Þjóðviljinn - 19.05.1989, Qupperneq 7
borði og sömdu og ég er mjög
ánægður með það,“ sagði Guð-
laugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari.
phh
BHMR stendur
sterkara eftir
Páll Halldórsson, formaður BHMR: Framtíð okkar rœðst afþví
hversu vel okkur tekst aðfylgja samningnum eftir. Uppskeran ræðst
ekki af útsœðinu einu saman
Nokkrir framhaldsskólanemendur settust að (fjármálaráðuneytinu og neyttu
ekki matar í tvo sólarhringa til þess að hvetja samningamenn til þess að setjast
niður og semja. Unglingarnir höfðu ekki árangur sem erfiði því verkfallið stóð í
sex vikur. Mynd: ÞÖM.
fjármálaráðherra, og á sú nefnd
að leggja mat á faglega, fjármála-
lega og stjórnunarlega ábyrgð og
raða háskólamönnum ríkisins í
matskerfi samkvæmt því. Sú
nefnd á að ljúka störfum fyrir 1.
apríl 1990.
Samhliða endurskoðun launa-
kerfisins á að kanna leiðir til
aukinnar hagræðingar í rekstri
ríkisstofnana. Þetta þýðir í raun
að allir möguleikar verða skoð-
aðir, m.a. einkavæðing á ákveðn-
um þáttum ríkisrekstursins.
Einsog í samningum við há-
skólamenn varð samkomulag um
stofnun sérstaks sjóðs „sem
stuðla skal að auknum rannsókn-
um, þróunarstarfi og endur-
menntun háskólamanna." Ríkis-
sjóður skuldbindur sig til mánað-
arlegra greiðslna í sjóðinn sem
nema um 40 miljónum á ári.
Samkomulag varð um að verk-
fallsmönnum verði bætt launa-
tapið vegna verkfallsins með um
20 þúsund króna greiðslu.
-phh/Sáf
I réttum farvegi
Guðlaugur Þorvaldsson
ríkissáttasemjari
Nú voru allir þræðir deiiunnar
í þínum höndum á tímabili en á
endanum leystu deiluaðilar þræt-
una sín á milli. Hvernig finnst þér
hafa verið haldið á málum í þess-
ari kjaradeilu?
„Ég er mjög ánægður, því ég
tel að þetta hafi farið í réttan far-
veg. Þessi deila var nokkurn veg-
inn frá upphafi þess eðlis að hún
var óleysanleg hvort eð var með
sáttatillögum eða lögum. Það
hefði ekki náðst friður um slíkar
lausnir, svona deilu verður að
leysa með samningum beint á
milli aðila. Það var ástæðan fyrir
því að eftir nokkrar tilraunir
sendi ég menn heim og sagðist
kalla á þá eftir hálfan mánuð. Nú
er að verða liðinn hálfur mánuð-
ur og menn settust að samninga-
Því hefur verið haldið fram að
þetta sé tímamótasamningur. Ert
þú sammála því?
„Þetta er tímamótasamningur í
þeirri merkingu að þarna er farið
út í það að reyna með langtíma-
samningi að bæta kjör háskóla-
menntaðraríkisstarfsmanna. Við
höfum náð ákveðnum árangri
sem við verðum að fylgja mjög
ákveðið eftir, samningurinn
krefst þess. Það mun krefjast
aukinnar starfsemi af okkar
hálfu, en hvort við höfum efni á
að bæta við okkur mannskap á
skrifstofu BHMR skal ég ekki
segja.“
En var samningurinn verkfalls-
ins virði?
„Samningurinn var verkfalls-
ins virði ef okkur tekst að gera
langtímaþáttinn að veruleika, þá
hefur verkfallið skilað sér mar-
gfaldlega.“
En hvað er það stórt „ef“?
„Þetta er spurning um hvað
okkur tekst vel að fylgja þessum
samningi eftir. Þegar verið er að
gera samning til langs tíma þá
verður uppskeran ekki metin af
útsæðinu einu saman, maður
verður að sjá hvað upp kemur og
hvernig að þessu verður hlúð.“
En hvernig metur þú stöðu
BHMR að loknum þessum
átökum?
„Staða BHMR er sterk og okk-
ar framtíð ræðst af því hversu vel
okkur tekst að fylgja þessum
samning eftir.“
Eftir sex vikna verkfall er ekki
eðlilegt að spyrja hvað það tekur
félaga BHMR langan tíma að
vinna tekjutapið upp?
„Það er mjög erfitt að gefa ein-
hlítt svar við því. Árangur í verk-
falli er metinn eftir mörgu. Hann
er metinn eftir beinum kjarabót-
um og hann er líka metinn eftir
því hvernig mönnum tekst að
bæta stöðu sína til lengri tíma.
Einnig er árangur metinn eftir því
hversu alvarlega þau samtök sem
verkfalli beita eru tekin. Samtök
sem aldrei bíta frá sér eru auðvit-
að ekki tekin alvarlega á meðan
menn verða að taka tillit til þeirra
samtaka sem það gera. Þannig að
það er mjög erfitt að gera þetta
dæmi upp á einfaldan máta.“
En það hefur orðið ávinningur
hvað þetta varðar?
