Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1996, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1996, Blaðsíða 19
18 ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996 Þriðjudagur 2. APRÍL 1996 Iþróttir Lizarazu Ul Arsenal Arsenal skrifaði um helgina undir samning við varnar- og miðjumanninn Bizente Lizarazu frá Bordeaux í Frakklandi og var kaupverðið 150 milljónir. Frakk- inn mun klára tímabilið með Bordeaux en kemur svo í raðir Arsenal í sumar. Wright framlengir Mark Wright, varnarmaður Liverpool, hefur framlengt samning sinn við félagið um tvö ár en samingur hans átti að renna út í sumar. „Það er gott að þessu er lokið og nú er bara að halda áfram baráttunni um meistaratitilinn og bikarmeist- aratitilinn og tveimur góðum árum hjá Liverpool,” sagði Wright þegar samningurinn var í höfn. Pallister og Bruce Miklar likur eru á að Gary Pallister geti ekki leikið meira með Manchester United á þessu tímabili. Kappinn hefur átt við þrálát bakmeiðsli að stríða og hefur verið meira og minna frá undanfarna mánuði. Þá er Steve Bruce fyrirliði meiddur í hásin og verður að taka sér hvíld i ein- hverja daga. Hann leikur líklega ekki með United fyrr en 13. apr- U. Anderton að braggast Darren Anderton hjá Totten- ham er óðum að ná sér af meiðsl- um sem hrjáð hafa hann í allan vetur. Hann spUaði með varalið- inu í síðustu viku og gekk aUt að óskum. Hann bíður nú eftir að fá tækifæri með aðaUiðinu. Romario með fimm BrasUíski knattspyrnumaður- inn Romario gerði sér lítið fyrir og skoraði 5 mörk fyrir Fla- menco þegar liðið vann 6-2 sigur á Olaria í Rio de Janeiro meist- arakeppninni í Brasilíu um helg- ina. Þetta eru bestu tilþrif Rom- arios síðan hann var keyptur til liðsins frá Barcelona í fyrra. Árhus enn efst Árhus er enn í efsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspymu. Um helgina gerði liðið 1-1 jafntefli við Herföige, Bröndby og Viborg gerðu einnig jafntefli, 1-1, Vejle tapaði á heimavelli fyrir Kaupmanna- höfn, 1-1, og Ikast og Álaborg skUdu jöfn, 1-1. Árhus er efst með 46 stig, Bröndby 43, Lyngby 34. Köln rekur þjálfara Þýska liðið Köln, sem er í bull- andi fallhættu, rak þjálfara sinn Stephen Engels eftir 2-0 tap gegn Kaiserslautern um helgina. Nýi þjálfarinn hjá Köln heitir Peter Neuruer og er hann sá þriðji hjá félaginu á tímabilinu en fyrr í vetur þurfti Daninn Morten 01- sen að taka pokann sinn. Fjöl- miðlar í Þýskalandi spá því að Christoph Daum taki við liðinu á næsta tímabili en hann gerði garðinn frægan með því fyrir nokkrum árum. 1. apríl gabb íþróttadeild DV brá á leik í gær, 1. aprU. Hinn heimsfrægi leikmaður Eric Cantona hjá Manchester United var sagður á leiðinni tU landsins á vegum knattspyrnuskóla Bobbys Charlton. Fjöldi áhugasamra hringdi á DV í gær tU að fá nánari upplýs- ingar og margir fóru í Kringluna til að hitta kappann. Við vonum að lesendur hafi haft gaman af þessu öllu saman. Eiður fær lofsama dóma fjölmiðla - ungur og efnilegur og á heima í byrjunarliði PSV DV, Hollandi: Aðalfréttin á íþróttasíðum hol- lensku