Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1995, Page 44
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 L>V
Olyginn
sagði...
Duvall og Brophy á meðan allt lék í lyndi.
Bruce Willis og fjölskylda í síðbúnu sumarfríi:
I faðmi fiölskyldunnar á Miðjarðarhafi
Harðjaxlinn Bruce Willis og frú
gáfu sér tíma á dögunum til að
bregða sér í frí eftir annir við gerð
kvikmyndanna Die Hard 3 og Nekt-
ardansmærin. Leigðu þau sér 60
metra langa snekkju og sigldu um
spegilslétt Miðjarðarhafið í ágúst og
september og komu meðal annars
við á Korsíku og Sardiníu. Með í för
voru börnin Rumer, Scout og
Tallulah.
Fleiri en íbúar Korsíku og Sardin-
íu urðu aðnjótandi nærveru fjöl-
skyldunnar og eftir dvöl á einni af
sólarströndum Italíu komst sá
orðrómur á kreik að Bruce gamli
væri ekki dauður úr öllum æðum og
hefði komið Demi Moore af stað í
fjórða sinn. Norsk Ukeblad, sem
birtir þessa frásögn, finnst þó ólík-
legt að svo sé því innan skamms
mun Demi leika í nýrri útgáfu kvik-
myndarinnar Allt um Evu og feta
þannig í fótspor ekki ómerkari
kvenna en Bette Davis og Marilyn
Monroe.
... að áttunda hjónaband Elísa-
betar Taylor stæði á brauðfót-
um. Borið hefur á brestum í
hjónabandi hennar og Larrys
Forenskys allan síðastliðinn
vetur og eftir síðustu mjaðma-
aðgerð, sem gyðjan gekkst und-
ir, hefur hún verið hin viðskota-
versta. Ásakanir hafa gengið á
víxl: Hún sakar hann um
keðjureykingar en hann segir
hana hrjóta svo mikið að sker í
eyrum. Larry karlinn er fiuttur að
heiman en framtíðin ein leiðir í
Ijós hvort þau skilja að borði og
sæng.
. . . að Don Johnson væri að
leita að nýrri konu eftir að Mel-
anie Griffith hvarf úr faðmi hans
yfir til Antonio Banderas. Ný-
lega sást hann í París í fylgd
franskrar fyrirsætu, Alexöndru
Kabi, en með þeim í för var son-
ur Dons og Patti nokkurrar
d’Arbanville, Jesse.
52 wiðsljós____________________________________________
Duvall fleygði frúnni út eftir meint framhjáhald:
Tangókennsla í láréttri stellingu?
Tallulah, 2 ára, fannst þægilegast að vera hjá pabba á
plast-krókódílnum.
Er barn í vændum? Ef svo er þá á
Demi More í vandræðum með að
leika í endurgerð kvikmyndarinnar
Allt um Evu.
Rumer Glenn fannst öruggast að hjúfra sig upp að
pabba gamla þegar í sjóinn var komið.
BÉtt
. . . að flottasta herramódelið í
bransanum, Marcus Schenken-
berg, hefði nýlega fyllt árin 27.
Austrænt seiðandi útlit sitt sæk-
ir hann tii ömmu sinnar sem er
indónesísk. Hér sjáum við
draumaprinsinn í fylgd tveggja
föngulegra meyja.
I
Inn fyrir dyr þessa hús stígur
Brophy ekki aftur ef Duvall fær að
ráða.
erjum Roberts Duvalls og þriðju
eiginkonu hans, Sharon Brophy.
Duvall hefur fleygt henni á dyr eft-
ir að einkaspæjari, sem hann
leigði, tók myndir af henni og
sundlaugarverði þeirra hjóna í
rómantískum faðmlögum.
Brophy, sem er danskennari að
mennt, fullyrðir að hún hafi ein-
ungis verið að kenna sundlaugar-
verðinum, Jeffrey Gable, tangó og
þvertekur fyrir hórdóm. Duvall tók
skýringar sinnar ektakvinnu ekki
trúanlegar og gaf henni þrjátíu
mínútur til að yfirgefa slotið þeirra
sem stendur á 200 ekra landareign
í Virginíu.
Það er kaldhæðni örlaganna að
tangóinn skyldi verða Brophy að
falli en hún og Duvall kynntust
einmitt fyrir 10 árum þegar áhugi
Duvalls á tangó kviknaði. Síðan
hefur hann farið margar ferðir til
Argentínu til að kynna sér þennan
rómanska dans.
Brophy fór að heiman auralaus,
skildi eftir allar flnu gjafirnar sem
Duvall hafði gefið henni og kennir
nú sveitadansa á knæpu í nágrenni
heimilis þeirra. Útlit er fyrir löng
og erfið skilnaðarréttarhöld hjá
hjónunum ef ekki nást sættir.
Sundlaugarvörðurinn sem kunni
ekki fótum sínum forráð á dansgólf-
inu.
Sundlaugar koma víðar við sögu
en í ísraelsferð Bjarkar Guðmunds-
dóttur, ef marka má sögur af hjóna-
Björk í
sund ber-
rössuð
Björk Guðmundsdótt-
ir var nýlega á hljóm-
leikaferð í ísrael og
vakti athygli fyrir fleira
en sönginn. Hún gisti á
hóteli ásamt móður
sinni og syni, að sögn
danska blaðsins Se og
hor og kvöld eitt þegar
hún ætlaði að stinga sér
til sunds var hún stöðv-
uð af þremur öryggis-
vörðum. Viti menn! Hún
gleymdi að fara i sund-
fötin eða að minnsta
kosti var hún ekki í
spjör í sundlauginni.
Eftir að öryggisverðirn-
ir höfðu útskýrt fyrir
henni að svona lagað
gerðu menn ekki í ísra-
el brá Björk sér í sund-
fötin og synti í þeim líkt
og í Vesturbæjarlaug-