Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1995, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995
13
Óvirðing við það
sem vel er gert
Það eru rétt rúmlega fjögur ár
síðan grein með þessari fyrirsögn
birtist í DV og fjallaði um fyrir-
hugaða eyðileggingu á starfsemi
St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Á
þeim tíma komu fyrirmæli frá þá-
verandi heilbrigðisráðherra, Sig-
hvati Björgvinssyni, um að leggja
skyldi niður spítalann sem sjúkra-
hús og breyta stofnuninni í lang-
legudeild fyrir aldraða.
Vegna samstöðu og mótmæla
íbúa svæðisins varð heilbrigðis-
ráðherra að endurskoða þessa af-
stöðu sína. í staðinn fengu Hafn-
firðingar að halda sínu sjúkrahúsi
en til að refsa þeim fyrir frekjuna
þá lækkaði hann framlög ríkis-
sjóðs til spítalans um þriðjung. Frá
þessum tíma til dagsins í dag hef-
ur spítalinn verið rekinn með
halla.
Tillögur tilsjónarmanns
Núverandi heilbrigðisráðherra
skipaði tilsjónarmann til að skoða
rekstur spítalans í september sl.
Ástæðan er vafalaust umræddur
rekstrarhalli. Tilsjónarmaður kom
hér og fór vel í -gegn um allan
rekstur. Ekki gat hann bent á
nokkurn hlut sem betur mætti
fara í rekstrinum. Einu tillögur
hans eru að skerða þjónustuna.
Hætta öllum bráðainnlögnum og
breyta handlækningadeild, þar
sem aðgerðir eru framkvæmdar, í
svokallaða 5 daga deild. Sem þýðir
að deildin er aðeins opin og mönn-
uð 5 daga vikunnar og ekki er
hægt að framkvæma stærri að-
gerðir sem krefjast lengri legu.
Þetta eru tillögur tilsjónar-
manns og ráðherra sem hefur ósk-
að eftir að þessum tillögum verði
hrint í framkvæmd. Að taka af þá
þjónustu sem gerir St. Jósefsspít-
ala að sjúkrahúsi. Sjúklingar sem
þarfnast bráðainnlagnar verða þá
væntanlega lagðir inn á ganga yf-
irfullra lyflækningadeilda stóru
sjúkrahúsanna í Reykjavík. Og
þeir sjúklingar sem ekki komast
lengur i stærri aðgerðir hjá okkur
bætast á biðlista.
Undarleg afstaða ráðherra
Eins og í upphafi máls segir þá
er fyrirsögn þessar greinar fengin
að „láni“ úr grein sem núverandi
heilbrigðisráðherra, Ingibjörg
Pálmadóttir, skrifaði í DV og birt-
ist 2. október 1991. Það er afskap-
Um fáar þjóðir veit ég sem ekki
nýta sér þær náttúruauðlindir sem
þeim eru sjáanlegar. Ég tala nú
ekki um ef þær eiga allt undir að
þær séu nýttar. Þá er átt við skyn-
samlega notkun sem fari saman
með vistfræðilegri hagkvæmni.
Því miður er ísland ein þeirra
þjóða sem hafa látið Greenpeace,
samtök sem villst hafa illilega út
úr tilgangi tilveru sinnar, hræða
sig frá eðlilegri sjálfsbjargarvið-
leitni.
Öfgar ofstækismanna
Greenpeace er alveg sama um
hagsmuni okkar. Að þeim hafa
hrúgast sérvitringar, heilaþvegið
ungt fólk og hópsálir sem leyfa að
þeim sé smalað í verkefni handa
vistfræðilegum viðundrum. Að
halda því fram að veiði á hval og
sel sé náttúrunni neikvæð eru öfg-
ar ofstækissamtaka sem virðist
nærast á lygi.
