Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Síða 26
26 anglingaspjall
/
Eg er leikhúsro
- segir Stella Guðný Kristjánsdóttir
Senn liður að vetri og kuldaboli er rétt farinn að
narta í táslumar okkar. Þó er enn nokkuð bjart en brátt
fer skammdegið að segja til sín. Þá þyngjast ýmsir í
skapi, kvarta og kveina, emja og veina og allt er þetta
myrkrinu að kenna. En það er óþarfi að örvænta þótt
hann blási, frysti og rökkvi - myrkrið getur verið hlýtt
og rómantiskt. Bara það að haustið er að stíga sín fyrstu
spor er gleðiefni fyrir mig þvi ég er nefnilega leikhús-
rotta. Að vísu frekar vannærð rotta að mínu mati því
leikhúsin eru klassaholur og sýningarnar á klassaverði.
Áhugi minn á leikhúsi og leiklist almennt kviknaði á
unga aldri í barnaskóla. í barna- og grunnskólanum
(Hólabrekkuskóla) voru haldin leik-
listarnámskeið árlega og í níunda
bekk, sem nú er tíundi bekkur, var
leiklist valfag og að sjálfsögðu var ég
fyrst á staðinn. Þegar komið var svo
á framhaldsbrautina rann ég á leik-
lyktina um leið og ég kynntist und-
irbúningsvinnu eins og: sviðsvinnu,
leikskrárgerð og svo var ég aðstoð-
arleikstjóri einu sinni. Tvö siðastlið-
in ár var ég í stjórn Aristófanesar,
sem er leiklistarfélagið hér í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti (FB),
einnig lék ég í „Ys og þys út af
engu“ (Much a Do about Nothing).
í sumar vann ég í götuleikhúsinu
þar sem ég lærði mikið af því að þar
unnum við með fjórum mismun-
andi leikstjórum og góðu hönnunar-
fólki. Nú síðast tók ég þátt í rokkóp-
erunni Lindindin sem var sýnd i ís-
lensku óperunni og það var dýrmæt
reynsla. Þar kynntist ég mörgu
góðu fólki. Hópurinn varð mjög
samrýmdur og við hittumst stund-
um enn í dag.
Núna er ég með leiklistarnám-
skeiðið í FB og uni mér vel með
krökkunum. Seinna kemur svo Valur leikari og stjórn-
ar leikritinu sem þau ætla að setja upp í vetur.
Þó að leikhúsáhuginn hafi kviknað snemma þá leit ég
alltaf á leiklistina sem áhugamál en tók það ekkert al-
Eitt af því besta sem ég geri er að fara á leiksýningu: lyktin, Ijósin og svið-
ið - það er einfaldlega það sem heillar," segir Stella Guðný Kristjánsdóttir,
21 árs nemandi f Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. DV-mynd BG
varlega fyrr en á síðasta ári þegar það rann upp fyrir
mér hvar mér líður best. Eitt af því besta sem ég geri er
að fara á leiksýningu: lyktin, ljósin og sviðið - það er
einfaldlega það sem heillar.
n hliðin
Víl hitta Hitler með byssu og hlaupaskó
- segir Guðlaug Jónsdóttir, besta knattspyrnukonan á Islandi
:
I
:
Guölaug Jónsdóttir knatt-
spyrnukona sýnir á sér hina hlið-
ina i dag. Guðlaug spilaði knatt-
spymu með KR í sumar en hún
var einmitt valin besta knatt-
spyrnukonan á árinu í lokahófi
knattspyrnumanna um seinustu
helgi.
Guðlaug hélt af landi brott sl.
mánudag en hún er nú í háskóla-
námi í smábæ nálægt Atlanta,
Vemon. Þar er hún ásamd Olgu
Færseth en hún er einmitt í sama
háskóla.
Guðlaug var að koma úr fyrstu
tímunum þegar DV náði tali af
henni og segir hún fyrstu kynnin
benda til þess að hún komi til með
að kunna ágætlega við
sig.
Fullt nafn:
Guðlaug
\ Jónsdóttir.
\
Fæöingardagur og ár: 22. septem-
ber 1971.
Maki: Enginn.
Böm: Engin.
Bifreið: Engin.
Starf: Háskólanemi.
Laun: Ég er á lágum námsstyrk.
Áhugamál: Knattspyrna, kvik-
myndir og öll útivera.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Fimm þúsund í einhverju
happdrætti þegar ég var lítil.
Hvað fmnst þér skemmtilegast
að gera? Spila fótbolta og sigra.
Hvað fmnst þér leiðinlegast að
gera? Spila fótbolta og tapa. Uppá-
haldsmatur: Soðinn íslenskur fisk-
ur og nýjar soðnar kartöflur.
Uppáhaldsdrykkur: Kók.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Ég get
ekki sagt annað en Olga
Færseth.
Uppáhaldstímarit:
íþróttablaðið.
Hver er fallegasti
karl sem þú hefur
séð? Johnnie
Depp.
Guðlaug Jónsdóttir
er nú við nám í
Bandaríkjunum.
DV-mynd GS
Ertu hlynnt eða andvíg ríkis-
stjórninni? Hlutlaus.
Hvaða persónu langar þig mest
að hitta? Adolf Hitler og þá langar
mig að vera með bygsu og góða
hlaupaskó.
Uppáhaldsleikarí: Jack Nichol-
son.
Uppáhaldsleikkona: Meryl
Streep.
