Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1995, Síða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995
íþróttir
O’Neill hættur
Martin O’Neill sagði upp störf-
um sem framkvæmdastjóri enska
knattspyrnufélagsins Norwich á
sunnudaginn, aöeins tveimur
tímum fyrir leik gegn Leicester í
1. deild. Hann hafði aöeins verið
sex mánuði við stjórnvölinn og
hætti vegna þess að hann fékk
ekki peninga til að styrkja liðið,
eins og honum hafði verið lofað.
Lutonskiptir
Terry Westley hafði þó verið
enn skemur í starfi hjá 1. deildar
liði Luton, aðeins í 5 mánuði, en
honum var sagt upp í gær. Luton
situr á botni 1. deildarinnar.
Botafogo meistari
Botafogo frá Ríó de Janeiro
varð brasilískur meistari í knatt-
spyrnu í fyrrinótt. Liðið gerði þá
jafntefli, 1-1, við Santos í síðari
úrslitaleik félaganna en Botafogo
vann þann fyrri, 2-1.
Glerhýsi brotnaði
Miklar skemmdir urðu á húsi í
byggingu í Mosfellsbæ í hvas-
sviðrinu aðfaranótt sunnudags-
ins. Glerhýsi er byggt utan um
húsið og þoldi það ekki veðrið.
Talið er að tjón nemi þarna
hundruðum þúsunda króna.
Ekki var ’oúið í húsinu. -GK
Tulioveifaðifiski
Leikmenn Botafogo voru fluttir
að leikvangi félagsins á þaki
slökkviliðsbíls og þar veifaöi
Tulio, markakóngur meistara-
keppninnar, stórum, dauðum
flski, við mikla ánægju viö-
staddra. Lið Santos gengur nefni-
lega undir gælunafninu „Fiskur-
inn.“
Velez meistari
í Argentínu réðust úrslitin á
sama tíma og þar varð Velez
Sarsfield meistari með því að
sigra Independiente, 3-0, en
skæðasti keppinauturinn, Boca
Juniors, gerði jafntefli, 2-2, við
Deportivo Espanol á laugardag.
Boca var á tímabili með sex stiga
forystu í deildinni.
Straxuppselt
Þegar er uppselt á leik Eng-
lands og Skotlands í úrslita-
keppni Evrópumóts landsliða
sem fram fer á Wembley í London
15. júní. Miðar á keppnina hafa
verið til sölu síðan í október og
það sem eftir var fór strax eftir
að Ijóst var á sunnudag aö ná-
grannaþjóðirnar myndu mætast.
Tombaívanda
ítalski skíðakóngurinn Alberto
Tornba þarf líklega að svara til
saka eftir að hafa grýtt þungum
glerbikar í ljósmyndara eftir
stórsvigsmót í heimsbikarnum á
Ítalíu um helgina. Ljósmyndar-
inn seldi eitt sinn tímariti nektar-
myndir af Tomba sem hefur verið
mjög uppsigað við hann síðan.
Ljósmyndarinn meiddist ekki al-
varlega en litið er mjög alvarleg-
um augum á atvikið, ekki síst
vegna þess aö Tomba er liðþjálfi
í ítalska hernum og yfirvöldum
þar er ekki skemmt.
Félagslíf
Aðventukvöld Víkings
Aðventukvöld Víkings verður i
Víkinni í kvöld klukkan 20.30.
Séra Pálmi Matthíasson ræöir
um aðventuna og komu jólanna,
Hallur Hallssoh les upp úr met-
sölubókinni Karlar eru frá Mars,
konur eru frá Venus og Sigurður
Grétar Sigurðsson spilar á gítar
og stjórnar jólasöng. Bömin fá
smávegis jólaglaðning. Kaffi og
veitingar verða á boðstólum.
Yfirlýsing frá Rondey Robinson:
Hef lofað
Njarðvík að
koma aftur
Julian Duranona - vitamínsprauta
fyrir íslenskan handknattleik.