Það er ekki undarlegt að þeim
takist að blekkja fáfróða útlend-
inga þegar hér heima finnast sálu-
félagar þeirra. Menn sem sjá ekki
að hvalir og selir eru að éta sjálfa
Kjallarinn
Björgvin Þórðarson
aðalbókari á St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði
lega forvitnilegt að grípa niður í
þessa grein og skoða hvað hún seg-
ir þar: „Sjúkrahúsið er vel rekið
og hefur alveg haldið sig innan
ramma fjárlaga og ávallt svarað
niðurskurðartillögum heilbrigðis-
ráðuneytisins en nú er of langt
gengið. Fyrirmælin eru að leggja
sjúkrahúsið niður í núverandi
Kjallarinn
Albert Jensen
trésmiður
sig út á gaddinn. Þessi dýr éta
margfalt það sem við veiðum af
fiski.
Það sem okkur gengur best að
safna þessa stundina eru feitir sér-
góðir púkar á þjóðarjötuna, skuld-
ir og atvinnulaust fólk. Þetta er
mynd og í stað þess skuli langlegu-
deild rekin þar. Ekki er það vegna
þess að Hafnfírðinga vanti lang-
legupláss. Þar er enginn á biðlista.
Samspilið í heilbrigðisgeiranum í
Hafnarfirði hefur verið öðrum til
fyrirmyndar.“
Það er oft sagt að aðstaða manna
skapi afstöðu þeirra. Þannig varð
persónan Ragnar Reykás til. Og
óneitanlea finnst manni afstaða
heilbrigðisráðherra í dag úndarleg
í ljósi þessara orða. Nú er það hún
sem er ráðherrann og valdhafinn.
Hefur sjón hennar eitthvað breyst?
Hvað er það sem hefur breyst á St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði sem or-
sakar þessi sinnaskipti ráðherra.
Eru áform ráðherra nú ekki óvirð-
ing við það sem vel er gert?
Starfsemi St. Jósefsspítala er
síður en svo veigaminni í dag en
það sem hræðsla leiðir af sér. Við
verðum að snúa undanhaldinu í
sókn. Berjumst gegn öfgum og
hugleysi. Hér er jarðvegur
allsnægta.
Nýtum seiinn
Bandaríkjamenn hafa verið
vinaþjóð okkar. í þeirra landi eig-
um við að hefja vamaráróður fyr-
ir þeirri lífsnauðsyn okkar að nýta
auðlindir þær er gera ísland byggi-
legt. Sýna fram á að þar leiði hvað
af öðru svo að maðurinn falli í
náttúrumunstrið.
Vistfræðilegt jafnvægi verður
að vera í heiðri haft, enda innlegg
til síðari tíma. Það mælir því allt
með að hefla selveiðar strax. Hval-
fyrir 4 árum. Áform ráðherra nú
lamar þann þátt heilbrigðisþjón-
ustunnar sem hingað til hefur ver-
ið ómetanlegur. Þar fyrir utan
væri spamaður enginn því eitt-
hvað annað verða sjúklingamir að
fara og sjúkrahúsþjónusta kostar
alltaf sitt hvar sem hún er veitt.
Að lokum vil ég gera lokaorð
ráðherra í umræddri grein að mín-
um: „Þetta slys má ekki verða og
von min er sú að þessi merkilega
og ómetanlega þjónusta megi
blómstra og dafna og þessi ágæta
stofnuri verði ekki eyðilögð." Því
skora ég á þig, Ingibjörg Pálma-
dóttir, að þú endurskoðir afstöðu
þína í þessu máli í ljósi framan-
greindra orða.
Björgvin Þórðarson
veiðar eru viðkvæmara mál vegna
hótana öfgahópa um að rústa efna-
hag okkar en að þeim hljótum við
að snúa okkur hvað sem því líður.
Við verðum að finna leið til að
nýta selinn. Ekki bara farga. Ef vel
væri aö þessum málum staðið yrði
álver skítur á priki samanborið
við vaxandi auðlegð í sjónum. Þar
er um að ræða gífúrlega fjölgun
ársverka, dauðadóm yfir atvinnu-
leysi. Það er raunveruleg framtíö.
Hvort kýs þjóðin að láta hrekja
sig til fátæktar vegna hræðslu við
öfgaöfl eða berjast fyrir sjálfsögð-
um rétti sínum til lífsbjargar.
Albert Jensen
Með og
á móti
Ríkisspítalar illa reknir
Fjárlög
lítils metin
„Það er stað-
reynd að Ríkis-
spítalarnir hafa
á undanförnum
árum ráðstafað
meiri fjármun-
um en fjárlög
hafa heimilað.