dagblaðanna eftir helgina var stórsigur PSV á Willem, 5-2, og tap Ajax fyrir Roda, 2-0. Spennan er mikil í hoUensku deildinni því mun- urinn á PSV og Ajax er 5 stig og lið- in eigast við í næstu viku. Eiður Smári, sem skoraði sitt annað mark með PSV, fékk mjög lof- samleg ummæli í hollensku dag- blöðunum fyrir frammistöðu sína gegn Willem. Blaðið Volkskrant sagði: „Hinn ungi og efnilegi Eiður átti mjög sannfærandi leik með PSV. Hann aðstoðaði Nilis sem skoraði tvö mörk og skoraði sjálfur eitt.” Telegraaf sem er langstærsta dagblað Hollands: „Góður varamað- ur fyrir Eijkelkamp, áberandi leik- maður sem vegna mikiUa meiðsla og leikbanns hefur fengið að spila með, fljótur að læra og hefur sýnt það að hann getur verið góður sem fastur maður í liðinu þrátt fyrir ungan aldur.” -EE Bell ekki áfram á Skaganum DV, Akranesi: Stigahæsti leikmaður úrvals- deildarinnar í körfuknattleik, MUton Sylvester Bell, verður ekki áfram á Skaganum á næstu leiktíð. „Milton gaf ekki kost á því að tala um nýjan samning og rauk af landi brott án þess að kveðja kóng né prest. Við munum því ekki óska eft- ir því að hann verði hjá okkur á næsta vetri, auk þess er hann of dýr biti fyrir okkur,” sagði Sigurður Sverrisson, ritari Körfuknattleiksfé- lags Akraness, í samtali við DV. Allir aðrir sem léku með Skaga- mönnum í vetur hafa í hyggju að leika áfram með liðinu á næsta tímabili. -DÓ Breiðablik sigraði á Drottningamótinu Breiðablik sigraði á árlegu Drottningamóti Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna sem fram fór í íþróttahúsin á Seltjarnarnesi á laugardaginn. Mótið er fyrir leikmenn, 25 ára og eldri, sem hætt hcifa knattspyrnu- iðkun og tóku lið Vals, KR og Vík- ings þátt í mótinu auk Breiðabliks. Er þetta í fjórða sinn sem mótið er haldið og hafa Valsstúlkur verið sigursælar á mótinu fram til þessa. Breiðablik og Valur léku til úrslita og sigraði Breiðablik 3-1. Síðar um kvöldið fór fram Kara- oke-keppni leikmanna 1. deildar kvenna. Þar héldu Blikastúlkur uppteknum hætti frá því fyrr um daginn og sigruðu í öllum keppnis- flokkum, þ.e. fyrir frumlegasta at- riðið, bestu sviðsframkomuna og besta sönginn. Valur á mót til Spánar og Breiðablik til Danmerkur Blika- og Valsstúlkur verða á far- aldsfæti um páskana. Valsstúlkur eru að fara til Spánar í æfingabúð- ir og jafnframt til að taka þátt í al- þjóðlegu 3ja liða móti sem þar fer fram. Blikastúlkur fara til Hjörring í Danmörku þar sem hið Opna Norð- urlandamót meistaraliða kvenna fer fram um páskana. Breiðabliks- stúlkur eru að taka þátt í þessu móti í annað sinn en þær fóru til Noregs sl. sumar. Lið frá Danmörku, Svíþjóð, Nor- egi og Rússlandi taka þátt í mótinu auk Blikanna. Shaquille O’Neal fer hér létt með gamla brýnið Patrick Ewing hjá New York og skorar tvö af 32 stigum sínum í leiknum. sigrinum tryggði Orlando sér sigur í Atlantshafsriðlinum, annað árið í röð. NBA-körfuboltinn: Orlando aftur meistari - í Atlantshafsriðlinum eftir sigur á New York í fyrrinótt Orlando tryggði sér í fyrrinótt sigur í Atlantshafsriðli NBA-deild- arinnar annað árið í röð með því að leggja New York að velli. Shaquille O’Neal skoraði 32 stig fyrir Orlando, Horace Grant 23 og Penny Hardaway 20 en hjá New York var Patrick Ewing atkvæða- mestur með 30 stig. Úrslitin í fyrrinótt: Orlando-New York........98-79 Boston-Atlanta...........92-93 Toronto-LA Lakers .... 