Þjóðviljinn - 19.05.1989, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 19.05.1989, Blaðsíða 10
Framarar verja titilinn Efmarka má spádóma 1. deildar liðanna verður Fram íslandsmeistari en ÍBK og Þór falla í 2. deild Knattspyrnuvertíðin er nú hafin fyrir alvöru, vormótum er lokið og íslandsmótið í þann veginn að hefjast. Keppni í 1. deild karla hefst á sunnudag og af því tiiefni efndu 1. deildar félögin til fundar í gær eins og venja er fyrir þetta vinsæla íþróttamót. Fram íslands- meistari? Það er árviss viðburður að for- ráðamenn, leikmenn og þjálfarar liðanna spá fyrir um lokastöðu deildarinnar. Spáin um 1. sætið hefur ávallt reynst rétt og sam- kvæmt því ættu Framarar að verja titilinn því þeim er spáð sigri nú. í þessari könnun er mest hægt að fá 300 stig og fékk Fram 287 stig að þessu sinni. Næstir í röðinni urðu Vals- menn með 261 stig, þá KR með 228 stig, Akurnesingar hlutu 199 stig, KA 198, Víkingur 124, FH 114 og Fylkir 92. í fallsætunum lentu Þór með 82 stig og ÍBK með aðeins 65 stig. Spáin um fallsætin hefur raunar oftast reynst röng að hálfu leyti, eða allt þar til í fyrra að Völsungur og Leiftur féllu eins og spáin hafði sagt til um. Það vekur athygli að báðum nýliðunum, FH og Fylki, er spáð áframhaldandi veru í deildinni. Venjulega er nýliðum ekki spáð velgengni en hafa ber í huga að þessi lið fóru á mjög sannfærandi hátt upp í 1. deild í fyrra. Toppliðin Liðin í 1. deild hafa breyst mis mikið frá næstliðnu ári eins og vera ber. Framarar hafa sama kjarna í liði sínu og í fyrra þegar þeir unnu mótið löngu áður en því var lokið. Það er því nokkuð eðlilegt að þeim sé spáð vel- gengni, hvernig sem sá spádómur fer. Ormarr Örlygsson er að vísu farinn til KA en í hans stað hafa komið Ragnar Margeirsson frá ÍBK, Eiríkur Björgvinsson frá Völsungi og Brynjar Jóhannes- son frá Fylki. Ásgeiri Elíasson er enn við stjórntaumana hjá liðinu og er þetta fimmta árið í röð sem hann þjálfar liðið. Undir hans stjórn hefur Fram ma. unnið ís- landsmeistaratitilinn í tvígang og Bikarinn og Reykjavíkurmótið hefur liðið unnið jafn oft. Fram- arar verða vafalaust sterkir í sumar en því meiri áherslu leggja önnur lið á að vinna af þeim stig. Valur er með mjög breytt lið miðað við fyrra ár. Liðið var sterkt á síðasta ári og hlaut 41 stig sem er þremur stigum betur en fyrra stigamet. Mesta blóðtaka Valsmanna er brottför Guðna Bergssonar í Tottenham. Þá eru Guðmundur Baldursson mark- vörður og Hilmar Sigurgíslason farnir í Fylki, Valur Valsson hef- ur hætt knattspyrnuiðkun, Jón Grétar Jónsson fórí KA, Tryggvi Gunnarsson í ÍR, Ámundi Sig- mundsson í Víking og Bergþór Magnússon í Víkverja. Aldeilis mikil blóðtaka fyrir Val en í stað- inn hafa bæst nokkrir valinkunnir menn: Bjarni Sigurðsson kom frá Brann, Halldór Áskelsson frá Þór, Heimir Karlsson frá Víði, Lárus Guðmundsson frá Víkingi og Snævar Hreinsson er aftur kominn í Val eftir dvöl á Húsa- vík. Enginn efast um ágæti þess- ara knattspyrnumanna en spurn- ingin er bara hvort Herði Helga- syni þjálfara tekst að skapa nógu góða liðsheild. Það tekur tíma en Valsliðið verður án efa í toppbar- áttunni í sumar. KR olli nokkrum vonbrigðum í fyrra. Liðinu var þá spáð öðru sætinu en mátti gera sér það fjórða að góðu. Þótt spáin setji