Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1995, Qupperneq 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995
Fólk í fréttum
Guðmundur J. Guðmundsson
Guðmundur Jóhann Guðmunds-
son, formaður Dagsbrúnar,
Fremristekk 2, Reykjavík, hefur,
samkvæmt DV-frétt í gær, ákveð-
ið að gefa ekki kost á sér sem for-
maður Dagsbrúnar á næsta aðal-
fundi.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Reykja-
vík 22.1. 1927. Hann stundaöi nám
i gagnfræðaskóla 1941-44, stund-
aði síðan verkamannastörf og var
lögregluþjónn á Siglufirði sumrin
1946-50r
Guðmundur varð starfsmaður
Dagsbrúnar 1953, settist þá í
stjórn félagsins, var varaformaður
þess 1961-82 og hefur verið for-
maður frá 1982.
Guðmundur var formaður
VMSÍ 1975-91, sat í miðstjóm ASÍ
1980-88, í stjórn fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna i Reykjavík
frá 1954, í stjóm Framkvæmda-
nefndar byggingaáætlunar
1965-77, í stjórn Verkamannabú-
staða í Reykjavík 1974-82, var
borgarfulltrúi í Reykjavík 1958-62,
sat í hafnarstjórn 1962-82 og var
alþm. Reykvíkinga 1979-87.
Guðmundur var forseti Æsku-
lýðsfylkingarinnar 1949-51, sat í
miðstjóm Sósíalistaflokksins frá
1954 og Alþýðubandalagsins
1956-87, sat í stjórn SÁÁ frá stofn-
un og í framkvæmdastjórn frá
1990, í stjóm Vemdar 1983-89, var
fulltrúi Alþingis hjá SÞ og fulltrúi
ASÍ hjá Alþjóða vinnumálastofn-
uninni í Genf 1986-91.
Út hafa komið um Guðmund
bækurnar Togarasjómaðurinn
Guðmundur Halldór og sonur
hans Guðmundur J., eftir Jónas
Guðmundsson, 1982, og Jakinn - í
blíðu og stríðu, 1989, og Baráttu-
saga, 1990, eftir Ómar Valdimars-
son.
Fjölskylda
Kona Guðmundar er Elín Torfa-
dóttir, f. 22.9.1927, forstöðukona,
fóstra og framhaldsskólakennari.
Hún er dóttir Torfa Þórðarsonar
stjómarráðsfulltrúa og k.h., Önnu
Úrsúlu Björnsdóttur húsmóður.
Börn Guðmundar og Elínar eru
Gunnar Örn, f. 17.11.1948, dýra-
læknir í Borgarfirði, kvæntur El-
ísabetu Haraldsdóttur leirlistar-
konu og eiga þau þrjú börn; Sól-
veig, f. 18.12. 1951, fulltrúi í
Reykjavík, og á hún tvær dætur;
Guðmundur Halldór, f. 1.5. 1953,
deildarstjóri í Reykjavík, kvæntur
Jónínu Jónsdóttur fulltrúa og eiga
þau fjögur böm; Elin Helena, f.
20.1. 1962, fulltrúi í Reykjavík, en
maður hennar er Runólfur Þór
Andrésson prentari og eiga þau
eina dóttur.
Systkini Guðmundar: Jóhannes
Óskar, f. 14.6. 1924, d. 14.7. 1991,
skrifstofumaður í Reykjavík; Frið-
rik,'f. 7.11.1925, skrifstofumaður í
Reykjavík; Jóhann, f. 16.2. 1930,
efnaverkfræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Guðmundar: Guð-
mundur Halldór Guðmundsson, f.
1.10. 1887, d. 15.2. 1982, sjómaður í
Reykjavík, og k.h., Sólveig Jó-
hannsdóttir, f. 7.8.1897, d. 10.6.
1979, húsmóðir.
