Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1996, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1996, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1996 Spurningin Hvað sástu síðast í leikhúsi? Luðvík Asgeirsson, vmnin' hjá Olis í Garðabæ: Súperstar. Hildur Hallvarðsdóttir, vinnur við heimilishjálp: Gauragang, það var rosastuð. Atli Erlingsson, nemi f húsa- smiði: Ofvitann, það var ágætt á sínum tíma. Páll Helgason bóndi: Eg hef ekki farið í leikhús lengi. Eygló Jónsdóttir hárgreiðslu- meistari: Ég sá Gauragang, það var mjög gott leikrit. Margrét Ingvarsdóttir húsmóð- ir: Það var í Borgarleikhúsinu en ég man ekki hvað leikritið hét. Lesendur Aðgeröir sjávarútvegsráðuneytis: Smábátum skal útrýmt Eru krókaleyfisbátar brátt úr sögunni? Ingvar Breiðfjörð skrifar: Fyrir nokkru barst mér frá Fiski- stofu bréf sem ég las með athygli. Þar mátti sjá þær reglur sem eftir skyldi farið ef ég vogaði mér að leysa landfestar á bátnum mínum. Ég fékk þá tilfinningu að ég hefði engan ráðstöfunarrétt á bátnum nema að tilkynna náðarsamlegast til Fiskistofu alla notkun, hvort sem væri til fískveiða eða annarra ferða. Slíkar reglur standast varla, held ég, færp þær fyrir dómstóla. Mönn- um, sem ætla að lifa af veiðum smá- báta, er gert það ómögulegt. Frá 1. febrúar tii 31. ágúst eru 144 virkir dagar. Trillusjómönnum er heimilt að róa 47 róðra á þessu tímabili og hljóta allir að sjá að þetta er orðið þröngt sniðið, vægast sagt. Ekki er sjálfgeflð að fara í aðra vinnu á milli, sem jaftivel finnst ekki, og varla erum við velkomnir á atvinnuleysisbætm:. Hvað skal þá gera? Allir sem lifa af þessu hljóta að fara lóðbeint á hausinn, enda reglugerðin eflaust sniðin með það í huga. Eitt það alvarlegasta í þessum reglum er hve vegið er að heiðri trillusjómanna með þessum svokall- aða „símakrók" sem er með öllu óþarfur. Tilkynningaskyldan fær ailar upplýsingar um ferðir bátanna og svo koma upplýsingar um afla frá hverri hafnarvog daglegá til Fiskistofu. Skyldi þetta ekki nægja? í reglugerðinni mættu hins vegar vera ákvæði um mjög hertar að- gerðir ef bátar tilkynna sig ekki til Tilkynningaskyldunnar. Þegar þessi flskveiðistefna var í undirbúningi lagði ég þann skilning i að þegar sóknardagakerfið tæki gildi væru allir banndagar úr sög- unni og menn mættu nota úthlutaða sóknardaga þegar gæfi á sjó en svo einfalt er það nú ekki. Nú skal skipta sóknardögum í 4 tímabil og það sem eftir er af þessu fiskveiði- ári í 3 tímabil með takmarkaðri til- færslu milli tímabila. Gefum okkur að ekki sé hægt að róa þessum litlu bátum nema mjög fáa róðra í febrúar, mars og apríl, og menn þurfi þá að færa sóknar- daga yfir á hin tímabilin. Þá skal margfalda þá daga með stuðlinum 0,5, sem sé fækka þeim um helming. Og gott betur því komi hálfur dagur úr margfeldinu skal honum sleppt. Lágmarkskrafan hlýtur að vera: Fleiri sóknardaga - burt með síma- krók. Að lokum vildi ég skora á sem flesta að láta frá sér heyra því ef heldur fram sem horfir þá eru dag- ar krókaleyfisbáta brátt úr sögunni. hér er miklu hærra Verðlag Halldóra skrifar: Ég hefi lengi ætlað að skrifa nokkur orð um verðlagiö hér á ís- landi miðað við það sem gerist í ná- grannalöndum okkar. Ég tek það fram að ég er ekki blönk en tel mig í hópi hinna hagsýnu. Nýlegar kannanir segja okkur að hér á landi sé verðlag sambærilegt og í nágrannalöndunum. Ég fuilyrði þó að verðlagið er miklu hærra hér á landi. Ég hef búið á öllum Norður- löndunum og í Bretlandi og get því staðið við þessa fullyrðingu, bæði hvað varðar neysluvöru og þjón- ustu. Á þessu er augljós skýring. Hún er sú að hér eru bæði framleiðslu- fyrirtæki og verslanir allt of smáar til þess að geta veitt þjónustuna ódýra. Á bak við hverja verslun hér á landi, sem hefur tiltölulega litla veltu, er oft einbýlishús, jeppar, sumarhús, og jafhvel hestar, mál- verkasafn, heimsklúbbar og fleira og fleira. Sama gildir um verksmiðj- ur hér á landi. Nú eru skipulagöar verslunar- ferðir af ferðaskrifstofunum á haustin og hafa þessar ferðir leitt til lækkunar verðlags á einstaka vöru- tegundum, svo sem á fatnaði. Ég hvet ferðaskrifstofurnar til að halda þessu áfram og vil benda þeim sér- staklega á að skipuleggja ferðir á út- sölurnar í nágrannalöndunum í byrjun hvers árs. Þá er verðið það lægsta sem gerist og hægt að gera góð kaup. Þar að auki er hægt að fá gott verð á hótelgistingu á þessum árstíma