Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1996, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1996, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1996 5 Fréttir Verður nýgenginn 7 ára fangelsisdómur stefnumarkandi í íslensku réttarfari? Þyngsti dómurinn í sifjaspellsmáli - dómarnir hafa verið að þyngjast á síðustu misserum, segir sækjandinn í málinu Brestur á trausti er mestur þegar foreldri misnotar barn sitt. Þegar menn bregðast þessu trausti hefur það áhrif á allan þroska barnanna og eftir því sem traustbresturinn er meiri því meiri verða skaðlegu áhrifin. Þessa yfirlýsingu er að finna efn- islega af hálfu sérfræðings í málum barna og unglinga í nýgengnum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í sifjaspellsmáli þar sem 47 ára faðir var dæmdur í 7 ára fangelsi. „Þetta er þyngsti dómur sem upp hefur verið kveðinn í kynferðis- brotamálum gegn börnum eða ung- mennum þar sem um er að ræða misnotkun, aðra en nauðgun," sagði Egill Stephensen saksóknari i samtali við DV í gær en hann hef- ur sótt fjölda hliðstæðra afbrota- mála af hálfu ákæruvaldsins á síð- asta áratug. Framangreindur faðir var dæmdur fyrir að hafa á sjö ára tímabili „ótal sinnum káfað“ á öll- um likama dóttur sinnar með meiru og síðan margsinnis haft samræði eða önnur kynferðismök við hana, ýmist á heimili þeirra eða í bifreið sinni. Réttlætinu fullnægt Lögmenn, sækjendur og fleiri sem DV ræddi við í gær um málið voru allir á einu máli um að fram- angreindur dómur væri réttlátur ef miðað er við sakargiftir, þó svo að vissulega hefði niðurstaðan komið dálítið á óvart hvað þyngd varðar. Miðað við þá dómahefð sem Hæstiréttur hefur skapað á síðustu áratugum, með því að milda gjarn- an héraðsdóma í kynferðisbrota- málum, telja menn nýgenginn dóm hins vegar þungan. Dómurinn er því talinn þungur en fyllilega rétt- látur miðað við þau gífurlega alvar- legu brot sem umræddur sakborn- inginur varð uppvís að og játaði síðan skilmerkilega. „Ógeðfelld brot“ Björn Helgason saksóknari var sækjandi ákæruvaldsins í málinu: „Mér finnst dómarnir almennt hafa verið að þyngjast og ég held að Hæstiréttur hafi frekar þyngt í þessum málum á undanförnum misserum heldur en að milda. Ég er ekki viss um að dómurinn sé stefnumarkandi, ég held ekki, því brotin eru ákaflega ógeðfelld,“ sagði Björn. Hrædd við föður sinn í apríl síðastliðnum fór 16 ára stúlka með félagsráðgjafa sínum til RLR. Tilefnið var að hún ætlaði að leggja fram kæru á hendur föður sínum fyrir kynferðisbrot gegn sér. Hún sagði að í upphafi, þegar hún var sjö eða átta ára, hefði fað- ir hennar byrjað misnota sig - um það bil tvisvar i viku. Hún hefði verið mjög hrædd við föður sinn og aldrei þorað að segja frá, enda hefði hann áður beitt hana ofbeldi og hún hefði einnig séð hann leggja hendur á móður sina og systkini. Eftir tíu ára aldur versnaði ástandið og kom faðirinn inn til hennar næstum á hverri nóttu, samkvæmt framburði hennar. Þeg- ar stúlkan Var orðin 12 ára fór fað- irinn að hafa kynmök við stúlkuna, tvisvar til þrisvar sinnum í mán- uði, og þá yfirleitt í bifreið sinni. 14 ára flutti stúlkan að heiman. Mér finnst dómarnir almennt hafa verið að þyngjast og ég held að Hæstiréttur hafi frekar þyngt í þessum málum á undanförnum misserum heldur en að milda, segir Björn Helgason saksóknari. DV-mynd GVA gefin og hafi alla burði til að læra það sem hugur hennar stendur til, að uppfylltum þeim skilyrðum sem til þarf. Refsiákvörðunin Brot mannsins taldi dómurinn stórfelld og alvarleg, framin á löng- um tíma i skjóli heimilis síns og í bifreið þar sem lítillar undankomu var auðið. Maðurinn hefði nýtt sér ungan aldur dótturinnar og traust hennar á sér sem foreldris og uppalanda. Brotin hefðu haft alvar- legar afleiðingar sem ekki sæi fyr- ir endann á. Við refsiákvörðun var einnig tekið mið af því að maðurinn ját- aði greiðlega og hefði greitt stúlkunni miskabætur áður en dómsmeðferð hófst og að hann hefði leitað til sérfræðings í geð- lækningum. Ingibjörg Benedikts- dóttir, héraðsdómari í Reykjavík, kvað upp dóminn. -Ótt Fréttaljós Óttar Sveinsson Afsalaði sér íbúð til stúlkunnar Faðirinn viðurkenndi allar sak- argiftir í ákæru. Hann hafði þá leit- að sér sérfræðiaðstoðar og kvaðst hafa ætlað að skýra frá atburðun- um í meira en eitt ár. Eftir að ákæra var gefin út afsalaði maður- inn sér íbúð til stúlkunnar og var því fallið frá skaðabótakröfu á hendur honum. Verðgildi bótanna var metið á rúmar 2,5 milljónir króna. Afleiðingar 7 ára misnotkunar Eins og í öðrum kynferðisbrota- málum kom fram við réttarhöldin að fórnarlambið í þessu tilfelli hef- ur átt við að stríða mörg vandamál sem afleiðingu af brotum fööurins gagnvart því - geðlægð, vanlíðan vegna þunglyndis, ótta, verulega innri ringulreið, skert sjálfstraust, einmanaleika, að forðast staði þar sem margt fólk er og erfiðleika með að geta treyst fólki.Einnig kom glöggt fram að langtímaeinkenni væru áhugaleysi og depurð sem byggist á vonleysi og neikvæðri sjálfsmynd. Afleiðing þessa er m.a. áhugaleysi í skóla. Stendur vart undir sjálfri sér Haft var eftir sérfræðingi fyrir dómi að stúlkan nærðist ekki, væri máttlaus og stöðugt veik - stundum liði henni svo illa að hún stæði ekki undir sjálfri sér. Einnig var tekið fram að til að hún gæti stund- að nám og vinnu í framtíðinni yrði hún að geta sótt viðtöl hjá sálfræð- ingi eða félagsráðgjafa til að losa sig út úr þeirri vanlíðan sem mis- notkunin hefur haft í för með sér fyrir hana og stendur henni fyrir þrifum í dag. Slíkt tæki oftast að meðaltali 3 ár og kostaði peninga sem stúlkan hafi ekki tiltæka í dag - hún situr því fost í vanlíðaninni. Tekið var til þess að stúlkan sé þrátt fyrir allt hæfileikarík og vel TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR: 1 Digital FM/MW/LW útvarp með 30 minnum ' 100 watta magnari ' 3ja diska geislaspilari með 30 minnum ' Tónjafnari m. 6 forstilltingum ' Tímastilling og vekjari ' Tvöfalt Dolby segulband ' Innstunga fyrir heyrnartól og hljóðnema > Fullkomin fjarstýring ... og margt fleira. 9» SpwwFawsiteiN SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 AKAI FULLKOMIN 1 OOW HUOMTÆKI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.