liðið neðar í sumar hlýtur það að Ormarr Örlygsson hefur verið einn sterkasti hlekkurinn í liði Fram undanfarin ár en er nú farinn til KA. vera lágmarks markmið liðsins að komast í Evrópukeppni. Tveir af leikreyndari mönnum KR, Ágúst Már Jónsson og Jósteinn Einars- son, eru farnir frá félaginu og þá eru Stefán Arnarson, Júlíus Þor- finnsson og Jón G. Bjarnason einnig á brott. í þeirra stað hefur KR fengið Sigurð Björgvinsson frá ÍBK, Stefán Steinsen frá Fylki, Steinar Ingimundarson frá Leiftri, Sævar Bjarnason frá FH og Þorfinn Hjaltason frá Völs- ungi. Nokkuð miklar breytingar en lið KR hefur alla burði til að ná Iangt í sumar. Skagamenn eru oft vanmetnir í upphafi árs en berjast alltaf á toppnum þegar Iíða tekur á sumar. Þeirra sterkasti leikmað- ur undanfarin ár, Ólafur Þórðar- son, hefur kvatt félagið og leikur nú undir stjórn bróður síns, Teits, í Brann í Noregi. Þá eru Mark Duffield og Gunnar Jóns- son einnig hættir en tveir gamlir Skagamenn hafa haldið heim að nýju, þeir Valgeir Barðason frá KÁ og Júlíus P. Ingólfsson frá Grindavík. Sigurður Lárusson þjálfar nú liðið í annað sinn og má búast við liðinu á svipuðum styrk- Ieika og í fyrra. KA var nálægt Evrópusæti í fyrra og kom það mörgum á óvart. Liðið er ungt og ætti að fara batnandi með hverju árinu sem líður. Liðinu hefur bæst mik- ill liðsauki þar sem Ormarr Ör- lygsson og Jón Grétar Jónsson eru en Valgeir Barðason og Frið- finnur Hermannsson er farnir. KA hefur líklega aldrei átt jafn sterkt lið og nú og gera norðan- menn miklar væntingar til liðsins. Eins og í fyrra þjálfar Guðjón Þórðarson liðið. Lygn sjór Víkingar voru í fallhættu nær allt sumarið í fyrra eftir að hafði gengið á ýmsu hjá liðinu. Tölu- verðar breytingar hafa orðið á liði Víkinga og vekur athygli að þeir tefla fram júgóslavneskum leikmanni, Goran Micic. Þá eru Ámundi Sigmundsson og Aðal- steinn Aðalsteinsson aftur komn- ir í raðir Vfkinga en margir leik- menn eru farnir: Lárus Guð- mundsson, Einar Einarsson, Hlynur Stefánsson, Jóhann Þor- varðsson og Stefán Halldórsson. Júrí Sedov þjálfar Víkinga þriðja árið í röð en hann hafði einmitt áður Iiðið. Búast má við að Vík-' ingur sigli lygnan sjó í deildinni í sumar. FH-ingar unnu aðra deildina í fyrra með miklum yfirburðum en liðið hefur rokkað á milli deilda undanfarin ár. Þeir fá liðsauka frá Englandi, Bobby Hutchkon- son, en auk þess bætast tveir Þórsarar í hópinn, þeir Birgir Skúlason og Guðmundur Valur Sigurðsson. Janus Guðlaugsson er endanlega hættur og sem áður sagði er Sævar Bjarnason farinn í KR. Ólafur Jóhannesson þjálfar og leikur með liðinu eins og í fyrra en Viðar Halldórsson mun aðstoða hann í sumar. Það verður gaman að fylgjast með liði FH í 1. deildinni. Fylkir hafði einnig tryggt sér sæti í 1. deild löngu áður en keppni lauk og er þetta fyrsta ár félagsins í deildinni. Fylkir lék í 3. deild 1987 og hefur kraftaverka- maðurinn Marteinn Geirsson komið liðinu rakleiðis upp í 1. deild. Litlar breytingar hafa orð- ið á liðinu frá fyrra ári. Brynjar Jóhannesson og Stefán Steinsen eru farnir en Guðmundur Bald- ursson, Guðmundur Magnússon, Hilmar Sighvatsson og Loftur Ól- afsson eru komnir í þeirra stað. Fylkir hefur því styrkst til muna og liðið verður ekki auðunnið í sumar. Fallkandídatar