Þeir hafa ítrek-
að fengið viðbót-
arfjárveitingar
við afgreiðslu
fjárlaga og á
fláraukalögum.
Almennt er það
ótækt að opinberum stofnunum sé
ekki gert að hlíta sömu reglum
um aðhald. Það er ekki góð regla
að mat á fjárþörf ríkisstofnunar sé
það hve mikið hún fer fram úr
fjárlagaheimildum. Ef ríkisstofn-
anir fá fyrir það sérstaka umbun í
aukaíjárveitingum leiðir það til
óþolandi agaleysis. Sumar sjúkra-
stofhanir hafa virt fjárlagaram-
mann þótt það hafi orðið á kostn-
að þjónustunnar. Þær verða síðan
að þola flatan niðurskurð. Þær
sem virða fyrirmæli löggjafans
um útgjöld hljóta að líta á það sem
skilaboð til sín að virðing fyrir
fjárlögum sé lítils metin. Það verð-
ur þá litið á það sem aðferð til að
ná auknum fjárveitingum að reka
stofnanir með halla. Hallalaus rík-
isrekstur næst ekki meðan slík
sjónarmið eru höfð í hávegmn.
Þess eru dæmi að stofnunum, sem
ekki hafa staðið við sinn fjárlag-
aramma, hafl verið settur tilsjón-
armaður. Þar með er ekki fullyrt
að starfsemi Ríkisspítalanna krefj-
ist ekki meiri fjármuna."
Vel
reknir
„Þó að Rikis-
spítalarnir séu
stór stofnun er
þeim skipt í
margar einingar
sem starfa oft
mjög sjálfstætt.
Þessar einingar
eru flestar mjög
vel reknar. Rík-
isspítalar hafa
náð góðum ár-
angri í lækkun
rekstrarkostnaö-
ar með útboðum
og aðhaldi í innkaupum og hafa
önnur sjúkrahús notið góðs af.
Launastefnan er mjög aðhalds-
söm. Menn geta ihugað hvort það
sé góður rekstur að borga best
menntaða og færasta starfsfólki
heilbrigöisstétta, sem starfar á
Landspitalanum, oft verr en ann-
ars staðar tíðkast. Spítalinn er
stærsta hátæknisjúkrahús lands-
ins og háskólaspítali með öllum
þeim kostnaði og möguleikum
sem slíku fylgir. Erfiðustu tilfell-
in, sem önnur sjúkrahús, m.a. úti
á landi, ráða ekki við, koma flest
þangað. Ný tækni og ný, dýr lyf
gefa möguleika á að takast á við
sjúkdóma með betri og fljótvirkari
hætti en áður. Samt er kostnaður
á legudag á Landspítalanum
minni en á mögrum öðrum sjúkra-
húsum. Starfsemin jókst verulega
fyrri hluta ársins og biðlistar
styttust. Samdráttur, sem skipu-
lagður var seinni hluta árs 1995,
,var áætlaður til skamms tíma og
eru Ríkisspítalarnir „innan
ramma fjárlaga" þessa mánuðina.
Ef fjárlög ársins 1996 verða eins
knöpp og frumvarpið verður fram
undan erfitt ár fyrir veikt fólk í
landinu því Landspítalinn er fyrir
alla landsmenn."
-ÞK
Hafnfirðingar fengu að halda sínu sjúkrahúsi en ráðherra lækkaði framlög ríkissjóðs til spítalans um þriðjung,
segir greinarhöfundur.
Hvalveiðar - selveiðar
„Starfsemi St. Jósefsspítala er síður en
svo veigaminni í dag en fyrir 4 árum.
Áform ráðherra nú lamar þann þátt heil-
brigðisþjónustunnar sem hingað til hefur
verið ómetanlegur.“
„Það mælir því allt með að hefja selveið-
ar strax. Hvalveiðar eru viðkvæmara mál
vegna hótana öfgahópa um að rústa efna-
hag okkar en að þeim hljótum við að
snúa okkur hvað sem því líður.“
Tómas Ingi Olrich,
alþingismaöur fyrir
Sjálfstæðisflokk-
inn.