Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1995, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995
HANNAÐU
þinn eigin bol til þess að gefa
í
Utlönd
Komdu með tilbúna fyrirmynd eða
hugmyndir sem við hjálpum þér við
að útfæra.
Slegið á sigurgleði kommúnista í rússnesku þingkosningunum:
Valkostur Rússlands
nær mönnum á þing
- kjörstjórn vísaði fréttum þess efnis á bug i morgun
5R0S-30UR
SIDUMULA 33 SIMI 581 4141, FAX 588 4141
VINNINGSTÖLUR
LAUGARDAGINN
VINNINGAR
1.a
FJÓLDI
VINNINGSHAFA
3. 4 al S
4.!
69
2.965
UPPHÆÐ A HVERN
VINNINGSHAFA
4.249.830
143.900
10.790
580
Heíldarvlnnlngsupphæð:
7.145.740
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Umbótaflokkur Jegors Gaidars,
fyrrum starfandi forsætisráðherra,
komst yfir 5 prósenta mörkin við
talningu atkvæöa í rússnesku þing-
kosningunum í nótt og nær því
mönnum á þing, að sögn Interfax
fréttastofunnar. Yfirkjörstjórn vís-
aði þó á bug í morgun fréttum Inter-
fax þess efnis.
Kjörstjórn sagði flokkinn vera bú-
inn að fá 4,4 prósent atkvæða en
samkvæmt tölum sem Interfax birti
hafði Valkostur Rússlands fengið
5,075 prósent atkvæða og búist var
við að hann mundi styrkjast í sessi
þar sem talning atkvæða var að fær-
ast frá heldur íhaldssömum kjós-
endum lengst í austri til stóru borg-
anna í vesturhluta landsins.
Reynist frétt Interfax rétt, hafa
fimm flokkar af þeim 43 sem voru í
framboði náð mönnum á þing en
þar til í nótt voru þeir aðeins íjórir:
Kommúnistaflokkurinn með 21,9
prósent atkvæða, Frjálslyndir demó-
kratar, þjóðernisflokkur Zhir-
inovskís, með 11,1 prósent, Heimili
okkar er Rússland, flokkur
Chernomyrdins forsætisráðerra,
með 9,6 prósent, og Yabloko, flokkur
hagfræðingsins Yavlingskys, með
8,4 prósent atkvæða.
Árangur Valkosts Rússlands slær
á sigurgleði Kommúnista og þjóð-
Stórvúrslun Laugavegí 26
(opiö alla daga til kl. 22) - Sími 525 5040
Kringlunnl
(Opiö virka daga til kl. 21. Laugardaga
og sunnudaga til kl. 18) - Sími 525 5030
Laugavegi 90
Sími 525 5065
S K I F A N
Póstkröfusími
525 5040
ernissinna, höfuðandstæðinga
Jeltsíns forseta, þar sem þeir munu
ekki ná jafnmörgum þingsætum og
fyrstu tölur bentu til.
IJm helmingur atkvæða hefur
verið talinn. Kjörsókn var um 65
prósent en 105 milljónir manna
voru á kjörskrá. Óvíst er hvenær
endanleg úrslit liggja fyrir.
Boris Jeltsín forseti mun í dag
hitta Chernomyrdin forsætisráð-
herra til viðræðna um niðurstöður
kosninganna en þær geta breytt
hinu pólitíska landslagi í Rússlandi.
Gennedy Zyuganov, leiðtogi
kommúnista, var ekki að spara
stóru orðin. Hann sagði fólk alveg
hafa hafnað núverandi skipulagi í
Rússlandi. Kerfið hefði hrunið og
væri gjaldþrota. „Ríkisstjórnin hef-
ur í raun fengið á sig vantraust,“
sagði hann og krafðist uppstokkun-
ar í ríkisstjórninni. Kommúnistar
virðast hafa náð til kjósenda vegna
versnandi lífskjara í Rússlandi og
þrár eftir stöðugleika Sovéttímabils-
ins.