Fallkandídatar eru Þór og ÍBK. Þórsarar hafa orðið fyrir miklum blóðtökum en Halldór Áskelsson, Jónas Róbertsson, Júlíus Tryggvason, Siguróli Kristjánsson, Bjarni Svein- björnsson, Birgir Skúlason, og Guðmundur Valur Sigurðsson eru allir hættir. Sumsé meirihluti liðsins og sannarlega vandfyllt skarð sem þeir skilja eftir sig. Tveir júgóslavneskir leikmenn kynnu að styrkja liðið en þeir heita Bojan Tanevski og Luka Kostic. Þjálfari liðsins, Milan Duricic, er einnig frá Júgóslavíu, og er þetta fyrsta ár hans hér á landi. Lið Keflavíkur hefur ekki síður orðið fyrir skakkaföllum. Ragnar Margeirsson og Sigurður Björg- vinsson eru farnir, Daníel og Grétar Einarsson fóru aftur í Garðinn, Þorsteinn Bjarnason er hættur og Peter Farrell fór til Kýpur. Ástráður Gunnarsson þjálfar ÍBK í fyrsta skipti og verð- ur erfitt verk að halda þessu vængbrotna liði í deildinni. Eins og sjá má á þessari stuttu úttekt er allt útlit fyrir skemmti- legt og spennandi mót í sumar. Flestir vellir eru að verða góðir eftir erfiðan vetur og það eina sem vantar er gott veður til að áhorfendur flykkist á leiki sum- arsins. -þóm 10 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. mai 1989 Ekki bara vinir og vandamenn „Kvenskörungurinn og atork- ukonan“ Guðný Halldórsdóttir lét nýlega birta við sig játningar- viðtal í tímariti. í þetta viðtal vitnar Þjóðviljinn í gær og tekur upp eftirfarandi setningar eftir Guðnýju: „Klíkuskapurinn í kringum hann (Hrafn) er óþol- andi. Á meðan hann gegndi hlut- verki dagskrárstjóra hjá Sjón- varpinu, voru aðeins fjórir aðilar sem fengu að leikstýra myndum. Ég geri mér vonir um betri vinnu- brögð með tilkomu Sveins Ein- arssonar í embætti dagskrár- stjóra." Sannleikurinn í þessu máli er hins vegar sá að fjöldi leikstjóra starfaði við Sjónvarpið, þegar ég var þar dagskrárstjóri, þótt ég hafi ekki leitað til Guðnýjar. Meðal þeirra sem leikstýrðu stærri leikverkum voru: Egill Eð- varðsson, Hilmar Oddsson, Frið- rik Þór Friðriksson, Gísli Snær Erlingsson, Helga Thorberg, Karl Ágúst Úlfsson, Kristín Jó- hannesdóttir, Lárus Ýmir Ósk- arsson, Stefán Baldursson, Sveinn Einarsson, Sigurður Páls- son. Þá hafa einnig leikstýrt verk- efnum sem Sjónvarpið hefur látið gera: Ásgrímur Sverrisson, Ari Kristinsson, Þór Elís Pálsson, Þórhallur Sigurðsson. Loks má benda á að fjöldi manna leikstýrði ýmsum smá- þáttum sem féllu inn í aðra dag- skrá. Auðvitað ræðst sá fjöldi leik- stjóra sem leikstýrt getur við Sjónvarpiðaf því, hvemörgverk- efni eru tekin í vinnslu og hve mikið fjármagn fæst til dagskrár- gerðar. Dagskrárstjóra ber skylda til að ráða þá leikstjóra sem hann telur hæfasta en láta ekki undan ofstopa og rógi þeirra sem vilja troða sér áfram og hann telur síður hæfa. Kvikmyndaleikstjórar velja ó- líkar leiðir til að vekja athygli á verkum sínum. Sumir láta sér nægja verkin sjálf og umfjöilun um þau, en hjá öðrum er „atork- an og skörungsskapurinn“ slfkur, að þeir telja þá leið vænlegasta að níða niður og rógbera fyrri sam- starfsmenn. Viðtalið við Guðný- ju vekur óneitanlega upp þá spumingu, hvort þetta sé það plan, sem kvikmyndagerðar- menn vilja vera á og hvort það þjóni hagsmunum listarinnar. Hrafn Gunnlaugsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.