Njarðvikingar hafa staðið við sitt
A iþróttasíðu DV í gær, mánu-
daginn 18.12.,
birtist frétt
j um aö ég
undirritaður
værihugsan-
lega á förum ..
frá Njarðvík.
Ein af ástæð-
um þess væri :■
að Njarðvtk-
ingar hefðu átt í erfiðleikum með
að standa við launagreiðslur til
mín á þessu keppnistxmabili.
Af þessu tilefni vil ég taka skýrt
fram að þetta eru ekki mín orð.
Þeir sem reka körfuknattleiks-
deildina í Njarðvík eiga ekki skilið
slík orð og undir því vil ég ekki
sitja. Þetta tímabil er mitt sjötta í
Njarðvík og allan þann tima hafa
Njarðvíkingar staðið við að greiða
mér hverja krónu sem mér hefur
borið.
Hitt er svo annað mál að í rekstri
íþróttafélaga geta komið tímabil
þar sem minna er um pentnga og
þá hefur komíð fyrir að greiðslur
hafi dregist en aldrei þannig að al-
varieg vandræöihafililotist affyrir
mig.
í fréttinni er réttilega eftir mér
haft að min persónulegu mál hafi
verið í óvissu en við brottför mína
héðan í dag hef ég lofað Njarðvík-
ingum því aö ég komi til baka í
byrjun janúar og ég ætla að taka
þátt i því að Njarðvíkingar verði
Islandsmeistarar þriðja áriö i röð.
Virðingarfyilst
Rondey Robinson
Jón Kristjánsson - fékk erfitt hlut-
verk meö enga reynslu.
DV
Jóha
Patrel
fyrrii
- Jón besti þjálfari
„Að mínu mati er Patrekur Jó- |
hannesson hjá KA maður fyrri um-
ferðar íslandsmótsins. Hann hefur 1
verið að leika mjög vel og stöðugt s
með liði sínu og getur hreinlega unn- 1
ið leiki upp á eigin spýtur þrátt fyrir í
að vera í strangri gæslu. Hann er (
mjög sterkur, bæði varnarlega og
sóknarlega. Þá finnst mér hann hafa
þroskast mikið sem leikmaður og er
til að mynda að mestu hættur að tuða
í dómurunum. Þegar ég sé ungan i
leikmann taka sig á í þessum efnum t
er hægt að hrósa honum. Það er svo <
spurningin hvort Patrekur kann að ;
fara með hrósið. Það vill oft rigna <
upp í nasirnar á þessum ungum í
mönnum af Cocoa Puffs kynslóð- ;
inni,“sagöi Jóhann Ingi Gunnarsson, '
fyrrverandi landsliðsþjálfari, en '
hann er einn reyndasti þjálfari 1
landsins og hefur náð mjög góðum í
árangri með íslensk lið og þýsk í <
Jóhann Ingi Gunnarsson segir álit sitt á frammistöðu sex efstu liðanr
Valsmenn hafa ver
og jaf n vel náð fyr
„íslandsmótið, sem nú er um það
bil hálfnað, hefur eiginlega aldrei
komist í gang. Það hefur verið mikið
um landsleiki í Evrópukeppninni,
ekki það að landsliðið hafi fengið of
mikinn tíma heldur voru þeir einfald-
lega mjög margir og 1. deildar keppn-
in hefur liðið fyrir það. Aðsókn að
leikjunum hefur kannski'ekki verið
mikil en þó hefur hún alltaf verið góð
á heimaleikjum KA og Hauka,“ sagði
Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrrver-
andi landsliðsþjálfari í handknatt-
leik, í samtali við DV í gærkvöldi en
þá var hann beðinn að líta yfir farinn
veg viö svo til hálfnað íslandsmót í
handknattleik karla. Jóhann Ingi seg-
ir álit sitt á sex liðum í DV í dag og
hinum sex í DV á morgun.
Alltaf nýirog nýir
leikmenn hjá Val
„Þrátt fyrir að Valsmenn hafi misst
Geir Sveinsson og Finn Jóhannsson
náðu þeir að halda sínum kjarna.