Ætt
Guðmundur Halldór var sonur
Guðmundar, b. og sjómanns á
Hjallkárseyri við Amarfjörð,
bróður Bjarneyjar, ömmu Hrafns
yfirlæknis og Bjama júdókappa
Friðrikssona. Guðmundur var
sonur Friðriks, b. á Hrafnseyrar-
húsum, bróður Ásgeirs, afa
Matthiasar Jónassonar sálfræð-
ings, fóður Bjöms hagfræðings.
Hálfbróðir Friðriks var Auðun,
langafi Styrmis Gunnarssonar rit-
stjóra og Haralds Blöndals lög-
fræðings. Friðrik var sonur Jóns
prests á Hrafnseyri, Ásgeirssonar,
prófasts í Holti í Önundarfirði,
Jónssonar, bróður Þórdísar, móð-
ur Jóns forseta og Jens Sigurðs-
sonar rektors, langafa Jóhannesar
Nordal. Móöir Jóns prests var
Rannveig Matthíasdóttir, b. á
Eyri, Þórðarsonar, ættföður Vig-
urættarinnar, Ólafssonar, ættfoð-
ur Eyrarættarinnar, Jónssonar.
Bróðir Guðmundar var Jón,
langafi Geirs Waage, prests í
Guðmundur J. Guðmundsson.
Reykholti, fv. for- manns Prestafé-
lags íslands.
Móðir Guðmundar var Sólveig
Jóhannsdóttir, b. í Heyholti í
Borgarfirði, Jóhannessonar, b. á
Narfeyri, Þórðarsonar, en móðir
Sólveigar var Friðsemd íkaboðs-
dóttir, b. á Krossi í Haukadal í
Dölum, Þorgrímssonar.
Andlát
Gunnar
Jónsson
Gunnar Jónsson, fyrrverandi
bóndi og eftirlits- og innheimtum-
aður hjá RARIK, til heimilis að
Nesi á Rangárvöllum, lést á dval-
arheimilinu Lundi á Hellu þann
6.12. sl. Hann var jarðsunginn frá
Oddakirkju á laugardaginn var.
Starfsferill
Gunnar fæddist í Nesi í Norð-
firði og ólst upp á þeim slóðum.
Hann naut almennrar farskóla-
kennslu í æsku.
Gunnar bjó á Norðfirði til
fimmtán ára aldurs en fór þá
norður í Bárðardal og var þar
fimm ár. Hann flutti suður á
Rangárvelli 1925 og átti þar heima
siðan. Gunnar vann við landbún-
aðarstörf fyrstu árin. Hann var
vinnumaður og síðar vélamaður
og ráðsmaöur og loks bóndi á eig-
in jörð en Gunnar og Guðrún, eig-
inkona hans, keyptu hluta úr
landi Helluvaðs og reistu þar ný-
býlið Nes 1938 þar sem hann átti
heima til dauðadags, þó án bú-
skapar seinni árin.
Gunnar var pakkhúsmaður hjá
Kaupfélaginu Þór á Hellu fyrstu
árin með búskapnum en frá 1947
var hann eftirlits- og innheimtu-
maður hjá Rafmagnsveitum ríkis-
ins í Rangárvallasýslu, allt þar til
hann lét af störfum sökum aldurs
1975.
Gunnar var lengi sóknarnefnd-
armaður í Oddakirkju en hann
var meðhjálpari í kirkjunni í fjóra
áratugi.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 7.5.1933 eftir-
lifandi konu sinni, Guðrúnu Jóns-
dóttur, f. 23.7. 1904, húsmóður.
Foreldrar hennar: Jón Jónsson og
Anna Guðmundsdóttir en þau
bjuggu lengst af í Bjóluhjáleigu í
Djúpárhreppi.
Synir Gunnars og Guðrúnar:
Jóhann, f. 20.9.1935, deildarstjóri
tölvumála hjá fjármálaráðuneyt-
inu, kvæntur Eddu Þorkelsdóttur,
þau eru búsett á Seltjarnamesi og
eiga fjögur böm; Jón Bragi, f. 26.3.
1937, trésmíðameistari á Hellu,
kvæntur Stefaníu Unni Þórðar-
dóttur og eiga fjögur börn; Krist-
inn, f. 25.1. 1942, trésmíðameistari
á Hellu, kvæntur Unni Einarsdótt-
ur og eiga þau fimm börn.
