Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996 25 %idge w Úrslit Islandsmóts í sveitakeppni: Óvenjumargar landsbyggðarsveitir Urslit Islandsmótsins í sveita- keppni fara fram dagana 3.-6. apríl í húsakynnum Bridgesambandsins að Þönglabakka 1. Að þessu sinni eru 3 sveitir frá landsbyggðinni af 10 í úrslitum, en síðastliðin ár hafa þær oftast verið 1-2. Sennilega er það merki um að styrkur lands- byggðarinnar gagnvart höfuðborg- arsvæðinu sé að aukast. Þrátt fyrir að landsbyggðin eigi 3 fulltrúa, verður þó að teljast að sveitir frá höfuðborgarsvæðinu séu líklegastar til sigurs. Sveit Lands- bréfa, núverandi Islandsmeistara sleppir örugglega ekki hendi af titl- inum baráttulaust, en líklegt má telja að sveitir VÍB og Búlka þjarmi illilega að íslandsmeisturunum. Vel má vera að fleiri sveitir blandi sér í þá baráttu. Sveit Ólafs Lárussonar var í öðru sæti í fyrra, sveit Samvinnuferða-Landsýna, er einnig firnasterk og Bangsímon og landsbyggðarsveitirnar Anton Har- aldsson og Þormóður rammi gætu vel komist langt. Ljóst er því að fjöl- margar sveitir gætu hampað titlin- um í lokin. Sveit VÍB er skipuð firnasterkum spilurum sem allir hafa reynslu af spilamennsku í landsliðum Islands í opnum flokki. Guðlaugur R. Jó- hannsson og Örn Arnþórson, úr sveit VÍB, voru í hinu fræga lands- liði sem vann til heimsmeistaratit- ils í Japan haustið 1991. Þegar þeir eru í stuði, standast fáir þeim snún- ing. Hér er eitt spil úr undankeppni íslandsmóts, þar sem Guðlaugur og Örn náðu fallegri slemmu. Spilið kom fyrir í leik sveitarinnar við Jó- hannes Jónsson. Sagnir gengu þannig, norður gjafari og allir á hættu: 4 873 «4 G865 4 642 * G95 4 A64 D10 ♦ ÁKDG1095 4 10 N 4 KD105 * Á974 * 83 * 763 4 G92 K32 4 7 4 ÁKD842 Norður Austur Suður Vestur pass pass 14 Dobl pass 14 24 34 pass 3* pass 34 pass 4* pass 44 pass 4g pass 64 pass 64 p/h Opnun suðurs var eðlileg og Örn doblaði til úttektar. Einn spaði aust- urs lofaði einhverjum spilum (1 hjarta hefði verið afmelding) og þrír tíglar vesturs var úttektarkrafa (game). Fjögur hjörtu var fyrir- stöðusögn og fjögur grönd lýstu áhuga á að spila slemmu. Örn stakk upp á 6 tíglum, en Guðlaugur taldi 6 spaða jafnvel betri samning. Ef Örn átti aðeins 6 tígla, var nauðsynlegt að trompa lauf í blindum til að fá 12 slagi og Guðlaugur taldi nánast ör- uggt að norður ætti ásinn (og jafn- vel gosann) í spaða. Örn féll ekki í þá gryfju að svína fyrir spaðagos- ann og spilið var auðunnið. Umsjón ísak Sigurðsson Öm Arnþórsson og Guðlaugur R. Jóhannsson spila í sveit VÍB, sem næsta örugglega verður í baráttunni um verðlaunasæti í úrslitum ísiandsmótsins í sveitakeppni. DV-mynd ísak Spilamennskan hefst klukkan 15.20 miðvikudaginn 3. apríl, lýkur um eða eftir miðnætti þann dag, hefst aftur kl. 11 fimmtudaginn 4. apríl og spilað til miðnættis. Sjötta umferðin hefst fostudaginn 5. apríl kl. 15.20 og spilað til miðnættis, en 8. umferð hefst kl. 11 laugardaginn 6. apríl og mótinu lýkur með 9. um- ferð rúmlega 19 á laugardagskvöld- ið. Skipan sveita, töfluröð 1. Samvinnuferðir/Landsýn 2. Verðbréfamarkaður Islandsbanka 3. Aðalsteinn Jónsson 4. Ólafur Lárusson 5. Landsbréf 6. Þormóður Rammi 7. Lyfjaverslun íslands 8. Búlki hf. 9. Anton Haraldsson 10. BangSímon -ÍS DYLAN MCDERMOT A JODIE FQSTER F I L M TIOM E FORTftE flOLIDAYS GERALDINE CHAPLIN CYNTHIA STEVENSON CHARLES DURNING HOLLY HUNTER ROBERT DOWNEYJR. ANNE BANCROFT PÁSKAMYND HÁSKÓLABÍÓS LADA getur verið raunhæfur kostur fyrir þig Lada Skutbíll - Rúmgóður og kraftmikill Hentar þeim sem þurfa talsvert farangursrými. Jafnvígur sem vinnubíll og fjölskyldubíll. 697.000 kr. Lada Samara - Lúxus án íburðar. Samara er rúmgóður, sparneytinn og ódýr bíll sem hefur notið mikilla vinsælda hér á landi í gegnum tíðina. 664.000 kr. Lada Safír - Ódýrasti bíllinn á íslandi. Sterkbyggður og eyðslugrannur fimm manna bíll sem hentar vel í bæjarakstri og er öruggur í langferðum. 588.000 kr. Negld vetrardekk og sumardekk fylgja. LAPA afar raunhæfur kostur ÁRMÚLA 13, SfMI: 568 1200 BEINNSÍMI: 553 1236 Lada Sport - Öflugri og betur búinn. Mun öflugri vél, léttara stýri, stærra farangursrými, betri sæti, ný og breytt innrétting. 989.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.