Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Síða 4
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 UV
SR-mjöl byggir 1 Helguvik en taldi nýrri loðnuverksmiðju á Fáskrúðsfírði ofaukið:
Avinningur ef keppi-
nautar leggja upp laupa
- segir rekstrarstjóri SR - stefnt að því að ljúka verksmiðjunni á einu ári
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
SR-mjöl hf. telur í skýrslu sem
merkt er algjört trúnaðarmál að ný
loðnuverksmiðja Fáskrúðsfiröinga
muni leiða til þess að beint íjárhags-
legt tap SR-mjöls verði á bilinu 28-33
milljónir króna árlega.
í skýrslunni, sem Hlynur Jónsson
Arndal, framkvæmdastjóri fjármála-
sviðs, ritar, er talið að hin nýja
loðnuverksmiðja Loðnuvinnslunnar
hf. á Fáskrúðsfirði muni almennt
hafa mjög slæm áhrif á loðnuverk-
smiðjumar um allt land og talið að
jafnvel einhver hinna minni fyrir-
tækja muni leggja upp laupana. Það
vekur nokkra undrun í greininni að
SR-mjöl hf. skuh nú hafa ákveðið að
byggja nýja verksmiöju þrátt fyrir
hina svörtu skýrslu.
Of margar loðnuverksmiðjur
„Við höfum talið að of margar
loðnuverksmiðjur séu á Austfjörð-
um. Þegar loðnan veiðist við Suð-
vesturland að mestu leyti er mjög
óheppilegt að hafa loðnuverksmiöjur
mjög langt í burtu. Þegar loðnan
veiðist við Reykjanes hefur flotinn
ekki afkastagetu til að ná þeim kvóta
sem hefur verið úthlutað. Þannig
hafa skip sem eru hjá SR-mjöli ekki
getað fullnýtt veiðiheimiidir sínar í
loðnu á undanfómum árum, m.a.
vegna þess að SR-mjöl hefur ekki
haft verksmiðju á SV-landi,“ sagði
Þórður Jónsson, rekstrarstjóri SR-
mjöls hf.
Óbreyttar forsendur
Hann segir aö skýrslan sé aðeins
lausleg innanhússúttekt en í þessari
ákvörðun SR-mjöls felist ekki aö
menn telji forsendur vera breyttar
svo sem með upprisu norsk-íslenska
síldarstofnsins.
„Það em ekki breyttar forsendur. Við
erum raunverulega að tryggja stöðu
okkar á SV-hominu og teljum að það
muni verða byggð þama verksmiðja
hvort sem við byggjum hana eða ekki.
í þessum heimi, sem við búum viö, er
út af fyrir sig ávinningur fyrir okkur
ef einhveijir keppinautanna falla í val-
inn,“ segir Þórður.
Á hluthafafundi í vikunni var sam-
þykkt að auka hlutafé félagsins um
162,5 milljónir sem em 25% hluta-
fjár. Hluthafar munu hafa forgang á
því á genginu 1,8 og er söluvirði
hlutafjárins því tæpar 300 milljónir
sem er rúmlega helmingur þess sem
loðnuverksmiðjan mun kosta eða 600
milljónir.
SR-mjöl mun strax hefjast handa
viö að útvega ýmis gögn svo að bygg-
ing geti hafist sem fyrst. Reiknað er
með að ljúka byggingu verksmiðj-
unnar á 12-14 mánuðum og er flatar-
mál hennar um 3.500 fermetrar.
Reiknað er með að afkastageta henn-
ar verði um 700 tonn á sólarhring.
Gert er ráð fyrir aö bygging verk-
smiðjunnar verði að verulegu leyti
boðin út. Þá verður leitað eftir vinnu-
afli í næsta nágrenni til að halda
kostnaði niðri.
Sveitarstjórnarmenn ánægðir
Mikil ánægja ríkir hjá sveitar-
stjórnarmönnum á svæðinu eftir
ákvörðun SR-mjöls. Sú uppbygging
sem hefur átt sér stað í Helguvík að
undanfómu er að skila sér og verk-
smiðjan mun veita nokkmm mönn-
um atvinnu fyrir utan allt annað.
