Þjóðviljinn - 19.05.1989, Síða 6

Þjóðviljinn - 19.05.1989, Síða 6
Skothríðin þðgnuð Stiklað á stóru í gegnum nýjan kjarasamning BHMR Um hádegisbil í gær voru undirritaðir samningará milli ríkisins annarsvegar og BHMR hinsvegar. Sex vikna löngu verkfalli var lokið. Samkomulag náöist um að aflýsa verkfalli strax en félögin eiga eftir að greiða atkvæði um samn- ingana og geta liðið allt að þrjár vikur þar til úrslit liggja fyrir um afstöðu fé- lagsmanna til samning- anna. Samningar þessir eru að því leyti frábrugðnir öðrum samning- um sem gerðir hafa verið að und- anförnu að þeir gilda til ársloka 1994 en eru uppsegjanlegir eftir 30. september 1990 með eins mánaðar fyrirvara. Launaliðir gilda hinsvegar frá 1. maí 1989 til 30. september 1990 og eru taldir gefa um 9% launahækkun á ár- inu, eða svipað og BSRB samkomulagið gerði ráð fyrir. Laun hækka 1. maí um 5% hjá HÍK en um 3,3% hjá öðrum fé- lögum BHMR. 1. september og 1. nóvember í ár og 1. janúar og 1. maí á næsta ári hækka laun um 1,5% í hvert sinn. Þá var samið um sambærilega orlofsuppbót og hjá BSRB eða 6.500 krónur sem greiðast 1. júní og hliðstæða des- emberuppbót og hjá BSRB. Samningsaðilar urðu sammála um að verði almennar breytingar á launakjörum annarra launa- manna eftir 30. nóvember í ár, umfram samning BHMR, geti aðilar krafist breytinga á launalið sem því nemur. Komi upp ágrein- ingur fer hann til úrskurðar þrig- gja manna nefndar sem skipuð verði einum fulltrúa frá BHMR, einum frá fjármálaráðherra en yfirborgardómari í Reykjavík skipar oddamann í nefndina. Tók pólitíska áhættu Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra: Tímamótasamningur að mörguleyti. Dýrmœtreynslafyrir Alþýðubandalagið. Samningavinnan mjög skemmtileg, lýðrœðisleg ogfélagsleg upplifun „Með því að bera beint ábyrgð á samningavinnunni, var bæði ég sem fjármálaráðherra og síðan ríkisstjórnin í heild að taka veru- lega pólitíska áhættu, þar sem líf hennar og kannski staða ein- stakra ráðherra gat ráðist af því hvernig samningagerðin tækist,“ sagði Olafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra í samtali við Nýtt Helgarblað að samning- um undirrituðum í gær. Sagði Ólafur að hin beina þátt- taka ríkisstjórnarinnar í samning- agerðinni gæfi „auðvitað til kynna að ríkisstjórnin telur sig pólitískt og persónulega skuld- bundna til að vinna það verk sem framundan er í einlægni og byggja upp trúnaðartraust á nýj- an leik.“ „Samningurinn sem náðist er að mörgu leyti tímamótasamn- •ingur. Hann skiptist í tvo megin- kafla, þar sem seinni kaflinn er1 staðfesting á þeirri launastefnu sem var mótuð í samningunum við BSRB og í ASÍ- samningunum. En fyrri kaflinn er nákvæm lýsing á markmiðum og eðli nýs launakerfis þar sem menntun og ábyrgð eru lögð til grundvallar og ætlunin er að kanna með faglegum hætti hvern- ig kjörum háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna er háttað og hver eru hlunnindi þeirra. Pannig á að eyða þeirri óvissu sem ríkt hefur um þessi mál og til þess er samningurinn til 1994, sem eru tímamót í samningsgerð hér á landi. Með því er gefið til kynna að hugsa eigi öðru vísi um kjara- mál á íslandi.“ Þá sagðist Ólafur vera sérstak- lega ánægður með að sjóður sá sem hann hefði sett fram hug- myndir um fyrir tveimur vikum hefði orðið að veruleika. „Sjóðn- um er ætlað að standa straum af sérstökum rannsóknaverkefn- um, þekkingaröflun, vísinda- verkum og öðru sem á að tryggja að vísindamenn hjá ríkinu geti haldið sér í faglegri þjálfun og fylgst með því besta sem gerist í þekkingarsköpun í heiminum. Inn í þennan sjóð verða lagðar um 40 miljónir á ársgrundvelli.“ Sagði Ólafur mjög mikilvægt að inn í samninginn hefði náðst formleg viðurkenning beggja að- ila á nauðsyn endurskipulagning- ar í ríkisrekstrinum og nýsköpun á því sviði. Petta ætti að vinna í samvinnu við starfsmenn og væri Próf verða tekin Sameiginleg yfirlýsing menntamálaráðherra og formanns HÍK „Menntamálaráðuneytið og HIK eru sammála um að bæta þurfi nemendum í framhaldsskól- um upp þá kennslu sem þeir hafa farið á mis við í verkfalli BHMR, eins og kostur er, annað hvort nú í vor eða næsta haust. Þetta á jafnt við áfanga- og bekkjaskóla, þar með talinn Verslunarskóli ís- lands. Aðilar eru sammála um aða nemendur verði hvorki brautskráðir né færðir milli bek- kjadeilda eða áfanga án nám- smats frá kennurum. Nánari ák- varðanir um skólalok