Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Page 28
28
MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996
MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996
53
íþróttir
íþróttir
Úrslit úrvalsdeildar:
Æsispenna
í lokin og
Grindavík
hefur betur
DV, Suðurnesjum:
Helgi Jónas Guöfinnsson
tryggði Grindvíkingum dýrmætan
sigur í úrslitarimmunni viö Keila-
vik í gærkvöldi með körfu á síö-
ustu sekúndum leiksins. Grinda-
vík sigraði með eins stigs mun,
68-67, og hefur náö forystunni
gegn Keflavík, 2-1.
Jón Kr. Gíslason kom Keflvík-
ingum yfir þegar um 20 sekúndur
voru til leiksloka og Keflvíkingar
voru of fljótir á sér að fagna sigri.
Grindvíkingar notfærðu sér það
og gleymdu að valda Helga Jónas
sem var á auðum sjó er hann skor-
aði sigurkörfuna. Keflvikingar
fengu síöan tækifæri til að inn-
byrða sigur í blálokin en Grind-
víkingar vörðust vel. Fögnuður
heimamanna var gríðarlegur í
leikslok og stuðningsmenn liðsins
stigu trylltan stríösdans þegar sig-
urinn var í höfn.
Leikurinn var mjög jafn og
spennandi allan tímann. Liðin
skiptust á að hafa forystu. Keflvík-
ingar virtust vera með leikinn í
hendi sér í lokin en heimamenn
skoruðu grimmt af vítalínunni og
það vegur þungt þegar upp er
staðið.
Grindvíkingar spiluðu fast að
körfu Keflvíkinga og voru
óhræddir við að brjótast í gegn og
láta Keflvíkinga bijóta á sér. Kefl-
víkingar hafa ekki verið nægilega
beittir í sókninni. í öðrum leik lið-
anna fékk liðið ekkert vítaskot og
aðeins fjögur í leiknum í gær-
kvöldi.
Grindvíkingar eru nú yfir, 2-1,
og næsti leikur í Keflavík verður
líklega mikilvægasti leikur lið-
anna í úrslitunum. Fróðlegt verð-
ur að sjá hvaöa áhrif úrslitin í
tveimur síðustu leikjum hafa á
Keflvíkinga og hvort þeir ná að
rífa sig upp eftir tvö erfið töp.
Grindvíkingar færðust nær
meistaratitlinum í gærkvöldi og
með sigri í Keflavík í næsta leik
standa þeir með pálmann í hönd-
unum.
-SK/-ÆMK
Dagur Sigurðsson, fyrirliði Vals:
Man ekki eftir því að hafa
tapað á heimavelli fyrir KA
DV, Akureyri:
„Við misstum þá allt of langt frá okkur i fyrri hálfleik og öll orkan fór í að vinna
upp muninn. Við misstum mann út af á afdrifaríku augnabliki þegar munurinn var
var aðeins eitt mark. Ég lít bjartsýnum augum á næsta leik og ég man ekki eftir
því að hafa tapað fyrir KA á heimavelli,“ sagði Dagur Sigurðsson, fyrirliði Vals.
Hinn nýi og glæsilegi bikar, sem Reykjavíkurborg hefur gefið, var til staðar í KA-
húsinu í gær en Ólafur B. Schram, formaður HSÍ, og Öm Magnússon, framkvæmda-
stjóri HSÍ, komu með hann að sunnan. Eftir leikinri lágu stuðningsmenn KA ekki á
skoðun sinni og sögðu við þá HSÍ-menn, viljið þið ekki skilja bikarinn eftir!
-KG/GH
Dagur Sigurðsson, fyrirliði Vais,
er bjartsýnn fyrir leikinn á
5-7, 13-7, 19-13, 19-20, 26-30, 38-32 (40-36), 40-41, 49-49, 62-65, 66-65, 66-67, 66 67.
Sdg Grindavíkur: Rodney Dobard 19, Marel Guðlaugsson 14, Hjörtur Harðarson
13, Helgi Jónas Guöflnnsson 10, Guðmundur Bragason 9, Unndór Sigurðsson 3.
Sdg Keflavlkur: Dwight Stewart 19, Guðjón Skúlason 12, Davíö Grissom 10, Sig-
urður Ingimundarson 9, Albert Óskarsson 7, Jón Kr. Gíslason 6, Falur Haröarson
4.
3ja stíga körfur: Grindavík 6/23, Keflavík 6/21.
