Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1996, Blaðsíða 8
I
VIÐBRÖGÐ VIÐ KÚARIÐU í BRETLANDI
Útlönd
MÁNUDAGUR 25. MARS 1996
Stuttar fréttir
Panasonic
Htíifíi mymtibænrtiEttaatöi HtíBXBttD
OOaarviém^comítDál/fftstýýiétfU^xSXottttttmgááumtt
tfivn£ösýfr*kMini£*8*dHrjxk&í HDUOOíéékkl {Vfffrtr
hbiémááéénypétisméttmisUd
Tækið endurgreitt!
mtJSuSSSÍffl^»tLmiitc p"* 'i'
nurnmxntUíetíffmuml!
Htrrcómwrr
raAEiSl
BBHRmnwwMGDurni ®œ iwwNmuwNJi
Hillary Rodham Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna, klæðist hér jakka sprengjuflugmanns í heimsókn sinni til her-
stöðvar Bandaríkjamanna i Baumholder í Þýskalandi. Þar hlustaði hún á ung börn syngja en með henni á myndinni
er söngkonan Sheryl Crow. Flestir heimilisfeður í herstöðinni eru nú í Bosníu og sló heimsókn Hillary á ugg barn-
anna vegna þess. Símamynd Reuter
Lee vann forsetakosningarnar á Taívan:
Vilja ræða frið við Kína
Merki um friðarvilja og endalok
kreppu í samskiptum Taívans og
Kína voru greinileg beggja vegna
Taívansunds eftir að Lee Teng-hui
bar sigur úr býtum í forsetakosn-
ingunum á Taívan á laugardag.
Hlaut Lee 54 prósent atkvæðanna.
Lien Chan, forsætisráðherra Taí-
vans, sagði í gær að stjórnvöld íhug-
uðu alvarlega að hefja tvíhliða
samningaviðræður við Kína.
Merkja um friðarvilja varð einnig
vart í Kína þar sem stjórnvöld full-
yrtu að aðgerðir þeirra hefðu kæft
sjálfstæðisraddir á eynni. Stjórn-
völd í Peking leyndu þó ekki reiði
sinni í garð Bandaríkjamanna en
sjóher þeirra safnaði miklu liði við
Taívan þegar Kínverjar hófu heræf-
ingar á Taívansundi. Var það
stærsti herfloti Bandaríkjamanna í
þessum heimshluta frá því í Ví-
etnamstríðinu.
Kínverjar létu sér hins vegar fátt
um kosningaúrslitin finnast, end-
urtóku einungis að Taívan væri
hérað í Kína og Lee væri leiðtogi
fólksins þar. Talsmaður Kínverja
sagði að stefnan gagnvart Taívan
hefði ekki breyst. Hún væri enn
sem fyrr friðsamleg sameining.
Hvetja Kínverjar Taívana til að
aflétta viðskiptabanni og samgöngu-
banni gagnvart Kína.
Reuter
Boöar fall Saddams
írakar gengu til þingkosninga
þar sem flestir frambjóðendur
voru óháðir. George Bush, fyrr-
um Bandaríkjaforseti, spáði því
að dagar Saddams yrðu brátt
taldir, fólkið mundi steypa hon-
um af stóli.
Létu fanga lausa
Fyrrum stríðandi aðilar í
Bosniu létu fanga lausa en stór-
veldin höfðu hótað að láta af
uppbyggingarstarfi yrði ekki
farið að skilmálum Dayton-sam-
komulagsins.
Buchanan ekki búinn
Pat
Buchanan,
sem á ekki
möguleika á
að verða for-
setaefni
repúblikana
í bandarísku
forsetakosn-
mgunum,
sagðist kannski bjóða fram sem
óháður frambjóðandi.
Atök í Tsjetsjeníu
Tsjetsjenskir skæruliðar
drápu einn rússneskan her-
mann í Grosni og særðu þrjá.