verði tekn- ar í fullu samráði við kennara í hverjum skóla á báðum skólastig- um. Grunnskólakennurum í HÍK verði gert kleift að tryggja nem- endum kennslu/námsmat sem er sambærilegt við það sem aðrir ne- mendur hafa fengið. Nemendur sem ljúka grunnskóla í vor geta ekki hafið nám í framhaldsskóla án þess að hafa fengið vitnisburð/ einkunnir í öllum námsgreinum. Aðilar munu standa saman að starfshópi sem fæst við einstök neyðartilfelli." Langtímahluti samningsins snýr að útfærslu kröfunnar um markaðslaun. Þar er kveðið á um endurskoðun á launakerfi há- skólamenntaðra ríkisstarfs- manna með tilliti til ábyrgðar, sérhæfni og menntunar í saman- burði við hliðstætt vinnuafl á al- mennum markaði. Við þetta endurmat á að taka tillit til hlunn- inda og annarra atriða sem hafa áhrif á starfskjör ríkisstarfs- manna. Staðið skal að umrædd- um breytingum með þeim hætti að ekki komi til röskunar á hinu almenna launakerfi í landinu. Ríkissáttasemjari skipar þrjá menn að höfðu samráði við aðila og skal þessi nefnd setja reglur um það út frá hverju skal gengið um mat á starfskjörum og á nefndin að skila af sér fyrir 1. júlí 1989. Annarri nefnd skipaðri þremur frá BHMR og jafnmörgum frá fjármálaráð- herra er síðan falið að fram- kvæma kjarasamanburðinn og meta tilefni til leiðréttingar á kjörum. Skal nefndin skila fyrstu áfangaskýrslu ekki síðar en 1. mars 1990 og lokaáliti eigi síðar en 1. júlí sama ár. Tilfærsla á milli launaflokka í kjölfar kjaramatsins skal gerast í sem jöfnustum árlegum áföngum er taki gildi 1. júlí ár hvert, sá fyrsti 1. júlí 1990 og skal endur- röðuninni lokið á ekki lengri tíma en þremur árum. t*á á að setja á fót nefnd sem endurskoðar námsmat og skal hún ljúka störfum fyrir 28. febrú- ar 1990. Einnig á að skipa fjög- urra manna nefnd, með tveim fulltrúum frá BHMR og tveim frá jafnframt ætlað að nýta betur fjármuni ríkisins. En nú hefur Ólafur Ragnar orðið fyrir harðri gagnrýni á með- an verkfalli stóð. Hvernig metur hann áhrif þeirrar gagnrýni nú fyrir sig persónulega og Alþýðu- bandalagið? „Það var óhjákvæmilegt að deila af þessu tagi yrði erfið fyrir mig og Alþýðubandalagið, ef horft er til skamms tíma. Ég er hins vegar sannfærður um að til lengdar á hún eftir að reynst dýr- mæt í fyrsta lagi vegna þess að hún sýndi staðfestu flokksins í að fylgja fram þeirri efnahags- og launastefnu sem við höfum mótað. í öðru lagi kenndi hún mörgum góðum flokksfélögum og okkur öllum að við getum tek- ist á um hluti, þó oft hafi fallið þung orð og umræðan verið heit en náð síðan sameiginlegri lausn. Það er mikilvægt því stjórnmála- flokkur getur aldrei verið ávísun á eitthvert halelúja-samfélag, slíkur flokkur er dauður flokkur. Þetta sýnir að Alþýðubandalagið hleypur ekki í burtu né brotnar í erfiðleikunum heldur vinnur sig í gegnum þá.“ Þú óttast ekki að ýmsir lykil- menn flokksins innan BHMR yf- irgefi flokkinn í kjölfar deilunn- ar? „Það held ég ekki. Ég fann mjög rækilega í þessari 30 stunda lokalotu að það ríkti mikil góð- vild og ekki vottur af persónu- legum fjandskap. Það var einlæg sameiginleg vinna að því að leita lausna og ég held að allir hvort sem þeir eru í flokknum eða ekki hafi skynjað þann góða anda sem var í því verki. Það var ekki fjandskapur í þessu húsi í gær- kvöldi, heldur þvert á móti var hér mikið lýðræðislegt torg. Hér voru um hundrað manns að ræða málin, þannig að þetta var mjög skemmtileg, lýðræðisleg og fé- lagsleg upplifun, þó það sé nú sérkennilegt að taka þannig til orða um lausn í erfiðri og lang- varandi kjaradeilu.“ pj,j, Ríkið þolir samninginn Indriði H. Þorláksson, formaður samninganefndar ríkisins Hafa þetta verið erfiðir samn- ingar? „Já, jæja, ég segi það nú kann- ski ekki.“ Þolir ríkið þessa samninga að þínu mati? „Já, ég held að samningurinn hefði ekki verið gerður annars.“ En telur þú að hann gefi öðrum félögum, eins og t.d. BSRB á- stæðu til að rífa upp sína samn- inga? „Nei, ég sé ekki að það sé ástæða til þess. Á þeim tíma sem samningur BSRB er bundinn er ekkert í þessum samningi sem gefur ástæðu til þess,“ sagði Ind- riði H. Þorláksson. phh Frá undirritun samninga á há- degi ígær. Frá vinstri: Indriði H. Þorláksson, Ólafur Ragnar Grímsson, Páll Halldórsson og Wincie Jóhannsdóttir. Mynd: Jim Smart. 6 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. maí 1989

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.