Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Blaðsíða 31
DV LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 31 Hinn dæmigerði vers I unarskó lanemi samkvæmt skoðanakönnun meðal nemenda: Skemmtanaglaður sjálfstæðis- maður sem vill tekjujöfnuð - rætt við nokkra fyrrum verslunarskólanema um tíðarandann á þeirra sokkabandsárum Þórður B. Sigurðsson, núverandi forstöðumaður Reiknistofu bankanna, sem bókarinn (Þorsteinn Bjarnason) á skemmtun hjá verslunarskólanemum á sinum tíma. Liklega er um skemmtiatriði á nemendamóti Verslunarskól- ans að ræða. Sjötti áratugurinn: Skólinn gerði mér vel Ef marka má skoðanakönnun sem gerð var meðal verslunarskólanema þá er hinn dæmigerði verslunar- skólanemi stuðningsmaður Sjálf- stæðisflokksins, hlynntur fjárstuðn- ingi ríkisins við bændur og fylgjandi því að ríkið reyni að jafna tekjur fólks. Hann fær vasapeninga að heiman, lætur foreldra sína borga skólagjöldin, fer í ljós einu sinni í mánuði, er sáttur við það samband sem hann er í hverju sinni, hefur fyrstu kynmökin 15 tii 16 ára, reykir ekki en drekkur einu sinni til tvisvar sinnum í mánuði, hneigist til vinnu með námi þegar líður á skólagöng- una og dreymir um aö fara til Banda- ríkjanna. Skoðanakönnunin var gerð snemma á þessu ári og gefur hún, að sögn sérfræðinga, glögga mynd af námsmönnum ef haft er í huga að níu af hveijum tíu svöruðu þeim spurningum sem lagðar voru fyrir þá. Margt forvitnilegt kemur fram í könnuninni. Meðal annars að 40 pró- sent þeirra sem fá undir fimm í ein- kunn á jólaprófi hafa íhugað að fremja sjálfsmorð og tæp 28 prósent nemenda hafa yfirleitt íhugað að fremja sjálfsmorð. 225 nemendur af um 900 dagskólanemendum eiga bíl, tæp 80 prósent fá stundum vasapen- ing eða reglulega, um helmingur nemenda fer einu sinni til tvisvar í mánuði í bíó og minnihluti þeirra er andvígur ESB-aðild. Loks má geta þess að þegar könnunin var fram- kvæmd voru vinsælustu íslensku hljómsveitirnar meðal verslunar- skólanema: Spoon, Unun og SSSól. Á þessu ári eru 90 ár frá því að Verslunarskóli íslands var stofnað- ur. Fyrstu áratugina var einungis hægt að ljúka verslunarprófi þaðan og það var ekki fyrr en árið 1945 sem fyrstu stúdentarnir brautskráðust frá skólanum. í tilefni afmælisins og þeirra vitneskju sem liggur fyrir um hinn dæmigerða verslunarskóla- nema tíunda áratugarins leitaði DV til nokkurra valinkunnra einstakl- inga, sem stundað hafa nám við skól- ann allt frá fimmta áratugnum til þess áttunda, og bað þá um að lýsa dæmigerðum verslunarskólanema síns árgangs. Fimmti áratugurinn: Undantekning að nemendur ynnu með skóla —segir Ólafur Skúlason Ólafur Skúla- son, biskup ís- lands, segir það hafa einkennt sinn tíma í skó- lanum að í hon- um hafi verið fólk á ólíkum aldriþvímargir hafi komið utan af landi þar sem víða var enginn framhaldsskóli eftir barnaskóla. „Annað sem var áberandi var að aðeins litill hluti nemenda ætlaði að ljúka stúdentsprófi frá skólanum. Hvað stjórnmálaskoðanir varðar þá taldi Heimdallur sig eiga verslunar- skólanema eins og þeir lögðu sig. Það gengu listar um bekkina þar sem nemendur voru hvattir til inngöngu í félagið." Ólafur segir pólitískar umræðu ekki hafa verið áberandi í skólanum, hins vegar hafi komið mikil hreyfing á fólk þegar ólætin urðu fyrir utan alþingishúsið 30. mars 1949 vegna undirritunar vamarsamningsins. Hann segir það hafa heyrt til und- antekninga