106-111 Indiana-New Jersey . . . 118-100 Minnesota-LA Clippers . 107-110 Vancouver-Charlotte ... 88-121 SA Spurs-Phoenix ........97-83 Dallas-Portland .......100-115 Cleveland-Sacramento . 100-105 Lið SA Spurs er á mikilli sigl- ingu þessa dagana og sigurinn í fyrrinótt var sá 17. í röð hjá lið- inu. David Robinson skoraði 22 stig fyrir Spurs og Avery Johnson 20. Hjá Phoenix var Kevin John- son með 19 stig en Charles Barkley náði aðeins að setja niður 8 stig. Mookie Blaylock tryggði Atl- anta sigur á Boston með þriggja stiga körfu á lokasekúndunni. Steve Smith var stigahæstur hjá Atlanta með 17 stig og Blaylock 16 en hjá Boston var David Wesley með 21 stig. Vlade Divac átti stórleik með LA Lakers. Hann skoraði 20 stig og tók 19 fráköst. Magic Johnson lék einnig vel en hann var meö 19 stig og Cedric Ceballos 16. Tracy Murray var stigahæstur hjá Toronto með 32 stig og Carlos Rogers gerði 28 stig. Antonio Davis skoraði 21 stig fyrir Indiana og Reggie Miller 15 og hjá New Jersey var Chris ChUd með 19 stig. Rodney Rogers skoraði 25 stig fyrir LA Clippers og Loy Vaught 16. Isah Rider var atkvæðamestur í liöi Minnesota með 25 stig og Gugliotta 24. Ófarir Vancouver Grizzlies halda áfram og nú eru tapleikirn- ir í röð orðnir 22 hjá liðinu sem er nýtt met í NBA. Matt Geiger var stigahæstur hjá Charlotte með 20 stig og Larry Johnson 19. Portland er komið upp að hlið Phoenix í sjötta sæti vesturstrand- arinnar eftir sigur á Dallas. Arvydas Sabonis skoraði 21 stig fyrir Portland, þar af 17 í fyrri hálfleik, og Clifford Robinson skoraði 17. Tony Dumas skoraði 15 stig fyrir Dallas sem í leiknum sló nýtt met í NBA en 3ja stiga körfumar hjá liðinu á tímabilinu eru orðnar 647. Mitch Richmond og Brian Grant voru mennimir á bak við sigur Sacramento á Cleveland í framlengdum leik. Grant skoraði 32 stig, þar af 5 í framlengingunni, og Richmond skoraði 29, þar af 6 í framlengingunni. TerreU Brandon var stigahæstur hjá Cleveland með 20 stig og Chris MiUs skoraði 19. -GH Stefán Bjarkarson spáir í spilin þriðja leikinn í kvöld í Grindavík. I Handknattleikur: Héðinn aftur til Þýskalands? - er meö tilboð frá einu af toppliðunum í þýsku 2. deildinni Handknattleiksmaður- inn stóri og stæðUegi úr FH, Héðinn Gilsson, gæti verið á leið í at- vinnumennskuna að nýju. Héðinn, sem kom heim frá Þýskalandi síð- astliðið sumar eftir að hafa leikið með Turo Dússeldorf í þýsku úr- valsdeildinni síðustu fimm árin, er með tilboð frá þýsku 2. deildar liði og hefur hann í hyggju að skoða það nánar. „Ég get ekki neitað því að eitt af toppliðun- um í 2. deildinni hefur boðið mér samning. Það er útlit fyrir að þetta lið, sem ég vU á þessu stigi málsins ekki nafngreina, komist upp í úrvalsdeild- ina