Fráköst: Grindavik 40, Keflavík 40.
Flest fráköst Grindavíkur: Guðmundur 10, Dobard 9.
Flest fráköst Keflavikur: Stewart 12, Guðjón 8.
Flestar stoðsendingar Grindavíkur: Hjörtur 4, Dobard 3.
Flestar stoðsendingar Keflavíkur: Falur 5, Albert 4.
Varin skot: Marel 2, Dobard 2 - Grissom 1.
Vítanýtíng: Grindvík 12/15, Keflavík 3/4.
Dómarar: Leifur S. Garðarsson og Jón Bender, góðir og dæmdu erfiöan leik vel.
Áhorfendur: Um 1100.
Maöur leiksins: Rodney Dobard, Grindavík.
Rodney Dobard átti stórleik fyrir Grindavfk í gærkvöldi og átti ekki lítinn þátt í
mjög mikilvægum sigri Grindvíkinga.
Spilað í Höllinni?
DV, Akuieyri:
Hugsanlegt er að
fjórði úrslitaleikur
Vals og KA fari fram í
Laugardalshöllinni
annað kvöld en ekki
að Hlíðarenda.
Samkvæmt heim-
ildum DV þá hefur
ÍBR óskað eftir því
við Valsmenn að leik-
urinn verði í Höllinni
og mun það vera til-
búið að fella niður
húsaleiguna. Ekki er
víst að Valsmenn
verði við þessari bón
ÍBR enda þykir
heimavöllur þeirra að
Hlíðarenda geysi-
sterkur og hefur liðið
einungis tapað einum
leik þar í úrslita-
keppni íslandsmóts-
ins frá upphafi.
-GH
Grindavik
ICefEavik
Grindavík - Kcflavík ( 40-36 ) 68-67
KA-liðið fékk gífurlegan stuðning frá stuðningsmönnum sínum í troðfullu KA-menn fögnuðu vel og innilega eftir sigurinn á Val á Akureyri í gærkvöldi enda eygja þeir nú enn möguleika á að hreppa íslandsmeistaratitilinn. í búningsklefa KA var mikið fjör og tóku leikmenn liðsins
KA-húsinu í gær og enn á ný sannaðist að heimavöllur KA er sá besti á sigurhrópið. Fjórði úrslitaleikur liðanna fer fram í Reykjavík annað kvöld og þá ræðst það hvort Valur vinnur titilinn fjórða árið í röð eða hvort KA nælir sér í oddaleikinn á Akureyri. DV-myndir Svanur
landinu.
KA-menn eiga enn von
„Hélt að boltinn myndi
ekki fara í körfuna"
DV, Suðurnesjum:
„Ég hélt að boltinn
myndi ekki fara ofan
í körfúna. Mér fannst
skotið vera of stutt
en síðan lak hann
ofan í og þetta var
ljúft. Það var ekkert
búið aö ganga upp
hjá mér í leiknum,"
sagði Helgi Jónas
Guðfinnsson, en
hann tryggði Grind-
víkingum sigur á síð-
ustu sekúndu leiks-
ins.
„Þetta var mjög
mikilvægur sigur. Ég
held að þeir sem
borguðu sig inn á
þennan leik hafi feng-
ið mikið fyrir eyrinn.
Það var alveg gríðar-
leg spenna í þessum
leik. Viö reynum að
koma sterkir til leiks
í Keflavik og við
verðum í góðum mál-
um ef við vinnum
þar í næsta leik,“
sagði Helgi Jónas.
„Sárara getur
þetta ekki verið“
„Sárara getur þetta
ekki verið. Við vor-
um of uppteknir við
að fagna körfunni
hans Jóns. Menn
gleymdu Helga og því
miður var enginn í
honum og hann fór
alla leið,“ sagði Einar
Einarsson, liðsstjóri
Kefivíkinga, eftir
leikinn.
„Við eigum svolít-
ið inni ennþá. Margir
leikmenn í liði okkar
eru ekki að spila af
eðlilegri getu og von-
andi rífa þeir sig upp.
Það er mjög slæmt að
tapa eftir rassskell-
inguna síðast en von-
andi þjappar þetta
mönnum saman og
við mætum tilbúnir í
næsta leik. Ég get lof-
að ágætum Keflvík-
ingum að viö munum
bíta frá okkur í þeim
leik,“ sagði Einar
Einarsson.
