Þjóðviljinn - 19.05.1989, Blaðsíða 12
BARNAKOMPAN
Umsjón:
KRISTÍN VALSDÓTTIR
ANDRÉS GUÐMUNDSSON
Andinn í lampanum
Einu sinni var sjómaður.
Hann hafði þá reglu að
kasta netinu þrisvar sinn-
um á dag. Einu sinni var
hann að veiða. Fyrst veiddi
hann stein og skeljar, svo
veiddi hann þara og í þriðja
skipti veiddi hann olíu-
lampa. Hann tók af lokið.
Þá kom andi upp úr lam-
panum og sagöi. - Hvernig
viltu að ég drepi þig? - Ha?
sagði sjómaðurinn. - Ég
var að bjarga þér úr lam-
panum. - Fyrir hundrað
árum var ég settur inn í
lampann, sagði andinn. -
Ég var orðinn svo óþolin-
móður að ég hótaði þeim
sem næði mér að drepa
hann. - Ég trúi því ekki að
þú komist í lampann, sagði
sjómaðurinn. Þáfór andinn
í lampann. Þá tók sjómað-
urinn lampann og fleygði
honum útí.
Jóhannes Benediktsson
9 ára
Sjónhverfing með
röri og
Núna fáið þið auðvelda sjón-
hverfingu til að glíma við. Áður
en þið ætlið að gabba ein-
hvern þurfið þið að undirbúa
ykkur vel. Það sem þarf er
drykkjarrör, tvinni og smá
undirbúningur með skærum
og hníf. Rörið er sýnt með
tvinna sem hefur verið
þræddur í gegn og lafa end-
arnir út úr sitt hvoru megin. Sá
sem brelluna sýnir brýtur
saman rörið í miðju og klippir
tvinna
það í sundur. Þótt undarlegt
megi virðast er tvinninn heill
og óskemmdur. Þessi galdur
er undirbúinn þannig að
skorin er dálítil rauf í miðjuna á
rörinu langsum eftirþví. Þegar
búið er að beygja rörið er
hægt að draga strenginn út
um rifuna svo lítið beri á með
því að toga í báða endana á
tvinnanum. Þetta krefst
æfingar en því ekki að reyna?
Rissnál
Þú getur auðveldlega útbúið
rissnál sem teiknar strik,
hringi og mynstur allt eftir því
hvernig þú setur hana af stað.
Þú tekur þrjá gaffla og stingur
þeim í korktappa. Þú þræðir
síðan þráð í gegn um tappann
og bindur í blýant. Blýantinn
þarftu að þyngja og það er til
dæmis hægt að stinga honum
í gegn um kartöflu. Síðan set-
ur þú þetta upp eins og sýnt er
á myndinni og blað undir.
Berðu saman myndirnar og finndu hvað vantar á þá neðri.
Karphúsið
Oft er talað um að taka ein-
hvern í karphúsið. Það
merkir að taka í lurginn á ein-
hverjum, en hvað er þetta
karphús sem allir tala um? Nú
er farið að kalla ákveðið hús í
Reykjavík Karphús vegna
þess að þar karpar eða deilir
fólk um kaup og kjör. Karphús
hafði þó aðra merkingu í
gamla daga. Það merkir húfa
eða hetta og þess vegna
merkir orðtakið, að taka í
karphúsið, raunverulega að
taka í húfu eða hettu einhvers.
Björgunaraðferðir
Lundinn er fugl sem verpir í flogið nema hún sjái sjóinn.
Vestmannaeyjum. í ágúst Krakkarnir safna pysjunum í
þegar lundapysjan byrjar að kassa og fara með þær niður
fljúga er hún dálítið rugluð. að sjó og sleppa þeim.
Hún flýgur í bæinn þegar hún
sér Ijósin. En hún getur ekki Einar Pálmi Einarsson 8 ára
12 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. maf 1989