Þorbjörn Jensson hafði stjórnaö liö-
inu lengi og hann er sterkur persónu-
leiki sem þjálfari. Það mátti merkja á
Valsliðinu í upphafi móts að þjálfara-
skipti höfðu átt sér stað. Menn voru
ekki alveg búnir að átta sig á breyttu
skipulagi. Undanfarið hafa þeir vaxið
mjög og það má segja að eftir að hafa
slegið CSKA Moskva út úr Evrópu-
keppninni hafi Valsmenn náð fyrri
styrk. Síðan hefur liðið leikið mjög
vel og verið best liðanna í fyrri um-
ferðinni og jafnvel náð styrk undanf-
arinna ára. Valsmenn virðast eiga
leikmenn í tonnatali og breiddin er
mikil. Það koma alltaf nýir og nýir
leikmann fram í dagsljósið. Svo má
auðvitað ekki gleyma því að Guð-
mundur Hrafnkelsson hefur verið
ótrúlega sterkur þegar á hefur reynt
fyrir Valsmenn. Hann hefur verið að
vinna leiki fyrir liðið þegar virkilega
hefur reynt á hann. Síðast á dögunum
varði hann fjögur víti gegn FH í eins
marks sigri Vals í bikarnum."
„KA var spútnikliðið í fyrra og vann
bikarinn og spilaði vel í úrslitakepn-
inni. Menn töldu að brotthvarf Sigm-
ars Þrastar, Valdimars Grímssonar
og Alfreðs að miklum hluta myndi
hafa slæm áhrif á liðið en þessi skörð
hafa ekki verið eins stór og margir
töldu. KA-liðið hefur komið mér mjög
á óvart og ekki tapað nema einum
leik. Duranona hefur komið út sem
happdrættisvinningur fyrir Alfreð og
það að taka Kúbumanninn í lið sitt
eftir að enginn haföi séð hann leika
í mörg ár var mikil áhætta. Duranona
hefur ekki einungis sett skemmtileg-
an stimpil á leik KA heldur einnig á
íslenskan handknattleik. Svo eru
ungu leikmennirnir stöðugt að verða
sterkari. Vandamálið hjá KA er hins
vegar það að varnarleikurinn er ekki
alveg eins sterkur og í fyrra en' liðið
verður vitanlega í baráttu um titil-
inn.“
Haukarnir verða í einu
af fjórum efstu sætunum
„Haukarnir byrjuðu mótið mjög vel.
Nokkrar breytingar urðu á liðinu frá
því í fyrra en þær voru vel undirbún-
ar. Aðall Haukaliðsins er þessi gifur-
lega sterka umgjörð sem þeir hafa um
sitt lið. Menn sem hafa staðið árum
saman á bak við þetta lið og láta það
ekki hafa áhrif á sig þó í fyrra hafi
komið vetur þar sem gekk ekki nægi-
lega vel. Gunnar Gunnarsson er
greinilega að gera góða hluti með lið-
ið. Það sem er afar snjallt hjá Hauk-
unum er að Bjarni Frostason var
gerður að fyrirliða og það hefur kom-
ið mjög vel út, bæði fyrir hann og lið-
ið. Bjarni hefur verið jafnbesti mark-
vörður , deildarinnar. Endurkoma
Halldórs Ingólfssonar hefur einnig
haft góð áhrif og Aron Kristjánsson
er í framför. Haukarnir verða í einu
af flórum efstu sætunum ef þeir leika
eins og fram að þessu.“
Deyfð og áhugaleysi
áhorfenda í Garðabænum
„Ég hef eiginlega frá því ég man eftir
mér verið að bíða eftir því að Stjarnan
Edberc
Stefan Edberg, sá snjalli sænski
tennisleikari, til-
kynnti í gær að
hann myndi
hætta keppni á
næsta ári. Hann
ætlar að leggja
spaðann á hill-
una eftir opna
Stokkhólmsmót-
ið sem fram fer í
nóvember 1996.
Edberg er 29 ára og hefur verið at-