-SK/-ÆMK
eftir góðan sigur gegn Valsmönnum á Akureyri í gærkvöldi, 28-26, í þriðja leik liðanna
DV, Akureyri:
KA-menn eiga enn von um
að hampa íslandsmeistaratitl-
inum í fyrsta sinn eftir sigur á
Val, 28-26, í þriðja úrslitaleik
liðanna á Akureyri í gær-
kvöldi. Þar með er staðan 2-1
Val í hag í einvígi liðanna um
titilinn og fjórði úrslitaleikur-
inn fer fram í Reykjavík annað
kvöld.
Það er óhætt að segja að
sveiflumar í leiknum hafi ver-
ið miklar. KA-menn voru betri
á öllum sviðum í fyrri hálfleik
og náðu yfirburðastöðu en í
síðari hálfleik snerist dæmið
við. Valsmenn náðu að snúa
leiknum sér í vil og minnka
muninn í eitt mark eftir 15
minútna leik en heimamenn
reyndust svo sterkari á loka-
sprettinum.
KA spilaði frábæran fyrri
hálfleik og byrjun þeirra í
leiknum verkaði eins og rot-
högg framan í Valsmenn. Val-
ur komst lítt áleiðis gegn
sterkri vöm KA og fyrir aftan
hana var Guðmundur Arnar í
finu formi. Sóknarleikur KA-
manna gekk eins og vel smurð
vél og hvað eftir annað náðu
þeir að opna Valsvömina upp
á, gátt. Þegar munurinn var
orðin 9 mörk áttu flestir von á
stórsigri heimamanna. En
Valsmenn sýndu frábæran
karakter. Með gjörtapaða
stöðu bmgðu þeir á það ráð að
taka Duranona og Patrek úr
umferð og segja má að þetta
herbragð hafi heppnast. KA-
menn fóm að leika óyfirvegað
í sókninni og Valsmenn gengu
á lagið. Þeir nýttu fyrstu 10
sóknir sínar 1 síðari hálfleik og
náðu þvi sem fæstir áttu von á,
það er að hleypa spennu í leik-
inn. Þegar munurinn var kom-
inn niður í ei.tt mark gáfu þeir
óvænt Patreki og Duranona
lausan tauminn og það var
eins og við manninn mælt, KA-
liðið fékk aukið sjálfstraust og
seig fram úr á ný. Duranona
var bestur í liði KA en hjá Val
komst Ólafur Stefánsson best
frá leiknum. -GH
„Þetta er það sætasta"
„Þetta er það sætasta og það er ekki hægt að vinna sætari sigra en á
síðustu sekúndunni. Við vissum fyrir leikinn aö þetta yrði barátta fram
á síðustu sekúndu," sagði Marel Guðlaugsson, leikmaður Grindavíkur,
í samtali við DV eftir leikinn gegn Keflavík.
„Þetta var ekta úrslitaleikur og núna er gaman að vera til. Það sem
gildir hjá okkur núna er að koma vel stemmdir til leiks í Keflavík í
næsta leik,“ sagði Marel. -SK/-ÆMK
Erlingur Kristjánsson:
Pressan er á Val
DV, Akureyri:
„Við vorum líflegir í
fyrri hálfleik og vorum að
spila mjög góða vöm sem
gaf okkur hraðaupphlaup.
í síðari hálfleik hleyptum
við þeim of nálægt og það
var farið að fara um mann
en þeir eyddu of mikilli
orku að brúa bilið,“ sagði
Erlingúr Kristjánsson, fyr-
irliði KA, við DV eftir
leikinn.
„Framhaldið leggst vel í
mig. Pressan er á Vals-
mönnum að klára þetta á
heimavelli. Nú vitum við
hins vegar hvað við getum
þegar okkur tekst vel
upp,“ sagði Erlingur enn
fremur.
Þarf ekki að spila
fimmta leikinn
„Leikurinn á fimmtu-
daginn er algjör úrslita-
leikur því ef til fimmta
leiksins kemur á Akureyri
á laugardaginn þarf ekki
að spila hann,“ sagði
Patrekur Jóhannesson eft-
ir leikinn. -KG
Jón Kristjánsson:
Lentum í algjörri
þvælu í fyrri hálfleik
DV, Akuieyri:
„Við lentum í algjörri
þvælu í fyrri hálfleik og
spiluðum ekki okkar
bolta. Allt fór úrskeiðis
sem gat farið úrskeiðis.
