Þjóðviljinn - 19.05.1989, Page 14

Þjóðviljinn - 19.05.1989, Page 14
Evrópuhúsið og nýr hugsunarháttur eftir Árna Bergmann Þaö hafa vitaskuld orðið miklar breytingar í Sovétríkj- unum á valdatíð Gorbatsjovs. En það er erfitt að gera sér' grein fyrir því hve djúptækar þæreru og hve langtfram gengnar. í fyrsta lagi vegna þess að breytingarnar gerast hratt. í öðru lagi vegna þess að þær gerast misjafnlega hratt. Glasnost- málfrelsisbylting- in, hefur ruðstfram og gjör- breytt umræðunni og fjölmiðl- unum. Perestrojkan-um- bætur í stjórn efnahagslífs, hefurgengið miklutreglegar. í þriðja lagi er margskonar skoðanamunurbæði sýni- legurog áþreifanlegur. Lengi vel lifðu svonefndir Kremlar- fræðingartiltölulega þægi- legu lífi í þeim skilningi, að þeir gátu gengið út frá því að öll umræða um hin stærri mál (hvort sem væri um sovésk efnahagsmál eða afstöðu til erlendra ríkja) væri miðstýrð og samræmd undirströngu eftirliti. Sovésktímaritsgrein var svo gott sem vitnisburður um „opinberviðhorf". Slíkur samnefnari er ekki til lengur. Tímarit og greinahöfundar eru íhaldssöm eða róttæk í breytingakröfum og allt þar á milli. Þetta er rétt að hafa allt í huga þegar menn skoða sovéskar um- ræður eða pólitískar aðgerðir sem tengjast því, sem Gorbatsjov kallar að reisa Evrópuhúsið. En með því er átt við þá þróun sam- skipta í Evrópu sem brjóti niður múra milli austurs og vesturs, hvort sem væri á sviði hernaðar, viðskipta, menningar eða mann- legra samskipta. Margt er óskýrt í þeirri umræðu og „afstrakt" en öll sýnir hún mjög róttæka breytingu á viðhorfum, ekki að- eins frá þeim sem tíðkuðust á tím- um Stalíns, heldur og frá dögum Khrúsjovs og Brézhnevs. Skoðum það ögn nánar. Eftir heimsstyrjöldina síðari tóku Sovétríki Stalíns að um- breyta Austur-Evrópu eftir sínu höfði. Þá strax og lengst af síðan var í kenningu og framkvæmd lögð sem allra mest áhersla á það, að Austur-Evrópa og Vestur- Evrópa væru tveir heimar gjöró- líkir. Hér sósíalismi, þar kapítal- ismi. Hér friðarvilji, þar styrjald- arhótanir. Hér fundinn lykill að framtíðinni, þar ranglæti og hnignun. Um leið var annaðhvort lokað fyrir samskipti yfir „jám- tjaldið" á mörgum sviðum eða þeim haldið í lágmarki. Austrið átti að vera sjálfu sér nóg og úti- loka skaðleg áhrif frá borgara- legum vestrænum heimi. Við erum spes Málflutningurinn fyrir þessum viðhorfum í Sovétnkjunum sjálf- um var skrýtin blanda af „komm- únískum hroka“ (við sitjum uppi með sannleikann) og rússneskri þjóðernishyggju í bland við sögu- legar hefðir panslavismans. (Átt er við þá nítjándualdarkenningu að slavneskar þjóðir eigi sér nátt- úrlegan forystusauð í Rússlandi.) Það þótti ekki nægja að vísa á Októberbyltinguna til að sýna fram á að leiðir austurs og vesturs færu ekki saman. Það var hamrað mjög á sérstöðu og mikilleik Rússlands, einstæðri menningu þess, sem og öllu sem tengdi í sögunni örlög Rússa við örlög Serba, Búlgara, Tékka og fleiri þjóða (gegn Tyrklandi, Þýska- landi, Áusturríici). Þó að mörg göt kæmu á jámtjaldið - ekki síst á dögum Khrúsjovs - var viss ein- angrunarhyggja ríkjandi allan tímann fram að Gorbatsjov. Þessar tvískiptingarhugmyndir fundu sér vitanlega hliðstæður á Vesturlöndum þar sem blásið var til samstöðu gegn rauðu hættunni - en það er svo önnur saga. En nú, á tímum glasnost og perestrojku, er allt annar tónn uppi. Nú er sem minnst talað um sérstöðu Sovétríkjanna og Rúss- lands og Austur-Evrópu, en sem allra mest um allt það sem er sam- eiginlegt Evrópuþjóðum öllum. Það er talað um sameiginlegar hefðir í menningu og löggjöf, um „eðlilega“ alþjóðlega verkaskipt- ingu í framleiðslu og viðskiptum. • Það er jafnvel gripið tækifæri eins og þúsund ára afmæli kristnitöku í Rússlandi til að leggja áherslu á það, að kristnin hafi alltaf verið eitt af því sem sameinaði Rússa afganginum af Evrópu. Það er talað jafnt um samræmingu á nið- urskurði herafla og samræmingu löggjafar um mannréttindamál í austri og vestri. Enginn heldur því fram lengur að Sovétríkin hafi fundið sér betri stjómskipun eða afkastameira efnahagskerfi en aðrir. Frekar er talað