Gáfust upp
Tveir andstæðingar mú-
slímskra stjórnvalda í Súdan
rændu flugvél í innanlandsflugi
og neyddu flugstjórann að fljúga
til Eritreu. Þar gáfust þeir hins
vegar upp. Reuter
Kínverjar draga línur
Kínverjar vilja takmarka
kosningafrelsi íbúa Hong Kong
þegar nýlendan kemst undir
kínversk yfirráð á miðju næsta
ári. Borgarstjóri harmaði þá
þróun.
Karl selur
Karl Bretaprins hyggst selja
postulin, teblöndur og blómafræ
með nafhi herragarðs síns, Hig-
hgrove, til að afla fiár til góð-
geröarmála.
Kohl styrkist
Sam-
steypusfjórn
Helmuts
Kohls, kansl-
ara Þýska-
lands, styrkt-
ist í auka-
kosningum í
þremur fylkj-
um í gær.
Kristilegir demókratar unnu í
einu fylki og komu vel út i
tveimur samkvæmt tölvuspám.
Snjófióö banar 36
Snjóflóð féll á afskekktan bæ í
Kashmír í Pakistan og varð 36
manns að bana.
Hóta blaðamönnum
Þrír blaðamenn á sænska dag-
blaðinu Expressen fara nú
huldu höfði eftir endurteknar
morðhótanir frá félögum mótor-
hjólagengis. Blaðamennirnir
höfðu skrifað greinar um glæpa-
og ofbeldisverk gengisins.
Hamas hóta árásum
Hamas-samtökin hóta fleiri
árásum á íbúa ísraels og full-
yrða að aðgerðir gegn herskáum
múslímum í kjölfar sprengjutil-
ræðanna á dögunum hafi misst
marks.
Hunsa kosningar
Sinn Fein,
stjómmála-
armur írska
lýðveldis-
hersins, segir
mögulegt að
félagar sínir
hunsi kosn-
ingar á Norð-
ur-írlandi í
maí sem ætlað er að koma frið-
arviðræðum af stað.
McDonald’s í Bretlandi bannar notkun bresks nautakjöts vegna kúariðu:
Talið að slátra þurfi
einni milljón nautgripa
Breska ríkisstjómin tilkynnti í
gær að til greina kæmi að slátra
stómm hluta breska nautgripa-
stofnsins svo koma megi í veg fyrir
útbreiðslu kúariðu sem aftur getur
valdið Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómi í
fólki sem neytir kjöts af sýktum
dýrum. Sjúkdómurinn getur valdið
lömun, andlegri hrömun og dregið
fólk til dauða. Yfirlýsing ríkisstjóm-
arinnar kom í kjölfar ákvörðunar
stjórnenda hamborgarakeðjunnar
McDonald’s í Bretlandi að banna
notkun nautakjöts á 660 sölustöðum
sínum í landinu.
Douglas Hogg landbúnaðarráð-
herra gaf sterklega í skyn að yfir-
völd væru reiðubúin að fara slátr-
unarleiðina svo minnka mætti það
áfall sem bresk nautakjötsfram-
leiðsla hefði þegar orðið fyrir.
„Slátrun er mál sem þarf að athuga
gaumgæfilega," sagði Hogg í sjón-
varpsviðtali.
Sir Richard Southwood, sérfræð-
ingur í dýrasjúkdómum, hefur mælt
með að einni milljón nautgripa sem
fæddir em fyrir 1990 verði slátrað
svo koma megi í veg fyrir fleiri til-
felli kúariðu. Það þýðir að 10 pró-
sentum stofnsins verði slátrað.
Óttinn við kúariðu hefur orsakað
innflutningsbann á bresku nauta-
kjöti í flestum ríkjum Evrópu og
fjölmörgum ríkjum utan hennar,
t.d. á Nýja-Sjálandi. írar eru mjög
uggandi um afkomu írskrar nauta-
kjötsframleiðslu og munu styðja
bann við útflutningi bresks nauta-
kjöts verði tillaga þar um borin upp
hjá Evrópusambandinu.
