Þjóðviljinn - 06.05.1989, Page 19
þeir sem hafa unnið að því að
koma þessum hópi manna á
mannfélagskortið. Meira en 90
prósent þeirra sem hafa lent á
götunni síðustu tvö-þrjú árin
höfðu áður þak yfir höfði. Um 80
% þessa fólks eru einstæðir karl-
ar á á fertugs- og fimmtugsaldri,
og helsta ástæðan fyrir því að þeir
lenda á götunni er blátt áfram sú
að þeir missa vinnuna. Þeir eru
þó alls ekki allir atvinnulausir -
skýrslur frá San Francisco herma
til dæmis, að tveir þriðju úti-
gangsmanna þar í borg hafi enn
einhverja vinnu.
Hent út í kuldann
Vissulega eiga ekki allir
heimilisleysingjar sér sömu sögu.
í þeirri grein, sem hér er stuðst
við, er t.d. ekki farið út í þá
sálma, hve margir þeirra eiga eða
hafa átt við vímugjafavanda að
stríða. En hitt er ljóst, að þung-
vægar pólitískar ástæður eru fyrir
þvf að heimilisleysingjum hefur
fjölgað að miklum mun á síðari
árum, að þeir eru orðnir mjög
sýnilegir í bandarísku borga-
landslagi og vaxandi áhyggjuefni
þeim sem enn eru ekki búnir að
slökkva á allri mennskri samúð.
Tími Reagans forseta var um leið
sá tími þegar mjög var dregið úr
fjárveitingum til ýmissa félags-
legra þarfa. Til dæmis að taka
voru framlög alríkisins til hús-
næðisþarfa skorin niður um þrjá
fjórðu frá 1981. í annan stað hef-
ur húsaleiga í Bandaríkjunum
vaxið tvisvar sinnum hraðar en
meðaltekjur. Eins og er gleypir
húsnæðiskostnaður þriðjung
tekna tíu miljóna fjölskyldna en
helming allra tekna hjá 6,3 milj-
ónum fjölskyldna. Og þá má ekki
mikið út af bera til að menn lendi
á götunni og bæti við þá „þjóðar-
skömm“ sem mörgum Banda-
ríkjamönnum finnst að staða
heimilisleysingjanna sé.
gjam
hriftia í>A m
þriðja að róa ungaböm, hin
fjórða ræður bót á hrotunum í
makanum. Bækur eru skrifaðar
innihaldandi útsmogna her-
stjórnarlist fyrir þá sem vilja
losna undan ábyrgð, þá sem vilja
skipta um líf, þá sem vilja vinna
sig upp. Að ekki sé gleymt ótal
ráðum til að verða fallegur og
vöðvastæltur og bólfimur með af-
brigðum. Dæmi um bókarheiti af
þessu sviði: „Sá sem kemur öðr-
um til á fa'.skan hátt er hálf-
dauður“. Önnur geymir fyrirheit
um “Kynorku og algleymi“. hin
þriðja ber fram sinn boðskap í
kröfugerðarformi: „Gerið þið
það strax!“.
Sá mannlegi eiginleiki er ekki
til sem þessar bjartsýnisbók-
menntir ekki lofa að þjálfa, efla
og bæta - langt umfram meðal-
lag. Og viðskiptavinirnir koma úr
öllum hópum samfélagsins - þar
eru bæði háskólamenntað fólk og
svo þeir sem annars taka sér
aldrei bók í hönd. Bóksölum ber
þó saman um, að einn stærsti
hópur kaupenda margnefndra
kennslubóka í farsælu líferni séu
karlar á fimmtugsaldri.
Sjálfsagðir
hlutir?
Höfundar þessara bóka eru
einnig af mörgum gerðum ef svo
mætti segja. Frægðarfólk er í
þeim hópi. Til dæmis nýtur
allmikilla vinsælda bók eftir kvik-
myndastjörnuna Elizabet Taylor
um „Að vera feit, grönn, ham-
ingjusöm". Og Soffía Loren er
mætt til leiks með bók sem nefn-
ist hvorki meira né minna en
“Leyndardómur fegurðar minn-
ar“.
