Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 A1 alds Noregskonungs. Móðir Alexanders er frú aralds Noregskonungs, á fjögur systk- kinin lifa öll ósköp hefðbundnu lífi og sá sem einna helst hefur verið í hring- kkuð með ástamálum hans. DV-mynd VG auðmundsdóttur, sambýliskonu Aiex- insessa og Johan Martin Ferner kaup- rformaður í verslunarsamstæðu fjöl- ona hans hefur komið fram fyrir hönd 5 börn sín upp við aga og festu enda DV-mynd VG skránni þannig að elsta barn kon- ungshjónanna hverju sinni erfir krúnuna án tillits til kyns. Það verð- ur því væntanlega Marta Lovísa prinsessa, 24 ára, sem tekur við krún- unni þegar þar að kemur. Hún er nú við sjúkraþjálfaranám í Ósló en litli bróðir hennar, 21 árs, er í norska hernum. Nóg að gera fyrir Astrid Astrid prinsessa segir I viðtali við norska dagblaðið Aftenposten í til- efni af 60 ára afmæli sínu árið 1992 að hún sinni skyldustörfum fyrir norsku krúnuna og hafi nóg að gera við að koma fram við ýmis opinber tækifæri, auk þess sem hún hefur sinnt barnabörnunum litlu, börnum elstu dótturinnar, Catherine. Astrid hefur alltaf verið heimavinnandi hús- móðir og hefur Alexander því vanist að hafa mömmu heima að leita til. Að sögn Vibekke Lie ólust Femer- börnin fimm upp í einbýlishúsi í mjög góðu hverfi í Ósló en foreldr- arnir, Astrid prinsessa og Johan Martin, fengu húsið í brúðargjöf frá Ólafi Noregskonungi. Nú þegar börn- in eru að mestu farin að heiman búa hjónin í stórri íbúð á þriðju og fjórðu hæð í finu fjölbýlishúsi nærri mið- bænum í vesturhluta Óslóar. Femerfjölskyldan telst ekki til rík- ustu fjölskyldna Noregs en er þó greinilega vel efnum búin, býr vel og hefur að sjálfsögðu aldrei skort neitt. Með klassíska fataverslun Astrid prinsessa hefur haft sér- stakan áhuga á lesblindu enda les- blinda í fjölskyldunni. Hún hefur ver- ið verndari samtaka um lesblindu, stutt góðgerðarfélög og sinnt öðrum samtökum af miklum krafti. Hún hef- ur létt undir með Haraldi konungi í rikum mæli og komið fram fyrir hönd ríkisins, að hans ósk, en Har- aldur tók við krúnunni eftir andlát Ólafs Noregskonungs veturinn 1991. Faðir Alexanders, Johan Martin, er af þekktum borgaralegum kaup- sýsluættum og hefur hann verið stjórnarformaður verslunarsam- stæðu fjölskyldunnar i miðborg Ósló- ar, eins og fram kemur í grein sem birtist í Aftenposten árið 1987. Versl- un Fernerfjölskyldunnar er mjög vin- sæl. Hún þykir mjög vönduð og dýr og hefur klassískan fatnað á dömur og herra á boðstólum. Skíði og siglingar Alexander Ferner er dæmigerður Norðmaður, ljóshærður, fremur há- vaxinn, grannur og vel byggður ung- ur maður, mikill áhugamaður um íþróttir. Hann þykir góður á skíðum, sérstaklega í svigi, og stundar skíðin af kappi yfir vetrarmánuðina en segl- bátasiglingar taka hug hans allan á sumrin. Hann þarf engum skyldum að sinna fyrir norska ríkið þó að hann sé systursonur Noregskonungs og lifir því ósköp hversdagslegu lífi, að sögn þeirra sem til þekkja. Hann sækir sína vinnu, á stóran vinahóp og hefur tiltölulega lítið samband við sjálfa konungsfjölskylduna enda börn Noregskonungs mun yngri en hann. Alexander hefur tekist nokkuð vel að halda sér fyrir utan kastljós nor- skra fjöl-miðla en hefur þó verið það systkinanna sem helst hefur verið í sviðsljósinu, til að mynda í ástamál- unum. Hann er alinn upp við festu og aga og þykir hafa náð þokkalegum ár- angri í námi og starfi. Hann er dug- andi sölumaður í góðri stöðu hjá Bergheim Autosalg. Systk hans hafa hefðbundna menntun á sama hátt og hann sjálfur, syst- umai' hafa unnið i verslun fjöl- skyldunnar í hjarta Óslóar en minna hefur far- ið fyrir þeim op- inberlega. Norskir fjöl- miðlar hafa sagt stuttlega frá sambandi Alex- anders og Mar- grétar og erf- ingjanum vænt- anlega, sérstak- lega tímarit á borð við Se og Hör og Norsk Ukeblad. í ný- legu eintaki af vikublaðinu Norsk Ukeblad birtist viðtal við Alexander þar sem hann staðfestir að hann eigi von á sínu fyrsta barni með sam- býliskonu sinni Margréti Guðmundsdóttir, þau hafi fest kaup á húsi í traustu og barn- vænu hverfi í Bærum, flytji inn í það fyrir jól og bíði spennt eftir barninu sem kemur í heiminn í lok mars ef allt gengur að óskum. Ekki er á dag- skránni að gifta sig þó erfingi komi í heiminn. Skyldleiki litla íslend- ingsins væntanlega í Noregi við aðrar konungsættir á Norðurlöndum og víðar um Evr- ópu er rakinn i úttekt DV á næstu síðu. Sjá einnig stutt sögu- ágrip um Noreg og norsku krún- una. -GHS/pp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.