að nemendur hafi unnið með skólanum, nema í jólafríum. Skemmtanalífið fólst í dansæfingum sem hafi verið vel sóttar en helstu skemmtistaðir hafi verið Tjarnarbúð og Sjálfstæðishúsið. Þegar Vilhjálm- ur Þ. Gíslason skólastjóri ' hafi svo komið til að líta á dansæfingarnar hafi aUir borið virðingu fyrir honum. - segir Guðlaugur Bergmann „Ég var nú eini kommún- istinn í skólan- um á þessum tímaogvarallt- af uppi í pontu að rífast við þessa pabba- stráka, sem ég kallaði, sem létu borga allt fyrir sig. Það má segja að ég hafi verið hálf- gerður ljóti andarunginn á þessum tíma í skólanum og stungið nokkuð í stúf. Margt af því sem einkenndi okkur sem vorum í Verslunarskólan- um á þessum' tíma hefur ekkert breyst miðað við hinn dæmigerða verslunarskólanema nú. Þeir studdu allir Sjálfstæðisflokkinn meira og minna. Ég man eftir einum fram- sóknarmanni og ég held að hann hafi verið útskúfaðri en ég. Ég held að kynmakaaldurinn, 15 til 16 ára nú, hafi verið sá sami og þá og ég er ekki frá því að það hafi verið draum- ur margra að komast til Bandaríkj- anna,“ segir Guðlaugur Bergmann. Hann segir skemmtanalífið hafa verið nokkuð gott og helstu veitinga- staðimir hafi verið Þórskaffi og Breiðfirðingabúð. Helsta hljómsveit- in var að sjálfsögðu KK. „Verslunarskólinn gerði mér vel og þessir krakkar, sem voru með mér, eru allir hiö besta fólk og hafa náð miklum árangri í sínu lífi.“ Sjöundi áratugurinn: í jakkafötum, vatnsgreiddir og með bindi —segir Asgeir Hannes í mínum ár- gangi voru allir fæddir fasistar og nasistar, nema Þorsteinn Pálsson, sem er fæddur á Sel- fossi. Við vor- um allir í jakkafótum, vatnsgreiddir og með bindi. Viö vorum svo heppnir að vakna til lífsins í rokkinu og uxum úr grasi með bítlunum. Viö vorum í þeirri stöðu sem allir öfunda okkur af. Viö höfðum kynmök út um allt og jafnvel í fundarherberginu. Þetta var áður en Bob Dylan hafði eyðilagt gleðina í tónlistinni. Við studdum Bandaríkin ákaft í Víetnamstríðinu og hræktum á hasshausana í menntaskólunum ef við sáum þá. Við vorum að skemmta okkur á daginn og veitti ekki af því að vera vakandi á nóttunni," segir Ásgeir Hannes Ei- ríksson um sinn árgang. Hann segir dansæfingar enn hafa verið við lýði þegar hann var við nám í Verslunarskólanum en böllin hafi verið á betri vertshúsum bæjarins. eins og Sjálfstæðishúsinu. Aðspurð- ur um vinsælustu hljómsveitirnar segist Ásgeir aldrei muna eftir hljóm- sveitum, hins vegar muni hann eftir nokkrum barþjónum og búið. Áttundi áratugurinn: Pernod meðal tískudrykkja —segir Jafet Ólafsson „Menn gengu nokkuð fínir til fara á þessum tíma - strák- arnir margir í jakka með bindi og stelp- urnar í pilsum. Þetta var glað- vær hópur sem tók lífið mátulega alvarlega og skemmtanalífið skipaði stóran sess sem hluti af skólagöng- unni. Gamla Sigtún var aðaldans- staðurinn þar sem skólaböllin voru haldin en Glaumbær skipaði samt stóran sess þótt oft væri erfitt að komast þar inn og röðin væri löng. Þá var gott aö þekkja Geira dyra- vörð,“ segir Jafet Ólafsson sem lauk stúdentsprófi frá VÍ 1973. Hann segir tískudrykkina hafa ver- ið Pernod, Blue nun og Baccardi en menn byrjuðu að drekka seinna á þessum tíma en nú er, voru kannski að bragða vín í fyrsta skipti þegar !þeir byrjuöu í skólanum. Helstu 1 hljómsveitimar voru Náttúra, Flow- ers, Hljómar og Trúbrot. í. -PP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.