Við fóram vel yfir stöðuna
í hálfleik og okkur tókst
að minnka muriinn í eitt
mark með góðum leik en
því miður ekki meira,“
sagði Jón Kristjánsson,
þjálfari Vals, við DV eftir
leikinn í gær.
- Af hverju hættuð þið
að taka Patrek og Dura-
nona úr umferð?
„Þetta er hlutur sem
gengur aldrei lengi í einu
og ég hef ekki trú á það
þýði að spila svona vöm á
KA heilan leik.
Ég verð að vera bjart-
sýnn fyrir næsta leik. Við
klúðruðum þessum leik í
fyrri hálfleik og það gerist
ekki aftur,“ sagði Jón.
-KG
Guðmundur Hrafnkelsson fékk að finna fyrir skothörku Duranona þegar
hann fékk skot Kúbumannsins í andlitið í síðari háifleik.
NBA í nótt:
Chicago
lék vel
í Miami
Dennis Rodman lék aö nýju meö
Chicago í nótt. Michael Jordan og
Scottie Pippen skoruðu hvor 32 stig í
leiknum. Alanzo Mouming skoraði
24 stig fyrir Miami.
Anthony Mason gerði 23 stig fyrir
New York í jöfnum leik gegn Indiana.
Charlotte stöðvaði LA Laker í hörku-
leik. Glen Rice geröi 27 stig fyrir
Charlotte og Cedric Ceballos 35 stig
fyrir Lakers.
Charles Barkley skoraði 28 stig fyrir
Phoenix og það sama skoraði Ðavid
Robinson fyrir San Antonio.
Damon Stoudamire skoraði sigur-
körfu Toronto gegn LA Clippers.
Úrslit leikja í nótt:
Miami-Chicago.............92-110
Charlotte-LA Lakers.......102-97
Atlanta-Boston............109-89
Toronto-LA Clippers......104-103
Indiana-NY Knicks..........86-90
Milwaukee-Detroit ........105-98
Dallas-Sacramento ........97-104
Denver-Minnesota ..........86-78
Utah Jazz-Seattle ........91-100
Phoenix-SA Spurs.........111-104
Golden State-Houston .... 106-112
Portland-Vancouver .......101—85
-JKS
Sigurjón lék
vel í Hórída
Sigmjón Amarsson, kylfingur
í GR, varð í 14. sæti af 70 kepp-
endum á golfmóti atvinnu-
manna í Flórída.
Sigurjón lék á 72 höggum en
mótið vannst á 68 höggum. -SK
UEFA-keppnin:
Barcelona og
Bordeaux með
góða stöðu
Barcelona og Bordeaux standa
vel að vígi eftir fyrri leikina í
undanúrslitum Evrópukeppni fé-
lagsliða í gærkvöldi.
Barcelona gerði jafntefli viö
Bayem Múnchen í Þýskalandi,
2-2, eftir að Barcelona hafði
komist yfir, 0-1. Bayem komst
síðan yfir, 2-1, en Barcelona
jafnaði.
í Prag vann franska liðið
Bordeaux góðan útisigur og er
því komið meira en hálfa leið í
úrslitaleikinn eins og Barcelona.
KA - Valur
(17-10) 28-26
5-1, 16-7, 16-10 (17-10), 18-10,
19-14, 20-16, 20-17, 21-19, 21-20,
22-21, 24-22, 26-22, 26-24, 28-26.
Mörk KA: Julian Duranona
11/3, Patrekur Jóhannesson 6,
Björgvin Björgvinsson 4, Jóhann
G. Jóhannsson 3, Leó Öm Þor-
leifsson 2, Atli Þór Samúelsson 1,
Heiðmar Felixsson 1.
Varin skot: Guðmundur A.
Jónsson 15.
Mörk Vals: Ólafur Stefánsson
7/5, Valgarð Thoroddsen 5, Dag-
ur Sigurðsson 4, Skúli Gunn-
steinsson 4, Sveinn Sigfinnsson
2, Jón Kristjánsson 2, Sigfús Sig-
urðsson 1, Ingi Rafn Jónsson 1.
Varin skot: Guðmundur
Hrafnkelsson 11, Örvar Rúdólfs-
son 1.
Brottvísanir: KA 8 mín., Val-
ur 4 mín.
Dómarar: Stefán Arnaldsson
og Rögnvald Erlingsson.
Frammistaða þeirra var í heild
mjög góð.
Áhorfendur: Um 1500.
Maður leiksins: Julian
Duranona, KA. t