Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996
9
DV
Utlönd
Díana ótuktarleg við unnustu Játvarðar:
Hljóp grátandi
frá tedrykkju
Díana prinsessa lét alla kurteisi
lönd og leið þegar hún drakk eftir-
miðdagste ásamt Elísabetu drottn-
ingu og unnustu Játvarðar prins,
Sophie Rhys-Jones, í vikunni. Gerði
hún lítið úr Sophie og hæddi hana
með kvikindislegum háðsglósum
um hárgreiðslu hennar og fata-
smekk. Fór svo að Sophie þoldi ekki
meira og hljóp grátandi úr teboðinu.
Bresk blöð hafa þetta eftir vinum
Sophie sem hefur verið unnustu
Játvarðar prins, yngsta barns Elísa-
betar, í rúm tvö ár. Að sögn mun
Díana vera afar afbrýðisöm út í
Sophie, sem er 31 árs gömul og þyk-
ir líkjast Díönu allnokkuð. Þykir
Díönu að hinn nýi meðlimur kon-
ungsfjölskyldunnar fái heldur mikla
athygli en Sophie hefur fengið að
gista í Buckinghamhöll og farið í
reiðtúra með Elísabetu. Þykir hið
síðasttalda merki um að Sophie hafi
fallið í kramið hjá drottningu.
Diana, sem er að skilja við Karl
Bretaprins, mun ekki vera ein um
afbrýðisemina út í Sophie. Sarah
Ferguson, hertogaynja af York, sem
er skilin að borði og sæng við Andr-
és prins, mun einnig vara gripin af-
brýðisemi. Henni, eins og Díönu,
finnst Sophie fá mun betri móttökur
en hún fékk á sínum tíma. Díana
hefur auk þess talað opinskátt um
konungsfjölskylduna sem óvininn
og hvernig hún var einangruð
fyrstu árin í hjónabandinu með
Karli. Reuter
Færeymgar búnir með kvótann:
Leggja veröur flotanum
fram a
Ari Sigvaldason, DV; Kaupmannahöfn:
Krafa dönsku ríkisstjórnarinnar
um að fast verði haldið við þá stefnu
að byggja upp fiskistofnana í kring-
um Færeyjar og auka því ekki fisk-
veiðikvóta á næstunni nýtur ekki
vinsælda á eyjunum. Færeyskir sjó-
menn eru nú fyrir alvöru farnir að
fmna fyrir stefnunni og á næstunni
þykir ljóst að hætta verður alveg
veiðum fram á haust nema þorskk-
vótinn verði aukinn. Sjómenn sem
eiga báta undir 20 tonnum hafa þeg-
haust
ar lagt bátunum. Ivan Johannesen,
sem fer með sjávarútvegsmál í lands-
stjórninni, segir að færeyska flotan-
um verði öllum lagt á næstunni verði
kvótinn ekki aukinn. Verði kvótinn
ekki aukinn hefur það einnig áhrif á
veiðar annarra tegunda en þorsks
þar sem ekki verður hjá því komist
að þorskur slæðist í veiðarfærin. En
reyndar hefur verið lagt fram frum-
varp í lögþinginu þess efnis að þorsk-
ur fái að vera ákveðið hlutfall af afla
annarra tegunda svo ekki er útséð
með veiðar annarra tegunda.
HÁSKÓLANÁM
í REKSTRARFRÆÐI
Hagnýtt alhliða háskólanám í rekstrarfræðum.
Víðtækur og vandaður undirbúningur
fyrir stjórnunarstörf og viðskipti
• Fjöldi námsgreina á sviði stjórnunar, markaðsmála,
fjármála, lögfræði og upplýsingatækni
Áhersla á tengsl við atvinnulífið m. a. með
raunhæfum verkefnum
Þjálfun í samskiptum og tjáningu
Gott bókasafn og aðgangur að erlendum gagnabönkum
Alþjóðleg viðfangsefni
SAMVINNUHASKOLINN A
311 Borganes, sími 43-50000, bréfsími 43-50020
Samvinnuháskólinn hefur frá árinu 1990 útskrifað
rekstrarfræðinga eftir tveggja ára nám á háskólastigi. Vorið
1 995 útskrifaði Samvinnuháskól inn fyrstu
rekstrarfræðingana eftir þriggja ára nám með BS-gráðu.
Samvinnuháskólinn á Bifröst er sjálfseignarstofnun. Skólinn
er staðsettur í fögru umhverfi á Bifröst í uppsveitum
Borgarfjarðar en þar hefur verið skólahald síðan 1955 er
Samvinnuháskóiinn var fluttur þangað úr Reykjavík.
Bifröst