Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1996, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1996, Blaðsíða 16
16 veran ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996 Jj"V’ Margir unglingarnir eru mjög lokaðir. Alfa Freysdóttir, nemandi í grunnskólanum á Djúpavogi. Margir eru tilfinn- ingalega lokaðir „Þetta hefur alltaf gengið mjög vel. Það eru þó nokkrir sem ekki hafa fengist til þess að tjá sig, þeir eru of lokaðir til þess. Þeir sem ann- ars eru opnir stranda líka á tilfinn- ingunum eins og þeir lokuðu,“ segir Freyja Friðbjarnardóttir, kennari námsefnisins i Grunnskóla Djúpa- vogs. Henni er áhugi á efninu í blóð borinn en lokaritgerð hennar við Kennaraháskólann fjallaði um svip- uð mál. Á þeim tíma þótti hún mjög byltingarkennd. Krakkarnir voru yfir sig hrifnir af því að fjallað væri um þessi mál. DV-myndir Hafdís Erla Bogadóttir Nútímaleg Rauð- hetta og úlfurinn Krakkarnir á Djúpavogi fengu klukkutíma til þess að hafði ekki brotnað í átökunum. Rauðhettu litlu og veiði- semja leikþátt sem þeir fluttu síðan á foreldrafundi. Leikþátturinn fjallaði um Rauðhettu og úlfinn í nútíma- legum búningi. Mamma Rauðhettu sendi hana með harðri hendi til ömmu sinnar í skóginum með gos, rauðvín og hasskögg- ul í körfu. Hún var orðin mjög drykkfelld, sú gamla. Hún lá einmitt í rúminu og drakk viskí þegar úlfurinn át hana. Hún var samt fegnust því, þegar veiðimaðurinn bjargaði henni út úr úlfmum, að fleygurinn manninum tókst að lokum að tala ömmu til. Kannski hefur hún farið að hugsa eftir þessa hræðilegu lífsreynslu hve dýr- mætt lífið væri, sérstaklega án vímuefna. Eftir þetta fór amman í meðferð og sækir nú reglulega AA- fundi. DV, Djúpavogi: Margir foreldrar kannast við þá tilfinningu að standa ráðþrota og vita ekki hvar á að setja mörkin og hvernig best er að leysa mál er varða samskipti við börnin. Til að mæta þessari þörf er farið að kenna námsefnið Lions-Quest eða Að ná tökum á tilverunni. Nemendum í sjöunda og áttunda bekk á Djúpa- vogi hefur verið kennt hvernig þeir geta sagt nei við áfengi og öðrum vanabindandi efnum, stuðlað að heilbrigðum samskiptum við aðra og sett sér að markmiði ævilanga velgengni. Námsefnið er notað um allan heim og hafa þegar rösklega 800.000 unglingar lært það í fjöl- mörgum löndum. Lélegt sjálfstraust Sérfræðingar hafa komist að þeirri niðurstöðu að rekja megi mörg vandamál unglinga til lítils sjálfsálits, lítilla tengsla við fjöl- skyldu og lítillar fæmi í að taka ákvarðanir og hafa samskipti við aðra. Námsefnið kennir unglingun- um að gera sér grein fyrir þeim breytingum sem á þeim verða við upphaf unglingsárana. Það hjálpar þeim að öðlast sjálfstraust, ná tök- um á tilfinningum og temja sér bætt samskipti við fjölskylduna. Virkni foreldra Stuðlað er að virkri þátttöku for- eldra með því að fá þá til að vinna heimaverkefni með börnum sínum. Einnig fá foreldrar sérstaka for- Þetta var ekki gert í gamla daga „Mér finnst ég pæla meira í því hvernig mér líður. Ég á miklu auð- veldara með að segja mömmu frá tilfinningum mínum,“ segir Alfa Freysdóttir, nemandi í grunnskól- anum á Djúpavogi, eftir að hafa far- ið í gegnum námskeiðið Að ná tök- um á tilverunni. Ölfu langar til þess að læra leik- ræna tjáningu síðari hluta vetrar því að sögn hennar breytist bekkjar- andinn við það og ánægja innan hópsins eykst. Ölfu finnst ágætt að búa á Djúpavogi en kvartar samt yfir skorti á félagsaðstöðu. Það á hún sennilega sameiginlegt með öll- um unglingum landsins. „Ef félagsaðstaða væri til staðar drykkju krakkarnir síður en því miður gera sumir efstubekkingar það. Lífið hér gengur samt helst út á íþróttir þannig að enginn í skólan- um reykir,“ segir Alfa. -HEB eldrabók og röð funda er haldin þar sem fjallað er um neyslu unglinga á áfengi og öðrum fíkniefnum ásamt öðrum málefnum sem snerta upphaf unglingsáranna. -HEB Amma var orðin mjög drykkfelld en fór að lokum í meðferð. - Unglingar á Djúpavogi ná tökum á tilverunni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.