Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1996, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1996, Blaðsíða 15
jL>"V ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996 GHveran - I 1 i Andlitslyfting á eldra húsnæði Margt ungt fólk fjárfestir í gömlum íbúðum sem þarfnast andlitslyftingar. Mörg gömlu hverfin endurnýjast nú hratt og unga fólkið stendur frammi fyr- ir því að það hefur ekki efni á að skipta um eldhúsinnrétt- ingu, flísar í eldhúsi eða á baði þar sem greiðslubyrðin af íbúð- inni er allt of mikil. Þeir hinir sömu þurfa ekki að örvænta því ýmislegt er hægt að gera fyrir lítinn pening ef rétt er að staðið og ef maður brettir sjálf- ur upp ermarnar. Lakkað yfir flísar Vissirðu að það er hægt að mála yfír gömlu flísarnar í eld- húsinu og á baðherberginu? Það er raunverulega ekki nauð- synlegt að eyða hundruðum þúsunda í nýjar. Ef ykkur líkar ekki liturinn er ekkert annað að gera en drífa sig í málning- arbúð og velja sér lit á flisarn- ar. Flísarnar grunnaðar Til að byrja með eru flísarn- ar grunnaðar með bitæti- grunni, sem er mjög lyktar- sterkur, eða öðrum lyktarlaus- um grunni sem fæst í Litnum i Síðumúla. Hann er einnig hægt að nota á plast og flísar og virk- ar ekki síður. Grunnurinn er framleiddur í einum lit. Eftir það er nauðsynlegt að fara tvær umferðir yfir flísarnar. Jökul- lakk frá Hörpu og Blær frá Málningu hf. eru bæði góð til að lakka flísamar. Nýtt andlit á eld- húsinnráttinguna Þessar sömu grunntegundir er hægt að nota einnig á hurðir á eldhúsinnréttingunni, svo dæmi sé nefnt, ef liturinn fellur ekki i kramið. Einnig ef hurðir á innréttingunni eru úr ein- hvers konar plastefiii. Eftir að grunnurinn er kominn á er hægt að gera nánast hvað sem er við hurðimar. Hægt er að lakka þær, rúlla, úða og pensla. Best áferð við lökkun Að sögn Þorsteins er best að lakka hurð- irnar til þess að fá sem falleg- asta áferð. Hægt er að nota venjulegt olíulakk sem til er með mismunandi gljástigi. Ef ætlunin er að nota gljástig 90 er ekki hægt að rúlla lakkinu á hurðirnar. Endanlegri áferð verður að skila meö pensli ann- ars er hætta á að loftbólur sem ekki jafha sig myndist. -em Undirvinnan skiptir meira máli en málningarvinnan sjálf. Undirvinnan skiptir mestu máli „Það kemur oft fyrir að við mál- um fyrir fólk sem treystir sér ekki tfl þess sjálft. Flestir gera mistök í undirvinnunni þegar þeir mála sjálfir. Ef undirvinnan er ekki nægi- lega góð verður árangurinn í sam- ræmi við það. Ef ekki er nógu vel gengið frá skemmdum og fyUt upp í þær verður málningin ekki falleg. Málningarvinnan sjálf er minnsta málið því undirvinnan skiptir mestu máli,“ segir Þorsteinn V. Sig- urðsson málarameistari. Að sögn Þorsteins er best að huga fyrst að því hvort húsið lekur. Þá fyrst er hægt að hefja undirvinn- una. Þegar við ætlum að mála lang- ar okkur ekki tO að ata út öU hús- gögnin. Best er því að safna þeim saman á miðju gólfinu og breiða plast yfir þau. Að því búnu er hægt að hefja undirvinnuna. Nauðsynlegt er að rifa upp allar sprungur í veggjum og lofti með spaða og sparsla í þær tvisvar sinnum. Það er mjög mikUvægt að pússa eftir sparslið til þess að áferðin verði slétt og faUeg. Allar kverkar eru málaðar á und- an stóru flötunum. Fyrir þá sem ekki treysta sér til þess að mála við hurðar- og gluggakarma án þess að mála út fyrir er best að teipa aUt saman með málningarteipi. Ekki er þó ráðlegt að láta teipið liggja á of lengi. Efnin eru orðin mjög þægileg miðað við hvernig þau voru áður fyrr. -em - segir Þorsteinn V. Sigurðsson málarameistari „Það eru engir sérstakir litir í tísku núna og fólk málar nánast í öUum litum. Mér frnnst þó sterkir litir vera meira áberandi en áður. Það kemur varla fyrir að við séum beðnir að mála í hvítu eins og var : gert mikið fyrir nokkrum árum,“ segir Þorsteinn V. Sigurðsson mál- arameistari. DV leitaði til Þorsteins eftir góö- um ráðum fyrir þá sem ætla að mála íbúðina sína um páskana. Það eru jafn margir sem nota tímann um páskana til þess að laga til inni hjá sér eins og að hlaupa upp um fjöU á skíði og í gönguferðir. Þor- steinn segir að fólk sé farið að mála i dekkri litum en áður tíðkaðist. „Fólk málar oft einn eða tvo veggi sem standa sér mjög dökka. í mörg- um tilfeUum eru veggimir dökk- grænir eða dökkrauðir. Aðallitur- inn á veggina er oftast nær málaður í lit líka,“ segir Þorsteinn. Þegar undirvinnan er orðin nógu góð eru loftin máluð. Best er að velja málningu með gljástig fjögur en hún er svolítið mött. Byrjað er á því að mála með pensli í kverkarnar og siðan eru tvær umferðir málaðar í loftin. Gæta þarf þess að mála tvær um- ferðir með penslinum í kverkarnar líka. Mjög algengt er að sami litur og á loftinu sé látinn ná örlítið nið- ur á veggina til þess að fá hreina línu upp við kverkina. TU þess að gera beina línu á vegginn er notaður svokaUaður skurðarpúði sem hægt er að stilla breiddina á. Á eftir þarf að fara með pensli ofan í línuna því púðinn dregur frekar þunnt. -em Þorsteinn V. Sigurðsson segir að hvíta lína sé alveg búin að vera. DV-mynd BG Páika«ggjapoltur 96 19041750 iPátLxngjðapomjr 9é 9041750 XfftrX OO OO ■ ni linn Verö 39,90 mínútan Hrlngdu í síma 904 1750 og taktu þátt í skemmtilegum leik með Sparihefti heimilanna. 300 jföfr heppnir þátttakendur sem svara rétt þremur spurningum úr gómsœtt páskaegg frá Nóa Nöfn vinningshafa verða birt í DV miðvikudaginn 3. apríl. Páskaeggin verða afhent á 4. hœð í Perlunni laugardaginn 6. apríl, frá klukkan 14-17. Vinningshafar eru beðnir að hafa persónuskilríki meðferðis þegar eggin < eru sótt. sparihefti heimilanna fá - Síríusi í verðlaun. Sparihefti heimilanna Allir litir í tísku

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.