Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Qupperneq 42
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995
. fréttir
. ■*
íslenska skattkerfið hefur verið
kallað óskabarn svindlaranna.
Ertu sammála þessu?
„Að kalla skattkerílð óskabarn
svikaranna er nokkuð langt gengið
en vissulega má finna að mörgu.
Svik á virðisaukaskatti eru of mik-
il og það er of mikið um að tekjur
séu vantaldar. Það er hins vegar
sama hversu gott kerfið er það
verður alltaf að óskabami svikara
ef ekki er tekið hart á brotum."
Hvert er umfang skattsvika í is-
lensku efnahagslífi?
„Á umfangið var lagt mat í
skýrslu nefndar árið 1993. Sam-
kvæmt henni er tahð að hið opin-
bera verði af 11 milljörðum í tekj-
ur. Umfang alls neðanjarðarhag-
kerfisins hefur verið talið nema 16
mihjörðum í tekjum. Þetta eru
metnar stærðir út frá bestu þekktu
hagfræðilegum forsendum og eru í
takt yið það sem menn áætluðu
1985. Ýmsar fullyrðingar hafa kom-
ið fram um að skattsvikin séu
miklu meiri, jafnvel svo skipti tug-
um milljaröa. Það er hins vegar
ekkert sem bendir til þess að svo
sé. Þó menn hafi shkt á tilfinning-
unni ber að taka slíkum getgátum
með varúð.“
Að öðru óbreyttu; má búast við að
skattsvik aukist með tilkomu fjár-
magnstekjuskatts?
„Það fer eftir því hvers konar
kerfi menn velja í því sambandi.
Séu allar eftirlitsforsendur fyrir
hendi er engin sérstök hætta fyrir
hendi varðandi skattheimtuna."
Vissir
áhættuhópar__________________
Hverjir svikja helst undan skatti?
„Þeir sem standa í atvinnurekstri
hafa þann möguleika að vantelja
tekjur sínar kerfisbundið og kom-
ast hjá því að skUa innheimtum
skatti, til dæmis vaskinum og stað-
greiðslunni. Skattsvik virðast ekki
bundin einstökum atvinnugrein-
um öðrum fremur en þó hafa menn
taUð að vissar þjónustugreinar séu
áhættuhópur. Menn hafa nefnt
bílaþjónustu, verktakastarfsemi og
veitingarekstur í því sambandi.“
Skúli Eggert Þórðarson, skattrannsóknarstjóri ríkisins:
undan. Þá hefur sýnt sig að inn-
skatturinn getur verið skeinuhætt-
ur. Þetta er ekki séríslenskt fyrir-
brigði því reynsla annarra þjóða
sýnir að virðisaukaskatturinn er
ákaflega varhugaverður. Eitt af því
sem menn sögðu þegar þeir voru
að lofa virðisaukaskattskerfið var
að það væri einfalt og traust. Síðan
þá hefur skattþrepunum fiölgað.
Auðvitað eru allar flækjur á kerf-
inu af hinu vonda, hversu litlar
sem þær kunna að vera.“
Skattatæknilega séð; hvort er auð-
veldara í framkvæmd tekju- og
eignaskattskerfið eða kerfi óbeinna
skatta?
„Tæknilega séð er álagning
óbeinna skatta einfaldari í fram-
kvæmd. Það er pólitísk spurning á
hvora aðferðina beri að leggja
áherslu en hjá skattayfirvöldum
fer mesta vinnan í álagningu
beinna skatta."
Möguleikar sjálfstætt starfandi til
að lækka uppgefin laun til tekju-
skatts virðast ótakmarkaðir. Er
ekki einfalt að kippa þessu í liðinn?