Uppáhaldssöngvari: Páll Óskar
Hjálmtýsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Grettir.
Uppáhaldssjónvarpsefni: íþrótt-
ir.
Uppáhaldsveitingahús: Kaffi
Reykjavík.
Hvaða bók langar þig mest
að lesa? Lesið í snjóinn eft
ir Peter Hoeg.
Hver útvarpsrásanna
finnst þér best? Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmað-
ur: Enginn.
Hvort horfir þú meira á
Sjónvarpið eða Stöð 2?
Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmað-
ur: Enginn.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Kaffi Reykjavík.
Uppáhaldsfélag í Iþróttum:
KR.
Stefnir þú að einhverju
sérstöku í framtiðinni?
Mennta mig meira og
lifa góðu og heilbrigðu
lífl. Jafnframt ætla
ég að vinna ís-
landsmeistara-
titilinn í knatt-
spyrnu á næsta
ári.
Hvað gerðir þú í
sumarfríinu?
Bjó mig undir
Ameríkuferðina.
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995
Kynbomban Pamela Anderson á krossgötum:
r
I kvikmyndimar eða
áfram í Strandvörðum?
Leikkonan Pamela Anderson, 29
ára, stendur á krossgötum í lífi
sínu. Pamela hefur að undanförnu
leikið leðurklædda kvenkyns ofur-
hetju, Barb Wire, í samnefndri kvik-
mynd. Kvenhetjan ekur um á mót-
orhjóli og kallar töffaralega til
strákanna: Kallið mig ekki vinu.
Vegna myndarinnar getur komið til
þess að Pamela verði að velja milli
kvikmyndaferilsins eða áframhald-
andi þátttöku í sjónvarpsþáttunum
Strandvörðum sem nýlega hófu
göngu sína aftur í islensku sjón-
varpi.
Pamela hefur lent í ýmsu í lífinu.
Hún ólst upp í smábænum Comex í
bresku Columbiu, 1.000 kílómetra
fyrir norðan Kaliforníu. Faðir henn-
ar rak lítið fyrirtæki og mamma
hennar starfaði sem þjónn á veit-
ingahúsi. Pamela lifði ósköp venju-
legu lífi, var venjuleg útlits sem
barn og unglingur og bar ekki með
sér að verða sú kynbomba sem hún
síðar varð. Vinir hennar segja þó að
hún hafi alltaf stefnt að því að kom-
ast burt úr bænum og verða eitt-
hvað.
Oft í Playboy
Pamela sat fimm sinnum fyrir
Playboy og lék í nokkrum minni
háttar kvikmyndum áður en hún
fékk hlutverk í Strandvörðum fyrir
tveimur árum. Henni hefur gengið
vel í sjónvarpsþáttunum ogátt með-
al annars í ástar-
ævintýri með
dökkhærða súkku-
laðisæta strand-
verðinum David
Charvet áður en
hún giftist banda-
ríska rokkaranum
Tommy Lee í febr-
úar.
Pamela hefur
margoft lýst
því yfir að hún
vilji ekki enda-
laust leika
„heimsku
blondínuna" og
vel getur verið
að henni verði
að ósk sinni.
Spurningin er
hvort Will
Hasselhoff,
framleiðandi
þáttanna og að-
alhetjan, býður
henni launa-
hækkun til að
halda henni í
Ást hjá strandvörðum.
þáttunum eða hvort Pamela treystir
því að myndin hennar slái í gegn og
hellir sér út í alvöru-
leiklistina af fullum
krafti.
Barb Wire verður frum-
sýnd í bandarískum
kvikmyndahúsum um
jólin og breskum hús-
um eftir áramót en ekki
fylgir sögunni hvenær
myndin kemur hingað
til lands.
Vinir Pamelu segja að hún hafi verið ósköp venjulegur
unglingur.
Pamela Anderson í Strandvörðum.
Chris O'Donnell:
Mútað til að leika í mynd
Leikarinn Chris O’Donnell, sem
leikur í Batman Forever og margir
muna eftir úr kvikmyndinni Scent
of a Woman með A1 Pacino, er
aðeins 25 ára gamall.
Hann fæddist 26.
júní 1970 í Winn-
etka í Illinois í
Bandaríkj- I
unum og er |
yngstur sjö
systkina.
Á uppvaxtarár-
unum í Ulinois átti
og rak afi Chris
kvikmyndahús en
svo undarlega sem
það kann að hljóma
hafði hann lítinn
áhuga á kvikmynd-
um. Sem ungling-
ur lék hann þó í
auglýsingu með
körfuboltahetj-
unni Michael Jor-
dan en þrátt fyrir
þetta varð
mamma hans aö
múta honum
með glænýjum bíl til
að leika í kvikmynd
þegar hann var 19
ára gamall.
Chris hefur verið dug-
legur í skóla og hon-
um tókst að klára
gráðu í markaðs-
fræðum meðan
hann lék í mynd-
inni Batman For-
ever með því að
setjast niður í
hléum og
grúfa sig
yfir skóla-
bækurnar.
ggggrawr Chris O’Donn-
ell er ákaflega
kurteis ungur mað-
ir ur, vill hafa allt full-
a komið og hefur mikinn
áhuga á sætum stelpum.
Honum finnst mikil-
vægt aö þær líti vel
út, hafi athyglisverð-
an persónuleika og
ekki síst góðan hú-
mor.