Viðbrögðin voru hógvær í Banda-
ríkjunum. Talsmaður Hvíta hússins
sagði að lýðræðið væri að festa sig í
sessi í Rússlandi og að valdahlutfoll-
in í Dúmunni, rússneska þinginu,
hefðu ekki breytst verulega mikið.
„Það verða ný andlit á þingi en
valdahlutfallið verður svipað og
áður,“ sagði talsmaðurinn. Reuter
Þjóðernissinninn Vladimir Zhirinovsky skaut skoðanakönnuðum ref fyrir rass í rússnesku þingkosningunum. Þeir
spáðu honum fjórða til fimmta sæti en hann hlaut næstmesta fylgið, 11,1 prósent. Fylgi hans í austurhéruðunum var
enn meira eða um 15 prósent. Símamynd Reuter
Kanadamenn efla verndun þorskstofnsins: Stllttar fréttir
Brian Tobin
hvetur til auk-
inna selveiða
Brian Tobin, sjávarútvegsráð-
herra Kanada, tilkynnti í gær að
kanadisk stjórnvöld ætluðu að
hvetja til aukinna selveiða og væri
það liður í verndun fiskistofnanna.
Tobin sagði að 99 prósent fækkunar
í hrygningarstofni þorsksins undan
Nýfundnalandi á undanfornum
árum væri selnum að kenna.
Hvorki kanadískir sjómenn né út-
lendingar mega stunda þorskveiðar
við austurströnd Kanada.
„Það er aðeins einn aðili sem enn
stundar þorskveiðar í einhverju
magni og það er selurinn," sagði
Brian Tobin á fundi með frétta-
mönnum í Ottawa I gær.
Tobin sagði að leyfðar yrðu veið-
ar á 250 þúsund selum á næsta ári
en kvótinn í ár nam 186 þúsund dýr-
um. Stjórnvöld ætla að halda áfram
að styrkja veiðimenn með um tutt-
ugu króna framlagi á hvert veitt
kíló og stærri veiðiskipin eru hvött
til að leggja þeim minni lið, einkum
þegar veður gerast válynd.
Hvort svo tekst að veiða upp í
nýjan og aukinn kvóta veltur á
veðrinu og því hvernig til tekst við
að koma selaafurðum á markað.
Víða gætir enn tilfinningasemi í
garð selanna, einkum þó í Evrópu.
Brian Tobin, sjávarútvegsráðherra
Kanada.
Alþjóðleg samtök dýravina,
IFAW, hafa lagt upp í herferð gegn
kanadískum laxi í Bretlandi til að
mótmæla selveiðunum og saka
kanadísk stjórnvöld um að hylma
yfir vísindaleg gögn sem sýna að
selastofninn þurfi verndunar við.
Reuter
Tekinn við
Leighton Smith aðmíráll, yfir-
maður gæsluliðsins í Bosníu, er
kominn til höfuðstöðva sinna í
Króatíu og er spenntur fyrir
starfinu.
Ráðherrar fara frá
Allir ráðherramir í stjórn Suð-
ur-Kóreu hafa sagt af sér svo að
forsetinn geti stokkað spilin.
Kreppir að Major
John Major,
forsætisráð-
herra Bret-
lands, þarf enn
eina ferðina
að sýna
hversu góð tök
hann hefur á
stjómarliðinu
þegar þingið
greiðir í dag atkvæði um um-
deilda fiskveiðistefnu ESB.
Blaðamaður bannaður
Kínversk stjórnvöld hafa svipt
þýskan blaðamann réttinum til
að vinna í Kína vegna greinar
um Li Peng forsætisráðherra
sem þótti ekki gefa nógu góða
mynd af ráðherranum.
Myndir af morði
Israelskt dagblað birti í morg-
un einu myndirnar sem vitað er
um af morðinu á Rabin.
000 .
Afrýjar ekki
Danski ríkissaksóknarinn ætl-
ar ekki að áfrýja sýknudómi yfir
sjö mönnum sem höfðu verið
ákærðir vegna skipasvindls í
Færeyjum. Reuter, Ritzau