Bóksölum jafnt sem útgefend-
um er það reyndar mikil ráðgáta
hvað það er sem gerir ýmsa „ráð-
gjafa“ að metsöluhöfundum
Jón Óskar við eitt málverka sinna. Ljósm. Þóm.
Skúrkar
og dýrlingar
Jón Óskar myndlistarmaður
hélt málverkasýningu í Galleri
Lang í Málmey í Svíþjóð í síðasta
mánuði. Viðtökur við sýningunni
voru mjög góðar, eins og fram
kemur m.a., í ítarlegri gagnrýni
Steve Sem-Sandberg í Svenska
Dagbladet. Sandberg segir m.a. í
grein sinni að líta megi á málverk
Jóns Óskars sem „framhald
þeirrar neikvæðu fagurfræði, sem
gangi eins og dimm undiralda
undir hinu upplýsta og afhelgaða
samfélagi samtímans: sú hefð
sem á sér fyrirmyndir í De Sade
og Nietsche, og sem hefur verið
haldið á lofti af kvikmyndagerð-
armönnum eins og Fassbinder og
Pasolini."
Sandberg segir að samkvæmt
þessari hefð sé það ekki samfé-
lagið sem bendi á hinn úrkynjaða
afbrotamann, heldur sé það þvert
á móti utangarðsmaðurinn sem
viðhaldi hugmyndum samfélags-
ins um það sem er rétt, heilagt og
siðsamlegt með öfgafullu fram-
ferði sínu. Utangarðsmaðurinn
fái þannig tvíþætt gildi sem af-
brotamaður og frelsari, skúrkur
og dýrlingur.
Sandberg sér í mannamyndum
Jóns Óskars slíkar andhetjur,
sem greinilega féllu í kramið hjá
sænskum, því Jón seldi myndir til
Listasafns Málmeyjar og fleiri
aðila. Nú stendur sýning Jóns
Óskars yfir í Galleri Fahl í Stokk-
hólmi.
lumma Bandarikjamannsins
Dale Camegie „Hættu að hafa
áhyggjur og byrjaðu að lifa“ er
árum saman á metsölulista. „Það
er ekkert annað í þeirri bók en
sjálfsagðir hlutir, segir hann.
Hver er sá að hann hafi ekki enn
komist að því að þegar maður tal-
ar við mann er við hæfi að horfast
í augu við hann?“
Rit um sálarfræði hafa hinsveg-
ar hopað á hæli á markaðnum.
Líkast til vegna þess, að á okkar
þægindatímum finnst mönnum
óhugsandi að leggja á sig erfiðan
lestur - eins þótt lífshamingjan
liggi við. Þeir vilja heldur gleypa í
stóram skömmtum einfaldar
ráðleggingabækur sem fara vel í
nokkrum manni. En hitt vita
menn, að mikil sala í slíkum
bókum minnir menn rækilega á
það, að nú eru ekki lengur OKK-
AR tímar (m.ö.o. tímar mann-
legrar samstöðu) heldur MINN
tími - sá tími að hver hugsi um
sig. Hafi það fyrst og síðast í
huga, sem margar lífsreglubækur
boða, að ÉG er mikilvægur og að
ég skal láta aðra taka því, hvort
sem þeim líkar betur eða verr. Og
allt þetta endurspeglar visst póli-
tískt ástand - sem einkennist af
sterkri vanmáttarkennd (við
fáum engu breytt) og svo hægri-
sveiflu ( það er heimskulegt að
fitja upp á breytingum).
AB tók saman.
handa þér, ef þú hittír
á réttu tölumar.
Láttu þínar tölur ekki
vanta í þetta sinn!
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
Laugardagur 6. maí 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19
istan/SÍA