Þjóðviljinn - 19.05.1989, Page 19

Þjóðviljinn - 19.05.1989, Page 19
Það sem þorps- búar vissu ekki Hún hafði verið eftirlýst fyrir morð í rúma tvo áratugi en þorpsbúa grunaði ekkert í smáþorpinu Elburn í llli- nois í Bandaríkjunum þekkja allir alla og vita allt um alla. Eitt vissu íbúar þorpsins þó ekki en það var að Greta Knickerbocker, 62 ára gömul kona sem hafði búið á gömlu bóndabýli við aðalgötuna í tæpa tvo áratugi, hafði verið eftirlýst fyrir morð í 21 ár. í raun og veru heitir hún ekki Greta heldur Bernice Van Heise og hefur verið eftirlýst fyrir morð á vini sínum sem hét Eugene Douglas. Hann var myrtur í svefnherbergi hennar 31. janúar 1968 í ríkisbubbahverfinu Lake Forest úthverfi Chicago. Ástin hafði verið með í spilinu en hann var giftur og hún fráskilin. Greta eða Bemice var hand- tekin strax eftir morðið en hún sagði lögreglunni að skotið hefði óvart hlaupið úr byssunni þegar hún var að rétta Eugene skot- vopnið. Nokkrum dögum seinna var hún látin laus úr varðhcildi þar sem dómarinn taldi sig ekki hafa næg sönnunargögn til þess að sakfella hana. Tveimur mánuðum seinna ákvað þó kviðdómur að ákæra Bemice fyrir morð en þá hafði jörðin gleypt hana. Greta segist ekki hafa haft hugmynd um að hún væri eftirlýst fyrir morðið og að lögreglan hefði gert dauðaleit að henni. „Ég var ekkert í felum,“ segir hún, en fljótlega eftir að Eugene dó giftist hún manni að nafni Conrad Knickerbocker og bjó með honum í Chicago. Hjóna- bandið stóð þó ekki lengi og flutti hún þá í þorpið Elbum þar sem hún hefur búið síðan. „Ef ég hefði verið að flýja rétt- vísina hefði ég ekki búið í Chic- ago eftir að mér var sleppt,“ segir frú Knickerbocker, sem einfald- lega segist ekki hafa vitað af því að lögreglan var á hælum hennar. Saksóknari efast þó um sann- leiksgildi þess að hún hafi ekki vitað að hún var eftirlýst. Hann bendir á að hún hafi breytt for- nafni sínu og auk þess hafi hún gefið upp rangan fæðingardag, í stað þess að segja sem var að hún væri fædd 30. apríl 1926 hafi hún undanfarin ár skráð 29. apríl 1930 sem fæðingardag sinn. Verjandi hennar, Harold McKenney, segir að hún hafi breytt nafninu þegar hún starfaði sem fyrirsæta vegna þess að hún taldi Greta hljóma betur en Bemice. „Og hvað með það þótt hún hafi breytt fæðingardegin- um. Hvenær varð það refsivert fyrir konu að segja rangt til aldurs?“ „Ég fékk ekki betur séð en að Knickerbocker væri heiðvirð kona,“ sagði veitingamaðurinn Donald Hanson í Elburg sem var jafn undrandi og aðrir þorpsbúar þegar upp komst um kellu. Flest- ir þorpsbúa eru þeirrar skoðunar að þar sem frú Knickerbocker hafi reynst hinn gegnasti þjóðfél- agsþegn í þau tuttugu ár sem hún hefur búið í Elbum sé engin ástæða til að stinga henni í steininn nú. „Þeir héldu hana saklausa fyrir 21 ári og hversvegna þá að leggja hana í einelti nú,“ segir Jeff Sie- bens, trésmiður þorpsins. Þótt þorpsbúar vilji að lögin láti Gretu í friði þá em ættingjar þess myrta ekki á sama máli. „Með lögum skal land byggja,“ segir Joseph Collina, aðstoðar- saksóknari í Lake County. „Það er ekki hægt að loka augunum þegar morðmál er annarsvegar. “ Að sögn lögreglunnar komst upp um frú Knickerbocker þegar dóttir hennar sagði vini sínum frá lífi móður sinnar. Vinurinn hafði samband við FBI og skömmu seinna var hún handtekin. „Vinur dóttur minnar var mjög áhyggjufullur yfir vandamálum foreldra sinna. Til þess að hug- hreysta hann sagði dóttir mín honum frá mér,“ sagði frú Knick- erbocker sem hefur verið látin laus gegn lausnargjaldi. -Sáf/International Herald Tribune Viltu skrifa leikþátt? Menningar- og fræðslusamband alþýðu og Jafnréttisráð hafa ákveðið að láta vinna leikþátt sem verður sýndur á vinnustöðum. Markmið leiksýningarinnar á að vera að vekja áhorfendur til umhugsunar um stöðu kvenna og karla. Leikþátturinn skal sérstaklega lýsa hvort og hvern- ig staða karla hefur breyst til samræmis við breytta stöðu kvenna. Leikþátturinn má taka 25-30 mínútur í flutningi og æskilegt er að leikendur séu ekki fleiri en þrír. Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í þessari samvinnu skili stuttri lýsingu á efni og umfangi verksins til afgreiðslu Þjóðviljans merkt „Leikþáttur" fyrir 6. júní n.k. Jafnréttisráð Menningar-og fræðslusamband alþýðu ÉG BORGA RAFMAGNIÐ ALLTAF Á RÉTTUM TÍMA TVOFALDUR 1. VINNINGUR á laugardag handa þér, ef þú hittir á réttu tölumar. RAFMAGNS- REIKNINGINN HAFA FORGANG! RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR SUÐURLANDSBRAUT 34 SlMI 68 62 22 Láttu þrnar tölur ekki vanta í þetta sinn! Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.