Sérfræðingar í dýrasjúkdómum á
vegum ESB munu funda í dag og
skoða þau tilfelli kúariðu sem kom-
ið hafa upp í Bretlandi. I framhald-
inu er búist við ákvörðun af hálfu
bandalagsins.
Taki bresk stjómvöld ákvörðun
um slátrun verður spjótunum beint
að eldri nautgripum þar sem afar fá
tilfelli kúariðu eru þekkt í dýrum
sem eru yngri en 30 mánaða eða síð-
an yfirvöld bönnuðu notkun slátur-
úrgangs við framleiðslu mannafæðu
árið 1989.
Talsmaður McDonald’s í Bret-
landi, sem daglega fæðir tæpar 2
milljónir Breta, sagðist trúa því að
öruggt væri að neyta bresks nauta-
kjöts en fyrirtækið yrði að bregðast
við ótta neytenda. Því verður hol-
lenskt nautakjöt notað í hamborg-
ara fyrirtækisins frá og með
fimmtudegi. Reuter
Singapúr, Nýja-Sjáland og Óman slógust í hóp margra
Evrópuríkja á föstudag og bönnuðu innflutning á
bresku nautakjöti þrátt fyrir fullyrðingar Breta um
að ekkert réttlætti slíkt bann.
■, Ríki sem bannað
hafa innflutning á
»"'* bresku nautakjöti.
Evrópusambandið
Dýrasjúkdómanefnd
bandalagsins heldur
neyðarfund í dag.
Svíþjóð
Finnland
Belgía
Frakkland
Spánn
Portúgal
ítalía
Austurríki
Grikkland
Holland
Innflutningur bannaður þar til dýrasjúkdóma-
nefndin hefur fundað í dag.
Danmörk, Lúxemborg
Engar aðgerðir. í Lúxemborg er beðið
eftir línu frá ESB.
írland
Engar aðgerðir en leiðandi nautakjöts-
framleiðendur óttast afleiðingar. Stjómvöld
munu styðja tillögur ESB um bann.
Nýja-Sjáland, Slngapúr, Suður-Afríka
Hafa öll bannað nautakjötsinnflutning
Japan
Stjórnvöld bönnuðu innflutning á bresku
nautakjöti af heilsufarsástæðum 1951.
Bandaríkin
Engin viðbrögð enn sem komið er. Ekki
talið að kúariðan skaði bandaríska fram-
leiðendur.
REUTERS
Þýskaland
VIÐBRÖGÐ ANNARRA EVRÓPURÍKJA
Frakkland:
Lögregla
handtekur
ólöglega inn-
flytjendur
Lögreglan í Parfs réðst til inn-
göngu í menntaskóla þar sem
um 300 afrískir innflytjendur
héldu til og kröfðust landvistar-
leyfis. Innflytjendurnir héldu til
í skólanum þar sem þeim haföi
verið úthýst úr nærliggjandi
kirkju. Tæplega 300 voru hand-
teknir, þar af 77 konur og 100
böm. Margir voru síðan látnir
lausir en 63 verður vísað úr
landi. Um 150 mannréttinda-
sinnar reyndu að hindra aðgerð-
ir lögreglunnar og veu: fjöldi
þeirra handtekinn.
Finnskir bjór-
svelgir kepptu
Finnskir bjórsvelgir komu
saman til þambkeppni á Eystra-
saltsferjunni SOja Scandinavia á
laugardagskvöld. Matti Puustiri-
en, 21 árs vélstjóri, sló keppi-
nauta sína út með því að tæma
21 bjórflösku ó einni minútu og
10,36 sekúndum. En 34 ára
námsmaður, Risto Saikkonen,
sigraði í þambi úr lítilli könnu,
svolgraði í sig 0,3 lítra á 1,61
sekúndu.
Lagt var að bryggju i höfninni
í Turku í gærmorgun og lét lög-
regla alla þá sem óku heim
blása í blööru. Reuter