þeir sem
gera okkur kleift að hrærast á al-
þjóðlegu sviði heimsbók-
menntanna; á sinn hógværa hátt
leggja þeir grundvöll að Evrópu,
Vesturlöndum.“
Útigangsfólkið
bandarísk þjóðarskömm
Einn af neðanjarðaríbúum New York-borlgar kemur upp í sólskinið.
Bandaríkin eru ríkt samfé-
lag eins og allir vita. En þau
hafa um margt gisnara örygg-
isnet fyrir þá sem undir verða í
lífsslagnum en t.a.m. evrópsk
samfélög. Til að mynda segja
opinberar skýrslur að um 400
þúsund Bandaríkjamenn eigi
hvergi höfði að halla. Þar af
séu í New York einni um 60
þúsundir manna sem ekkert
húsakjól hafa. Aðrir telja
þessa tölu miklu hærri - at-
hugun sem fram fór á vegum
Kaliforníuháskóla segir að
heimilisleysingjar, útigangs-
menn, séu líkast til þrjár milj-
ónir.
Náttból
neöanjarðar
Og þeim fer mjög fjölgandi.
Tökum dæmi af þeim sem „búa“ í
neðanjarðarlestinni í New York.
Þeir hafast við á bekkjum ofan-
jarðar á daginn, en þegar kvöldar
leita þeir sér skýlis í neðanjarð-
arlestinni. Setjast kannski upp í
vagn og eru þar alla nóttina -
þetta er tiltölulega hættulaust og
hlýtt skýli fyrir þá. íbúum lest-
anna fjölgar jafnt og þétt - fyrir
svo sem átta árum, segir einn
starfsmaður neðanjarðarbraut-
anna voru þeir 2-3 í allri lestinni
(sumar lestir eru vinsælli en aðr-
ar, best er sú sem aldrei kemur
upp á yfirborðið). En nú eru þeir
kannski sex eða sjö í einum
vagni.
Aðrir farþegar eru lítt hrifnir af
þessum næturgestum, sem eru
einatt ekki beinlínis þriflegir út-
lits og margir hafa ekki getað
þvegið sér vikum saman. En það
þýðir lítið að ganga á milli þeirra
og bjóða þeim húsaskjól til dæm-
is í náttbólum borgarinnar. Þar
eru eiturlyfjamenn yfirgangs-
samir, barsmíðar, nauðganir og
önnur ofbeldisverk tíð - margir
geta ekki minnst veru sinnar þar
án þess að fyllast skelfingarhrolli.
Latir
og geðbilaðir?
Oft er látið að því liggja í blöð-
um, að heimilisleysingjarnir séu
letidraugar eða geðbilað fólk sem
ekki vilji vinna fyrir sér eða geti
það ekki. Þessu andmæla margir
Listin að vera eigir
Nú seljast sem aldrei fyrr leiðbeiningabækur
um það hvernig maður á að láta sér líða vel,
hvað sem öllum öðrum líður
Hvemig á maöur að veröa
fallegri, ríkari og betri? Um
þetta fjalla ótal bækur á mark-
aöi austan hafs sem vestan
og þær seljast eins og heitar
lummur.
Útboð
Austurlandsvegur
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagningu
tveggja kafla á Austurlandsvegi í Suður-
Múlasýslu: Fossárvík - Framnes (12 km) og
Merki - Valtýskambur (3 km).
Helstu magntölur: Fyllingar 33.000 m3, skering-
ar 36.000 m3, þar af bergskeringar 5.000 m3,
burðarlag 54.000 m3 og rofvörn 5.000 m3.
Verki skal að fullu lokið 1. júlí 1990.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Reyðarfirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá
og með 9. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 22. maí 1989.
Vegamálastjóri
Auglýsið í
Nýju Helgarblaði
Sími: 681333
ALÞÝPUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Morgunkaffi
laugardaginn 6. maí milli 10 og 12 verður Valþór Hlöðversson bæjarfulltrúi
á skrifstofunni, Þinghól, Hamraborg 11. Heitt kaffi á könnunni. Allir vel-
komnir.
SUMARTÍMI
Skrifstofa Alþýðubandalagsins í Miðgarði, Hverfisgötu 105, Reykjavík,
verður opin frá kl. 8-16 frá 1. maí til 30. september. - Alþýðubandalaglð.
ABR
Fundur Borgarmálaráðs
Borgarmálaráð ABR heldur fund miövikudaginn 10. maí kl. 17 í risinu
Hverfisgötu 105. Fulltrúar munið að sækja fundinn. Borgarmálaráð
ABK
Spilakvöld í Kópavogi
Alþýðubandalagið í Kópavogi heldur spilakvöld mánudaginn 8. maí kl.
20.30 í Þinghóli, Hamraborg 11,3. hæð. Allir velkomnir. Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Bæjarmálaráð
fundar 8. maí klukkan 20.30 í Þinghól, Hamraborg 11. Rætt um skipulags-
og atvinnunmál. Stjórnin.
Vikublaðið Spiegel tekur dæmi
af hálfsextugum Austurríkis-
manni, sem Josef Kirschner
heitir. Hann hefur skrifað einar
sextán leiðbeiningabækur um
það hvernig menn eigi að koma
sér þægilega fyrir í heiminum
með sjálfselsku og slóttugheit-
um. Heiti bókanna segja sína
sögu, ein nefnist „Listin að vera
eigingjarn“, önnur heitir „Að
fjarstýra fólki - en á réttan hátt“
og hin þriðja „Hjálpaðu þér sjálf-
ur - annars hjálpar þér enginn“.
Á leið inn í sig
Útgefndur vita mætavel að
fólkið „er á leið inn í sig“. Og
dæmi segir fyrrnefnt vikublað af
einu þýsku forlagi, sem hefur gef-
ið út alls 350 kiljur sem kenna
mönnum allar hugsanlegar leiðir
til að lifa af í samtímanum. Stórar
bókaverslanir safna í deildina
“Velgengni og heilsa" ca. 3500
titlum um það hvernig menn geta
gert umbætur á sjálfum sér, hvort
heldur það er í því fólgið að ná af
sér aukakílóum, peningasorgum,
ástasorgum, leysa úr árekstrum
við sína nánustu eða kasta af sér
vanmetakennd.
Kauptu þér ráðið
rétta
Öllum steinum er við velt, ekk-
ert svið er látið afskiptalaust,
ekkert hvunndagsmál er til sem
ekki er leyst með eldhressri ráð-
gjöf. Ein bókin kennir mönnum
að skreyta svalir sínar sér til far-
sældar, önnur að grilla mat, hin
18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ
HQtíS — <|A J-aítA'tVi'rí * * 'rt «föL» !£->!, --