í þeim tón að rússneska byltingin hafi verið merkileg tilraun og sjálfsögð við sögulegar aðstæður. En hún hafi skilað miklu síðri árangri en efni stóðu til (og þá er gripið til margra herfilegra og fáránlegra hluta sem einkenndu ógnarstjórn Stalíns og stöðnunarstjóm Brez- hnevs). Nú þurfi að endurnýja þj óðfélagið - og þá þurfi menn að leita víða fanga og læra af öllum - ekki bara Lenín þegar hann var í raunsæisham og kom á NEP (blönduðu hagkerfi), heldur og Kínverjum, kapítalískri arðsemi og sósíaldemókratískri mála- miðlunarlist. Allur trúðboðs- hamur - einlægur eða með tilgerð - virðist mnninn af Sovét- mönnum. Alþjóðamálum er til dæmis svo lýst í ræðum þeirra Gorbatsjovs og Shevardnadzes utanríkisráðherra, að þau séu ekki vettvangur stéttabaráttu, heldur - vegna þess hvernig nú er ástatt í heiminum - vettvangur sammannlegra neyðarráðstafana gegn atómháska, mengun og eyðingu auðlinda j arðar. Hér á eftir verður reynt að skoða það eftir málaflokkum, hvað gerst hefur á þeim samræmingarferli sem kenndur er við Evrópuhúsið og hvað Sovétmenn helst setja á blað um þau efni. Risaveldin hafa gert með sér samkomulag um meðaldrægar eldflaugar, um gagnkvæmt eftir- lit með heræfingum, Gorbatsjov hefur gert menn hissa og fegna með frumkvæði sínu um einhliða niðurskurð á hefðbundnum víg- búnaði. Þessu fylgir sú kenning (eða sá „nýi hugsunarháttur") að sovésk stefnu í varnarmálum eigi að byggja á „nægilegum vörn- um“. En það þýðir að öryggi eigi að tryggja með miklu minni víg- búnaði en nú - sem um leið þýði að hvorki Varsjárbandalag né Nató hafi einhverja þá yfirburði að þau geti gert árás. Eins og búast má við er það einmitt í umræðum um vígbúnað sem Sovétmenn (rétt eins og Bandaríkjamenn) eru þrautseig- astir við að finna sér sökudólg hinummegin samningaborðsins. Sovéskir herfræðingar saka Bandaríkjamenn oft og iðulega um að þeir bregðist seint við af- vopnunarhugmyndum að austan og reyni að nota hvert tækifæri til að skapa sér yfirburði í herstyrk. En þessir sömu sovésku herfræð- ingar stunda og umtalsverða sjálfsgagnrýni. Til dæmis að taka segir G. Alímúrzajef, hershöfð- ingi og hagfræðingur í grein „um sögu sovéskrar herfræði“ í apríl- hefti tímaritsins Mezhdúnaro- dnaja zhizn: Orð og gjörðir „Allt frá lokum heimsstyrjald- arínnar síðari töldum við það bestu aðferðina til að tryggja eigið öryggi að skapa aðstæður sem mests stríðsháska fyrir þj óðir þeirra ríkja sem við töldum okk- ur andstæð... Einmitt slík stefna gaf stjórnmálaforingjum Vestur- landa ástæðu til að benda á alvar- legt misræmi milli yfirlýsinga hins sovéska ríkis um pólitísk mark- mið sfn og þróunar hernaðar- máttar Sovétríkjanna þótt at- burðir hefðu raunar getað þróast með allt öðrum hætti ef að Bandaríkin og Nató hefðu ekki tekið upp þá stefnu að herða á vígbúnaðarkapphlaupinu m.a. með ögrunum í garð Sovétríkj- anna og annarra sósíalískra ríkja og hótunum um að „velta kom- múnismanum til baka“. Þetta er málflutningur sem nú er algengur orðinn hjá Sovét- mönnum: Vesturveldin eiga mikla sök - en við líka - við héld- um uppi herstyrk sem hlaut að skelfa Vestur-Evrópu og skapa vantrú á okkar friðartal. Alfm- úrzajef bætir því svo við, að þessi stefna hafi leitt bæði til þess að vígbúnaðarbyrðin varð óbærileg á sovésku efnahagslífi og auk þess hafi hinn mikli hernaðar- máttur ekki tfyggt öryggi ríkisins nema síður væri. í öðrum grein- um sama tímarits um alþjóðamál er svo farið í einstök dæmi um það, að Sovétríkin hafi lagt út í kapphlaup við Bandaríkin í víg- búnaði sem er allt í senn feikna- dýrt, háskalegt og gagnslaust. (T.d. grein A. Arbatofs í mars- hefti M.zh. „Hvað eru nægilegar vamir?“ þar sem segir, að loft- varnakerfi Sovétríkjanna gegn kjarnavopnum sé „vitleysa" og harkalega er gagnrýnd viðleitni til að halda úti sovéskum flota sem reynir að hafa í fullu tré við hinn bandaríska á höfum fjarri sovéskum ströndum.) NOTAÐU / \ SKYNSEMINA i 0óf 20°/» BÓNUS SKÚTUVOGI 13 VARIST EFTIRLÍKINGAR 14 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. mai 1989

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.