Helguvíkurmjöl hf. ásamt SR-mjöli
hf. byggði í vetur í Helguvík 100 millj-
óna króna loðnuflokkunarstöð til að
flokka loðnu til frystingar og hrogna-
töku. Hluthafar í Helguvíkurmjöli
eru stórir hluthafar í SR-mjöli. Ekki
er gert ráð fyrir að breyting verði á
þeim rekstri en SR-mjöl byggir
loðnuverksmiðjuna eitt. Það er með
loðnuverksmiðjur í Siglufirði, á
Raufarhöfn, Seyðisfirði og Reyðar-
firði. -rt
Noregur:
Útgerðar-
menn mót-
mæla Smugu-
samningum
Samtök útgeröarmanna í Noregi
lýstu í gær yfir fullri andstöðu við
samninga í Smugudeilunni á þeim
grundvelh að íslendingar fái 15 til 20
þúsund tonna kvóta og verði heimil-
að að taka hluta aflans í norskri lög-
sögu'
„Stjórn samtakanna er hneyksluð
vegna upplýsinga sem fram hafa
komið í fjölmiðlum um innihald
væntanlegra samninga um Smug-
una. Stjómin skilur ekki hvernig
hægt er að standa í samningum viö
íslendinga án þess að áður sé gengið
frá hverjir eiga að stýra nýtingu
fiskistofnanna.
Stjómin óttast að meðferð ríkis-
stjómarinnar á máhnu muni grafa
algerlega undan þeim árangri sem
náðist í sáttmála Sameinuðu þjóð-
anna um veiðar á opnu hafi,“ segir
í ályktun frá stjórn samtakanna.
Stjórnin kvartar einnig í ályktun
sinni undan því að hafa ekki veriö
höfð með í ráðum og krefst þess að
öh sph verði lögð á borðið. Þá er
undrun lýst vegna þess að svo virðist
sem sjávarútvegsráðuneytinu virðist
hafa verið haldið utan við samninga-
viðræðumar. -GK
Flestir þekkja þessa íslendinga sem eiga það sameiginlegt að hafa slegið í gegn á erlendri grundu. íslenski söngdúettinn The Boys, Rúnar og Arnar
Halldórssynir, er nú á söngferðalagi um Norég til að kynna nýútkomna plötu sína. Á ferð sinni í Noregi rákust þeir á Björk sem einnig var önnúm kafin
við tónleikahald i Skandinavíu. Þau gáfu sér þó tíma til aö brosa breitt framan í Ijósmyndara.
Samningar um helmingi minni veiöi 1 Barentshafi á næsta ári:
Hagkvæmara verður að ná þeim af la en nú er
- segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofmmar
„Við þurfum að hafa tvennt í huga
í þessu sambandi. í fyrsta lagi verður
hagkvæmara að ná aflanum eftir að
samið hefur verið um kvóta í Bar-
entshafinu. í öðm lagi mun í Kjölfar-
iö á samningum við Norðmenn og
Rússa aukast á ný viðskiptin viö
Rússa með fisk úr þeirra fiskiskip-
um. Þaö er því dáhtið vandmetið
hver áhrifin af aflaskeröingunni
verða ef samið verður um 15 þúsund
tonna kvóta, eins og nú er rætt um.
Ef aht er lagt saman tel ég að áhrifin
þurfi nú ekki að vera mjög mikh og
geti í sjálfu sér rúmast innan þeirra
skekkjumarka sem em um aflaspár
af þessu tagi,“ sagði Þórður Friðjóns-
son, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, í
samtah við DV.
Þjóðhagsspá fyrir næsta ár, sem
fjárlögin em byggð á, gerir ráð fyrir
því að aflinn í Smugunni verði um
30 þúsund lestir eins og útht er fyrir
að hann verði í ár og hann varð í
fyrra. Nú htur út fyrir að samið verði
við Rússa og Norðmenn um 15 þús-
und lesta kvóta.
„Ég tel ekki ástæöu til að draga þá
ályktun að allt fari úr skorðum varð-
andi þjóðhagsspá og fjárlög þótt sam-
ið verði um 15 þúsund lesta kvóta í
Barentshafi á næsta ári,“ sagði Þórð-
ur.
Jón Kristjánsson, formaöur fjár-
laganefndar Alþingis, sagði aö auð-
vitað myndu tekjur minnka við það
að semja um 15 þúsund lesta kvóta
miðað viö hvað veitt hefur veriö í
Smugimni.
„Tekjuhhð fjárlaga er reiknuð upp
á nýtt í desember eins og vanalega
og þar verður þetta tekið með í reikn-
inginn. Hins vegar er þáð svo að í
þjóðhagsspánni er aflaspá varfærin
og afh hefur alltaf reynst heldur
meiri en þar hefur verið gert ráð fyr-
ir. Þannig má reikna með einhverju I
svigrúmi þar í en þetta hefur aö sjálf-
sögðu áhrif th lækkunar á tekjum,"
sagði Jón Kristjánsson. i
Nissan Almera
er búin háþróuðu þjófavarnakerfi