Fyrir hjónaband eignaðist
Gunnar dóttur með Ingibjörgu
Stefánsdóttur frá Norðfirði, Huldu
Long, f. 18.1. 1918, d. 7.10. 1980,
húsmóður í Reykjavík, fyrri mað-
ur hennar var Sigurður Þórarins-
son sem lést i sjóslysi 1941 en
seinni maður hennar var Guðjón
Bjamason sem lést 1983, múrara-
meistari, og eignaðist hún fjögur
börn.
Hálfsystkini Gunnars, samfeðra:
Bjarni, f. 1889, d. 1957, bóndi á
Skorrastað í Norðfirði; Guðrún, f.
1891, d. 1989, verslunarmaður í
Reykjavík.
Hálfsystkini Gunnars, sam-
mæðra: Sigurbjörg Bjarnadóttir, f.
1909, húsmóðir á Norðfirði; Ár-
mann Bjamason, f. 1910, sjómaður
í Vestmannaeyjum.
Foreldrar Gunnars voru Jón
Bjamason, f. 22.10. 1858, d. 27.6.
1943, bóndi á Skorrastað í Norð-
firði, og Halldóra Bjarnadóttir, f.
22.7. 1879, d. 17.4. 1920.
Ætt
Jón var sonur Bjarna, b. í Við-
firði, bróður Þrúðar, ömmu Ólafs
Jóhanns Sigurðssonar rithöfund-
ar. Bjami var sonur Sveins, b. í
Viðfirði, Bjamasonar og k.h., Sig-
ríðar, móður Davíðs, langafa
Bjama Vilhjálmssonar þjóðskjala-
varðar og Gíslínu, móður Eyþórs
Einarssonar. Sigríður var dóttir
Davíðs, b. í Hellisfirði, Jónssonar
og k.h., Sesselju Þorsteinsdóttur,
systur Guðnýjar, langömmu Jóns,
föður Eysteins ráðherra og dr.
Jakobs sóknarprests Jónssona.
Halldóra var dóttir Bjama, b. i
Skálateigi, Péturssonar, b. á Hofi í
Hellisfirði, Bjömssonar. Móðir
Péturs var Guðlaug Pétursdóttir,
systir Þorleifs, langafa Hallgríms,
fööur Geirs seðlabankastjóra.
Móðir Bjarna var Mekkín Bjama-
dóttir, b. í Hellisfirði, Pétursson-
ar, bróður Guðlaugar. Móðir
Gunnar Jónsson.
Mekkínar var Guðrún Erlends-
dóttir, b. í Hellisfirði, Árnasonar,
langafa Guðnýjar, móður Vals
Amþórssonar. Móðir Halldóru var
Guðrún Marteinsdóttir, b. á Sand-
víkurparti, Magnússonar og k.h.,
Guðrúnar Jónsdóttur.
Tll hamingju
með afmælið
19. desember
75 ára Eiginmaður hennar er Valdimar Þorvaldsson vélvirki.
Tryggvi Gunnarsson, Ásabyggö 15, Akureyri. Þau taka á móti gestum á heimili sínu í dag. Sigurður Aðalgeirsson, Hrafnagilsskóla, Eyjafjarðarsveit. Tryggvi Sigmundsson, Gestsstöðum, Fáskrúðsfjarðar- hreppi.
70 ára
Jóna Sigþrúður Stefánsdóttir, Fossum, Bólstaðarhlíðarhreppi.
60 ára 40 ára
Daníel Hauksson, Arnarstööum, Helgafellssveit. Dóra Sæmundsdóttir, Botnahlíð 33, Seyðisfirði. Hulda Guðnadóttir, Fellsmúla 12, Reykjavík. Guðriður S. Vilmundsdóttir, Hraunsvegi 17, Njarðvík. Sigurbjörg Dagbjört Jónsdóttir, Hvammstangabraut 28, Hvamms- tanga. Ólöf Ásta Ólafsdóttir, Hlíðarvegi 6, Kópavogi. Sigurður I. Gxmnlaugsson, Sólvallatögu 18, Keflavík. Eggert Ólafur Antonsson, Hólsvegi 16, Reykjavík. Guðmundur Rúnar Bragason,
50 ára
Oddný Erla Valgeirsdóttir launafulltrúi, Skagabraut 23, Akranesi. Þrastahólum 10, Reykjavik.