og mun ég halda út til Þýskalands síðar í þessum mánuði til að líta á aðstæður og ræða við forráðamenn félags- ins,” sagði Héðinn í sam- tali við DV í gær. „Þetta tilboð kom mér nokkuð á óvart en samt hefur þetta félag haft samband við mig áður. Ég tapa ekkert á þvi að skoða málið nánar,” sagði Héðinn enn frem- ur. Héðinn er samnings- bundinn FH. Hann gerði tveggja ára samning við FH í sumar og þyrfti að fá sig lausan undan samningi hjá félaginu færi svo að hann semdi við þýska liðið. Það stefnir í að marg- ir íslenskir handknatt- leiksmenn muni leika erlendis á næstu leiktíð. Eins og áður hefur kom- ið fram munu Valsmenn- irnir Dagur Sigurðsson og Ólafur Stefánsson leika með Wuppertal í þýsku 2. deildinni á næstu leiktíð, KA-mað- urinn Patrekur Jóhann- esson er búinn að semja við þýska liðið Essen, Magnús Sigurðsson, Stjörnumaður, er með tilboð frá þýsku 3. deild- ar liði og Konráð Olavs- son hefur verið að skoða aðstæður hjá félagi í Sviss. Þá verða lands- liðsmennirnir Geir Sveinsson og Júlíus Jón- asson áfram erlendis. Geir á eftir eitt ár af samningi sínum við franska liðið Montpellier og Júlíus gerði tveggja ára samning við sviss- neska liðið Suhl. Stórsigur á Tyrkjum íslenska unglingalandsliðið .skipað leikmönnum 18 ára og yngri í knattspymu, vann stór- sigur á Tyrkjum, 4-1, á alþjóð- legu móti sem stendur yfir á Ítalíu. Þorbjörn Atli Sveinsson gerði tvö mörk og þeir Valur Fannar Gislason og Haukur I. Guðnason hin tvö. Áður hafði íslenska liðið tap- að fyrir Sviss, 1-2. Næst verður leikið við Norðmenn. -JKS Celtic lifir í voninni - vann stórsigur á Aberdeen, 5-0, í gærkvöldi Leikmenn Glasgow Celtic fóru á kostum á heimaveUi sínum, Parkhead, í Glasgow í gærkvöldi þegar Aberdeen kom þangað í heimsókn í úrvals- deUdinni. Áður en yfir lauk voru leikmenn Celtic búnir að koma boltanum fimm sinnum I mark Aberdeen sem er í þriðja sæti deildarinnar. Þetta var stærsti sigur Celtic í vetur og versta útreið Aberdeen. Celtic lifir í voninni um að geta velgt Rangers undir uggum. Rangers hefur 75 stig og Celtic 69 en fimm leikjum er ólokið. Simon DonneUy og Pierre Van Hooydonk skoruðu sín tvö mörk og Portúgalinn Cadete, sem lék sinn fyrsta leik, það fimmta. Þess má geta að Celtic og Rangers eigast við í 4-liða úrslitum bikarsins á sunnudaginn kemur. -JKS ____________Iþróttir Stjarnan vann Úrslitin snerust við í leik Stjömunnar og Selfoss í deUda- bikarkeppninni i knattspyrnu í blaðinu í gær. Hið rétta er að Stjarnan sigraði í leiknum, 8-0. Mörkin skoruðu: Guðmundur Steinsson 3, Goran Migic 2, Valdimar Kristófersson, Ingólfur Ingólfsson og Loftur S. Loftsson. Staðan Skallagr. A-riðill: 3 3 0 0 9-1 9 ÍA 2 2 0 0 18-0 6 Stjarnan 2 2 0 0 15-2 6 Ægir 2 0 0 2 2-8 0 Selfoss 3 0 0 3 1-15 0 BÍ 2 0 0 2 0-19 0 FH B-rióill: 3 3 0 0 13-2 9 Valur 3 2 0 1 8-3 6 Völsungur 2 0 0 2 1-7 0 Dalvík 2 0 0 2 2-12 0 ÍBV C-riðill: 2 2 0 0 9-0 6 ÍR 2 1 1 0 5-3 4 Tindastóll 4 1 1 2 4-11 4 HK 3 1 0 2 6-5 3 KA 2 1 0 1 1-1 3 Haukar 3 1 0 2 1-6 3 Fylkir D-riðill: 3 3 0 0 8-2 9 Leiftur 3 2 0 1 12-2 6 