„Nei, það er talsvert flókið. Ann-
ars vegar erum við að tala um hrein
skattsvik þar sem tekjur eru van-
taldar. Hins vegar er um- að ræða
löglegar ráðstafanir, til dæmis þar
sem hlutafélög eru látin eiga íbúð-
arhúsnæði og bíla. Þó viökomandi
borgi skatt af hlunnindunum þá er
hann yfirleitt mun lægri en sá
kostnaður sem menn spara sér. Nú
er starfandi nefnd sem kannar
þetta mál sérstaklega og vonandi
koma einhverjar tillögur frá henni
innan skamms.
Eiríkur E. Viggóson, borgari i
Kópavogi, hefur skorið upp herör
gegn skattsvikum. Hvaða augum
lítur skattrannsóknastjóri þetta
frumkvæði?
„Sá sem úthrópar menn sem
skattsvikara þarf að sýna fram á
sekt þeirra með hlutlægum hætti.
Skattrannsóknarstjóri getur ekki
tekið þátt í því aö úthrópa menn
svikara án undangenginnar rann-
sóknar sem leitt hefur í ljós að um
ætluð skattalagabrot geti verið að
ræða.“
Bæjaryfirvöld á Suðurnesjum hafa
einnig skorið upp herör gegn skatt-
svikum og kanna þá menn sérstak-
Þögnin kann að ýta undir skattsvikin
- tekið á málum af festu og ábyrgð en án fums og taugaveiklunar
Hvað eru mörg skattsvikamál upp-
lýst á ári og hverju skilar það í
auknar tekjur fyrir hið opinbera?
„Ef við skilgreinum skattsvika-
mál mjög þröngt þá eru 100 til 200
mál í rannsókn á hverjum tíma.
Til lengri tíma litið gætum við ver-
ið að tala um að þetta starf skilaði
hinu opinbera nokkrum hundruð-
um milljóna króna á ári. Utan við
þetta er almennt fyrirbyggjandi eft-
irlit sem tekur miklu skemmri tíma
og hefur ekki endilega í fór með sér
refsimeðferð. Þar erum við að tala
um miklu hærri fjárhæðir."
Hafa skattayfirvöld gefist upp á að
úppræta skattsvik?
„Skattsvik verða aldrei upprætt
og þar af leiðandi hafa menn ekki
gefist upp við það. Það er ákaflega
mikil virkni hjá skattyfirvöldum
um þessar mundir og því lýsi ég
yfir furðu minni á staðhæfingum
manna um hið gagnstæða. Á skatt-
svikunum er tekið af fullri festu
og ábyrgð en án fums og tauga-
veiklunar."
Mörg dæmi eru um menn sem be-
rast mikið á en borga svokallað
„vinnukonuútsvar". Hvers vegna
eru þeir látnir í friði af skattayfir-
vgldum?
„Þessir menn þurfa ekki endilega
að vera skattsvikarar. Aðrar
ástæður kunna að vera fyrir þess-
um lágu sköttum. Sé hins vegar um
skattsvikara að ræða þá eru þeir
ekki látnir í friöi. Margir sæta sér-
stakri athugun skattyfirvalda þó
árangurinn sé ekki alltaf sýnilegur
út á við. Staðreyndin er sú að fjöl-
margir aöilar koma ár eftir ár með
lágar tekjur á framtali en eru um
leið áskrifendur að úrskurðum
skattstjóra til hækkunar."
Sú skoðun er útbreidd að kerfið
passi upp á sína en eltist einungis
við þá litlu í þjóðfélaginu.
„Það held ég að sé rangt. Á mínu
borði eru flest málin stór og á skatt-
stofunum er ábyggilega jafnt tekið
á stórum sem litlum.“
Skattpínd þjóð?
Er þjóðin það skattpínd að fólk
neyðist til að taka þátt í skattsvik-
um?
„Það er vissulega áhyggjuefni
hvað viljinn til skattsvika er al-
mennur. Kannanir sýna að mikill
meirihluti landsmanna vill taka
þátt í slíkum svikum. Á þessu
kunna aö vera margar skýringar
og ein gæti verið erfitt efnahags-
ástand."