Bridge
Bridgefélag Barðstrendinga
Mánudaginn 11. desember var spilaður eins kvölds
jólatvímenningur með forgefnum spilum. Spilaform-
ið var Mitchel og sigurvegaramir í báöar áttir fengu
heim með sér jólaglaðning. Þátttaka var ágæt, 30 pör
mættu til leiks. Hæstu skor í NS náðu eftirtalin pör:
1. Leifur Kr. Jóhannesson - Bergsveinn BreiðQörö 498
2. Vilhjálmur Sigurðsson - Sigurður Þorgeirsson 495
3. Bjöm Þorláksson - Helgi Bogason 490
4. Pétur Sigurðsson - Sigurjðn Tryggvason 484
- og hæsta skor í AV:
1. Bjöm Ámason - Albert Þorsteinsson 507
2. Þórður Sigfússon - Sigurbjöm Þorgeirsson 493
3. Þórarinn Ámason - Gísli Víglundsson 462
4. Guöni Þorsteinsson - Guðlaug Torfadóttir 445
Næsta mánudagskvöld, 18. desember, verður aftur
spilaður eins kvölds jólatvímenningur með verðlaun-
um fyrir hæsta skor í báðar áttir. Allir eru velkomn-
ir.
Bridgefélag Suðurnesja
Lokið er tveimur kvöldum í jólatvímenningnum
en hæsta skor í tvö kvöld af þremur ræður úrslitum
til verðlauna i mótinu. Efstu pörin í keppninni eru
þessi:
1. Svala Pálsdóttir - Vignir Sigursveinsson 634
2. Gísli Torfason - Jóhannes Sigurðsson 624
3. Valur Símonarson - Stefán Jónsson 615
4. Garðar Garðarsson - Eyþór Jónsson 607
5. Karl Einarsson - Karl G. Karlsson 593
Eftirtalin pör hafa fengið bestu skorina fyrstu
kvöldin og standa best að vígi:
1. Svala Pálsdóttir - Vignir Sigursveinsson 346
2. Karl Einarsson - Karl G. Karlsson 330
3. Gísli Torfason - Jóhannes Sigurðsson 325
4. Magnús Torfason - Sigtryggur Sigurðsson 317
5. Valur Símonarson - Stefán Jónsson 308
Keppninni lýkur næstkomandi mánudagskvöld, 18.
desember, í Hótel Kristínu. Spilamennska hefst
klukkan 19.45.
Keflavíkurverktakamótið
Eins og undanfarin ár stendur Bridgefélag Suður-
nesja fyrir móti milli jóla og nýárs í Stapanum. í
þessu móti spila saman vanur keppnisspilari og
óvanur en það eru Keflavíkurverktakar sem styrkja
félagið til þessa mótshalds. Veitt eru verðlaun fyrir
tvö efstu sætin í báðum riðlum (bæði A/V og N/S).
Mótið fer fram fóstudaginn 29. desember. Spilaður er
Mitchell-tvimenningur og er mæting klukkan 19.30.
Bridgefélag Sauðárkróks
Mánudaginn 11. desember var spilaður eins kvölds
jólatvímenningur. Veitingar voru í boði félagsins og
spilarar undanþegnir gjaldi. Úrslit urðu:
1. Guðmundur Bjömsson - Einar Svansson 174
2. Gunnar Þórðarson - Sölvi Karlsson 174
3. Bjami Brynjólfsson - Ólafur Guðmundsson 170
4. Kristján Blöndal - Ásgrímur Sigurbjömsson 168
Bridgefélag Sauðárkróks óskar öllum bridgespilur-
um, nær og fjær, gieðilegra jóla og farsæls komandi
árs.