„Alveg klárlega, bæði að því
leytinu að félagið er sterkara eftir
þetta, en sérlega að það hefur
verið farið inn á nýjar brautir og
takist okkur að fylgja þar á eftir
er árangurinn ótvíræður. Við
erum búnir að byggja upp mjög
sterkan stokk af fólki sem hefur
unnið í þessu verkfalli og við
munum tryggja hann og gera
stöðugri í þeirri vinnu sem nú fer í
hönd.“
Það var miklu púðri eytt á
nauðsyn þess að orðalag samn-
ingsins yrði sem skýrast. Náðuð
þið fullnægjandi árangri þar?
„Það er erfitt að segja að orða-
lag hafi verið fullnægjandi. Við
lögðum hins vegar áherslu á að
gera samninginn nákvæman,
þannig að meining samningsaðila
kæmi skýrt fram á pappírnum og
yrði ekki umdeild síðar. Þess
vegna fengum við lögfræðinga til
að lúslesa þetta með okkur og
komum inn ýmsum atriðum sem
gera samninginn mun tryggari en
samningsdrögin voru t.d. um síð-
ustu helgi.“
Þannig að þú telur að það hafi
verið nauðsynlegt að eyða þess-
um mikla tíma í samningsgerð-
ina?
„Þessi tími var nauðsynlegur
og fór bæði í að gera samninginn
öruggari og í að ná inn nýjum
atriðum."
En hvað viltu segja um þá
reynslu sem þessir samningar
hafa veitt þér?
„Þetta er auðvitað gífurleg
reynsla og tekur mjög á mann en
hún er einnig mjög góð. En ég
held að ég verði að gera það dæmi
upp seinna í betra tómi.“
-phh
Langt fra því ánægð
Wincie Jóhannsdóttir, formaður HÍK •' Verðum
að vera vel á verði íframtíðinni gagnvartríkinu
Er samningurinn verkfallsins
virði?
„Það á eftir að koma í ljós.
Samningurinn nær fram £ tímann
með leiðréttingum sem eiga að
koma til framkvæmda í framtíð-
inni og það er alltaf einhver
áhætta fólgin í því að reyna að
gera ráðstafanir svo langt fram í
tímann. Við höfum verið að
vinna að því nú undir lokin að
minnka þá áhættu og við verðum
að vona að það hafi verið þess
virði. Það hefur alla vega verið
verkfallsins virði að við höfum
sýnt bæði okkur sjálfum og okkar
viðsemjendum og þjóðinni að
okkur er mikil alvara í því að
halda á lofti mikilvægi
menntunar og okkar eigin reisn.
Við létum ekki rúlla yfir okkur.“
Nú lögðuð þið mikla áherslu á
að fá ýmis ákvæði samningsins
orðuð á ótvíræðan hátt. Eruð þið
ánægð með þá niðurstöðu sem
fékkst?
„Ég reikna með að við hefðum
aldrei getað orðið ánægð með þá
niðurstöðu nema kveðið hefði
verið hreint á um ákveðnar
krónutöluhækkanir með vísitölu-
bindingu. Um það var ekki að
ræða og sumt af því sem samið
var um verður að byggjast upp af
vinnu af ýmsu tagi. Þannig að við
getum ekki verið ánægð, síður en
svo.“
Hvað þarf BHMR að gera núna
til að þið fáið það út úr samningn-
um sem þið vonist til?
„Ég held að við verðum að ger-
ast svolítið kleyfhuga! Með því á
ég við að ég tel að við þurfum
annars vegar að byggja upp góða
samvinnu milli okkar og vinnu-
veitenda okkar, þar þarf að brúa
bil og treysta bönd. Á sama tíma
þurfum við að vera mjög vel á
verði, ég vil ekki segja tortryggin
en við verðum að hafa glöggt
auga á því hvort um einhverjar
vanefndir verði að ræða.“
En nú hefur verið komist að
samkomulagi um hvernig greiða
skuli kennurum sem vinna auka-
lega í júní og hugsanlega í haust?
„Já, það náðist samkomulag
um það fyrir þá kennara sem
kjósa að leggja þá vinnu á sig, en
kennarar eru sjálfráðir um það
hvort þeir fara inn í skólana og
taka til við vinnu þar sem frá var
horfið, eða taka þátt í átaki til að
bjarga því sem bjargað verður.
Fyrir þetta verður greitt með yfir-
vinnutaxta og einhverju álagi, en
annars eru þessi tæknilegu atriði
ekki mín deild.
í dag verður félagsfundur í
HÍK þar sem samningurinn verð-
ur kynntur en síðan þarf skriflega
allsherjaratkvæðagreiðslu um
hvort félagar samþykki samning-
inn eða ekki og það tekur tvær til
þrjár vikur að framkvæma hana.
Mér þykir ekki ótrúlegt að
skólastjórar boði til kennara-
fundar í fyrramálið."
phh
Föstudagur 19. maí 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SIÐA 7