Þróttur R. 3 1 1 1 5-5 4 Höttur 2 1 0 1 3-5 3 Léttir 3 0 1 2 1-10 1 Þróttur N. 2 0 0 2 3-8 0 Fram E-riöill: 3 3 0 0 7-2 9 Grindavík 3 2 1 0 10-5 7 Víðir 3 1 0 2 4-4 3 Víkingur R. 3 1 0 2 2-3 3 Sindri 2 0 1 1 3-6 1 Grótta 2 0 0 2 2-8 0 Breiðablik F-riðill: 3 3 0 0 22-1 9 Keflavik 3 2 0 1 8-3 6 Leiknir R. 2 2 0 0 4-2 6 Þór Ak. 2 0 0 2 2-8 0 Reynir S. 2 0 0 2 2-13 0 KS 2 0 0 2 1-12 0 Tvö íslendingalið komin í 8-liða úrslit bikarsins DV, Svíþjóð: Tvö Islendingalið komust í sunnudaginn í 8-liða úrslit í sænsku bikarkeppninni í knatt- spyrnu. Örgryte, lið Rúnars Kristinsson- ar, sigraði Elfsborg, lið Kristjáns Jónssonar, 0-4. Rúnar var veikur og get ekki leikið en Kristján lék allan leikinn og stóð sig vel. Pétur Marteinsson og félagar hans í Hammarby, lögðu Frölunda, 2-1. Sirius, lið Einars Brekkan, tapaði í framlengdum leik fyrir Öster, 3-4. Einar var ekki á meðal markaskor- ara. Óvæntustu úrslitin urðu þegar meistararnir í Gautaborg töpuðu fyrir 2. deildar liðinu Silvia, 2-1, þrátt fyrir að Gautaborg tefldi fram sínu sterkasta liði. -EH Grindavík og Keflavík í kvöld: Von a jafnari leik en hingað til - segir Stefán Bjarkason DV, Suðurnesjum: Ég á von á hörkuleik í kvöld og jafnframt jafnari leik heldur en fram að þessu. Mér líst ekki á stöðu Keflvíkinga ef þeir láta rassskella sig eins og í síðasta leik. Það er mín spá að ef Grindvíkingar vinna í kvöld með 30 stiga mun verði þeir íslandsmeistarar," sagði Stefán Bjarkason, kunnur körfuboltamað- ur hér á arum áður með Val, Njarð- vík og Keflvíkingum. Þriðja viðureign Grindvíkinga og Keflavíkinga verður í kvöld í Grindavík en að loknum tveimur leikjum standa leikar jafnt, 1-1. „Mér finnst Kerflvíkingar vera sterkari á pappírnum séð. Það á ekki að skipta máli fyrir þá þótt Grindavík sé að leika á heimavelli. Það getur vel verið að Keflvíkingar séu í einhverjum öldudal um þessar mundir og Grindvíkingar hins.veg- ar að toppa. Um þetta atriði er erfitt að staðhæfa nokkuð. Friðrik nær öllu því besta út úr sínum mönnum Friðrik Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga, á heiður skilinn og mér finnst hann hafa náð 100% út úr sínum leikmönnum. Hann er bú- inn að þjappa liðinu vel saman. Þetta minnir mig óneitanlega á þá stemningu sem hann náði upp hjá Njarðvíkingum þegar hann þjálfaði þá. Það sama er að gerast hjá Grind- víkingum. Núna síðast léku þeir sinn allra besta leik sem ég hef séð. Allir leikmenn liðsins voru þá að leika stórvel. Ég spái því að á endanum standi leikar 4-1 fyrir sig- urvegarann,” sagði Stefán Bjarka- son. TILBOÐSSPRENGJA Vorvörur á ótrúlegu veröi ÍÞRÓTTAGALLAR Barnastærðir aðeins kr. 1.990 ÍÞRÓTTAGALLAR Fullorðinsstærðir aðeins kr. 2.690 REGNGALLAR Barnastærðir aðeins kr. 2.490 SUMARJAKKAR aðeins kr 1.990 MIKRO FIBER íþróttagallar S til XL. Aðeins kr. 3.990 FÓTBOLTASKÓR nr. 33 til 39. Aðeins kr. 1.990 IÞROTTASKOR Leöurskór nr. 25 til 36 aðeins kr. 1.990 Opið laugard.. til kl. 16 SPORTVÖRUVERSLUNIN SPARTA Laugavegi 49 • Sími 551 2024^ -ÆMK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.