svo og aðra þjónustu. Hvalfjarðargöngin - óðs manns æði Magnús Sigurðsson skrifar: Hvalfjarðargöngin hafa verið nokkuð til umræðu að undanfomu og ekki að ástæðulausu. Ég hef les- ið greinar og lesendabréf um þetta mál, bæði í DV og svo einnig í Morgunblaðinu, og ég man ekki eft- ir einu skipti þar sem Hvalfjarðar- göng hafa verið varin eða látið í ljós álit á þörfinni fyrir þau. Nú síðast las ég prýðilega rök- studda grein í Morgunblaðinu eftir Gunnlaug Þórðarson hrl. gegn þess- um fyrirhuguðu göngum. Þeir sem ég hef heyrt ræða göngin telja þau beinlínis óðs manns æði og það skipti verulegu máli að þau verði ekki að veruleika. Hvaifjarðargöng upp á rúma 3 þjónusta allan í síma 5000 i kl. 14 og 16 Grynnafjörður Akrane: Saurbær Kjalarnes Til Reykjavikur ov Fjármögnun til Hvalfjarðarganga ætti ekki að ræða út frá neinu sjónarhorni, segir bréfritari m.a. Hnausaskersleiö, þ.e. jarðgöng frá Saurbæ að Hólabrú milljarða króna er svo fjarri öllum raunveruleika í nýframkvæmdum hér á landi við núverandi aðstæður að fjármögnun til framkvæmdanna ætti ekki aö ræða út frá neinu sjón- arhomi. Því verður að afturkalla ríkisábyrgð nú þegar, þótt Alþingi hafi steypt slíkri ábyrgð yfir skatt- borgarana. Auk þess sem ekkert kallar á jarðgangagerð á þessum slóðum mætti rétt eins huga að end- urbótum eða endumýjun Akranes- ferju, sem er mun minna fjárhags- dæmi. Og á meðan ekki er einu sinni kannað hvort brú yfir Hval- fjörðinn er ódýrari en jarðgöng ber stjómvöldum skýlaus krafa til að afturkalla öll afskipti af því óðs manns æði sem Hvalfjarðargöng eru. Málakunnátta Guðrúnar með eindæmum Hilmar Foss skrifar: í DV 19. þ.m. leyfir Bjöm Sig- urðsson sér að draga í efa mála- kunnáttu dr. Guðrúnar Péturs- dóttur forsetaframbjóðanda og telur hana takmarkaða við það sem almennt gerist. Byggir hann þar á útvarpsviðtali. Þegar Guð- rún kynnti framboð sitt laugard. 2. þ.m. sagðist hún hafa gott vald á Norðurlandamálunum, ensku, frönsku og þýsku og hygðist enn bæta um í þeim slðastnefndu. í viðtali við Helgarpóstinn 18. jan. lét ég m.a. í ljós aðdáun mína á grunnmenntun Guörúnar sam- kvæmt stúdentsskirteini hennar er sýndi einkunnir yfir 9 í öllum fogum, þ.á m. tungumálum. Franska var hennar annað móð- urmál allt að tíu ára aldri, hún stundaði m.a. nám í Austurríki og lauk háskólaprófum í Noregi og Bretlandi. Hún hefur einnig verið leiðsögumaður þýskumæl- andi ferðafólks. Ætla ég að tungumálakunnátta Guðrúnar Pétursdóttur sé með eindæmum. Gerir aðrir betur! Hrein saka- vottorð? Á.P.K. skrifar: í lesendabréfi í DV þriðjud. 20. þ.m. spyr Kjartan Ólafsson hvort „hreint og óflekkað mannorð“ hafi ekki lengur neina vigt þegar ráðið sé i stööur hjá hinu opin- bera. Er ekki timabært að fjöl- miðlar kanni þetta eitthvað frek- ar, t.d. hvort krafist sé aö við- komandi hafi hreint sakavottorð þegar þeir sæki um starf. Ef ekki á að tilkynna fólki um að hreinna sakavottorða sé ekki krafist lengur. Óhöpp í farþegaflugi Elln Guðmundsdóttir hringdi: Ég las nýlega í blaði saman- burð miili íslenskra flugfélaga á óhöppum og slysum í íslensku farþegaflugi. Stuttu síöar las ég svo aftur um að ein flugvél Flug- leiða hefði misst heila hurð á flugi yfir borg í Bretlandi. Ég man ekki eftir að hafa lesið frétt um þetta atvik. Þaö er kannski ekki úr vegi að upplýsa þetta nánar, úr því umræðan er nú komin á samanburðarstig milli flugféiaga. Kærumál á hendur biskupi: Enn þegir Mogginn Gunnar Jóhannsson hringdi: í lesendabréfi í DV sl. þriðju- dag voru stuttlega reifuð Bisk- upsmál hin nýju eins og sagöi í yfirskrift bréfsins. Furðaöi bréf- ritari sig á því að Morgunblaðið, stærsta blað þjóðarinnar, hefði fram að þeim tíma ekki minnst á kærumál tveggja kvenna á hend- ur biskupi íslands. Þetta undrar fLeirí. Og enn þegir Moggi. í dag, miðvikudag, er ekki minnst á biskupsmál, utan hvað vitnað er stuttlega í fréttatilkynningu frá Biskupsstofú um deiluna í Lang- holtssókn og þá kröfu lögfræð- ings séra Flóka um aö biskup víki vegna vanhæfi í deilunni. Annað, alvarlegra og stærra efni, snertir þó biskupsembættiö nú um stundir. Ríkið og vaxtamálin Friöjón skrifar: Ætlar ríkið að láta bönkunum þaö eftir að bitast um vaxtamál- in í landinu? Ríkisbankarnir svo og Seðlabankinn eru undir stjórn ríkisstjómar og þess vegna höfúm við bankamálaráð- herra að hann stjómi í hvaða farveg vextir sækja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.