Stór og þekkt skattsvikamál hafa
verið að velkjast árum saman í
kerfinu og flest hver fara ekki fyrir
dómstóla. Þeir fáu sem eru dæmdir
fá yfirleitt mjög væga dóma. Er
kerfið sjálft áhugalaust um að ná
árangri?
Yfirheyrsla
á laugardegi
Kristján Ari Arason
„Að sjálfsögðu hafa menn
áhuga á að ná árangri á þessu sviði.
Menn verða hins vegar að horfast
í augu við þá staðreynd að stór og
gróf efnahagsbrot taka langan tíma
í rannsókn og úrvinnslu eftir á.
Allur þessi tími gerir þaö að verk-
um að meðferð mála tekur miklu
lengri tíma heldur en til dæmis ein-
hver einfaldur samanburður á
launamismun. Hvað dómana varð-
ar þá gerði Alþingi breytingar á
lögunum síðastliðið vor og setti inn
lágmarksrefsingar. Sú ákvörðun
löggjafans að setja lágmarksrefs-
ingu inn í lögin er ekki að ástæðu-
lausu. Þau lög munu koma til með
að virka eftir eitt til tvö ár.
Skjaldborg þagnar umlykur efna-
hagsbrot á öllum stigum rannsókn-
ar. Er þögnin ekki til þess fallin að
auka þor skattsvikara?
„Samkvæmt lögum er skattayfir-
völdum bannað að tjá sig um mál-
efni sem fram koma í rannsókn og
meðferð máls. Sú þögn kann að ýta
undir skattsvik. Hjá yfirskatta-
nefnd er málsmeðferðin lokuð og
hulin þagnarskildi meðan dóm-
stólaleiðin er opinber. Þvi óska
menn fremur eftir meðferð sinna
mála hjá nefndinni. Menn hafa
hugleitt hvort rétt sé að breyta
þessu en af hálfu Alþingis hefur
það ekki verið gert.“
Flækjuraf
hinu vonda__________________
Rökin fyrir virðisaukaskatts-
kerfinu voru meðal annars þau að
allt eftirlit yrði einfaldara. Hvað
brást?
„Virðisaukakerfið býður upp á
mikla eftirlitsmöguleika. Það mega
menn ekki vanmeta. Hins vegar
býður þetta kerfi einnig upp á nýja
svikamöguleika. Innheimtuaðilar
eru fleiri en í gamla kerfinu og þar
af leiðandi fleiri sem geta stolið
lega sem greiða óeðlilega lágt út-
svar.
„Það er fullkomlega eðlilegt að
rétthafi skattsins kanni þær for
sendur sem liggja til grundvallar
við álagningu. Sveitarstjórnir eiga
til þess rétt, m.a. að skoða framtöl.
Ég hef ekkert nema gott um þetta
framtak að segja."
Skattsvik særa réttlætiskennd
fólks, veikja trú manna á réttarrík-
inu, skekkja samkeppnisaðstæður
fyrirtækja, þyngja skattbyrði hjá
þeim sem yfir höfuð borga skatt.
Hvað er til ráða?
„Ég hef ekkert einhlítt svar við
þessu en brýnasta verkefnið er að
breyta þeim vilja stórs hlutá þjóð-
arinnar að taka þátt í skattsvikum.
Það þarf að kveða upp þunga dóma
við bókhalds- og skattabrotum.
Þetta eru lögbrot og með þátttöku
eru menn að stuöla að hækkun
skatta hjá hinum."
Ert þú með nægan mannskap til
að sinna þínu hlutverki?
„Menn geta velt því fyrir sér
hvort öllu skipti að það séu 17 eða
30 menn sem sinna skattrannsókn-
um. Aðalatriðið er að vera með fyr-
irbyggjandi aðgerðir. Það er hins
vegar ljóst að hvert starf í skatt-
rannsóknborgarsigmargfalt. -kaa