Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Page 5
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995
5
Afgreiðsla Bændasamtaka íslands á búvörusamningnum:
Samtökin hafa brotið
allar brýr að baki sér
- verða að gæta hagsmuna allra bænda, segir Kristinn Gylíi Jónsson, formaður Svínaræktarfélags íslands
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Okkar viðbrögö við afgreiðslu
bændasamtakanna á búvörusamn-
ingnum eru þau að okkur finnst ansi
vel í lagt að tryggja hagsmuni ákveð-
inna kjötframleiðenda og það við-
heldur þeim aðstöðumun sem ríkt
hefur milli kjötframleiðenda. Þessi
aðstöðumunur kemur fram í því að
sauðfjárræktin nýtur mikilla ríkis-
styrkja, m.a. í formi beingreiðslna til
bænda sem er um helmingur af af-
urðaverði og einnig er um ýmiss
konar stuðning aö ræða í formi
styrkja til sölumála og vöruþróunar.
Beingreiðslur hafa ekki tíðkast í öðr-
um kjötgreinum, s.s. alifugla- og
svínarækt, hvað þá stuðningur við
markaðssetningu sem sauðíjár-
bændur hafa frá ríkinu. Ekki að
þessar greinar séu að biðja um stuðn-
ing frá ríkinu en þessi atriði raska
samkeppnisstöðu framleiðenda á
markaðnum," segir Kristinn Gylfi
Jónsson, formaður Svínaræktarfé-
lags íslands, um afgreiðslu Bænda-
samtakanna á búvörusamningnum.
Það vakti athygli á aukaþingi
bændasamtakanna að Hörður Harð-
arson, sem var fulltrúi svínabænda
þar, lýsti því yfir að ef málið yrði
keyrt í gegn og afgreitt með þeim
hætti sem gert var myndu svína-
bændur taka það tíi vandlegrar skoð-
unar hvort þeirra hagsmunum væri
ekki betur borgið utan heildarsam-
taka bænda.
Unnið að hagsmunum allra
„Við hljótum að gera þá kröfu til
stjórnar heildarsamtaka bænda að
innan samtakanna sé unnið að hags-
munum allra bænda en ekki bara
hluta þeirra. Svínabændur eru
óánægðir með hvernig gengið var
fram í þessu máli, sérstaklega varð-
andi þann aukastuðning sem sauð-
Sturtuklefar
^ \
Heilir sturtuklefar með botni,
blöndunartæki og sturtubúnaði,
horni fram eða heilli hurð og
vatnslás.
Verð frá kr. 24.800 stgr.
Sturtuhorn, 70x90 cm
Verð frá kr. 7.350 stgr.
Sturtuhurðir, 70x90 cm.
Verð kr. 7.900 stgr.
Baðkarshlífar
Verð frá kr. 5.85Ó stgr.
Stakir sturtubotnar,
70x70 og 80x80 cm
Verð frá kr. 2.950 stgr.
- tryggi
Faxafeni 9, s. 887332
Opið: mánud.-föstud. kl. 9-18
laugard. kl. 10-16
fjárbændur fá frá ríkinu við að losa
um þær kjötbirgðir sem tíl eru og
geta haft veruleg áhrif á kjötmarkað-
inn. Við gerð þessa búvörusamnings
var eingöngu litíð þröngt á hagsmuni
sauðfjárræktar án þess aö horft væri
til þróunar í kjötneyslu hér á landi
og hagsmuna annarra kjötframleið-
enda.
Samtök allra bænda
Sú spurning hlýtur því að vakna
við þessa afgreiðslu á hvaða vett-
vangi væri best fyrir svínabændur
að vinna að framgangi sinna hags-
munamála. Við áttum t.d. á sínum
tíma mjög gott samstarf við aðila
vinnumarkaðarins og neytendasam-
tökin um framgöngu ýmissa hags-
munamála sem miðuðu að því að'
auka hagræðingu og lækka fram-
leiðslukostnað búvara. Mér sýnist
nú að bændasamtökin hafi brotíð
allar brýr aö baki sér hvað varðar
þetta samstarf og er það miður. Á
næstunni hlýtur að reyna á hvort
svínabændur fá sama hljómgrunn
innan heildarsamtaka bænda með
hagsmunamál sín. Við sjáum okkur
engan hag í því að vera innan heild-
arsamtaka bænda ef við fáum ekki
stuðning við okkar mál. Bændasam-
tökin eru heildarsamtök allra bænda
í landinu og verða að gæta hagsmuna
allra félagsmanna og hugsa um
heildarhagsmuni ef þau eiga að vera
trúveröug í hlutverki sínu,“ segir
Kristinn Gylfi.
VIPER
þjófavarnarkerfi
t U t II 1 n í:;
rnNflllw
(Jrrrrrrosalega qoH tilboð!
19.900,
17.900,;
15.900,-
Samsung M-9245 26 lilra örbylgjuofn er 1000 W, 4 forstillingar
fyrir þíðingu, 6 fyrir eldun (fjórar sem hœgt er að sfilla innl og
2 fyrir upphitun. Auk þess finstilling, snúningsdiskur, Ijós, stafrœnn
timarofi, barnalœsing o.m.fl.
Hœð: 317 mm Breidd: 517 mm Dýpt: 375 mm.
Sérlega öfiugur og afkaslamikill örbylgjuofn!
Samsung M-624517litra örbylgjuofn er 1000 W, 3 forstillingar,
snúningsdiskur, Ijós, stafrœnn tímarofi, barnalœsing o.m.fl.
Hœð: 275 mm Breidd: 489 mm Dýpt 353 mm.
Nettur og góður örbylgjuofn sem hentar hvar sem er!
Samsung M-623517litra örbylgjuofn er 800 W, snúningsdiskur,
Ijós, kluldcurofi, 9 styrkstillingar o.m.fl.
Hœð: 275 mm Breidd: 489 mm Dýpt: 353 mm.
Hentar hvort sem er ó heimilinu eða ó vinnustaðnum!
Samsung SV-140 X fjögurra hausa Nicam Stereo myndbandstœki með aðgerðastýringum Saba VR-5045 fjögurra hausa myndbandsfœki með
Saba VR-5025 tveggja hausa myndbands-tœki með
ó skjó sjónvarps, sjólfvirkri stafrœnni sporun, fjarstýringu, upptökuminni, fjarstýringu, aðgerðastýringum ó skjó sjónvarps, sjólfvirkri slafrœnni aðgerðastýringum ó skjó sjónvarps, sjólfvirkri stafrœnni
i„n.wxii osrnrt.tenni,,m tnnnit,„irciXnwr,rncm„nrtr,„Ai „mi sporun,LongPlay,upptðkuminni,þcegilegrifjarslýringu, sporun,upptökuminni, upptökuminni,þcegilegrifjarstýringu.
Jog-hjóli, 2 Scart-tengjum, tengi fyrir sjónvarpsmyndavél o.m.fl.
2 Scart-tengjum o.m.fl
2 Scart-tengjum o.m.fl.
Kviktnyndin, Konuripr Ijónanna fylgir ókeypis með öllum myndbandsfækjum í dag, laugardag!
.590,,.
TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA
Kongur Ijónanna (The Lion Kingl
meðíslenskutali
RAÐGREIÐSLUR
Igl
TIL ALLT ÁÐ 24 MÁNAÐÁ
Grœnt númer:
800 6886
(Kostar innanbœjarsímtal og
vörumar eru sendar somdœgurs)
tnsasvegi 11
Sími: 5 886 886 Fox: 5 886 888