Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Blaðsíða 43
I>V LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995
51
Karl Ágúst ípsen, 16 ára kvennaskólanemi, tók viðtal við ungt fólk sem selur blíðu sina. í viðtalinu eru ófagrar
lýsingar á aðstæðum fólksins og hvetur Karl Ágúst til þess að Reykvikingar og íslendingar allir horfist í augu við
að vændi sé stundað hér á landi. Hann vill að lögregla og borgarbúar allir taki við sér og fari að vinna gegn vændi
hér á landi. DV-mynd GS
16 ára strákur sker upp herör gegn vændi og hvetur til aðgerða:
Gamlir kallar í leit
að góðri skemmtun
-segir 14ára vændiskona í viðtali við Karl Ágúst ípsen kvennaskólanema
„Ég geri þetta ekki fyrir dóp eöa
bús. Ég geri þetta fyrir peningana.
Mamma og pabbi eru alkar og eiga
enga helvítis seðla svo ég verö bara
aö sjá fyrir heimilinu." Þannig hefst
viðtal við 14 ára gamla stúlku sem
stundar vændi í Reykjavík sem birt-
ist í nýjasta hefti af „húmaníska"
hverflsblaöinu Granna en þaö er gef-
ið út í vesturbænum. Og áfram segir:
„Ég læt þessum gömlu köllum líöa
vel, þeir gleyma kellingunni og
krökkunum og líöur vel... Þetta eru
yfirleitt engir perrar. Bara gamlir
kallar í leit að góðri skemmtun."
Karl Ágúst ípsen er 16 ára nemandi
í Kvennaskólanum í Reykjavík.
Hann er mikill áhugamaður um
fjölmiðlun hefur skrifað fjöida greina
í blöð og tímarit og gefið út skóla-
blöð. Hann vakti athygli þegar hann
skrifaöi grein um vændi í Reykjavík
í „húmaníska" hverfisblaðið Granna
sem gefið er út í vesturbænum í
framhaldi af viötölum við þrjá unga
einstaklinga, pilta og stúlkur, sem
stunda vændi hér á landi. Viðtöhn
tók hann eina kvöldstund fyrir
stuttu.
Alltof lítil
umfjöllun
„Það er búið að skrifa svo margar
greinar um alla aðra hluti en það
hefur lítið sem ekkert verið fjallað
um vændi. Gömul kærasta mín átti
systur sem stundaði vændi. Ég tók
viðtal við hana og hún benti mér á
aðra krakka að tala við. Ég tók viðtöl-
in á hálftíma hvert og var svo nokkra
daga að skrifa þetta og fínpússa text-
ann,“ segir Karl Ágúst. í grein með
viðtölunum segist hann hafa viljað
vekja áhuga á vændi hér á landi því
að Islendingar hafi oft státað sig af
því að vændi væri ekki til hér.
„Vonandi hefur þessi grein ekki
aðeins afsannað það heldur komið
fólki í skilning um hversu útbreitt
það er. Það er einlæg von mín að
lögreglan fari að taka sér tak og reyni
að drepa niður vændi svo Reykjavík
verði ekki að miðstöð vændis á ís-
landi,“ segir hann. Reykvíkingar
verði að láta til sín taka. Ekki þýði
að horfa í hina áttina. og láta sem
hlutirnir séu ekki til. Karl Ágúst íps-
en, 16 ára kvennaskólanemi, hvetur
lesendur sína og alla borgarbúa til
að sameinast gegn vændi.
Lýsingar viðmælenda Karls Ágústs
eru ófagrar. Eins og áður sagði segist
14 ára stúlka selja blíðu sína til gam-
alla karla til að geta séð heimih sínu
farborða. 16 ára strákur segist hafa
selt körlum hkama sinn í tvö ár til
að fjármagna eiturlyfjaneyslu sína
og segir í viðtahnu að ekki fari fram
hjá neinum viðstöddum hversu hátt
uppi hann sé. Þriðji viðmælandinn
er tvítug stúlka sem sérhæfir sig í
pörum og hefúr verið lögð inn á spít-
ala eftir aö hafa lent illa í viðskipta-
vinum sínum.
Alhr viðmælendur Karls Ágústs
segjast nota verjur við mök og telja
sig óhulta fyrir HlV-veirunni. Tví-
tuga stúlkan segist hafa átt við-
skiptavin í lögreglunni.
Vændisfólkið kom ekki fram undir
nafni._______________________-GHS
FRÁBÆRT VERÐ Á
Creda þurrkurum
5 kg. AUTODRY
Tvö hitastig. Veltir tromlunni í aðra óttina.
Hæg kæling síðustu 10 mín.
Barkinn fylgir með.
3 kg. COMPACT
Tvö hitastig. Veltir tromlunni í bóðar óttir.
Hæg kæling síðustu 10 mín.
Borkinn fylgir með. Rakaskynjari.
Verið velkominn í verslun okkar - Opið lougordoga. 10-16.
RflFTejflUERZLUN ÍSLflNDS If
Skútuvoqi 1 b, 104 Reykjavík. Sími 568 8660
J^pennanTu éók - 7)álílíð ÝÓntantísk
- e.n untfitant aUt Létt óg kióHeg
14 mismunandi gerðir af eldhúsvöskum. Einfaldir,
tvöfaldir eða þrefaldir - með eða
án borðs. / *
OPIÐ: MÁNUD. - FÖSTUD. »-18. LAUGARDAG10-16.
tryggtng
SÍÐUMÚLA 34 (Fellsmúlamegin)
SÍMi 588 7332